DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Summer Evening Cardigan

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, gatamynstri og ¾ ermar, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyAlpaca Silk.

DROPS 191-23
DROPS Design: Mynstur bs-135
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-350-400-450-500-500 g litur 7219, pistasía

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2,5 – fyrir kant í hálsi.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 126 lykkjur), mínus kant að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með 116 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 29) = 4.
Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 4. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ATH: Ekki er aukið út yfir kanta að framan.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynstur fyrir þína stærð (á við um A.1). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 6 lykkjur á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, haldið áfram með A.3 (prjónamerki er staðsett mitt í A.3), prjónið 2 lykkjur slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 2 lykkjur á undan A.3, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.3 (= 8 lykkjur), takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Byrjið frá réttu, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina eins og áður. Í næstu umferð (ranga) prjónið uppsláttinn slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7½-8-7-7-7½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 126-130-134-142-146-154 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með BabyAlpaca Silk.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið 6 umferðir sléttprjón fyrir kant fyrir saum, með 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið við miðju að framan – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Nú hefur verið prjónaður kantur sem brotið er uppá.
Prjónið 7 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið JAFNFRAMT út 29-33-37-29-33-33 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð – lesið ÚRTAKA-1 = 155-163-171-171-179-187 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og fellið af fyrir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 18-19-20-20-21-22 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.1A. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 227-239-251-291-305-319 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 15-15-15-17-17-17 cm frá uppábroti í hálsi. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 23-27-31-23-33-31 lykkjur jafnt yfir = 250-266-282-314-338-350 lykkjur.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar: Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 41-43-45-51-56-60 lykkjur (þ.e.a.s. á eftir framstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 48-52-56-60-62-60 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 72-76-80-92-102-110 lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 48-52-56-60-62-60 lykkjur (= ermi). Nú eru 41-43-45-51-56-60 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á framstykki.
Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til auknar hafa verið út alls 10-13-15-15-16-18 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin = 330-370-402-434-466-494 lykkjur.
Prjónið síðan eins og áður án útaukningar fyrir laskalínu, en til að koma í veg fyrir að brjóta upp gataröndina meðfram hverri laskalínu er prjónað A.2 (= 6 lykkjur) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerki er staðsett mitt í A.2).
Þegar stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 51-56-60-66-72-78 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 68-78-86-90-94-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 92-102-110-122-134-146 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 68-78-86-90-94-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 51-56-60-66-72-78 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 210-230-250-274-302-330 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, að auki er prjónað A.3 yfir miðju 8 lykkjur í hvorri hlið (prjónamerki er staðsett mitt í A.3). Munið eftir hnappagötum í vinstri kanti að framan.
Þegar stykkið mælist 5-5-5-3-3-3 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.3 í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm millibili alls 5-5-5-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 230-250-270-298-326-354 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31 cm frá skiptingu eru prjónaðar 6 umferðir í garðaprjóni fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 68-78-86-90-94-96 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-86-96-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Prjónið A.3 yfir miðju 8 lykkjur undir ermi, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2-2-2-1-1-1 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við A.3 – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 8-11-15-16-17-17 sinnum í S: Í 6. hverri umferð, í M: Í 4. hverri umferð, i L: Til skiptis í annarri hverri og 3. hverri umferð og í XL + XXL + XXXL: Í annarri hverri umferð = 60-64-66-68-72-76 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 17-16-14-12-11-11 cm frá skiptingu, en passið uppá að úrtaka mitt undir ermi sé lokið (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Í næstu umferð er aukið út um 10-6-4-12-8-4 lykkjur jafnt yfir = 70-70-70-80-80-80 lykkjur. Prjónið síðan A.4 hringinn (= 7-7-7-8-8-8 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 84-84-84-96-96-96 lykkjur í umferð. Prjónið 6 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= uppábrot). Prjónið 6 umferðir sléttprjón og fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá kant fyrir saum í hálsmáli inn að röngu og saumið niður fallega með smáu lausu spori. Gerið það sama neðst á báðum ermum. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Lynne wrote:

I have just started to work the sleeves in the round. Directionally, when I follow A3 for underarm pattern and also with the method for decreasing, does it make a difference? For example I picked up the 8 sts then commenced my first row so that the 8sts are at the end of the round. Does this effect the way the sts lean in anyway ? Decreased sts slope away from underarm and I wondered if the A3 pattern changes in anyway as a result?

28.05.2022 - 23:46

DROPS Design answered:

Dear Lynne, that's okay how you did it, start then to decrease 2 sts before A.3 with k2 tog, then work A.3 and decrease the first 2 sts after A.3 with slip 1, K1, psso. You have so decreased 1 stitch on each side of A.3. Happy knitting!

