DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer's Waltz

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 212-30
DROPS Design: Mynstur me-198
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tillheyrir garnflokki B)
600-650-750-800-900-950 g litur 40, dökk bleikur

PRJÓNFESTA:
21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermakúpu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við ermakúpu jafnframt því sem kaðlar eru gerðir þannig:
KAÐALL TIL HÆGRI OG FÆKKIÐ JAFNFRAMT UM 2 LYKKJUR:
Byrjið strax eftir 2 fyrstu lykkjur í umferð, setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 3 lykkjur af kaðlaprjóni snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri).
KAÐALL TIL VINSTRI OG FÆKKIÐ JAFNFRAMT UM 2 LYKKJUR:
Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni (= 2 lykkjur færri) og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp að handveg, síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig til loka.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjón til loka. Stykkið er saumað saman á öxlum og ermar eru saumaðar í áður en kantur í hálsmáli er prjónaður í lokin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 196-212-228-248-272-296 lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 194-210-226-246-270-294 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt án útaukninga.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 13-17-21-19-25-31 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 21 lykkjur sem auknar eru út til 24 lykkjur), prjónið A.2A (= 9 lykkjur), prjónið A.2B yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.2C (= 6 lykkjur), prjónið A.3 (= 21 lykkjur sem auknar eru út til 24 lykkjur), prjónið 13-17-21-19-25-31 lykkjur sléttprjón og setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (= í hlið á fram- og bakstykki) *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar.
Nú eru 206-222-238-258-282-306 lykkjur í umferð. Prjónið næstu umferð alveg eins og mynsturteikning sýnir. A.1 og A.3 hefur nú verið prjónað til loka.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fella á af fyrir handveg.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 13-17-21-19-25-31 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 (= 24 lykkjur), haldið áfram með A.2 eins og áður yfir næstu 29-29-29-43-43-43 lykkjur, prjónið A.5 (= 24 lykkjur), prjónið 13-17-21-19-25-31 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað þannig: Fellið af 3 lykkjur, prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, fellið af 6 lykkjur, prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá.
Bakstykki og framstykki er prjónað til loka fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 97-105-113-123-135-147 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið jafnframt af fyrir handveg með því að fella af í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-2 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 3-6-6-7-8-8 sinnum í hvorri hlið = 83-85-89-97-97-99 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.
Í næstu umferð eru felldar af miðju 31-31-33-33-35-35 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 25-26-27-31-30-31 lykkjur eftir á öxl.
Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, fellið af 3 lykkjur jafnt yfir lykkjur í kaðli (þetta er gert í umferð frá réttu) = 22-23-24-28-27-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykki mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

FRAMSTYKKI:
= 97-105-113-123-135-147 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið jafnframt af fyrir handveg með því að fella af í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-2 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 3-6-6-7-8-8 sinnum í hvorri hlið = 83-85-89-97-97-99 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-55-57-59 cm.
Í næstu umferð eru miðju 17-17-19-19-21-21 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 25-26-27-31-30-31 lykkjur eftir á öxl.
Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, fækkið um 3 lykkjur jafnt yfir lykkjur með kaðli (þetta er gert í umferð frá réttu) = 22-23-24-28-27-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar auka á út mitt undir ermi.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-2-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 9-6-9-6-9-6 cm, aukið út 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 15-17-18-20-22-24 sinnum = 74-80-84-90-96-102 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 48-48-47-46-45-44 cm. Nú á að fella af fyrir ermakúpu, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3 lykkjur, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru = 68-74-78-84-90-96 lykkjur eftir. Klippið frá.
Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka á hringprjón þannig: Byrjið frá röngu og prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem felldar voru af 3 lykkjur í byrjun á hvorri af þessum 2 umferðum = 62-68-72-78-84-90 lykkjur eftir. Prjónið 3 umferðir sléttprjón án úrtöku.
* Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, kaðall til hægri og fækkið jafnframt um 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA-1, prjónið sléttprjón þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, kaðall til vinstri og fækkið jafnframt um 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA-1 og endið með 2 lykkjur sléttprjón. Prjónið 3 umferðir sléttprjón án úrtöku *, prjónið frá *-* alls 5-6-6-7-8-8 sinnum á hæðina, en síðasta endurtekningin endar þegar prjónuð hefur verið 1 umferð sléttprjón eftir umferð með snúningi fyrir köðlum og úrtöku.
Prjónið 4 umferðir sléttprjón og fækkið um 3 lykkjur í byrjun á hverri einni af þessum 4 umferðum = 30-32-36-38-40-46 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 57-58-58-58-58-58 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 80 til 90 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stuttan hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 88-92-96-100-104-108 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.07.2020
ERMI:..Prjónið 4 umferðir sléttprjón og fækkið um 3 lykkjur í byrjun á hverri einni af þessum 4 umferðum = 30-32-36-38-40-46 lykkjur eftir.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = aukið út 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju slétt bæði framan í og aftan í sömu lykkju
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð, sleppið öðrum uppslættinum niður og hinn uppslátturinn er prjónaður í sléttprjóni
symbols = prjónið 2 lykkjur brugðið saman
symbols = prjónið 3 lykkjur brugðið saman
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Teston wrote:

Apres avoir tricoté A1 et A3 comment doisje les tricoter?? Merci de la réponse

03.01.2023 - 20:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Teston, quand on tricote le 1er rang de A.1 et A.3 on va augmenter 3 mailles dans chaque A.1 et dans chaque A.3. Au 2ème rang, tricotez les mailles comme avant en suivant le 2ème rang des diagrammes pour A.1 et A.3. Au rang suivant, tricotez en jersey avec les diagrammes A.4, A.2 et A.5. Bon tricot!

