Inger Kristin Mæland skrifaði:
Hvor får man kjøpt dukkene til strikkedukkene?
26.10.2021 - 17:13
Ana skrifaði:
Perfecto. Muchas gracias
29.04.2020 - 14:34
Ana skrifaði:
No entiendo como hacer los aumentos del ranglan. Me lo puede aclarar por favor . Gracias
27.04.2020 - 12:20DROPS Design svaraði:
Hola Ana. Aquí tienes un vídeo explicativo sobre cómo se trabajan los aumentos con lazadas: . Después de colocar los marcapuntos, trabajar los aumentos antes y después de cada marcapuntos. En total, hay 8 puntos aumentados en la fila.
28.04.2020 - 17:02
Carmen Abelleira Lopez skrifaði:
Por favor, como puedo conseguir el patron de la muñeca DORA, en español? Gracias
21.12.2019 - 13:03DROPS Design svaraði:
Hola Carmen. Ya está publicado.
31.12.2019 - 19:45
Daytime Cora#dropsdaytimecora |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa og buxur á dúkku úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Peysan er með laskalínu, garðaprjóni og röndum, buxurnar eru prjónaðar í sléttprjóni.
DROPS Children 35-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1 (á við um laskalínu): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 14 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. ÚTAUKNING-3 (á við um buxur): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa) sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ATH: Í byrjun á umferð er útaukningin prjónuð eftir fyrsta prjónamerkið og í lok á umferð er útaukning prjónuð á undan fyrsta prjónamerki. RENDUR: Prjónið 5 rendur í litaröð þannig: 2,5 cm ljós gráblár 2,5 cm bleikur 2,5 cm natur 2,5 cm ísblár 2,5 cm bleikur Á ermum eru einungis prjónaðar 4 rendur, fellið af eftir rönd með litnum ísblár. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni og röndum. Eftir laskalínu skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar, fram- og bakstykki er prjónað áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 50 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós gráblár. Stykkið er prjónað í GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan, prjónað er fram og til baka frá miðju að framan. Í fyrstu umferð eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki í 7. lykkju, setjið 2. prjónamerki í 19. lykkju, setjið 3. prjónamerki í 32. lykkju og setjið 4. prjónamerkið í 44. lykkju, nú eru eftir 6 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er aukið út fyrir laskalínu þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki = 8 lykkjur fleiri í umferð – sjá ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu alls 8 sinnum = 114 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka mælist stykkið ca 4 cm, prjónið e.t.v. áfram þar til stykkið mælist 4 cm – passið uppá að næsta umferð sé frá réttu. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, jafnframt þar sem auknar eru út lykkjur jafnt yfir þannig: Prjónið 15 lykkjur slétt þar sem að auki er aukið út um 7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 (= vinstra framstykki) = 22 lykkjur, setjið næstu 27 lykkjurnar á band fyrir ermi, prjónið 30 lykkjur slétt þar sem að auki er aukið út um 14 lykkjur jafnt yfir (= bakstykki) = 44 lykkjur, setjið næstu 27 lykkjur á band fyrir ermi, prjónið 15 lykkjur slétt þar sem að auki er aukið út um 7 lykkjur jafnt yfir (= hægra framstykki) = 22 lykkjur. Nú eru 88 lykkjur í umferð. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki – héðan er nú mælt. Nú er haldið áfram fram og til baka með garðaprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 8 cm frá prjónamerki er fellt af. Peysan mælist alls 12,5 cm á hæðina. ERMI: Setjið 27 lykkjur frá annarri erminni á sokkaprjón 3,5. Setjið eitt prjónamerki – héðan er nú mælt. Prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Í fyrstu umferð er aukið út um 9 lykkjur jafnt yfir = 36 lykkjur. JAFNFRAMT er haldið áfram með rendur eins og útskýrt er, þ.e.a.s. haldið áfram með litnum bleikur þar til röndin mælist alls ca 2,5 cm. Þegar stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki og rönd með litnum ísblár hefur verið prjónuð til loka, fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölu í vinstra framstykki þannig: Saumið töluna í efstu rönd með litnum bleikur þannig að ysta gatið frá gataumferð á hægra framstykki (= lykkjur sem auknar voru út þegar stykkið skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki) er notað sem hnappagat. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í sléttprjóni í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Fellt er af mitt á milli skálma og hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. BUXUR: Fitjið upp 72 lykkjur með litnum kirsuber á prjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 36 lykkjur = hliðar. Prjónið síðan gataumferð þannig: * prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn*, endurtakið út umferðina. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-3 í útskýringu að ofan = 4 lykkjur fleiri. Aukið svona út með 1,5 cm millibili (ca í 4. hverri umferð) alls 4 sinnum = 92 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 8 cm. Þegar stykkið mælist 10 cm eru miðju 5 lykkjurnar felldar af að framan og að aftan og stykkið skiptist fyrir skálmar þannig: Prjónið 20 lykkjur, fellið af næstu 5 lykkjurnar, prjónið næstu 41 lykkjur og setjið þær á þráð fyrir skálm, fellið af næstu 5 lykkjur, prjónið þær 21 lykkjur sem eftir eru. SKÁLM: = 41 lykkja. Setjið 1 prjónamerki, héðan er nú mælt. Umferðin byrjar á ystu hlið á skálm. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar skálmin mælist 7 cm, frá prjónamerki er fellt af frá röngu þannig: snúið stykkinu og fellið af með sléttum lykkjum frá röngu. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina skálmina þannig: Setjið lykkjur af þræði á sokkaprjón 3,5, byrjun á umferð frá innanverðri skálm, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir fram- og bakstykki. Prjónið á sama hátt og fyrri skálm. FRÁGANGUR: Saumið opið á milli skálma þannig: framstykki er saumað að bakstykki í ystu lykkjubogana í ystu lykkju. Þræðið teygju í gegnum götin í gataumferð og hnýtið teygjuna saman. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsdaytimecora eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 35-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.