Mani skrifaði:
Où puis-je trouver le diagramme A1 svp?
26.02.2025 - 22:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Mani, vous trouverez le diagramme A.1 à droite du schéma des mesures, sous la manche. Bon tricot!
27.02.2025 - 11:11
Katharina skrifaði:
Liebes Drops-Team, wird A1 in jeder Runde von rechts nach links gestrickt bis die erforderliche Höhe erreicht ist? Wird A2 dann ebenso immer von rechts gestrickt? Liebe Grüße, Katharina
17.01.2025 - 13:02DROPS Design svaraði:
Liebe Katharina, A.1 wird bei der Halsblende gestrickt bis die Arbeit 5 cm misst. A.2 wird nur einmal in der Höhe gestrickt. Diagramme liest man in jeder Runde rechts nach links (alle Reihen sind im Diagram gezeichnet). Viel Spaß beim Stricken!
17.01.2025 - 13:29
Emilie Toure skrifaði:
Hoe kan ik de draden het beste afhechten? Ze zijn dik met Drops Snow.
06.12.2024 - 09:08DROPS Design svaraði:
Dag Emilie,
Je zou ze af kunnen hechten zoals je normaliter gewend bent, maar je kunt de draden ook in tweeën splitsen en elk een verschillende kant uit wegwerken, zodat het wat minder dik is.
11.12.2024 - 09:49
Cecilia skrifaði:
Hi! Is there any video that can help me understand better how to split the body from the sleeves and the cast on of additional stitches to the sleeves? Thank you!
04.11.2024 - 08:40DROPS Design svaraði:
Sure Cecilia, you get this video and even this lesson where we show how to work a jumper top down, in both links you will see raglan jumpers but when dividing technique will be the same for a round yoke as here. Happy knitting!
04.11.2024 - 14:34
Cecilia skrifaði:
Hi! When deciding on the size to knit, if the wearer has a much bigger waist/tummy than breast, the measurement should take from the waist, to have a more comfortable fit?
01.11.2024 - 04:54DROPS Design svaraði:
Dear Cecilia, to find your size, measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to the ones in the chart at the bottom of the pattern; this is the most appropriate way to find out your size. Read more here. Happy knitting!
01.11.2024 - 09:58
Cecilia skrifaði:
Hi! Just wondering if we want to increase without creating holes, wouldn't knit/purl front & back be better? I notice that even with a twisted knit/purl for the yarn over stitch, there will still be a small hole created, unless that is the design intent.
01.11.2024 - 04:39DROPS Design svaraði:
Dear Cecilia, there are different techniques to increase avoiding holes, our design team often use the technique with yarn overs worked twisted on next round, feel free to use any technique you like. Happy knitting!
01.11.2024 - 09:57
Cathrine skrifaði:
Det verkar vara ett fel i mönstret. När man börjar med det senare mönstret som ser ut som ett ax, så behöver flätorna börja tvärtemot: först 2 maskor på hjälpsticka framför arbetet, efter avigmaskan så blir det 2 maskor på hjälpsticka bakom arbetet. Annars trevligt mönster att sticka.
29.04.2024 - 15:12
Monique skrifaði:
Easy pattern top down, simple construction, easy to understand, turned out amazing, highly recommend that for a beginner, TV knitting project,
01.02.2024 - 18:25
Elina skrifaði:
Hei ohjeesta puuttuu a1 kuvallinen osio. Mistä sen saisi?
07.02.2022 - 19:26DROPS Design svaraði:
Hei, piirros A.1 löytyy mittapiirroksen oikealta puolelta.
14.02.2022 - 17:55
Annika skrifaði:
Hej, det står att man ska sticka enligt diagram A1, men det finns inte i mönstret, endast diagram A2 finns.
22.10.2021 - 18:57DROPS Design svaraði:
Hei Annika. Om du ser under ermet på målskissen finner du diagram A.1. mvh DROPS Design
25.10.2021 - 08:23
Harvest Queen#harvestqueensweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air eða 1 þræði DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og köðlum. Stærð XS - XXL.
DROPS 218-1 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 144 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 28,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 29. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi í stærð L-XL-XXL): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 45-45-50-50-55-55 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air eða 1 þræði Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 (= 5 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 9-9-10-10-11-11 sinnum á breidd). Haldið svona áfram í 5 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið A.2 (= 9-9-10-10-11-11 mynstureiningar með 5 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 135-144-160-170-187-198 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 20-20-20-23-23-26 cm frá prjónamerki í hálsmáli. Prjónið 1 umferð slétt á meðan aukið er út um 0-5-0-0-0-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 135-149-160-170-187-203 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 21-21-23-24-26-28 cm frá prjónamerki í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermi, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 20-23-25-27-29-32 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 26-28-30-32-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 43-47-50-52-57-63 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 26-28-30-32-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir þær 20-23-25-27-29-32 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 91-101-108-118-127-139 lykkjur. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 21-23-23-24-24-24 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd), prjónið 1 umferð slétt á meðan aukið er út um 11-11-12-12-11-11 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 102-112-120-130-138-150 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt). Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 26-28-30-32-36-38 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 30-32-34-38-42-44 lykkjur. Í þeim 3 stærstu stærðunum er sett 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýrra lykkja undir ermi. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum hvoru megin við prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 5 cm frá skiptingu, fækkið um 0-0-0-1-1-1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 7 cm millibili alls 0-0-0-2-3-3 sinnum = 30-32-34-34-36-38. Þegar ermin mælist 32-33-31-31-29-28 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 8 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 38-39-37-37-35-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #harvestqueensweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.