DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10890.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Soft Journey Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með klauf í hliðum og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-10
DROPS Design: Mynstur ab-129
Garnflokkur C + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 0100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-125-125-150 g litur 01, natur

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 3 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60-60-60-80-80-80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10890.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 93 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 91 lykkju sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 23) = 3,9.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið fjórðu og fimmtu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 8, 18 og 28 cm
M: 9, 19 og 29 cm
L: 9, 19½ og 30 cm
XL: 9, 20 og 31 cm
XXL: 10, 21 og 32 cm
XXXL: 10, 21½ og 33 cm

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig.
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Öll stykkin eru prjónuð neðan frá og upp.
Frágangur á peysunni er útskýrður í uppskrift.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 93-102-108-120-129-144 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 13 cm.
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 22-25-25-29-31-36 lykkjur jafnt yfir = 71-77-83-91-98-108 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok næstu 2 umferða (= kantlykkjur) = 73-79-85-93-100-110 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-3-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-1-2-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-2-2 sinnum = 67-69-73-75-78-80 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, prjónið mynstur þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 16-17-19-20-20-21 lykkjur, Prjónið síðustu lykkju í A.1, A.1 yfir næstu 30-30-30-30-33-33 lykkjur, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1, sléttprjón yfir næstu 16-17-19-20-20-21 lykkjur, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 15-15-15-15-18-18 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 26-27-29-30-30-31 lykkjur.
Haldið áfram með 9 lykkjur mynstur við háls, 1 kantlykkju garðaprjón við hlið og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 51-57-60-66-69-75 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 13 cm. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig:
Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, prjónið sléttprjón yfir næstu 42-48-51-57-60-66 lykkjur, jafnframt er fækkað um 11-14-14-16-16-17 lykkjur jafnt yfir, fitjið upp 1 nýja lykkju í umferð (= kantlykkja) = 41-44-47-51-54-59 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka í mynstri.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Haldið áfram fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón að hlið, 9 lykkjur í mynstri eins og áður við miðju að framan (= kantur að framan) og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú á að prjóna mynstur eins og áður, jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli og handvegi. Lestu því allan þennan kafla áður en þú prjónar áfram.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli frá réttu þannig:
Prjónið fyrstu 9 lykkjur í mynstri eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni, í annarri hverri umferð 8-7-7-7-7-6 sinnum og í 4. hverri umferð 3-4-4-4-5-6 sinnum = 12-12-12-12-13-13 lykkjur færri fyrir v-hálsmáli.
HANDVEGUR:
Fækkið lykkjum fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki. Þ.e.a.s. fellt er af þannig: Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 2-3-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-1-2-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-2-2 sinnum = 3-5-6-9-11-15 lykkjur felldar af fyrir handveg.
Þegar öll úrtaka / affelling fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka eru 26-27-29-30-30-31 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 51-57-60-66-69-75 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 13 cm.
Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir næstu 42-48-51-57-60-66 lykkjur, jafnframt er fækkað um 11-14-14-16-16-17 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 9 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka í mynstri og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 41-44-47-51-54-59 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Haldið áfram fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið, 9 lykkjur í mynstri eins og áður við miðju að framan (= kantur að framan) og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli frá réttu þannig:
Prjónið þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið út umferð eins og áður. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni, í annarri hverri umferð 8-7-7-7-7-6 sinnum og í 4. hverri umferð 3-4-4-4-5-6 sinnum = 12-12-12-12-13-13 lykkjur færri fyrir v-hálsmáli.
HANDVEGUR:
Fækkið lykkjum fyrir handveg alveg eins og á bakstykki. Þ.e.a.s. fellt er af þannig: Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2-3-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-1-2-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-2-2 sinnum = 3-5-6-9-11-15 lykkjur felldar af fyrir handveg.
Þegar allar úrtökur/affellingar fyrir v-hálsmáli og handveg hafa verið gerðar til loka eru 26-27-29-30-30-31 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af.

