DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Vintermys

Prjónuð peysa fyrir herra með marglitu norrænu mynstri úr DROPS Alaska. Stærð S - XXXL.

DROPS 185-13
DROPS Design: Mynstur x-432
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-700-800-850 g litur 03, ljós grár
200-200-250-250-250-300 g litur 02, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 fyrir stroff - eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 312 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 48) = 6,5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef að það herpist saman.

ÚTAUKNING:
Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 162-180-192-216-234-264 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum ljós grár Alaska.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan þannig: Prjónið * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið svona í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 22-26-26-34-38-44 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA að ofan = 140-154-166-182-196-220 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 70-77-83-91-98-110 lykkjur (= hliðar) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið (= 4 lykkjur fleiri í umferð) – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 8.-9.-10.-10.-8.-9. hverri umferð alls 2-2-2-2-3-3 sinnum = 148-162-174-190-208-232 lykkjur. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 4-6-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 152-168-176-192-208-232 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm er mynstur prjónað þannig:

Prjónið A.1 hringinn (= 19-21-22-24-26-29 mynstureiningar með 8 lykkjum) – lesið MYNSTUR og LEIÐBEININGAR að ofan. Í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 1-0-1-0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 153-168-177-192-210-234 lykkjur. Þegar öll mynsturteikning A.1 er lokið á hæðina er A.2 prjónað hringinn (= 51-56-59-64-70-78 mynstureiningar með 3 lykkjum). Í síðustu umferð í A.2 er aukið út um 15-0-15-0-6-6 lykkjur jafnt yfir = 168-168-192-192-216-240 lykkjur. Þegar öll mynsturteikning A.2 er lokið á hæðina er mynstrið prjónað mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S, M og XXL:
Prjónið A.3a (= 18 lykkjur) 1 sinni, prjónið A.3b (= 24 lykkjur) 6-6-8 sinnum og A.3c (= 6 lykkjur) 1 sinni. Í síðustu umferð í A.3 er aukið út um 0-6-0 lykkjur jafnt yfir = 168-174-216

Stærð L, XL og XXXL:
Prjónið A.3b hringinn í umferð (= 8-8-10 mynstureiningar með 24 lykkjum). Í síðustu umferð í A.3 er aukið út um 0-12-0 lykkjur jafnt yfir = 192-204-240 lykkjur.

Allar stærðir:
Þegar öll mynsturteikning A.3 er lokið á hæðina. Prjónið 3 fyrstu umferðir í mynsturteikningu A.4 (= 56-58-64-68-72-80 mynstureiningar með 3 lykkjum). Nú mælist stykkið ca 42-43-44-45-46-47 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 4. umferð í A.4 og fellið af 3-3-3-9-9-9 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (= 1-1-1-4-4-4 lykkjur á undan/2-2-2-5-5-5 lykkjur á eftir báðum prjónamerkjum). Fram- og bakstykki er nú prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 81-84-93-93-99-111 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Prjónið mynstur fram og til baka frá 5. umferð í mynsturteikningu A.4 þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.4 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.4, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út um 2-3-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 83-87-95-95-99-111 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig – frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.5 (= 4 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.5, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar öll mynsturteikning A.5 er lokið á hæðina er prjónað áfram í sléttprjóni með litnum grár með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið til loka.
Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm fellið af miðju 25-25-27-27-27-29 lykkju fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 28-30-33-33-35-40 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm og fellið af – lesið AFFELLING.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 81-84-93-93-99-111 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Haldið áfram alveg eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 56-58-60-61-63-65 cm. Setjið nú miðju 13-13-15-15-15-17 lykkjurnar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 28-30-33-33-35-40 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.
Fitjið upp 42-42-48-48-48-48 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með litnum grár Alaska.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan þannig: Prjónið * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur perluprjón *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið svona í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-2-6-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-44-44 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 7-7-3-5-8-7 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 8.-8.-8.-7.-6.-5. hverri umferð alls 13-13-14-15-16-18 sinnum = 64-66-70-74-76-80 lykkjur.
Þegar ermin mælist 54-54-53-53-52-48 cm fellið af miðju 4-4-4-10-10-10 lykkjur (= 2-2-2-5-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og prjónið litla ermakúpu til loka fram og til baka á hringprjón. Prjónið sléttprjón og fellið af í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 5-5-6-5-6-6 lykkjur 2 sinnum og fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 56-56-55-55-54-51 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkant. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 66-78 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á sokkaprjón 4,5 með litnum grár Alaska.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 66-66-72-72-78-78 lykkjur. Prjónið síðan þannig: Prjónið * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur perluprjón *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið svona í 6 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.12.2018
Leiðrétting: FRAM- OG BAKSTYKKI: Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm er mynstur prjónað þannig:..
ALLAR STÆRÐIR: Þegar öll mynsturteikning A.3 er lokið á hæðina eru prjónaðar 3 fyrstu umferðirnar í mynsturteikningu A.4 (= 56-58-64-68-72-80 mynstureiningar með 3 lykkjum). Nú mælist stykkið ca 42-43-44-45-46-47 cm.

Mynstur

symbols = hvítur
symbols = ljós grár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Rosa wrote:

Al poner 180 puntos al comenzar no queda desbocado el cuello

15.04.2021 - 20:53

DROPS Design answered:

Hola Rosa. El jersey se trabaja de abajo arriba. Los 180 puntos son de la parte inferior del cuerpo.

