Renate skrifaði:
Er det riktig at det skal byttes pinnestørrelse ca midtveis i vrangborden på bolen? Først 8 cm på p 9, så 7 cm på p 7? Altså tor 15 cm vrangbord, men på to ulike pinnerykkelser? Hva er i så fall grunnen? Har aldri opplevd at pinnerykkelse byttes underveis i vrangbord før, og blir derfor veldig usikker.
10.09.2024 - 11:59DROPS Design svaraði:
Hej Renate, det er de 3 kantmasker i hver side du strikker: kantm, 1rett,1vrang - alle de andre masker fortsættes i ret (glatstrik) til arbejdet måler 8 cm :)
12.09.2024 - 15:19
Hausmann skrifaði:
Comment puis-je réaliser ce modèle si je n'utilise pas des aiguilles circulaires mais des aiguilles droites ?
19.04.2024 - 14:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Hausmann, vous pouvez et cette leçon vous donnera quelques pistes, même s'il est parfois plus simple de suivre les indications. N'hésitez pas à essayer les aiguilles circulaires à l'aide de nos vidéos, nombreuses sont celles qui ont fini par les dompter. Bon tricot!
19.04.2024 - 14:59
Jutta skrifaði:
Danke !
19.10.2023 - 07:55
Jutta skrifaði:
Unter Halsblende:>>1 Runde rechts stricken und dabei die Maschenzahl so anpassen, dass 44-48-48-52-52-56 Maschen vorhanden sind >– d.h. 0-2-0-2-0-0 (???????) Maschen gleichmäßig verteilt in der Runde zunehmen – ZUNAHMETIPP-1 lesen
16.10.2023 - 14:54DROPS Design svaraði:
Liebe Jutta, Sie werden 2 Maschen nur in die 2. und in die 4. Größe, in die anderen Größen stricken Sie 1 Runde rechts ohne Zunahmen. Viel Spaß beim stricken!
16.10.2023 - 16:41
Jenny skrifaði:
Wird die Maschenprobe mit Nadelstärke 9 oder 7 gemacht?
20.02.2023 - 17:27DROPS Design svaraði:
Liebe Jenny, Maschenprobe stricken Sie mit Nadeln Nr 9. Viel Spaß beim stricken!
21.02.2023 - 09:59
Sophie skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas très bien la répartition des marqueurs: pour une taille L, le nombre total de mailles est de 54 (après augmentation de deux mailles). Cependant, en faisant la somme des mailles au niveau des marqueurs, cela fait 48. Il reste donc 6 mailles en suspens que je n'arrive pas à placer (8 + 8 + 16 + 8 + 8). Qu'est-ce que je fais des 6 mailles restantes ? Dois-je réajuster les marqueurs? Merci pour votre retour.
30.01.2023 - 08:40DROPS Design svaraði:
Bonjour Sophie, en taille L on monte 50 m puis on augmente 2 m après les côtes = 52 m (et non 54), ensuite, vous devez placer 1 marqueur dans chacune des mailles du raglan soit: 8 +1+8+1+16+1+8+1+8= 52 m. Bon tricot!
30.01.2023 - 09:46
Karen Dørig skrifaði:
Hvilket Drops garn kan jeg udskifte med, da jeg ikke tåler Drops Andes/uld. Helst bomuld eller bomulds blanding.
11.01.2023 - 18:00DROPS Design svaraði:
Hej Karen, da kan du skifte ud med 2 tråde DROPS Paris, hvis du prøver garnomregneren så er det samme garnforbrug som i DROPS Nepal :)
12.01.2023 - 15:19
Nic skrifaði:
DROPS Design answered: Lieber Nic, es wird zuerst über diese 50 Maschen im Bündchen 1 Masche rechts, 1 Masche links gestrickt, dann erst 2 Maschen zugenommen (vor der Passe). Viel Spaß beim stricken! 09.01.2023 kl. 08:41 Wie das gemacht wird weiß ich, die Frage war "warum". Und warum nicht gleich 52M. Was macht den Unterschied dazu, nicht gleich 52M anzuschlagen?
