Nataliya Hagen skrifaði:
Er det ikke en svart katt på motivet? Flaggermus?
11.05.2019 - 10:12
Graziellapaola skrifaði:
Ma il motivo non va lavorato al contrario,cioè cominciando dalle orecchie?
15.03.2019 - 09:28DROPS Design svaraði:
Buongiorno Graziellapaola. Il maglione viene lavorato dall’alto verso il basso. Il diagramma viene letto dal basso verso l’alto, da destra verso sinistra. Si inizia quindi dalle orecchie. Buon lavoro!
15.03.2019 - 09:33
To the Rescue!#totherescuesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með leðurblöku úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 34-16 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 5,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Öll mynsturteikningin er prjónuð í sléttprjóni. Prjónaðu með 3 dokkum í umferð svo að þú sleppir við að hafa hoppin með þræðinum of löng á bakhlið á stykkinu. Þ.e.a.s. prjónið með 1 dokku ljós sægrænn hvoru megin á peysunni og 1 dokku svartur mitt í peysunni. ATH: Til að koma í veg fyrir göt þegar skipt er um lit verður að tvinna þræðina saman um hvorn annan á bakhlið á stykki. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Þ.e.a.s. aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki og alls 8 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist til fram- og bakstykki og ermar. Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum ljós sægrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 90-94-98-102-106-110 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar aukið er út fyrir laskalínu. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 32-34-36-38-40-42 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 32-34-36-38-40-42 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á bakstykki. Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 16-17-18-19-20-21 sinnum hvoru megin við öll prjónamerkin (meðtaldar útaukningar sem útskýrðar eru í fyrstu umferð) = 218-230-242-254-266-278 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni án útaukninga þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist berustykkið til fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki í byrjun á umferð (lyftið fyrstu lykkju á hægri prjón yfir á vinstri prjón), setjið fyrstu 47-49-51-53-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 62-66-70-74-78-82 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 47-49-51-53-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið 3 síðust lykkjur af þessum 6 sem fitjaðar voru upp á þráði fyrir bakstykki, setjið næstu 62-66-70-74-78-82 lykkjur á sama þráð fyrir bakstykki og setjið 3 fyrstu lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir ermi í hinni hlið á stykki á sama þráð fyrir bakstykki. Framstykki, bakstykki og ermar er síðan prjóna hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAMSTYKKI: = 68-72-76-80-84-88 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum ljós sægrænn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja í hvorri hlið (kantlykkjur fyrir saum – kantlykkjur er prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan) = 70-74-78-82-86-90 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 1-2-3-3-4-5 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 13-15-17-16-18-20 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 42-42-42-48-48-48 lykkjur – sjá MYNSTUR), prjónið 13-15-17-16-18-20 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 18-19-20-23-24-25 cm frá skiptingu. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, með litnum svartur yfir miðju 42-42-42-48-48-48 lykkjur og litnum ljós sægrænn í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 18-21-24-27-30-33 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú er eftir ca 1 cm að loka máli). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur (haldið áfram með litnum svartur yfir miðju 42-42-42-48-48-48 lykkjur og litnum ljós sægrænn í hvorri hlið). Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu (fellið af með litnum ljós sægrænn yfir ljós sægrænn og svartur yfir svartur). Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Setjið 68-72-76-80-84-88 lykkjur af þræði á bakstykki á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum ljós sægrænn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja í hvorri hlið (kantlykkjur fyrir saum – kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) = 70-74-78-82-86-90 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 1-2-3-3-4-5 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 13-15-17-16-18-20 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 42-42-42-48-48-48 lykkjur – sjá MYNSTUR), prjónið 13-15-17-16-18-20 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 18-19-20-23-24-25 cm frá skiptingu. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, með litnum svartur yfir 42-42-42-48-48-48 miðju lykkjur og litnum ljós sægrænn í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 18-21-24-27-30-33 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, það er ca 1 cm að loka máli). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur (haldið áfram með litnum svartur yfir 42-42-42-48-48-48 miðju lykkjur og litnum ljós sægrænn í hvorri hlið). Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu (fellið af með litnum ljós sægrænn yfir ljós sægrænn og svartur yfir svartur). FRÁGANGUR: Saumið út augu á framstykki með lykkjuspori með litnum perlugrár – sjá A.1. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ERMI: Setjið til baka 47-49-51-53-55-57 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós sægrænn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2½-3-3½-4-4½ cm millibili alls 8 sinnum í öllum stærðum = 37-39-41-43-45-47 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 20-24-27-31-34-38 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-5-3-5-3-5 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-27-30-35-38-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #totherescuesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.