DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Chamomile Tea Cardi

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með v-hálsmáli, stuttum puffermum og picotkanti. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-21
DROPS Design: Mynstur bs-170
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-450 g litur 2110, ljós gulur.

DROPS TALA NR 600: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um v-hálsmál):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

PICOT:
Prjónið 1 lykkju snúið slétt, * stingið inn hægri prjóni á milli 2 fyrstu lykkja á vinstra prjóni (þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum (= 2 nýjar lykkjur á vinstri prjóni), prjónið sléttar lykkjur og fellið jafnframt af 5 lykkjur (= 1. lykkja á hægri prjóni + 2 uppslættir + 2 lykkjur).
Haldið áfram að prjóna frá *-* og fellið af 5 lykkjur alveg eins meðfram allri affellingunni þar til nægilega margar lykkjur eru eftir til að gera nýjan picot. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, klippið þráðinn frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður, hvert fyrir sig þar til handvegurinn hefur verið prjónaður til loka. Síðan er fram- og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Afgangur af ermi er prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.
Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum eru prjónaðir kantar að framan.

BAKSTYKKI:
Byrjið með hægri öxl. Síðan vinstri öxl áður en lykkjur eru settar saman og bakstykkið er prjónað.

HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 24-25-26-27-27-28 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS BabyAlpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 2 cm, fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu (að hálsi) þannig: fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum og 2 lykkjur 1 sinni = 28-29-30-31-31-32 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá röngu eru fitjaðar upp 30-30-32-32-36-36 nýjar lykkjur (mitt aftan í hnakka) = 58-59-62-63-67-68 lykkjur. Klippið þráðinn, geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan.

VINSTRI ÖXL (þegar stykkið er mátað):
Fitjið upp 24-25-26-27-27-28 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS BabyAlpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 2 cm, fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu (að hálsi) þannig: fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum og 2 lykkjur 1 sinni = 28-29-30-31-31-32 lykkjur.
Prjónið til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu. Setjið nú vinstri og hægri öxl saman fyrir bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Byrjið frá réttu, prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá vinstri öxl og prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá hægri öxl = 86-88-92-94-98-100 lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 11-9-8-8-12-10 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, aukið út fyrir handvegi í hvorri hlið eins og útskýrt er að neðan.
Setjið 1 prjónamerki innan við 4 ystu lykkjur í hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eiga alltaf að sitja innan við 4 ystu lykkjurnar í hvorri hlið.
Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3 lykkjur sléttprjón, A.1, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið A.2, 3 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út alveg eins og útskýrt er í mynsturteikningu þar til auknar hafa verið út alls 5-8-9-9-14-17 lykkjur í hvorri hlið = 96-104-110-112-126-134 lykkjur.
Á eftir síðustu útaukningu eru prjónaðar 3-3-3-3-1-1 umferðir sléttprjón án útaukningar. Prjónið síðan sléttprjón JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 1-1-1-3-3-4 sinnum og síðan 3-4-5-6-7-8 lykkjur 1 sinni = 106-116-124-136-152-166 lykkjur. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Klippið þráðinn, geymið stykkið og prjónið framstykki eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 24-25-26-27-27-28 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Aukið síðan út fyrir v-hálsmáli og handvegi. Þetta er gert samtímis. Lestu því kaflann V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram!