30.05.2022 - 08:29

country flag Deborah Larson wrote:

First time knitting top down & following graphs. I found the instructions & graphs easy to follow. Best thing about top down knitting is that you can try it on as you go. Very pleased with results. Thankyou

13.05.2022 - 04:07

country flag Pia Olsson wrote:

Hej! Jag har stickat klart mönstret på oket i storlek M. I beskrivningen står det att det ska finnas 239 maskor men jag har 272 maskor inklusive framkantsmaskorna. Jag har uppenbarligen gjort något allvarligt fel i mönstret, kan ni förstå vad som har blivit fel? Mönstret ser helt rätt ut när jag tittar på det. Hälsningar Pia

06.03.2022 - 09:28

DROPS Design answered:

Hej Pia, i størrelse M strikkes diagrammet 19 gange, du starter med 8 masker i diagrammet, tager ud og slutter med 12 masker i diagrammet. 12x19=228+11=239 masker. Sæt gerne et lille mærke imellem hver af de 19 rapporter. God fornøjelse!

09.03.2022 - 10:18

country flag Alice wrote:

Why are the buttonholes on the left band instead of the right?

18.04.2021 - 01:07

DROPS Design answered:

Dear Alice, what we think is the "traditional" placement of the buttons are rather arbitrary, if you look at fashion history (before the Edwardian period), buttons/ buttonholes were used on both sides, mostly depending on wheter the owner of the dress dressed herself, or somebody else helped her, but also on the prefernace of the dressmaker. In our times, pllacement of buttons/ buttonholes can change for example, if someone is left handed. However, if you prefer your buttons on the other side, you can easily but the buttonholes differently. Happy Knitting!

18.04.2021 - 04:02

country flag Kat B wrote:

I believe the pattern is set so the buttonholes are made on the LF side of the sweater, if I prefer my buttonholes on the Rt side can I move the A.1B to the Rt of A.1A while also removing the A.1A last row on the Rt & placing it instead on the 1st row on the LF. Would I achieve what I need to make the buttonholes on the Rt? Thank you so much for all the help.

18.09.2020 - 20:53

DROPS Design answered:

Dear Kat B, you can work A.1 as explained, A.1B is just worked to make the pattern the same on each side, just decrease for the buttonholes in the right front band (instead of left band in the pattern) when stated for your size (or adjust as you like them to be). Happy knitting!

21.09.2020 - 08:20

country flag Kat B wrote:

Is the 1st row After the Cast On row a Purl row? Thank you.

14.09.2020 - 00:06

DROPS Design answered:

Dear KatB, on the first row after cast on knit all stitches from RS (= first of the 6 rows in stocking stitch). Happy knitting!

14.09.2020 - 09:26

country flag Kat B wrote:

I've gotten to Row 14, which is an INC row but also a Purl Row. Am I to INC on the Purl side or have I somehow miscounted my rows? 6 rows of stocking knit; 1 row for the fold & then 7 more rows of stocking knit with the last row (14) being the Inc row. I thought all Incs were done on the Knit side. Thank you.

11.09.2020 - 01:21

DROPS Design answered:

Dear KatB, the 7th row after the fold will be a WS row, this means you will make the yarn over on the purl row. On next row from RS you will work as explained under YOKE (work now the yarn over twisted). Happy knitting!

11.09.2020 - 08:10

country flag Kat B wrote:

I LOVE this sweater but I don't know how to even start. Where does it say how many stitches are Cast On? And is this sweater done as 1 piece excluding the sleeves? Please help or maybe tell me what videos I need to watch. Thank You.

09.09.2020 - 21:22

DROPS Design answered:

Dear KatB, our patterns always start with a description of techniques used in the pattern, then goto JACKET to see a description of the work, and start with NECK where you will find the number of stitches to cast on for your size. Happy knitting!

10.09.2020 - 09:29

country flag Fournière wrote:

Merci beaucoup pour votre réponse rapide. Cordialement Martine

14.04.2020 - 22:47

country flag Fournière wrote:

Bonjour, dans le paragraphe empiecement après avoir fait les augmentations pour le raglan on continue jusqu'à 22 cm Mais à partir d'où ? Du début de l'ouvrage ou du rang de cassure du col ? Merci pour votre réponse car j'en suis à ce niveau et je ne sais pas quoi faire. Cordialement Martine

13.04.2020 - 13:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fournière, mesurez à partir du rang de montage, ainsi, vous aurez bien 22 cm depuis le montage et 21 cm (+ 2 cm d'épaules) comme dans le schéma quand l'ourlet sera replié sur l'envers. Bon tricot!

14.04.2020 - 12:46