DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3718.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cora

Prjónuð dúkka með 2 þráðum DROPS BabyMerino eða 1 þræði DROPS Big Merino og DROPS Cotton Merino. Prjónaðar stuttbuxur og snúnings sokka með 1 þræði DROPS BabyMerino.

DROPS Children 35-12
DROPS Design: Mynstur bm-019-bn
Garnflokkur A + A eða C (dúkka), A (stuttbuxur og sokkar)
-----------------------------------------------------------

DÚKKA:
MÁL: ca 43-45 cm á hæð.

EFNI DÚKKA:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150 g litur 23, ljós beige
Eða notið:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200 gr litur 19, beige
Afgangs garn fyrir andlit: bleikfjólublár fyrir munn, blár fyrir augu og brúnn fyrir augnhár.
Og notið:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50 g litur 17, vanillugulur fyrir hár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 27 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum Baby Merino eða 1 þræði Big Merino = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

FYLGIHLUTIR:
Band, 2 st ca 15 cm.
Vatt til fyllingar.

STUTTBUXUR:
Passar fyrir dúkku ca 40-50 cm. Ummál í kringum mitti ca 33 cm.

EFNI STUTTBUXUR:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 16, rauður
Stuttbuxurnar eru ca: 20 g

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

SNÚNINGS SOKKAR:
MÁL: Lengd 9 cm, breidd 7 cm

EFNI SNÚNINGS SOKKAR
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 16, rauður
1 par af sokkum er ca 10 g

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3718.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Til að litur á hári verði eins jafn og mögulegt er eru fyrstu 10-12 umferðirnar prjónaðar á toppnum á höfði með lit á hári – eða prjónað að óskaðri lengd.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að taka upp 1 lykkju frá umferð að neðan sem nýlega hefur verið prjónuð þannig: Stingið inn oddinum á vinstri prjóni í lykkju frá röngu og setjið lykkjuna á vinstri prjón, prjónið lykkjuna snúna sléttaftari lykkjubogann) (= 1 lykkja fleiri).

ÚTAUKNING-1:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki, aukið út um 1 lykkju, prjónið 3 lykkjur slétt (miðju lykkjan = lykkja með prjónamerki í), aukið út um 1 lykkju (= 2 lykkjur fleiri).

ÚTAUKNING-2:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

DÚKKA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Dúkkan er prjónuð í hring í sléttprjóni, ofan frá og niður. Dúkkan er fyllt með vatti jafnóðum og stykkin eru tilbúin. Byrjað er mitt ofan á höfði, aukið er út fyrir höfði og lykkjum fækkað fyrir háls, síðan er aukið út fyrir búk og hendur. Lykkjur fyrir hendur eru settar á þræði og búkurinn er síðan prjónaður í hring. Síðan skiptist stykkið upp fyrir opi fyrir fætur sem eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Að lokum eru lykkjur af þráðum settar til baka á prjóninn og hendur eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig.

HÖFUÐ:
Fitjið upp 8 lykkjur á 3 sokkaprjóna 3,5 með 2 þráðum með litnum vanillugulur Cotton Merino – sjá LEIÐBEININGAR.
Prjónið síðan 1 umferð slétt. Aukið síðan út þannig (prjónið með 4 sokkaprjónum þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur):
Umferðin byrjar við miðju að aftan.
UMFERÐ 1: Prjónið * 1 lykkju slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 16 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt, uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt.
UMFERÐ 3: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 24 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt, uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt.
UMFERÐ 5: Prjónið * 3 lykkjur slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 32 lykkjur.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt, uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt.
UMFERÐ 7: Prjónið * 4 lykkjur slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 40 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 8: Prjónið slétt, uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt.
UMFERÐ 9: Prjónið * 5 lykkjur slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 48 lykkjur.
UMFERÐ 10: Prjónið slétt, uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt.
Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 6 cm, JAFNFRAMT: Skiptið yfir í litinn ljós beige eftir fyrstu 10 til 12 umferðir.
Prjónið síðan áfram þannig:
UMFERÐ 1: Aukið nú út um 10 lykkjur jafnt yfir þannig: Prjónið 1 lykkju, 1 uppsláttur, prjónið * 5 lykkjur, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* alls 8 sinnum, prjónið 4 lykkjur, 1 uppsláttur, prjónið síðustu 3 lykkjur = 58 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.