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 8-10-10-11-10-11 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í lok umferðar við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 4. hverri umferð (önnur hver umferð frá réttu) alls 9-9-9-9-10-10 sinnum, síðan í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 11-11-12-12-13-13 sinnum.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-9-8-8-12-10 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út fyrir handvegi í hlið alveg eins og á bakstykki.
Þ.e.a.s. setjið 1 prjónamerki innan við 4 fyrstu lykkjur í umferð frá réttu. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3 lykkjur sléttprjón, A.1, prjónið eins og áður út umferðina.
Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út alveg eins þar til auknar hafa verið út alls 5-8-9-9-14-17 lykkjur í hlið við handveg.
Á eftir síðustu útaukningu eru prjónaðar 3-3-3-3-1-1 umferðir sléttprjón án útaukninga. Prjónið síðan sléttprjón JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 1-1-1-3-3-4 sinnum og síðan 3-4-5-6-7-8 lykkjur 1 sinni. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti. Klippið þráðinn, geymið stykkið (útaukning fyrir v-hálsmáli hefur nú verð gerð til loka) og prjónið vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað):
Fitjið upp 24-25-26-27-27-28 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Aukið síðan út fyrir v-hálsmáli og handvegi. Þetta er gert samtímis. Lestu því kaflann V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram!

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 8-10-10-11-10-11 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, aukið út um 1 lykkju í byrjun umferðar við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 4. hverri umferð (önnur hver umferð frá réttu) alls 9-9-9-9-10-10 sinnum, síðan í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 11-11-12-12-13-13 sinnum.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-9-8-8-12-10 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, aukið út fyrir handvegi í hlið á sama hátt og á bakstykki.
Þ.e.a.s. setjið 1 prjónamerki innan við 4 síðustu lykkjur í umferð frá réttu. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið A.2, 3 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út alveg eins þar til auknar hafa verið út alls 5-8-9-9-14-17 lykkjur í hlið við handveg.
Á eftir síðustu útaukningu eru prjónaðar 3-3-3-3-1-1 umferðir sléttprjón án útaukninga. Prjónið síðan sléttprjón JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 1-1-1-3-3-4 sinnum og síðan 3-4-5-6-7-8 lykkjur 1 sinni. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti. Nú eru stykkin sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið eftir lykkjum frá vinstra framstykki á hringprjón 3, prjónið sléttar lykkjur yfir 106-116-124-136-152-166 lykkjur frá bakstykki og prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá hægra framstykki.
Takið frá prjónamerkin frá handvegi. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki (á milli framstykkis og bakstykkis – það eru 106-116-124-136-152-166 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Lykkjufjöldinn á framstykkjum er ekki óráðinn þar sem áfram er aukið út fyrir v-hálsmáli). Stykkið er nú mælt frá þar sem prjónamerkin voru sett í .
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.

Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-7-7 cm frá prjónamerki, setjið 4 prjónamerki í stykkið. Látið þessi prjónamerki fylgja með í stykkinu, þessi prjónamerki eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir aðstnið.
Teljið 30-34-37-42-48-54 lykkjur út hvoru megin við 2 prjónamerki sem voru sett í hliðar á fram- og bakstykki og setjið 1 prjónamerki hvoru megin við þessar 60-68-74-84-96-108 lykkjur (= 4 prjónamerki). Það eru 46-48-50-52-56-58 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki.
Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á undan fyrsta prjónamerki, prjónið A.4, prjónið sléttprjón fram að næsta prjónamerki, prjónið A.3, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið A.4, prjónið sléttprjón fram að síðasta prjónamerki, prjónið A.3, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til A.3 og A.4 hefur verið prjónað 2½ sinnum á hæðina (nú hafa lykkjur verið fækkaðar 5 sinnum á hæðina og fléttaðar saman 10 sinnum á hæðina).

Eftir alla úrtöku og aðsnið og útaukningar fyrir v-hálsmáli eru 194-214-230-254-286-314 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem prjónamerkin voru sett.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 59-65-69-77-85-95 lykkjur jafnt yfir = 253-279-299-331-371-409 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúinn brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af með PICOT – sjá útskýringu að ofan.
Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl.

