DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18304.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Water Point

Prjónuð peysa úr DROPS Andes. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og V-hálsmáli. Stærð XS - XXL.

DROPS 226-44
DROPS Design: Mynstur an-065
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS ANDES frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
700-800-800-900-1000-1100 g litur 7130, sægrænn

DROPS TALA, Buffelhorn NR 536: 5 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18304.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 20.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 20. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri í umferð).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum eru prjónaðir kantar að framan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 36-38-38-40-40-42 lykkjur á hringprjón 9 með DROPS Andes. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Setjið eitt prjónamerki eftir 18-19-19-20-20-21 lykkjur (= mitt aftan á bakstykki), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar. Prjónamerki er sett í lykkju í skiptinguna á milli fram- og bakstykkis og erma:
Hoppið yfir fyrstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 8 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 12-14-14-16-16-18 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 8 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 2 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.

Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan, jafnframt í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir laskalínu og í þriðju umferð byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli – aukið út eins og útskýrt er að neðan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LASKALÍNA:
Í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-15-17-18-19-21 sinnum.

V-HÁLSMÁL:
Í þriðju umferð byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli.
Aukið svona út frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.
Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 5-6-6-7-7-8 sinnum.

Þegar allar útaukningar fyrir laskalínu og V-hálsmáli hafa verið gerðar eru 166-170-186-198-206-226 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 23-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki mitt að aftan.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 22-23-25-27-28-31 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 40-40-44-46-48-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 42-44-48-52-54-60 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 40-40-44-46-48-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 22-23-25-27-28-31 lykkjur.
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 94-102-110-118-126-138 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum (= 2-3-3-3-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 15 cm = 102-110-118-126-134-146 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 32-34-34-34-34-34 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 5-5-7-7-9-9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 107-115-125-133-143-155 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7.
Prjónið stroff þannig (með byrjun frá röngu): 1 kantlykkja garðaprjón, (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón.
Haldið áfram fram og til baka svona þar til stroffið mælist 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 40-40-44-46-48-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 44-46-50-52-56-60 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 2-3-3-3-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 6-6-8-8-10-11 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 1 sinni í öllum stærðum = 30-32-32-34-34-36 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 35-35-34-32-31-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis).
Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Ermin mælist 38-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu neðst í hægra framstykki með hringprjón 7 og DROPS Andes.
Prjónið upp 93-109 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón meðfram hægra framstykki og alveg upp að miðju aftan á bakstykki (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkja).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu – aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem fyrsta úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjaði með því að prjóna þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 2 sinnum (= 2 lykkjur fleiri) – í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Prjónið nú stroff frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kantur að framan mælist 1½-2 cm.
Fellið nú af fyrir 5 hnappagötum jafnt yfir í öllum stærðum. Efsta hnappagatið er staðsett ca 1 cm fyrir neðan þar sem úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjaði og neðsta hnappagatið ca 7 cm frá neðri kanti.
1 hnappagat = sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur saman.
Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist ca 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu mitt aftan í hnakka með hringprjón 7 og DROPS Andes.
Prjónið upp 93-109 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón meðfram kanti og niður yfir vinstra framstykki (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkja).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu – aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem fyrsta úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjaði með því að prjóna þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 2 sinnum (= 2 lykkjur fleiri) – í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Prjónið nú stroff frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kantur að framan mælist 4 cm – stillið lengdina eftir hægri kanti að framan.
Haldið áfram með stroff fram og til baka þar til kantur að framan mælist ca 4 cm – stillið lengdina af eftir hægir kanti að framan. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið kant að framan saman mitt að aftan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-44

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Parisa wrote:

Hei. Jeg trenger veiledning i forbindelse med oppskrift på Drops Design 226-44 . Har kjøpt riktig garn og pinner fra deres nettbutikk. Kan noen svare på mine spørsmål? Takk på forhånd

08.01.2024 - 14:28

DROPS Design answered:

Hej Parisa, ja skriv hvilken størrelse du strikker, hvor du er i opskriften, hvor mange masker du har og hvad du vil have hjælp med, så svarer vi så hurtigt som muligt :)

09.01.2024 - 15:33

country flag Fatma KISRANE wrote:

BONJOUR JE VOUDRAIS TRICOTER CE GILET EN AIGUILLE NUMERO 6 QUELLE TAILLE DEVRAIS JE PRENDRE POUR LE TRICOTER MERCI

17.09.2023 - 18:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Kisrane, ce modèle se tricote sur la base de 10 mailles x 14 rangs jersey = 10 x 10 cm; si vous n'avez pas cet échantillon, il vous faudra recalculer les explications sur la base de votre échantillon et des mesures du schéma. Retrouvez plus d'infos sur l'échantillon ici - vous pouvez également utiliser notre moteur de recherches pour trouver des modèles qui conviendrait à votre tension, en utilisant en référence votre nombre de mailles pour 10 cm. Bon tricot!