Aukið nú út fyrir kinnum í hvorri hlið þannig:
UMFERÐ 2: Prjónið 22 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju – sjá ÚTAUKNING, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju, prjónið 12 lykkjur slétt (= andlit), aukið út um 1 lykkju, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju og endið með 22 lykkjur slétt = 62 lykkjur.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt.
UMFERÐ 4: Prjónið 22 lykkjur slétt, * aukið út um 1 lykkju, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju *, prjónið 12 lykkjur slétt, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 22 lykkjur slétt = 70 lykkjur.
UMFERÐ 5: Prjónið slétt.
UMFERÐ 6: Prjónið 22 lykkjur slétt, * aukið út um 1 lykkju, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju, 5 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju *, prjónið 12 lykkjur slétt, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 22 lykkjur slétt = 78 lykkjur.
Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 12 cm. Fækkið nú lykkjum fyrir háls þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri),4 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 lykkju slétt = 64 lykkjur.
UMFERÐ 2: Setjið 16 prjónamerki í stykkið þannig: * Prjónið 4 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Fækkið síðan um 1 lykkju eftir 1., 3., 5., 7., 9., 11., 13., og 15. Prjónamerki (= 8 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA! Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir 2., 4., 6., 8., 10., 12.,14., og 16. prjónamerki (= 8 lykkjur færri). Haldið svona áfram með úrtöku, þ.e.a.s. fækkið lykkjum til skiptis við annað hvert prjónamerki, alls 5 sinnum = 15 lykkjur. Prjónið 2 umferðir slétt. Höfuðið er nú tilbúið.

BÚKUR:
= 24 lykkjur. Setjið 4 prjónamerki hér: Prjónið 3 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, 4 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju (= vinstri hendi), 6 lykkjur slétt (= framstykki), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, 4 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju (= hægri hendi) og endið með 3 lykkjur slétt (= hálft bakstykki).
Í næstu umferð er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við lykkjur með prjónamerki þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hverja lykkju með prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1 (= 2 lykkjur fleiri við hvert prjónamerki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út í hverri umferð alls 6 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 3 sinnum = 96 lykkjur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og hendur þannig:
Prjónið 12 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 24 lykkjur á þráð fyrir hendi og fitjið upp 2 lykkjur undir hendi, prjónið 24 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 24 lykkjur á þráð undir hendi og prjónið upp 2 lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 12 lykkjur slétt (= hálft bakstykki) = 52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 nýrra lykkja undir hvorri hendi (= 26 lykkjur í hvorri hlið).
Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur undir hvorri hendi – sjá ÚTAUKNING-2!
Aukið svona út alls 2 sinnum = 60 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur þar til stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp undir hvorri hendi, nú er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 1 cm millibili alls 4 sinnum = 76 lykkjur. Þegar búkurinn mælist 12 cm, skiptist stykkið fyrir 2 fætur. Fellið af 2 lykkjur fyrir klof, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 34 lykkjur, fellið af næstu 4 lykkjur fyrir klof, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 34 lykkjur, fellið af síðustu 2 lykkjur fyrir klof = 34 lykkjur fyrir hvorn fót. Klippið frá og festið enda.

HÆGRI FÓTUR:
= 34 lykkjur. Byrjið umferð innan á fæti og prjónið í hring. Þegar fóturinn mælist 4 cm frá þar sem stykkið skiptist frá búk, fækkið lykkjum innan á fæti (þ.e.a.s. í byrjun og í lok umferðar) þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 3 sinnum = 28 lykkjur.

Prjónið sléttar lykkjur þar til stykkið mælist ca 11 cm frá það sem það skiptist frá búk.
Aukið nú út um lykkjur fyrir fót þannig:
Prjónið 19 lykkjur slétt og setjið 1 prjónamerki hér, * 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, setjið 1 prjónamerki hér (nú eru 8 lykkjur á milli prjónamerkja) og endið með 5 lykkjur slétt = 32 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn.
Prjónið næstu umferð þannig: prjónið 19 lykkjur slétt (fram að prjónamerki), * 1 uppsláttur, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (nú eru 12 lykkjur á milli prjónamerkja) og endið með 5 lykkjur slétt = 36 lykkjur.
Prjónið síðan án útaukningar þar til fóturinn mælist 14 cm. Nú á að fækka lykkjum framan á fæti þannig: Prjónið 19 lykkjur slétt (fram að prjónamerki), * prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (nú eru 8 lykkjur á milli prjónamerkja) og endið með 5 lykkjum slétt = 32 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 19 lykkjur slétt (fram að prjónamerki), prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (nú eru 4 lykkjur á milli prjónamerkja) og prjónið 5 lykkjur slétt = 28 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og takið frá prjónamerkin.
Prjónið 18 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum og prjónið út umferðina = 25 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt.
Setjið 1 prjónamerki í 20. lykkju frá umferð = mitt framan á fæti. Nú á að fækka lykkjum hvoru megin við þessa lykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið út umferðina = 23 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Endurtakið úrtöku hvoru megin við lykkju með prjónamerki í 1 sinni til viðbótar = 21 lykkja
Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð eru prjónaðar 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir sem prjónuð er slétt = 11 lykkjur.
Prjónið 1umferð slétt. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir sem prjónuð er slétt = 6 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna og herðið að. Festið enda vel.