ERMI:
Fitjið upp 30-32-34-36-38-40 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 lykkjur sléttprjón, prjónið 1 lykkju framan og aftan í hverja af næstu 20-22-24-26-28-30 lykkjur (= 20-22-24-26-28-30 lykkjur fleiri), 5 lykkjur sléttprjón = 50-54-58-62-66-70 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýjar lykkjur í handvegi í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3-3-3-4-4-4 sinnum, 1 lykkja 5-7-9-9-10-14 sinnum, 2 lykkjur 4-4-4-4-5-4 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 100-108-116-124-134-142 lykkjur.
Setjið stykkið saman. Setjið 1 prjónamerki þar sem stykkið er sett saman (mitt undir ermi) og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem stykkið var sett saman, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 4-4-3-3-2½-2½ cm millibili alls 4 sinnum.

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-8-7-7-6-5 cm frá þar sem stykkið var sett saman, fækkið um 20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir í umferð (þetta er gert samtímis sem útaukning heldur áfram mitt undir ermi).
Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 88-94-100-106-114-120 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16-16-15-15-14-12 cm frá þar sem prjónamerki var sett.
Í næstu umferð er fækkað um 22-24-28-32-36-40 lykkjur jafnt yfir = 66-70-72-74-78-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm.
Fellið af með PICOT – munið eftir útskýringu að ofan.
Ermin mælist ca 31-32-32-33-33-33 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR-1:
Saumið axlasauma.
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju á framstykki/bakstykki – skiptið e.t.v. auka efni fallega efst á ermakúpu. Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka – prjónamerkið er notað þegar kantar að framan eru prjónaðir.

KANTAR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki, notið hringprjón 2,5 og prjónið upp ca 168-174-182-188-196-202 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram öllu framstykkinu að prjónamerki mitt aftan í hnakka. Prjónið síðan upp ca 167-173-181-187-195-201 lykkju meðfram hálsmáli og niður meðfram vinstra framstykki – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1.
Prjónið stroff þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

Eftir 2 fyrstu umferðir, setjið 1 prjónamerki í «hak» neðst í v-hálsmáli á báðum framstykkjum – prjónamerkin eru sett í snúna slétta lykkju (séð frá réttu).
Endurtakið umferð 1 og 2 eins og útskýrt er að ofan. Að auki er nú aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í hverri umferð frá réttu að loknu máli (aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn – útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar, svo ekki myndist gat og lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff).
Þegar kantur að framan mælist ca 1½ cm, fellið af fyrir 4 hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = sláið 1 sinni uppá prjóninn frá réttu og prjónið uppsláttinn slétt saman með 1 lykkju slétt frá röngu.
Efsta hnappagatið á að sitja beint fyrir neðan lykkju með prjónamerki í «hak» neðst í v-hálsmáli og neðsta hnappagatið á að sitja 6 cm frá neðri kanti. Hin 2 hnappagötin skiptast jafnt yfir á milli þessa 2 hnappagata.
Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 3 cm. Fellið aðeins laust af.

FRÁGANGUR-2:
Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni

symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni, takið upp þráðinn framan við næstu lykkju (þráðurinn á milli ystu lykkju á hægri og vinstri prjóni) setjið þráðinn á vinstra prjón, þannig að lykkjan snúi til vinstri þegar prjónað er í aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri)
symbols = takið upp þráðinn framan við næstu lykkju (þráðurinn á milli ystu lykkju á hægri og vinstri prjóni) setjið þráðinn á vinstra prjón, þannig að lykkjan snúi til hægri þegar prjónað er í fremri lykkjubogann, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni (= 1 lykkja fleiri)

symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið fyrstu lykkju af kaðlaprjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju á kaðlaprjóni slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri)
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni (= 1 lykkja færri)
symbols = prjónamerki situr hér
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Neysa Azzahra wrote:

Hi, when casting on new stitches at both sides of the piece in the back piece, did I do it when I work on the knitting rows only? Or do I have to cast on when I'm doing the purl rows too? Thanks.

20.01.2023 - 04:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Azzahra, when working the right shoulder, back piece you cast on the new stitches at the end of the rows from wrong side (for neck, only one one side) and when working the left shoulder, back piece you will cast on the new stitches at the end of the rows from right side only (for neck, only on one side). Happy knitting!

