Luclaire skrifaði:
Bonjour, j'aimerai tricoter ce modèle mais je voudrais remplacer la qualité Air par Kid Silk et Flora ou autre soit 2 laines du groupe A.... Je n'arrive pas à calculer comment faire pour savoir le nombre de pelotes il me faut dans chacune des qualités. Merci d'avance pour votre aide...
08.10.2023 - 17:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Luclaire, retrouvez la technique ici, et utilisez notre convertisseur. Bon tricot!
09.10.2023 - 09:07
Lily skrifaði:
Bonjour , je suis débutante et je n ai.pas D aiguilles circulaires ... est il possible de faire ces modèles avec des aiguilles traditionnelles? Merci par avance
17.09.2018 - 15:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Lily, dans ce modèle, seules les manches se tricotent en rond, vous pouvez ainsi tricoter le début et la fin du gilet sur aiguilles droites, veillez toutefois à bien conserver la bonne tension (= comme pour l'échantillon) car vos mailles seront plus serrées que sur une aiguille circulaire. Vous trouverez plus d'infos ici. Bon tricot!
17.09.2018 - 17:41
Ellen skrifaði:
Ik kan niet tegen wol heb het liefste katoen of acrylgaren. Kunt U mij aangeven welk ik dan het beste kan gebruiken. En hoeveel voor maat XXL. Hartelijk dank Ellen
25.04.2018 - 09:11DROPS Design svaraði:
Hallo Ellen, Je zou Paris kunnen gebruiken. Dit is een 100% katoen garen. Je kunt de garenvervanger gebruiken om uit te rekenen hoeveel gram je nodig hebt van een vervangend garen. Let op dat katoen wel veel zwaarder is dan Air (of wol) en dus een ander effect heeft. Misschien is merinowol ook een goede oplossing. Veel mensen die niet tegen gewone wol kunnen, kunnen wel tegen merinowol.
28.04.2018 - 18:14
Bettina22 skrifaði:
Gilet simple aux couleurs magnifiques le gilet qu'il faut pour l'automne ; je vais me le tricoter.
24.04.2018 - 13:54
Lavender Rose#lavenderrosecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með röndum, laskalínu og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.
DROPS 191-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 86 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3,2. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. Aukið er út um 8 lykkjur í hverri útaukningsumferð. RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Þegar stykkið mælist 2 cm í öllum stærðum frá skiptingu fyrir handveg er skipt yfir í litinn bleikfjólublár í 22 cm, síðan er prjónað áfram með litnum fjólublá þoka til loka. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Í næsta skipti sem aukið er út þá er prjónað þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið. Haldið svona áfram með útaukningu, þ.e.a.s. byrjið 1 lykkju fyrr á undan prjónamerki í hvert skipti sem aukið er út. RENDUR Á ERMI: Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm frá skiptingu fyrir handveg er skipt yfir í litinn bleikfjólublár. Prjónið með litnum bleikfjólublár í 22 cm, síðan er prjónað með litnum fjólublá þoka til loka. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 9½-9½-10-8½-9-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 86-90-94-98-102-106 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5 með litnum hveiti. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 24-28-28-32-36-40 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 og fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 110-118-122-130-138-146 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat og 5 síðustu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar slétt. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerkið er sett eftir fyrstu 24-26-27-28-30-32 lykkjur (= framstykki), 2. prjónamerkið er sett eftir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerkið er sett eftir næstu 38-42-44-46-50-54 lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett eftir næstu 12-12-12-14-14-14 lykkjur (= ermi). Nú eru 24-26-27-28-30-32 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Í næstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 16-18-20-22-23-24 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 238-262-282-306-322-338 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-24-26-28 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 40-43-46-50-54-57 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 44-50-54-58-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 70-76-82-90-98-104 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 44-50-54-58-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 40-43-46-50-54-57 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-174-190-206-226-242 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 43-46-50-54-59-63 lykkjur inn frá hvorri hlið = 76-82-90-98-108-116 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Lesið RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI og haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6-6-7-7-7-7 cm millibili alls 7-7-6-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 190-202-214-230-250-266 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43 cm frá skiptingu í öllum stærðum eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-50-54-58-58-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-56-62-66-68-72 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Lesið RENDUR Á ERMI og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-2-2-3-3-2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – lesið ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-2½-2-2-2 cm millibili alls 8-10-13-14-14-15 sinnum = 34-36-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 37-36-34-34-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari háls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir = 40-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 40-39-37-37-36-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderrosecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.