Letizia skrifaði:
Concordo con Tina, anche nella taglia L ho 4 maglie di troppo. Forse è il modo il cui siamo abituate noi a leggere le istruzioni. Comunque si risolve contando 14 e mettendo il segnapunto, 21 e poi segnapunto, 28, 21, 14. Cioè aggiungendo due maglie al davanti e dietro (non alle spalle se no si complica lo schema).
31.08.2024 - 14:21DROPS Design svaraði:
Buonasera Letizia, come già riportato nella risposta precedente, i segnapunti vanno inseriti NELLE maglie, non TRA le maglie: ecco spiegate le 4 maglie in eccesso, sono le maglie in cui vengono inseriti i segnapunti. Buon lavoro!
01.09.2024 - 22:48
Sanna skrifaði:
Hej! Jag funderar på att sticka denna tröja i storlek L. Skulle gärna vilja sticka en förhöjning baktill i nacken. Har ni någon video som visar detta och som skulle passa till det här mönstret i storlek L?
17.08.2024 - 09:59DROPS Design svaraði:
Hej Sanna, 241-3 med samma stickfasthet stickas med förkortade varv och raglan :)
21.08.2024 - 09:34
Barbro Arntsen skrifaði:
Du har ikke samme antall helt i begynnelsen av andre omgang og i slutten av omgangen. På andre omgang har du 2 vr før de to andre vrang. Der er problemet. Ikke nok masker.
23.07.2024 - 22:04
Barbro Arntsen skrifaði:
Får for lite masker når jeg starter på andre omgang rundt mønster rundt halsen. Mangler 2 masker i hver ende.
23.07.2024 - 21:54DROPS Design svaraði:
Hej Barbro, når du strikker mønsteret over hvert ærme, så starter du nederst i diagrammet, hvor du på første pind tager 4 masker ud på hvert ærme ifølge diagrammet, da har du nok masker til at strikke diagrammet :)
01.08.2024 - 08:38
Claudia skrifaði:
Wie wurde bei diesen Pulli der Faden eines neuen Knäules verbunden ohne das die Maschen dicker aussehen oder ohne eines Knoten? Gibt es dazu auch ein Trick oder Video? Bei mir sieht man immer wenn ich ein neuen Knäuk anfange. Lg
22.06.2024 - 20:44DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, mit diesem Technik können Sie die Fäden irgendwo abwechseln; Viel Spaß beim Stricken!
24.06.2024 - 08:17
Ruth Benning skrifaði:
Wieviel Knäuel Garn von Drops air c brauche ich für das Modell an 314
11.06.2024 - 14:56
Claudia skrifaði:
Ja da sehe ich auch so. Allerdings steht unter dem Punkt Nadeln: ganz unten , dass man eine Nadelstärke kleiner nehmen muss ! Das stimmt doch so nicht oder ? Dieser Satz steht auch in anderen Anleitungen so
10.06.2024 - 12:02DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, so ist es auch erklärt: Wenn Sie auf 10 cm mehr Maschen als oben genannt haben, zu einer dickeren Nadelstärke wechseln. , wenn 17 M bei Ihnen 9 cm sind, dann haben Sie ca 19 M für 10 cm, dh es sind mehr als 17 M für 10 cm, so brauchen Sie grösseren Nadeln. Viel Spaß beim Stricken!
10.06.2024 - 12:48
Ruth Benning skrifaði:
Wofür ist Anleitung 1 und Anleitung 2?
09.06.2024 - 11:46DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Henning, meinen Sie A.1 und A.2? Die sind die Diagramme für die Ärmel, zuerst wird man A.1 stricken und damit 4 Maschen zunehmen), dann wird mann A.2 über A.1 stricken und A.2 wird zur Ende gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
10.06.2024 - 08:12
Claudia skrifaði:
Wenn ich zB. Mit einer Nadelstärke 5 auf 10cm 17 Maschen benötige (Maschenprobe), habe aber bei meiner Maschenprobe mit 17 Maschen nur 9cm , muss ich doch eher eine größere Nadelstärke nehmen oder? Wenn ich eine kleinere Stärker nehme, wird das Maschenbild ja noch enger und kleiner. ( im Test steht man soll dann eine kleinere Nadel verwenden bei der Maschenprobe) Der Satz ist doch verkehrt?
09.06.2024 - 07:09DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, wenn Sie 9 cm mit 17 Maschen (= ca 19 M für 10 cm) haben, bedeutet es, daß Sie zuviele Maschen für 10 cm haben dann brauchen Sie grössere Nadel, bis Sie 17 M für 10 cm haben. Viel Spaß beim Stricken!
10.06.2024 - 08:10
Anita skrifaði:
Jeg strikker denne i str. M. Har rett antall masker til bolen, men opplevde at genseren ble alt for smal og kort. Må rekke opp mye og tilføre flere masker i bolen. Skal den være inntilsittende?
06.06.2024 - 01:01
Bronze Summer Sweater#bronzesummersweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-3 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1 lykkju sléttprjón (lykkja með prjónamerki) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalína. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 90-94-98-102-106-110 lykkjur á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og setjið 1 merki hér, héðan er nú mælt. Setjið 4 merki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 11-12-13-14-15-16 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 21 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 22-24-26-28-30-32 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 21 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru 11-12-13-14-15-16 lykkjur í umferð á eftir síðasta merki (= hálft bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón yfir lykkjurnar á framstykki og bakstykki og A.1 (= 21 lykkjur) yfir lykkjur á hvorri ermi, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 122-126-130-134-138-142 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.2 (= 25 lykkjur) yfir lykkjur í A.1, sléttprjón yfir framstykki og bakstykki eins og áður og haldið er áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 22-25-27-29-33-36 sinnum hvoru megin við 4 lykkjur með merki = 274-302-322-342-378-406. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er prjónað áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 20-23-25-27-31-34 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 34-38-41-44-49-53 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 69-75-79-83-91-97 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 68-76-82-88-98-106 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 69-75-79-83-91-97 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 34-38-41-44-49-53 lykkjur eins og áður sem eftir eru (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-164-176-192-216-236 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 27-26-26-26-24-23 frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMI: Setjið 69-75-79-83-91-97 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 75-81-85-91-101-109 lykkjur. Setjið 1 merki mitt í 6-6-6-8-10-12 lykkjur undir ermi og látið merkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við merkið og haldið áfram með A.2 og sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2-1½-1-1 cm millibili alls 10-11-13-16-19-21 sinnum = 55-59-59-59-63-67 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-36-34-33-29-26 cm frá skiptingu – eða að óskaðri lengd (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 11 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.2 = 44-48-48-48-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með sokkaprjónum nr 4. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bronzesummersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.