VINSTRI FÓTUR:
Prjónið á sama hátt og hægri fótur þar til stykkið mælist 11 cm (= 28 lykkjur), nú er aukið út fyrir fót þannig:
Prjónið 5 lykkjur slétt og setjið 1 prjónamerki hér, * 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum. Setjið 1 prjónamerki á prjóninn hér (nú eru 8 lykkjur á milli prjónamerkja) og endið með 19 lykkjur slétt = 32 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn.
Prjónið næstu umferð þannig: prjónið 5 lykkjur slétt (fram að prjónamerki), * 2 lykkjur slétt, 1 uppsláttur, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (nú eru 12 lykkjur á milli prjónamerkja) = 36 lykkjur.
Prjónið síðan án útaukningar þar til fóturinn mælist 14 cm. Nú á að fækka lykkjum framan á fæti þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt (fram að prjónamerki), * prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (nú eru 8 lykkjur á milli prjónamerkja) = 32 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið 5 lykkjur slétt (fram að prjónamerki), prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (nú eru 4 lykkjur á milli prjónamerkja) = 28 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og takið frá prjónamerkin.
Prjónið 4 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum og prjónið út umferðina = 25 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt.
Setjið 1 prjónamerki í 6. lykkju frá umferð = mitt framan á fæti. Nú á að fækka lykkjum hvoru megin við þessa lykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið út umferðina = 23 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Endurtakið úrtöku hvoru megin við lykkju með prjónamerki í 1 sinni til viðbótar = 21 lykkja.
Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð eru prjónaðar 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir sem prjónuð er slétt = 11 lykkjur.
Prjónið 1umferð slétt. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir sem prjónuð er slétt = 6 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna og herðið að. Festið enda vel.

HÆGRI HENDI:
Setjið til baka 24 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3,5 og takið upp 1 lykkju í hverja og eina af 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hendi = 26 lykkjur. Byrjið umferð mitt undir hendi. Prjónið slétt, hringinn yfir allar lykkjur. Þegar hendin mælist 8 cm, aukið út í næstu umferð þannig: Prjónið 18 lykkjur slétt, 1 uppsláttur, * 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 4 lykkjur fleiri alls) og endið með 5 lykkjur slétt = 30 lykkjur. Þegar ermin mælist 12 cm, setjið 5 prjónamerki með 6 lykkja millibili.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju eftir hverju prjónamerki (= 5 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 5 sinnum = 5 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum lykkjur og herðið á þræði. Festið enda vel.

VINSTRI HENDI:
Prjónið á sama hátt og hægri hendi, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. þegar stykkið mælist 8 cm, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt, 1 uppsláttur, * 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 4 lykkjur fleiri alls) og endið með 18 lykkjur slétt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman lykkjur sem felldar voru af fyrir klof á framhlið og á bakhlið á búk. Saumið saman lykkjur frá uppfitjunarkanti þannig að ekki myndist gat efst uppi á höfði.

ANDLIT:
Saumið út augu með litnum blár og nokkur augnhár með litnum brúnum. Saumið smá nef með litnum ljós beige og munn með litnum ljós bleikfjólublár.

HÁR:
Hárið er fest í kringum efsta hluta af höfði, byrjið með að festa enda í umferð þar sem þér finnst að hárið eigi að byrja á efri hlið á andliti. Klippið lengdir af litnum ljós gulur ca 55 cm. Leggið þræðina saman tvöfalda, þræðið inn lykkjunni í gegnum 1 lykkju. Dragið síðan þræðina í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Þegar búið er að festa fyrstu umferðina í kringum höfuðið, festið fleiri umferðir með hári þar búið er að þekja höfuðið. Skiptið síðan hárinu í 2 hluta, 1 hvoru megin á höfðinu. Hvor hluti er nú fléttaður og þræði er hnýtt í enda í lokin.
Að lokum er hægt að klippa endana til þannig að þeir verði jafn langir.
-------------------------------------------------------

STUTTBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Buxurnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna og saumaðar saman í lokin í klofi til að mynda skálmar. Allt stykkið er prjónað úr 1 þræði.

STUTTBUXUR:
Fitjið upp 80 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum rauður.
Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stykkið mælist ca 11 cm. Leggið stykkið flatt, þannig að það vera 40 lykkjur hvoru megin á stykki – stillið af þannig að það verða 2 lykkjur slétt fyrir miðju. Saumið síðan saman 10 miðju lykkjur á framhlið með 10 miðju lykkjur á bakhlið fyrir klof. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

SNÚNINGS SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Sokkarnir eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Prjónað er stroff sem færist til í 3. hverri umferð.

