Ulla Nieminen skrifaði:
En ymmärrä, miksi helman lähestyessä pitää lisätä silmukoita. Tein niin ja tuloksena oli teltta. Piti purkaa ja neuloa uudestaan ilman lisäyksiä. Ja jos olisin aloittanut helmaresorin ohjeen mukaan, olisi tullut napapaita.
21.02.2022 - 12:40
Karen Rynenberg skrifaði:
Would love to knit this but trying to work out the yarn required. My maths says 2 lots of 2 ply yarn = 4 which is fingering or sport at most. But here it says group c. Happy with fingering and sports just a little afraid the amounts of yarn required is not correct. 250 grams will be enough for a medium knit?
18.02.2022 - 08:49DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Rynenberg, use our yarn converter to see all possible alternatives with 2 strands yarn group A or 1 strand yarn group C - and always make first a swatch to take your tension - read more here; for any further individual assistance choosing the best matching yarn, please contact your DROPS store, even per E-Mail.
18.02.2022 - 14:14
TP skrifaði:
Stricke ich die Maschenprobe mit einer Nadel 3,5 oder 5?
11.02.2022 - 09:08DROPS Design svaraði:
Liebe TP, Maschenprobe stricken Sie mit den grösseren Nadeln, bzw Nadel Nr 5 (und 2 Fäden Kid-Silk). Viel Spaß beim stricken!
11.02.2022 - 11:14
SoesMalla skrifaði:
Der står ikke om strikkefastheden skal være med p 3,5 eller 5 - hvilken er det? (:
05.02.2022 - 16:35DROPS Design svaraði:
Hej, for at få 17 masker på 10 cm i glatstrik med 2 tråde Kid-Silk skal du bruge pind nr 5, hvis du får for mange masker på 10 cm så prøv med ½ nummer tykkere pind. God fornøjelse!
07.02.2022 - 10:07
Chris skrifaði:
Marron glacé
01.02.2022 - 17:45
Mette skrifaði:
Mocca Moon
19.01.2022 - 22:13
Ineke skrifaði:
Cold brew
18.01.2022 - 14:25
AJ skrifaði:
Lovely Tee
17.01.2022 - 19:44
Anette skrifaði:
Summer vibes
17.01.2022 - 13:40
Drahomíra Rezlerová skrifaði:
Mléčná čokoláda
16.01.2022 - 16:42
Nougat Dreams#nougatdreamssweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið er út um 2 lykkjur við hverja laskalínu þannig: Prjónið fram að laskalínu, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hverja laskalínu (= 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN LASKALÍNU: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn verður snúinn, prjónið slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Á EFTIR LASKALÍNU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á hringprjón 3,5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff svona í 4 cm. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Nú er aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingunum, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið = 132-138-144-150-156-162 lykkjur. Haldið áfram með stroff (1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm (alls 7 cm stroff). Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Prjónið þannig – frá ca mitt að aftan: 21-24-27-30-33-36 lykkjur sléttprjón og fellið af 3 lykkjur (ca hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 23 lykkjur sléttprjón og fellið af 3 lykkjur (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (lakskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 41-44-47-50-53-56 lykkjur sléttprjón og fellið af 3 lykkjur (framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (laskalína) sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 23 lykkjur sléttprjón og fellið af 3 lykkjur (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 20 lykkjur sléttprjón (ca hálft bakstykki)= 128-134-140-146-152-158 lykkjur. Fyrstu útaukningu fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Haldið áfram í sléttprjóni og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið út í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 14-16-19-20-24-26 sinnum hvoru megin við laskalínu – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 232-254-284-298-336-358 lykkjur í umferð. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 33-38-44-48-55-60 lykkjur slétt (ca hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-58-60-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 68-75-84-89-100-107 lykkjur slétt (framstykki), setjið næstu 48-52-58-60-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 35-37-40-41-45-47 lykkjur sem eftir eru slétt (ca hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-162-180-194-216-234 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 21 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm til loka máls. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-32-36-38-44-46 lykkjur jafnt yfir = 176-194-216-232-260-280 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroff svona í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-58-60-68-72 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 54-58-64-68-76-82 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 10-5-2-2-1½-1 cm millibili alls 2-3-4-5-7-8 sinnum = 50-52-56-58-62-66 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-17-16-16-15-15 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir = 58-60-64-66-70-74 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist alls 23-23-22-22-21-21 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nougatdreamssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.