18.09.2023 - 15:55

country flag Fatma KISRANE wrote:

Bonjour je suis entrain de tricoter ce gilet en taille XXL j ai mis les marqueurs 3+9+19+9+2 est ce que je les ais bien positionner . et pourquoi il reste 2 mailles a la fin et pas 3 mailles comme aux debut merci

15.09.2023 - 19:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Kisrane, vos marqueurs doivent se présenter ainsi, chacun dans une maille: 2+1+8+1+18+1+8+1+2=42 m, 4 m avec chacune un marqueur, 2 m pour chaque devant, 8 m pour chaque manche et 18 m pour le dos. Bon tricot!

18.09.2023 - 08:00

country flag Fatma KISRANE wrote:

Bonjour je n est pas compris l augmentaion de mailles vert le col v quand ton tricote la bordure a quel endroit exactement doit ont l augmenter

12.09.2023 - 22:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Kisrane, on augmente pour l'encolure V à 2 mailles des bords; tricotez 1 m lisière au point mousse, 1 m endroit, faites 1 jeté (pour augmenter en début de rang), tricotez les mailles suivantes jusqu'à ce qu'il reste 2 mailles, faites 1 jeté et terminez par 1 m end et 1 m lisière au point mousse. Bon tricot!

13.09.2023 - 08:30

country flag Natalia GonzalezRehahn wrote:

Ich verstehe nicht, warum die Blende in zwei Teilen gestrickt und dann im Nacken zusammen genäht wird. Kann man nicht die Blendenmaschen von rechts unten bis durchgehend links unten auf einmal aufnehmen und die Blende in einem Stück arbeiten? Im Voraus vielen Dank.

01.02.2023 - 10:22

country flag Natalia GonzalezRehahn wrote:

Ich verstehe nicht, warum die Blende in zwei Teilen gestrickt und dann im Nacken zusammen genäht wird. Kann man nicht die Blendenmaschen von rechts unten bis durchgehend links unten auf einmal aufnehmen und die Blende in einem Stück arbeiten? Im Voraus vielen Dank.

01.02.2023 - 10:22

DROPS Design answered:

Liebe Frau GonzalezRehahn, es würde dann sehr viele Maschen aufgefassen, aber gerne können Sie die Maschen von den beiden Blenden nuf auf einmal auffassen und stricken - beachten Sie, nur daß die Maschenanzahl das Bündchen passt. Viel Spaß beim stricken!

01.02.2023 - 14:18

country flag Sophie wrote:

Hej! Ingen fråga om mönster, men...Har stickat denna jättefina kofta i Andes garn; vågar jag tvätta den i maskin på hand/ulltvätt? Centrifugera? Den är ganska tung. Vänligen Sophie.

19.01.2023 - 11:33

DROPS Design answered:

Hei Sophie. Anbefaler å følge vaskeanvisningen. Håndvask, maks 30°C. Press/klem ut vannet og legg det flatt til tørk, men unngå å tørke plagget på underlag som suger til seg fuktighet, som for eksempel frottéhåndklær. Da kan plagget miste sin naturlige elastisitet. Om du ikke må vaske plagget, kan det fint bare henges ut til lufting, Andes er nærmest selvrensende. mvh DROPS Design

23.01.2023 - 08:28

country flag Nelleke wrote:

Kan ik ook de halsboord en voorpandboorden meteen eraan vast breien? In plaats van los op het eind?

12.09.2022 - 13:42

DROPS Design answered:

Dag Nelleke,

Dat zou kunnen, maar daarvoor zijn nogal wat aanpassingen nodig in het patroon en helaas is het voor ons niet mogelijk om patronen aan te passen naar persoonlijke wensen. Misschien kun je een patroon vinden die dat wel heeft.

14.09.2022 - 12:02

country flag Deb H wrote:

Are the yarn quantities correct for this pattern?

05.05.2022 - 11:59

DROPS Design answered:

Dear Deb H, the yarn quantities are right - remember to check your gauge first: 10 stitches x 14 rows stocking stitch = 10 x10 cm - read more here; Should you like to use any other yarn, remember to use our yarn converter. Happy knitting!

05.05.2022 - 15:15

country flag Derya wrote:

Hi, in the marker insterting section there is a mistake. I am working with 38 stiches. 2 first stiches + next 8 stiches + next 14 stiches + 8 stiches + last 2 stiches =34 stiches. Could it be 2 + 8 + 18 + 8 + 2?

10.01.2022 - 16:29

DROPS Design answered:

Dear Derya, you insert the markers in the next stitch, not between the stitches. So 34 + the 4 stitches with the markers = 38 stitches. Happy knitting!

10.01.2022 - 19:47