04.01.2023 - 09:03

country flag Cornelia wrote:

Ich habe eine Frage zu den doppelten Umschlägen. Müsste der 2. Umschlag nicht, sobald in Reihen (nach den Armlochabnahmen) glatt links gestrickt werden?

03.10.2022 - 20:14

DROPS Design answered:

Liebe Cornelia, ja genau, der 2. Umschlag strickt man glatt rechts, dh rechts in Hin-Reihen und links in Rück-Reihen. Viel Spaß beim stricken!

04.10.2022 - 07:49

country flag Kaisu wrote:

Mistä muodostuu "jatka seuraavilla 29 silmukalla piirroksen A2 mukaan"? Puran nyt kolmannen kerran...

21.01.2022 - 06:06

country flag M E Van Dijk wrote:

Dit is werkelijk een prachtig patroon. ,maar de beschrijving klopt niet. Nadat er twee toeren zijn gebreid, (de A1, A2A, A2B,A2C, A3, moet je volgens het patroon A4, serie 2, en A5 breien De A4 en A5 vanaf toer 1. Dan is het motief van de 2 serie af, maar niet van A4 en A5.Het motief van de A4 en A5 is niet in balans. Met vriendelijke groet, Marlies van Dijk

30.12.2021 - 13:26

DROPS Design answered:

Dag M E Van Dijk,

A4 en A5 worden aan de zijkanten gebreid, naast het middengebied met kabels en ze hoeven niet perse tegelijkertijd klaar te zijn in de hoogte. Als A.2 klaar is in de hoogte begin je opnieuw met A.2 in de hoogte en als A.4 en A.5 klaar zijn in de hoogte, begin je ook een nieuwe herhaling in de hoogte, maar dit hoeft dus niet tegelijkertijd.

06.01.2022 - 10:26

country flag Rita wrote:

Beste lezer Als er staat ga verder in A2 betekent dat verder gaan in de derde naald? A4 en A5 beginnen nul in naald 1

09.12.2021 - 14:43

country flag Joke Boev wrote:

Ík heb de vraag verkeerd vermeld. Je begint met 19 st dan 24 steken dan moet je eigenlijk verder met 2A en daar staat dat je over 43 steken moet breien maar je heeft er 45 steken nodig want dat patroon bestaat uit 9 steken moet ik soms steken bij maken gr

19.11.2021 - 19:59

DROPS Design answered:

Dag Joke,

Je breit inderdaad eerst 19 steken en dan brei je A.1 over de volgende 21 steken. In A.1 zitten meerderingen verwerkt, dus als je A.1 hebt gebreid, zijn de 21 steken gemeerderd naar 24 steken.

Een stuk verderop in dezelfde paragraaf staat inderdaad dat je A.2 over de volgende 43 steken moet breien. Dit doe je als volgt: brei 1 keer A.2A in de breedte, brei 2 keer A.2B in de breedte, brei 1 keer A.2C in de breedte.

23.11.2021 - 12:34

country flag Joke Boevé wrote:

Ik heb 19 st gebreid en toen 4a en nu moet ik 43 steken breien van 2a maar dat klopt niet je moet daar 45 steken hebben dus ik kom 2 steken tekort wat moet ik doen bedankt

19.11.2021 - 17:22

country flag Meike Rubbert wrote:

Guten Tag, Es gibt gegensätzliche Aussagen in der Anleitung : direkt nach dem Bündchen sollen Maschen zugenommen werden, aber für die entsprechenden Größen werden weniger Maschen, als angeschlagen, angegeben. Demnach müsste ich 2 Maschen abnehmen.... Aber das kann ja nicht richtig sein. Wie viele Maschen muss man in der ersten Reihe nach dem Bündchen zunehmen? Liebe Grüße Meike Rubbert

20.09.2021 - 18:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rubbert, so ist es richtig, damit die Bündchen nicht zu eng werden, schlägt man genauso viele Maschen mit den kleineren Nadeln (wegen Bündchen braucht man auch mehr Maschen um die richtige Breite zu bekommen); und dann wird es abgenommen, damit die Maschananzahl die gewünschte Breite passt. Viel Spaß beim stricken!

21.09.2021 - 08:43

country flag Wietske Holverda wrote:

Dit is werkelijk een prachtig patroon. ,maar de beschrijving klopt niet. Nadat er twee toeren zijn gebreid, (de A1, A2A, A2B,A2C, A3, moet je volgens het patroon A4, serie 2, en A5 breien De A4 en A5 vanaf toer 1. Dan is het motief van de 2 serie af, maar niet van A4 en A5.Het motief van de A4 en A5 is niet in balans. Het aantal tr. tussen de 3/3 en de 1/3 kabel is niet gelijk. Oplossing: Uit het midden 2 toeren weg en onder er 2 erbij, zoals de laatste toer. 1ste keer met tr. 3 beginnen

25.08.2021 - 16:07

country flag Pia Maibrit Johansen wrote:

Str. L. For og bagstykke: . Jeg har nu 238 m. på p. Diagrammerne A.1 og A.3 er strikket færdig. Næste omg.* strik21m glatstrik,strik A.4 =( 24 masker), fortsæt A.2 som før over de 29 masker. Jeg kan ikke finde A.2 som skal give 29 masker ???? Kan i hjælpe. Mvh. Maibrit

12.07.2021 - 23:33

DROPS Design answered:

Hej Pia, jo A.2 består som tidliger af A+B+C ialt 29 masker :)

14.07.2021 - 10:06