ERMI:
Fitjið upp 54-57-60-66-69-72 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroffið í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 12-13-13-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 42-44-47-50-53-56 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 7 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á ermi – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 12-12-11-10-10-9 cm = 46-48-51-54-57-60 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-19-16-16-16-12 cm. Aukið nú út alveg eins í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 54-56-61-64-69-72 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 28-28-26-26-26-23 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið nú sléttprjón, jafnframt eru lykkjur felldar af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-3-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni, 3-2-2-2-2-2 lykkjur 3-4-5-6-6-8 sinnum og 6-7-6-4-6-3 lykkjur 1 sinni = 20-20-21-22-23-24 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 34-35-34-35-35-35 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkant á ermakúpu. Saumið sauminn undir ermum og síðan niður yfir hliðarsauma innan við 1 kantlykkju niður þar sem stroffið byrjar.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Radha Korsoski wrote:

Hej. Jag ska sticka i strl L och har lagt upp 108 maskor. Det ska nu stickas en rätmaska, a1 till det återstår 2 maskor. Det betyder att det blir en vriden maska, en avig maska, en vriden maska och en rätmaska. Dvs en mindre avig maska på\r\nSlutet än i resterande mönster a1. Ska det vara så? Hälsningar Radha

29.01.2024 - 22:10

country flag Maria wrote:

Desideravo capire qual'è l'ultima maglia del punto fantasia A1 e le prime due maglie sempre del punto fantasia A1. Qual'è il verso del lavoro per intenderci.

23.01.2024 - 20:59

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria, i diagrammi si leggono dal basso verso l'alto, da destra verso sinistra nei ferri di andata e da sinistra verso destra in quelli di ritorno, nel caso di lavoro in piano. Buon lavoro!

24.01.2024 - 16:44

country flag Annamaria wrote:

Chiedo ancora. Sostituendo DROPS Alpaca Bouclè utilizzando 2 fili di DROPS Alpaca, dovrò acquistare il doppio del filato? 600 g. di Alpaca al posto di 300 g di Alpaca bouclé?

10.01.2024 - 12:58

DROPS Design answered:

Buonasera Annamaria, no, deve fare il conto sul metraggio. Se lavora con 300g di Alpaca Bouclè ad un filo, le serviranno circa 840 m di filo (140 m x 6 gomitoli). Lavorando con 2 capi di Alpaca le serviranno poco più di 10 gomitoli di Alpaca (1680 m / 167 m). Buon lavoro!

10.01.2024 - 16:44

country flag Annamaria Evangelisti wrote:

Posso sostituire il filato di alpaca bouclé con Alpaca? Quali variazioni devo fare? Grazie per l' aiuto

08.01.2024 - 11:28

DROPS Design answered:

Buonasera Annamaria, può sostituire DROPS Alpaca Bouclè utilizzando 2 fili di DROPS Alpaca e controllando che il campione corrisponda a quello indicato. Buon lavoro!

09.01.2024 - 20:06

country flag Henrietta wrote:

In der Anleitung zu V-Ausschnitt, nach dem Abnehmen einer 1. Masche, ist dann angegeben "In dieser Weise in jeder 4. Reihe 1 x abnehmen, dann in jeder 2. Reihe 8-7-7-7-7-6 x und "...usw. Meine Frage: Wie oft soll in jeder 4. Reihe 1 x abgenommen werden? Oder soll nach dem 1 x abnehmen nach der 4. Reise mit dem Abnehmen in jeder 2. Reihe begonnen werden? Danke

04.12.2022 - 16:16

DROPS Design answered:

Liebe Henrietta, nach der 1. Abnahme stricken Sie 3 Reihen, und dann nehmen Sie bei der nächste Reihe und in jede 2. Reihe. Viel Spaß beim stricken!

06.12.2022 - 10:06

country flag Belinda wrote:

Vedr indtagning til v-hals. Der står man tager ind fra retsiden 1. Pind og så dernæst på 4. Og 2. Pind, men der er jo vrang. Vil det sige at der skal lukkes af på vrangsiden?

