Friedgund Thum skrifaði:
Ich habe mir diesen Pulli in schwarz und das n blau gestrickt! Er sitzt super und ist ein echtes Allround-Teil. Großartig!!!! Nun habe ich schon den ersten Auftrag einer Freundin bekommen, ihr auch einen zu stricken 😊
24.07.2018 - 16:31
Ute Hartmann skrifaði:
Ich habe mir diesen wunderschönen Pulli nachgestrickt. Es war das erste Mal, dass ich einen Pullover von oben nach unten strickte und es hat super geklappt. Durch das durchgehende Muster im Rückenbereich wird das Stricken auch nicht langweilig.
19.07.2018 - 18:50
Bader Isabel skrifaði:
Guten Tag Gerne möchte ich dieses Top ohne Muster stricken. Kann ich das Muster einfach ignorieren und die Raglanzunahmen arbeiten und muss ich trotzdem Maschen überspringen? Mir ist nicht ganz klar, wie ich einen Ausschnitt erhalte. Vielen Dank für Ihre Rückmeldung und freundliche Grüsse. Isabel Bader
16.07.2018 - 10:02DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Bader, Sie können wahrscheinlich das Top ohne Lochmuster stricken, einfach Diagramme ignorieren, für die Raglanzunahmen werden Löcher entstehen, wenn Sie keine möchten, können Sie die Umschläge verschränkt stricken (oder mit einem anderen Technik zunehmen). Viel Spaß beim stricken!
16.07.2018 - 12:03
Doris skrifaði:
Ich habe den Pullover in Drops Baby Merino gestrickt. Er ist superschön geworden und passt wie angegossen. Danke für die vielen schönen Muster!
19.05.2018 - 09:26
Carmen skrifaði:
Tengo una duda con este patrón. Cuando dice que a partir de los 15cms de ranglan se siga tejiendo hasta los 19cms pero sin aumentar puntos ?se sigue echando la hebra para que quede el agujero? No se si me he explicado bien ,espero que si.Gracias por atenderme.
10.05.2018 - 19:44DROPS Design svaraði:
Hola Carmen, después de completar los aumentos del raglán, las vueltas que se trabajan para alcanzar las medidas no tienen hebras, ya que las hebras se trabajan para aumentar puntos.
13.05.2018 - 12:48
TREHOUT skrifaði:
Bonjour, est-il est possible de livrer en france le coloris 17 (blanc)?\r\nsi oui, à quel prix?
04.05.2018 - 12:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Trehout, vous trouverez ici la liste des magasins DROPS en France, si vous n'avez pas la chance d'avoir une boutique près de chez vous, n'hésitez pas à visiter les différentes boutiques en ligne. Bon tricot!
04.05.2018 - 14:18
Krycha skrifaði:
Piękna bluzeczka! Proszę o schemat na szydełko.
07.01.2018 - 09:59
Gabriele skrifaði:
Sehr,sehr schöner Pulli! Wird gestrickt falls die Anleitung erscheint,was ich sehr hoffe!
15.12.2017 - 19:06
Chassagne skrifaði:
Très joli petit haut d’ été, facile à porter
12.12.2017 - 09:07
Diamonds in Lace#diamondsinlacetop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur með gatamynstri, laskalínu og A-formi, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Safran.
DROPS 187-30 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 44) = 2,5. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir aðra og þriðju hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat! Prjónið síðan nýjar lykkjur slétt. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið á hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 110-115-120-125-130-137 lykkjur á hringprjón 3 með Safran. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 44-39-38-41-56-65 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 154-154-158-166-186-202 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), setjið næsta prjónamerki eftir 53-53-55-59-69-77 lykkjur (= bakstykki), setjið næsta prjónamerki eftir 24 nýjar lykkjur (= ermi), setjið næsta prjónamerki eftir 53-53-55-59-69-77 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru 24 lykkjur (= ermi) á eftir síðasta prjónamerki. Umferðin byrjar í skiptingu á milli erma og bakstykkis. Nú er mynstur prjónað þannig: * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 0-0-1-3-8-12 lykkjur, prjónið miðju 49 lykkjur í A.1 (þ.e.a.s. hoppið yfir ystu 4 lykkjur hvoru megin við mynsturteikningu), prjónið 0-0-1-3-8-12 lykkjur slétt (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 20 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 11-11-12-14-19-23 lykkjur slétt, A.2 (= 27 lykkjur), 11-11-12-14-19-23 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 20 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fyrsta útaukningin fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 20-24-28-31-33-36 sinnum (meðtalin fyrsta útaukningin eins og útskýrt er að ofan) = 314-346-382-414-450-490 lykkjur. ATH: Í hvert skipti sem aukið er út fyrir laskalínu er pláss til að prjóna eina lykkju fleiri af mynstri A.1 að laskalínu á bakstykki. Þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að prjóna allar lykkjur í mynsturteikningu eru eftir 16-20-24-27-29-32 útaukningar fyrir laskalínu – þessar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn slétt. Mynsturteikning A.1 er endurtekin á hæðina til loka. Mynsturteikning A.2 er prjónuð einu sinni til viðbótar á hæðina, síðan er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur í A.2. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar á stykkið að mælast 15-17-20-22-23-25 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Haldið síðan áfram án þess að auka út fyrir laskalínu þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-25 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (ef prjónfestan passar á hæðina þá hefur stykkið náð réttu máli í stærð XL, XXL og XXXL). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 93-101-111-121-135-149 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 64-72-80-86-90-96 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið næstu 93-101-111-121-135-149 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 64-72-80-86-90-96 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur í hlið undir ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-218-238-262-290-318 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. mitt í nýjar 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum (= 101-109-119-131-145-159 lykkjur bæði á bakstykki og á framstykki). Haldið áfram hringinn með mynstur A.1 eins og áður og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3-3-4-4-4 cm millibili alls 9 sinnum = 238-254-274-298-326-354 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 34-35-36-37-38-38 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Toppurinn mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 64-72-80-86-90-96 lykkjurnar af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-80-88-96-100-106 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu er skipt yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #diamondsinlacetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.