10.01.2023 - 06:20DROPS Design svaraði:
Lieber Nic, so wird es gemacht um die genaue Maßen, wie bei der Maßskizze, zu bekommen. Viel Spaß beim stricken!
10.01.2023 - 09:28
Nic skrifaði:
Wenn ich 50M anschlage, warum ist es nötig, 2M mehr zuzunehmen? Warum nehme ich nicht gleich 52M auf bzw. was machen die 2M für einen Unterschied?
06.01.2023 - 18:58DROPS Design svaraði:
Lieber Nic, es wird zuerst über diese 50 Maschen im Bündchen 1 Masche rechts, 1 Masche links gestrickt, dann erst 2 Maschen zugenommen (vor der Passe). Viel Spaß beim stricken!
09.01.2023 - 08:41
Deb H skrifaði:
Are the yarn quantities correct for this pattern? The cost to knit doesn't reflect the amount of yarn required...
05.05.2022 - 12:02DROPS Design svaraði:
Dear Deb, the quantity is correct, as it is similar to the one required for other sweaters in the same yarn. The cost to knit may not always be correct, since shops may have their own deals or there may be season deals in DROPS. It would be better to not take into account this value and calculate it by checking the prices in your usual store. Happy knitting!
05.05.2022 - 22:06
Water Point Sweater#waterpointsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Andes. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 226-43 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 46 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 23. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 23. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón niður að klauf, síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 44-46-48-50-52-56 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Andes. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Prjónið 1 umferð þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 44-48-48-52-52-56 lykkjur – þ.e.a.s. aukið er út um 0-2-0-2-0-0 lykkjur jafnt yfir í umferð – sjá ÚTAUKNING-1. Skiptið yfir á hringprjón 9. Setjið 1 prjónamerki eftir stoff mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar. Prjónamerki er sett í lykkju í skiptinguna á milli fram- og bakstykkis og erma: Hoppið yfir fyrstu 6-7-7-8-8-9 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 8 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 12-14-14-16-16-18 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 8 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 6-7-7-8-8-9 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Nú er prjónað sléttprjón hringinn, jafnframt í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-15-17-18-19-21 sinnum = 164-168-184-196-204-224 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram þar til stykkið mælist 23-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki eftir stroff. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 21-22-24-26-27-30 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 40-40-44-46-48-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 42-44-48-52-54-60 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 40-40-44-46-48-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 21-22-24-26-27-30 lykkjur (= ½ bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 92-100-108-116-124-136 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum (= 2-3-3-3-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 15 cm = 100-108-116-124-132-144 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 20-22-22-22-22-22 cm frá skiptingu. Nú er prjónuð ein umferð slétt þar sem fækkað er um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki þannig: Prjónið fyrstu 24-26-28-30-32-35 lykkjur (= ½ bakstykki), fellið af næstu (= klauf í hlið), prjónið næstu 49-53-57-61-65-71 lykkjur (= framstykki), felið af næstu lykkju (= klauf í hlið), prjónið síðustu 25-27-29-31-33-36 lykkjur (= ½ bakstykki). Nú eru 49-53-57-61-65-71 lykkjur á bakstykki og 49-53-57-61-65-71 lykkjur á framstykki. Klippið þráðinn. Nú er prjónað fram og til baka yfir bakstykki og framstykki hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: Byrjið frá hlið og prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8 cm frá þar sem fækkað var um 1 lykkju í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stoffið mælist 7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 9. Prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMI: Setjið 40-40-44-46-48-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 44-46-50-52-56-60 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 2-3-3-3-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 6-6-8-8-10-11 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 1 sinni í öllum stærðum = 30-32-32-34-34-36 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-35-33-32-30-28 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist 38-39-37-36-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #waterpointsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.