SNÚNINGS SOKKAR:
Fitjið upp 36 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum rauður.
Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið í 1 cm. Í næstu umferð færist stroffið um 1 lykkju til vinstri þannig: Yfir 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið er prjónað 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, haldið áfram út umferðina. * Prjónið 2 umferðir með sléttu yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Í næstu umferð færist stroffið aftur, með 1 lykkju til vinstri *. Endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 9 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 = 18 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær 18 lykkjur sem eftir eru 2 sinnum, dragið saman og festið enda vel.
Prjónið annan sokk á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.10.2020
Leiðrétting: DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C) 200 gr litur 19, beige

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 35-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Naima wrote:

Bonjour Je ne suis pas très forte en anglais, mais j'arrive quand même à suivre les explications. Je demande juste si je peux tricoter avec les aiguilles ordinaires Merci pour tout

29.04.2023 - 20:46

country flag Jónína wrote:

Ég held að fæturnir séu víxlaðir, hægri fyrir vinstri og öfugt vinstri fyrir hægri. Það vantar úrtökurnar fremst á hendurnar (ég fann þær í ensku uppskriftinni)

08.01.2023 - 17:47

DROPS Design answered:

Blessuð Jónína. Takk fyrir ábendinguna.

09.01.2023 - 12:23

country flag Victoria wrote:

Hello! Do you think it is possible to knit the doll using cotton yarn? Will it be ok or it is better use the wool one? Thank you.

21.12.2022 - 10:28

DROPS Design answered:

Dear Victoria, you can use cotton if you like to - check the suggested alternatives and new matching amount using our yarn converter. Happy knitting!

21.12.2022 - 11:11

country flag Marian wrote:

Wat is het beste vulmiddel om te gebruiken?

24.08.2022 - 21:00

DROPS Design answered:

Dag Marian,

Goede vraag! We hebben niet echt een vulmiddel op de site staan, maar je kunt via internet vulling vinden voor bijvoorbeeld amigurumi of voor poppen.

25.08.2022 - 11:24

country flag Nina wrote:

Hej! Ni skriver "För att hårfärgen ska bli jämnast möjlig " menar ni inte hårfästet, inte hårfärgen? Sen skriver ni ärmarna. Då menar ni väl armarna?

09.01.2022 - 11:26

country flag Giovanna wrote:

Ciao parte testa guance Giro 3 62 maglie Giro 4 non viene 70 maglie ma 78. Non ho capito Grazie

13.09.2021 - 11:32

DROPS Design answered:

Buonasera Giovanna, sul giro 4 in quel punto si aumentano 8 maglie, passando da 62 a 70. Buon lavoro!

14.09.2021 - 22:02

country flag Jean Linehan wrote:

Hello. I live in Germany and want to knit this doll but with black hair and light beige skin. Is there a way to order it as a kit with all of the necessary yarn and accessories? That would be much easier for me to get it as a kit. Thank you. Jean Linehan.

17.07.2021 - 09:22

DROPS Design answered:

Dear Mrs Linehan, you will find the list of DROPS Stores in Germany here - you are welcome to ask them if they have a kit of this pattern. Happy knitting!

19.07.2021 - 09:28

country flag Helga Vaith wrote:

Wo finde i h die ganze Strickanleitunge.

01.02.2021 - 22:09

DROPS Design answered:

Liebe Frau Vaith, dieses Modell enthält die gestrickte Puppe mit kurzer Hose und Spiralsocken - um die Sprache zu ändern klicken Sie auf das Menu unten das Bild - die unterschiedlichen Kleidungen finden Sie beim klicken auf das gewünschte Bild (Hose/Jake, rosa Kleid usw). Viel Spaß beim stricken!

02.02.2021 - 10:21

country flag Patricia Watkins wrote:

I found this pattern in my Knitting magazine and purchased the wool online as I wanted to make two dolls for my neighbour's twin girls for Christmas. I managed to knit the dolls but as I am fairly new to knitting with double pointed needles did not understand the instructions for making the hair! I tried looking online as I find it easier to watch someone explain and making it at the same time a lot easier. I could not find the technique explained and as most of the comments are foreign,

09.11.2020 - 17:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Watkins, hair are attached to the head just as fringes - start on the round you'd like the hair to start and fasten fringes around the head to the very top. Then divide them into 2 bounches and plait them together. Happy knitting!

10.11.2020 - 08:56

country flag Jolanda wrote:

Hallo Müssen die Garne Baby Merino und Cotton Merino tatsächlich doppelt (mit 2 Fäden) verstrickt werden? Danke für die Antwort Jolanda

13.10.2020 - 12:09

DROPS Design answered:

Liebe Jolanda, BabyMerino wird entweder doppelt (= mit 2 Fäden) für die Puppe oder einseln (= 1 Faden) für die Hose/die Socken gestrickt - siehe die jeweilige Maschenprobe - Cotton Merino wird nur für die Haaren benutzt (damit gibt es keine Maschenprobe). Viel Spaß beim stricken!

13.10.2020 - 12:59