Meadowsweet#meadowsweetsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 212-29 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 8,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa prjónamerkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hvert og eitt af þeim prjónamerkjum sem eftir eru (= 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 50-52-54-58-60-62 lykkjur á hringprjón 7 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-2-6-4-2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 56-56-56-64-64-64 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (þ.e.a.s. eftir stroff), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= 15-15-15-17-17-17 lykkjur – veldur mynsturteikningu fyrir þína stærð), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttar lykkjur yfir næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= 15-15-15-17-17-17 lykkjur – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttar lykkjur yfir næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjurnar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-17-19-20-22-23 sinnum = 176-192-208-224-240-248 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, byrjið á nýrri mynstureiningu á hæðina og gataumferðin sem nú þegar er byrjuð heldur áfram út að hvorri hlið. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka mælist stykkið ca 20-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki. Prjónið áfram (án frekari útaukninga fyrir laskalínu) þar til stykkið mælist 23-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Í stærð XS, S, L og XL skiptist stykkið við prjónamerki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Í stærð M og XXL á að prjóna 1-2 lykkjur í hvorri hlið á ermum inn á framstykki/bakstykki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 47-51-56-59-63-66 lykkjurnar (= bakstykki), setjið næstu 41-45-47-53-57-57 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 47-51-57-59-63-67 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 41-45-47-53-57-57 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Í stærð M og XXL er síðasta lykkjan prjónuð í umferð (þ.e.a.s. þessar lykkjur tilheyra bakstykki = 47-51-57-59-63-67 lykkjur fyrir bakstykki). Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 104-112-124-132-140-148 lykkjur. Byrjið umferð eftir miðju af 5-5-5-7-7-7 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi í annarri hliðinni. Prjónið sléttprjón yfir 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum. Yfir þær lykkjur sem eftir eru er haldið áfram með gatamynstur (A.1) eins og áður. Þ.e.a.s. þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, byrjið á nýrri mynstureiningu á hæðina og gataumferðin heldur áfram að færast út að hvorri hlið þar til eftir eru 5-5-5-7-7-7 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 18-20-20-20-20-20 cm, byrjið ekki á fleiri mynstureiningum A.1 á hæðina, en prjónið sléttprjón eins og áður og gataumferðin sem nú þegar er byrjuð, heldur áfram að færast út að hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 23-25-25-25-25-25 cm, aukið út 20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir = 124-134-148-158-168-178 nýjar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm. ERMI: Setjið til baka 41-45-47-53-57-57 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-5-7-7-7 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum = 46-50-52-60-64-64 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 15-16-14-13-11-10 cm, aukið út um 8-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 54-60-62-72-76-76 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls 19-20-18-17-15-14 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #meadowsweetsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.