27.10.2022 - 00:22

DROPS Design answered:

Hej Belinda, når du tager ind på hver 4.pind, så tager du ind på 1.- 5.-9.-13. og så videre. Og når du tager ind på hver 2.pind og starter med 1. så bliver det på 3.-5.-7.- osv

27.10.2022 - 10:39

country flag Ebba wrote:

Hej! Jag har lite svårt att visualisera hur ryggsidans övre del ska se ut. Speciellt runt halsen med A.1 mönster. Finns det möjligtvis bild på baksidan? Tacksam för svar!

30.07.2022 - 22:05

DROPS Design answered:

Hej Ebba, halsen bag i nakken strikkes i rib ifølge A.1 :)

05.08.2022 - 08:29

country flag Ruythooren Anne wrote:

Ben het achterpand aan het breien, maat large. Als het werk 51 cm meet, moet ik een rij breien volgens een patroon die ik niet echt begrijp. Er wordt gezegd dat je 19 steken in tricotst moet breien waarvan de laatste steek in A1,dan A1 over de volgende 30 steken, waarvan de eerste 2 ook in A1, dan terug tricotsteken over de volgende 19, maar dat komt toch niet symetrisch uit met de eerste 19 omdat daar al 1 steek in A1 moet? Kan u mij dat wat duidelijker uitleggen?zal wel aan mij liggen hoor.

07.04.2022 - 10:22

DROPS Design answered:

Dag Anne,

Het staat er inderdaad wat verwarrend wat je moet doen. Je stekenverdeling is als volgt: 1-19-1-30-2-19-1. De twee buitenste zijn de kantsteken. De beide keren dat je 19 steken breit en de 30 steken brei je in A.1. De 2 steken zijn de eerste 2 steken van het telpatroon A.1. De 1 steek (na de 19 steken) brei je in de laatste steek van A.1 (dus averecht aan de goede kant en recht aan de verkeerde kant.)

20.04.2022 - 10:12

country flag Janka wrote:

Czy włóczka Alpaca Boucle o kolorze ecru nr 0100 będzie jeszcze dostępna? W żadnym ze sklepów jej nie ma, zresztą nie tylko tego koloru. Pisałam to pytanie w dziale włóczek ale się nie ukazało.

06.04.2022 - 16:19

DROPS Design answered:

Witaj Janko, włóczka jest dostępna, więc sklepy mogą ją zamawiać. Mamy w Polsce ok. 40 sklepów DROPS, ich listę znajdziesz TUTAJ. Poszukaj tam, a jak nie znajdziesz, napisz do któregoś sklepu i poproś o zamówienie dla Ciebie tej właśnie włóczki w tym konkretnym kolorze. Pozdrawiamy!

07.04.2022 - 09:10

country flag Anne Ruythooren wrote:

Ben het achterpand aan het breien, maat large. Als het werk 51 cm meet, moet ik een rij breien volgens een patroon die ik niet echt begrijp. Er wordt gezegd dat je 19 steken in tricotst moet breien waarvan de laatste steek in A1,dan A1 over de volgende 30 steken, waarvan de eerste 2 ook in A1, dan terug tricotsteken over de volgende 19, maar dat komt toch niet symetrisch uit met de eerste 19 omdat daar al 1 steek in A1 moet? Kan u mij dat wat duidelijker uitleggen?zal wel aan mij liggen hoor.

04.04.2022 - 13:05

DROPS Design answered:

Dag Anne,

Je breit als volgt over de 73 steken: 1 kantsteek, 19 steken in tricotstee, 1 steek in A.1 (de laatste), A.1 over de volgende 30 steken, 2 steken van A.1 (de eerste 2), tricotsteek over de volgende 19 steken, 1 kantsteek. Het is dus niet zo dat je de laatste steek van de 19 steken in A.1 breit, maar je breit eerst 19 tricotsteken en dan brei je de laatste steek van A.1. Dit geldt ook op het eind van de naald: daar brei je de eerste 2 steken van A.1 en daarna nog de 19 tricotsteken.

08.04.2022 - 00:16