20.01.2023 - 08:36

country flag Clemens wrote:

Hallo gibt es dieses Drop desinge auch in Koreanischer Sprache?

06.11.2022 - 12:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Clemens, leider noch nicht - es sind doch viele anderen Sprachen erhältlich: klicken Sie auf dem drop-down Menu unter dem Foto. Viel Spaß beim stricken!

07.11.2022 - 09:10

country flag Neysa Ahmadina Azzahra wrote:

On the diagram there is an instruction that says: "pick up yarn from the front before next stitch (yarn between outermost stitch on right and left needle) and put it on left needle, knit 1 into back loop so that the stitch will lean towards the left" Is that the same as 'make 1' or M1 in knitting? Thanks.

15.07.2022 - 03:05

DROPS Design answered:

Hi Neysa, Yes it is the same as Make 1 left (M1l). Happy knitting!

15.07.2022 - 06:51

country flag Neysa Azzahra wrote:

I have a question about the back piece. Lets say I am making this in size M. I want to make sure, is the increase for the armhole start 9 cms after the very first cast on of the shoulders (the 1 cast on), or after the last cast on I made (the 2 cast ons)? I hope my question make sense. Thank you so much!

13.07.2022 - 16:41

DROPS Design answered:

Hi Neysa Azzahra, you measure from cast-on edge (on shoulder), I mean from the beggining of your work. Happy knitting!

14.07.2022 - 08:38

country flag Ingrid Ehret wrote:

Danbke für die schnelle antwort. DAs heißt der Umschlag wird auf der linken seite verschränkt gestrickt, damit kein Loch entsteht. Habe ich das richtig verstanden. Ich warte immer noch auf eine nerue Anleitung die noch nicht erschienen ist, nämlich auch ein westchen aus safran mit Lochmuster.d Wann wird dies erscheinen

23.05.2022 - 16:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ehret, es wird hier keinen Umschlag gestrickt (doch 1 Zunahme), nun genau wie bei dem 4. und 5. Zeichen gestrickt. Wenn dieses Modell bei der Abstimmung gewählt wurde, dann wird es bald veröffentlicht. Viel Spaß beim stricken!

24.05.2022 - 08:36

country flag Ingrid Ehret wrote:

Liebes Drops team, wollte die Jacke stricken, habe jedoch festgestellt, dass im Diagramm andere Zeichen zum bearbeiten angegeben, als in der Zeichnung des Strickmusters. Bitte um Kontrolle und baldige Nachricht, da ich mich mitten im stricken befinde. Vielen Dank im voraus.

23.05.2022 - 13:33

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ehret, danke für den Hinweis, also 4. und 5. Zeichen lesen Sie wie mit dem Umschlag wie bei A.1 und A.2, es wird so bald wie möglich korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

23.05.2022 - 16:27

country flag Rocio Garcia Castro wrote:

Me encanta este patrón y antes de hacerlo lo he leído entero. En la explicación del hombro derecho en el segundo párrafo indica "cuando la pieza mida 21 cm...". Esto es correcto? En el hombro izquierdo indica cuando la pieza mida 2 cm.

14.05.2022 - 20:45

DROPS Design answered:

Hola Rocío, puedes ver la respuesta debajo.

15.05.2022 - 23:32

country flag Rocío wrote:

Me encanta este patrón y antes de hacerlo lo he leído entero. En la explicación del hombro derecho en el segundo párrafo indica "cuando la pieza mida 21 cm...". Esto es correcto? En el hombro izquierdo indica cuando la pieza mida 2 cm.

13.05.2022 - 08:27

DROPS Design answered:

Hola Rocío, se trata de una errata, es cuando la labor mida 2 cm. Trataremos de corregirla lo antes posible.

15.05.2022 - 23:02

country flag Helena Mjöberg wrote:

Picknick time

15.01.2022 - 08:50

country flag AD Knits wrote:

Stella

14.01.2022 - 20:07