24.04.2021 - 20:18

country flag Jannie wrote:

Jeg forstår ikke det med mønstrene på a3a, a3b og a3c. Jeg strikker str S. Skal mønstret strikkes fra højre mod venstre?

27.02.2020 - 22:10

DROPS Design answered:

Hej Jannie, har du set vores lektioner som viser hvordan man strikker ifølge diagrammer? Hvordan strikker man efter diagram

28.02.2020 - 11:00

country flag Yvonne Ferdinandsen wrote:

Hej hvad betyder raporter

23.10.2019 - 09:02

DROPS Design answered:

Hej Yvonne, du gentager diagrammet/rapporten et antal gange på pinden. God fornøjelse!

23.10.2019 - 13:42

country flag Rita Sprangers wrote:

Waarom wordt de trui op een rondbreinaald gebreid, ik vind dat zo’n lastig ding, liever op gewone breinaalden, is dat ook mogelijk en zo ja wat is dan de stekenverdeling.

15.08.2019 - 14:01

DROPS Design answered:

Dag Rita,

Omdat het patoon doorloopt in de zijnaden is het voor deze trui niet aan te raden om op rechte naalden te breien, maar we hebben wel een instructie gemaakt om een patroon aan te passen, zodat je hem met rechte naalden kunt breien. Deze kun je hier vinden.

01.09.2019 - 14:30

country flag Theres wrote:

Hej! Nog är väl 54 cm ärmlängd lite mycket? Ca !45 cm borde det vara

13.05.2019 - 14:01

DROPS Design answered:

Hej. Ärmlängden ska vara 54 cm, om du tycker att ärmen blir lite för lång kan du självklart välja att göra den något kortare. Lycka till!

15.05.2019 - 10:55

country flag Luigi wrote:

Domando se il girocollo è rigido o abbastanza elastico. Grazie

10.05.2019 - 22:56

DROPS Design answered:

Buongiorno Luigi. Il girocollo sarà meno elastico che se fosse lavorato a coste diritto / rovescio. Se ha già lavorato il davanti e il dietro e le maniche, può farsi un’idea con i bordi inferiori. Buon lavoro!

11.05.2019 - 07:32

country flag Line wrote:

Hei! Jeg synes denne Vintermys-genseren er veldig flott, men kunne ha lyst til å strikke dette mønsteret i et tynnere garn for at genseren ikke skal bli så varm og tykk - kanskje pinne nr 3! Ja, det er kanskje umulig å få til, men har dere noen forslag til hvordan jeg evt kan løse det??

07.05.2019 - 13:22

DROPS Design answered:

Hei Line. Det du da må gjøre er å endre oppskriften etter strikkefastheten du vil bruke. Det innebærer å regne om alle maskeantall etter den nye strikkefastheten, slik at målene fortsatt blir som på målskissen. Ta da utgangspunkt i ønskede mål og ny strikkefatshet i bredden. For eksempel: si at du vil ha genseren 52 cm vid (=104 cm rundt hele), og at strikkefastheten er 24 masker i bredden = 10 cm. Da tar du 104 x 2,4 = 250 masker. Om du endrer strikkefatsheten må du også tilpasse slik at diagrammene går opp i hele rapporter på omgangen. God fornøyelse

07.05.2019 - 14:00

country flag Becky wrote:

Hello again. The pattern is incorrect. I'm knitting the XL and, when worked in the correct tension (20rws over 10cm), the pattern is at least 8rws short. 5cm (rib) + 4cm + 0.5 (inc rw) +5cm (10rws including inc) + 0.5 (inc rw) + 3cm (A1) + 7cm (A2) + 12.5cm (A3) = 37.5cm At this point, the XL pattern should measure 43cm. That's not possible, so either the length at the end of A3 is wrong or there aren't enough rows before the fair isle starts. Which is it?

10.12.2018 - 20:00

DROPS Design answered:

Dear Becky, thanks for your feedback, our Design Team will check - pattern has been edited on some places on body and back piece - see the correction link at the bottom of the pattern. Happy knitting!

11.12.2018 - 09:41

country flag Becky wrote:

This part of the pattern from the start of the main body is badly worded: "Increase in this way every 10th round a total of 2 times = 190 stitches. Work 1 round where you increase 2 stitches evenly on round = 192 stitches." I'm working the XL and if the pattern is followed as written, you either get 4 too many stitches or the piece is 10 rws too short. Am I correct that it should be inc 4 on 10th rw and then inc 2 on the following 10th rw?

08.12.2018 - 20:50

DROPS Design answered:

Dear Becky, you are increasing 4 sts on each increasing round. When piece measures 4 cm increase 4 sts = 186 sts, then after 10 rows increase 4 sts = 190 sts (= you increase a total of 2 times, ie only one more time after the first increase). Then work 1 row increasing 2 sts evenly = 192 sts. Happy knitting!

10.12.2018 - 09:11

country flag Oddbjorg Monsen wrote:

Hei, har naa strikket ferdig opp blomstermoensteret og arbeidet maaler 5 cm for lite, jeg fulgte oppskriften til str L, der staar det 5 cm bord, saa 4cm glattstrikk oke 2 m pa hver side av markering, 9 omg gjentas 2 ganger, det har jeg gjort men den ensfarvede delen syns jeg ble kort, er dette riktig?????

16.02.2018 - 13:52

DROPS Design answered:

Hej Oddbjorg, det lyder rigtigt men for at få målene i opskriften er det vigtigt at du har 20 pinde glatstrik på 10 cm i højden. God fornøjelse!

21.02.2018 - 15:21