Eva-Britt Gundersen Ovesen skrifaði:
Hei jeg er begynt og strikke ashbury park herregenser.Alt er greit til mønsterdiagrammet er ferdig,med da 256m.på omgangen.Men så står det at det skal økes 8m hver 5.omgang 2gang for str large som jeg strikker.Og da skal det være 288 m i omgangen.Det stemmer ikke.Videre etter 30cm.skal det økes 10 m.og da er det plutselig bare 276m på omgangen.Håper på svar da jeg ikke skjønner dette.
03.11.2019 - 02:17DROPS Design svaraði:
Hei Eva-Britt. Det er et forklarings avsnitt for str. S og et forklaringsavsnitt for str. M, L, XL, XXL, XXXL. Siden du strikker str L må du se på det 2. tall i tallrekken. Du øker 5 masker på hver 5. omgang 2 ganger = 266 masker. Når du leser videre og under ALLE STØRRELSER, så er alle størrelsene samlet igjen og du må da forholde deg til det 3. tallet i forklaringen. God Fornøyelse!
04.11.2019 - 13:53
Ingvild skrifaði:
Jeg får ikke maskeantallene til å stemme når jeg skal fortsette arbeidet etter fullført a1? Økninger og maskeantall stemmer ikke? (a1 har riktig maskeantall og lengde på arbeid som det står i oppskriften... )
20.01.2019 - 18:08DROPS Design svaraði:
Hei Ingvild. Før du begynner på A.1 har du økt 7-10-13-14-17-18 masker jevnt fordelt, og du har altså 84-90-96-102-108-114 masker på pinnen. Det økes 10 masker i hver rapport av A.1 fra start til slutt, og du strikker 14-15-16-17-18-19 rapporter av A.1 i bredden = totalt 140-150-160-170-180-190 masker økt når A.1 er ferdig. Om du legger sammen de økte maskene med maskeantallet du hadde fra før av får du 224-240-256-272-288-304 masker på omgangen når A.1 er strikket ferdig. God fornøyelse.
25.01.2019 - 08:47
John skrifaði:
Hei. Tips til korleis eg kan strikke denne med raglan felling? Synes det er enklere og blir finere enn med rundefelling. Har opplevd ved fleire anledninger at rundfellinga ikkje stemmer.
13.11.2018 - 21:05DROPS Design svaraði:
Hei John. Dette mønsteret er skrevet for rundfelling, og vi har dessverre ikke mulighet til å skrive den om til raglan. Det er 2 ganske forskjellige måter å øke på så det vil ha stor innvirkning på mønsteret om alle masker økes på samme sted. Om du helst vil strikke raglan har vi andre modeller du kan titte på, i katalog 185, 174 eller 135 feks. Om det er i våre oppskirfter at rundfellingen ikke stemmer vil vi gjerne at du sier ifra slik at vi kan få rettet det opp. Som du kan se her er alle økinger tegnet inn i diagrammet og det skal derfor gå opp som forklart. God fornøyelse
30.11.2018 - 09:59
Sandra skrifaði:
I'm having difficulty continuing past the 3rd row of the pattern. After the first increase the pattern on my knitting dosen't follow... what am I doing wrong?
23.02.2018 - 18:06DROPS Design svaraði:
Dear Sandra, you can insert a marker after each repetition of the diagram so that you can always check the number of sts in diagram, ie after 3rd row: 7 sts + 1 YO in all sizes so that there are 8 sts in each repeat on row 4. Happy knitting!
26.02.2018 - 07:37
Ashbury Park#ashburyparksweater |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 185-12 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í miðju að aftan = byrjun á umferð. Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 7-8-8-9-9-10 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 14-16-16-18-18-20 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-24-24-27-27-30 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 28-32-32-36-36-40 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-40-40-45-45-50 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-48-48-54-54-60 lykkjur brugðið til baka. Snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allar lykkjur í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 26,6. Í þessu dæmi er prjónað til skipist ca 25. og 26. hver lykkja og 26. og 27. hver lykkja slétt saman þegar lykkjum er fækkað. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir ca 26. Og 27. Hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. AFFELLING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki er staðsett hér, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í hring á hringprjón. Byrjun á umferð er fyrir miðju að aftan. Ermar eru prjónaðar á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 80-84-88-92-96-100 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með litnum milligrár Air. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-4-5-4-5-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 77-80-83-88-91-96 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5,5. Til að flíkin passi betur er prjónuð lítil UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, aftan í hnakka. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er prjónuð 1 umferð þar sem aukið er út um 7-10-13-14-17-18 lykkjur jafnt yfir = 84-90-96-102-108-114 lykkjur. Prjónið nú MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið og aukið út eftir mynsturteikningu A.1 (14-15-16-17-18-19 mynstureiningar með 6 lykkjum) – Lesið LEIÐBEININGAR! Þegar öll mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 224-240-256-272-288-304 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23-23-23-25-25-25 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan með litnum milligrár til loka. Prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S: Haldið áfram þar til stykkið mælist 25 cm frá uppfitjunarkanti. Haldið síðan áfram frá ALLAR STÆRÐIR að neðan. STÆRÐ M, L, XL, XXL, XXXL: Aukið út um 6-5-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í 5.-5.-5.-7.-6. hverri umferð 1-2-2-2-3 sinnum = 246-266-288-304-328 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 27-28-30-32-34 cm. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-12-10-10-8-14 lykkjur jafnt yfir = 236-258-276-298-312-342 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 35-38-41-45-48-53 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 47-52-56-59-60-64 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 71-77-82-90-96-107 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 47-52-56-59-60-64 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 36-39-41-45-48-54 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 154-166-180-196-212-234 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 9 cm millibili alls 3 sinnum í öllum stærðum = 142-154-168-184-200-222 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 31-33-32-32-32-32 cm. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 10-14-16-16-20-22 lykkjur jafnt yfir = 152-168-184-200-220-244 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl. ERMI: Setjið 47-52-56-59-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 53-58-64-67-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur. Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu eru felldar af 2 lykkjur undir ermi – lesið AFFELLING. Fellið svona áf í 9.-6.-5.-5.-4.-4. hverri umferð 9-11-13-13-14-14 sinnum = 35-36-38-41-42-46 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 41-39-39-37-35-35 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 1-4-2-3-2-2 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 47-45-45-43-41-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ashburyparksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.