Agneta Östman-Wenger skrifaði:
När jag ser de färgade ränderna, syns en vit maska på bilden. Var kommer den ifrån?
06.01.2025 - 15:43DROPS Design svaraði:
Hei Agneta. Det er den lys perlegrå masken. Se på diagram A.1 og A.2 og rad 3. mvh DROPS Design
07.01.2025 - 16:22
Jerilyn skrifaði:
For the decrease at the end, I\'m confused with the at the same time comment. Would we decrease in round 9 to 54, knit the 10th round and then do the decrease by half in the next round and so on?
27.11.2024 - 21:40DROPS Design svaraði:
Dear Jerilyn, you work the 9th round of A.2 decreasing 28 sts evenly = 56 sts left on needle. Then continue working stocking stitch with grey; after you have worked 6 rounds over the 56 sts, decrease by knitting 2 sts together all the round = 28 sts left on needle. Knit 1 round, then Knit 2 sts together around on next round = 14 sts left. Knit 1 round then knit 2 sts together around on next round = 7 sts left. Happy knitting!
28.11.2024 - 10:40
Patricia Olivia Fuchs skrifaði:
Aha, Fehler gefunden: Das mit "Nur die Masche markieren" habe ich falsch verstanden und die Zunahmen habe ich etwas anders gearbeitet. Ich werde nun einfach 10 M stilllegen und hinter dem Daumen 2 anschlagen, um wieder auf meine ursprüngliche Maschenanzahl zu kommen. Beim Daumen komme ich dann schon zurecht, vielen Dank!
03.12.2020 - 17:58
Patricia Olivia Fuchs skrifaði:
Pulswärmer, Größe S. Laut Daumenzunahmen werden 8 Maschen zusätzlich zu den 40 aufgenommen. Warum steht in der Anleitung, 9 Maschen stilllegen? Ist das ein Fehler Ihrerseits, oder welche Masche kommt da noch dazu? Weiters soll ich hinter dem Daumen eine Masche zusätzlich anschlagen, wo wir doch dann bei 41 und nicht bei 40 wären. Hilfe.
03.12.2020 - 15:43DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Fuchs, Sie stricken mit Nadeln 3,5 über 40 Maschen und nehmen 4 Mal 2 maschen für den daumen = 40 + 4M x 2 = 48 M - dann legen Sie die 8 Zunahmen + die mittlere Masche (= die mit der Markierung) still und schlagen 1 M über die 9 stillgelgten Maschen an = 48-9+1= = 40 Maschen haben Sie wieder - oder misverstehe ich Ihre Frage?
03.12.2020 - 16:36
Emilie skrifaði:
Hva skjer med mønsteret i forhold til økninger? Da A2 ikke lengre går opp med maskeantallet.
09.09.2019 - 22:32DROPS Design svaraði:
Hej Emilie, du stickar fortfarande en "prick" för var 4:e m, även om du ökar eller minskar antalet maskor. Lycka till :)
10.09.2019 - 15:46
Nova Scotia Set#novascotiaset |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu og handstúkum með norrænu Fana mynstri. Settið er prjónað úr DROPS Karisma.
DROPS 180-24 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað með sléttprjóni. ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 112 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 28. Í þessu dæmi er prjónuð 27. og 28. hver lykkja slétt saman þegar lykkjum er fækkað. Ef aukið er út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 28. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um þumal): Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Í næsta skipti sem aukið er út er það gert þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu í 6. hverri umferð svona, þ.e.a.s. aukið er út allan tímann utanverðu við útauknar lykkjur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 112-116 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í báðum stærðum – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 108-112 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið A.1 hringinn (= 27-28 mynstureiningar 4 lykkjur). Þegar A.1 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina er A.2 prjónað hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina er A.2 prjónað einu sinni til viðbótar, en í 2. umferð er fækkað um 28-28 lykkjur jafnt yfir = 84 lykkjur í báðum stærðum. Í 9. umferð í A.2 er fækkað um 28 lykkjur jafnt yfir = 56 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litnum ljós perlugrár til loka. JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir með litnum ljós perlugrár eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 = 28 lykkjur. Prjónið 1 umferð án úrtöku. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 14 lykkjur. Prjónið 1 umferð án úrtöku og prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 í næstu umferð = 7 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 26-27 cm ofan frá og niður. DÚSKUR: Gerið dúsk ca 6 cm að þvermáli með litnum ljós perlugrár. Saumið dúskinn niður efst á húfuna. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI HANDSTÚKA: Fitjið upp 52-56 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3-4 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 40-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina er A.2 prjónað hringinn – A.2 er endurtekið á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11 cm setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Í næstu umferð er aukið út fyrir op fyrir þumal með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 4 sinnum = 48-52 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 16-17 cm. Setjið 9 lykkjur fyrir þumal-opi á þráð, haldið áfram með A.2 og fitjið að auki upp 1 nýja lykkju á prjóninn aftan við þumal = 40-44 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 18-19 cm – endið eftir heila rönd með litnum ljós ólífa (nú eru eftir ca 3-4 cm til loka – mátið e.t.v. handstúkuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós perlugrár þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir = 44-48 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll handstúkan mælist ca 21-23 cm. ÞUMALL: Setjið til baka 9 lykkjur af þræði á sokkaprjón 3, prjónið að auki upp 7 nýjar lykkjur á bakhlið á þumli með litnum ljós perlugrár = 16 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (passið uppá að þumallinn verði ekki of stífur). Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3½ cm (eða að óskaðri lengd). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRI HANDSTÚKA: Prjónið eins og hægri handstúka, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. þegar aukið er út fyrir opi fyrir þumal er sett 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð og aukið er hvoru megin við þá lykkju (í stað þess að setja prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð). |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #novascotiaset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.