Conny skrifaði:
Feeling comfy
15.01.2022 - 10:56
Anna Cazorla skrifaði:
Sunny hood
14.01.2022 - 22:37
Birgitte Sciarretta skrifaði:
Heavenly Hoodie
14.01.2022 - 17:39
Elentari skrifaði:
Name suggestion: plush hoodie
14.01.2022 - 16:57
Micaela Olivetti skrifaði:
Fluffy
14.01.2022 - 14:20
Selavi skrifaði:
Spring Hoodie
14.01.2022 - 13:20
Mist Cover#mistcoverhoodie |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, í sléttprjóni með laskalínu, hettu og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-5 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 79 lykkjur), mínus lykkjur í garðaprjóni (t.d. 6 lykkjur) og deilið þeim 73 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 15) = 4,8. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman, lykkjum er ekki fækkað yfir lykkjur í garðaprjóni. ÚTAUKNING-1 (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hettu): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig þar til klaufin hefur verið gerð. Síðan er fram- og bakstykkið prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handvegi. Síðan eru ermarnar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið og berustykkið er prjónað í hring. Að lokum er hettan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 79-88-94-103-112-124 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff þannig: 3 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm. Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig: 3 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 73-82-88-97-106-118 lykkjur og fækkið jafnframt um 15-18-18-21-22-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni = 64-70-76-82-90-98 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, brugðnar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 15 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, geymið stykkið. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið lykkjur af framstykki og bakstykki á sama hringprjón = 128-140-152-164-180-196 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í skiptinguna á milli framstykkis og bakstykkis (= hliðar). Prjónið sléttprjón hringinn með 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið (þ.e.a.s. yfir 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á framstykki og bakstykki). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar 6 lykkjur í hvorri hlið, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 31 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handvegi í hvorri hlið (= 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 58-64-68-74-80-88 lykkjur fyrir framstykki og 58-64-68-74-80-88 lykkjur fyrir bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 48-48-48-51-51-54 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 hringinn í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-8-8-9-9-10 lykkjur jafnt yfir = 38-40-40-42-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 10-10-8-8-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 6½-4½-3½-3-3-2½ cm millibili alls 6-8-10-10-11-12 sinnum = 50-56-60-62-64-68 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 47-46-44-43-41-40 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari hálsmáls og lengra berustykkis). Fellið nú af miðju 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi, þ.e.a.s. 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki = 44-50-52-54-54-58 lykkjur. Geymið stykkið. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón 6 og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handvegi = 204-228-240-256-268-292 lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið. Í stærð S, M, L og XL eru prjónamerkin sett í 1-2-2-1 lykkju inn á hvorri ermi og í stærð XXL og XXXL eru prjónamerkin sett í skiptinguna á milli fram- og bakstykkis og erma. Þ.e.a.s. það eru 60-68-72-76-80-88 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki og bakstykki og það eru 42-46-48-52-54-58 lykkjur á milli prjónamerkja á hvorri ermi. Byrjið umferð mitt að aftan og prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í 1.-1.-1.-1.-2.-1. umferð byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 15-17-18-20-21-23 sinnum = 84-92-96-96-100-108 lykkjur. Stykkið á nú að mælast ca 19-21-23-25-27-29 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar var sett saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-24-26-24-24-30 lykkjur jafnt yfir = 64-68-70-72-76-78 lykkjur. HETTA: Prjónið með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) og hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-6-6-4-4-2 lykkjur jafnt yfir = 74-74-76-76-80-80 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan, þannig að það verða jafnmargar lykkjur á milli prjónamerkja. Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki mitt að framan (þetta er núna byrjun á umferð) – prjónið nú fram og til baka. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir 74-74-76-76-80-82 lykkjur, fitjið upp 5 lykkjur í lok umferðar = 79-79-81-81-85-85 lykkjur. Þessar 5 nýju lykkjur eru saumaðar síðar niður að innanverðu á stykki, þannig að þær skarist mitt að framan. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, prjónið brugðnar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið nú fram og til baka í sléttprjóni og 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt að aftan – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 5 sinnum = 89-89-91-91-95-95 lykkjur. Prjónið áfram þar til hettan mælist ca 37-37-38-38-39-39 cm – eða að óskaðri lengd. Fellið af. Brjótið hettuna tvöfalda mitt að aftan og saumið hana saman í toppnum. Leggið þær 5 lykkjur sem fitjaðar voru upp í byrjun á húfunni að innanverðu á stykki þannig að þær skarist við 5 lykkjur mitt að framan. Saumið með smáu spori. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistcoverhoodie eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.