Brenda skrifaði:
En waar komt de 4 cm in de tekening vandaan tussen hals en pas?
09.01.2022 - 23:01DROPS Design svaraði:
Dag Brenda,
Ik denk dat er mee te maken heeft dat de hals een beetje omhoog staat. Je kunt gewoon de aanwijzingen en afmetingen in de beschrijving volgen.
11.01.2022 - 09:03
Brenda skrifaði:
Dezelfde vraag als Ellen: Moet je na de markeerdraad (als de 5 cm hals 1R/1AV is gebreid, dus aan het begin van de pas) eerst nóg 5cm 1R/1AV breien en dan pas meerderen? Of moet die meerdering meteen aan het begin van de pas al.
09.01.2022 - 22:47DROPS Design svaraði:
Dag Brenda,
Je breit inderdaad nog eens 5 cm boordsteek en dan pas maak je de meerderingen.
11.01.2022 - 09:00
Ellen skrifaði:
Even een vraag over de pas: moet ik eerst nog 5 cm boord breien alvorens ik ga meerderen ? Dat zou dan in totaal 10 cm kraag zijn en dan meerderen ?
07.01.2022 - 11:02DROPS Design svaraði:
Dag Ellen,
Je breit inderdaad nog eens 5 cm boord, dus in totaal 10 cm.
11.01.2022 - 09:38
SOPHI BUETENS skrifaði:
Do you have the pattern with US measurements (non metric)?
03.01.2022 - 23:07DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Buetens, sure, edit language by clicking on the scroll down menu below the photo and choose ENGLISH (US/IN). Happy knitting!
04.01.2022 - 07:29
Lovisa skrifaði:
Hej! Jag är relativt ny på att sticka och ska försöka mig på detta mönster! Men jag undrar när man ska använda rundsticka 40cm och rundsticka 80cm i respektive stickstorlek? Tack på förhand!
01.01.2022 - 20:49
Karen Barwick skrifaði:
What is the chest measurements of this garment please, I cant see it on the schematic...thank you in advance
11.12.2021 - 01:23DROPS Design svaraði:
Dear Karen, since it's a straight garment, the measurements are in the lower part of the garnment: 47-50-53-58-65-72. These are all in cm. Happy knitting!
11.12.2021 - 20:16
Renata skrifaði:
Bardzo ładny sweter, robię go właśnie z Melody w kolorze musztarda. Pozdrawiam :)
17.11.2021 - 14:49
Anne Vikkelsø Rasmussen skrifaði:
Lige sådan en trøje jeg har ønsket mig.
09.11.2021 - 05:47
Danielle Reichert skrifaði:
Auf welche Nadelstärke bezieht sich die Maschenprobe ? 6 oder 8 ? LG
07.11.2021 - 15:54DROPS Design svaraði:
Liebe Danielle. Die Maschenprobe wird mit 8 mm gearbeitet
07.11.2021 - 17:32
Amy Wingate skrifaði:
Is this pattern available in a sleeveless (vest) version?
16.10.2021 - 17:02DROPS Design svaraði:
Dear Amy, this pattern is not available in a sleeveless version, due to the round yoke. You can find our vest patterns for women in the following link: https://www.garnstudio.com/search.php?action=search&w=vest&mt=0&c=1&k=0&y=0&yg=0&lang=en Happy knitting!
17.10.2021 - 19:59
Rhythmic Rain#rhythmicrainsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, köntum í stroffprjóni og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-42 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 10. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru fyrst auknar út í stroffi á eftir kant í hálsmáli, síðan eru lykkjur auknar út í sléttprjóni. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, áður en stykkinu er skipt fyrir framstykki og bakstykki og prjónuð er klauf fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-62-64-68-74-76 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur í 5 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á stykki, stykkið er nú mælt héðan. BERUSTYKKI: Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 5 cm frá prjónamerki er aukið út þannig: Aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingum, aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn í byrjun á öllum brugðnu einingum = 90-93-96-102-111-114 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið), uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í fyrstu umferð svo ekki myndist gat. Þegar stykkið mælist 10 cm frá prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingum, aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn í lokin á öllum brugðnu einingum = 120-124-128-136-148-152 lykkjur. Prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið), uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í fyrstu umferð svo ekki myndist gat. Haldið áfram þar til stykkið mælist 13 cm frá prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-20-22-24-26-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 132-144-150-160-174-184 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 15 cm frá prjónamerki, aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir. Aukið svona út með 2½-3-2½- 2½-2-2 cm millibili alls 4-4-5-6-7-8 sinnum = 172-184-200-220-244-264 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 25-27-28-30-32-34 cm frá prjónamerki. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið 25-27-29-32-36-40 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 36-38-42-46-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 50-54-58-64-72-80 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 36-38-42-46-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 25-27-29-32-36-40 lykkjur slétt sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 112-120-128-140-156-172 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni – byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið þar til stykkið mælist 13-13-14-14-14-14 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 16 cm að loka máli). Nú skiptist stykkið og það er prjónað til loka í hlutum þannig að það myndist klauf í hvorri hlið. Setjið fyrstu og síðustu 28-30-32-35-39-43 lykkjur á þráð = 56-60-64-70-78-86 lykkjur á prjóni (= framstykki). FRAMSTYKKI: Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman, aukið nú út lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar er út 23-25-25-27-31-33 lykkjur jafnt yfir = 79-85-89-97-109-119 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 16 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. BAKSTYKKI: Setjið til baka þær lykkjur sem eftir eru á hringprjón 8 og prjónið eins og framstykki. ERMI: Setjið 36-38-42-46-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 8 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-48-52-56-58 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-8-4½-3½-2½-2½ cm millibili alls 4-4-6-7-8-8 sinnum = 34-36-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 29-28-27-26-23-22 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 12 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6 lykkjur jafnt yfir = 40-42-42-44-46-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 41-40-39-38-35-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rhythmicrainsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.