Nina wrote:
Hei. Stemmer det at man skal øke mellom lusene i diagram A1 M-L på økning nr 5. Sånn som jeg leser mønsteret så får jo noen av lusene da en avstand på fire masker mellom seg, mens noen får tre masker mellom. Er dette riktig?
07.06.2021 - 09:56DROPS Design answered:
Hei Nina. Ja, det stemmer. mvh DROPS design
07.06.2021 - 14:38Christine wrote:
Is there an error in the quantities for this pattern? I have almost completed the body and am already using my last ball of background yarn ( even though I bought an extra so I could knit it a little bit longer if necessary) leaving about 40g for 2 sleeves! But I have left over more than 2 full balls of olive to knit 3 stripes on each sleeve and well over 1 full ball of green which wont be needed at all
15.01.2018 - 19:28DROPS Design answered:
Dear Christine, remember to check and keep the same tension as given in the pattern. Happy knitting!
16.01.2018 - 09:13Kitty Jacobsen wrote:
Hei, Jeg holder på å strikke denne flotte genseren i S og er ferdig med mønster A1 nå. Men jeg har ikke 270 masker som det står i oppskriften at jeg skal ha, jeg har bare ca 250 masker. Har telt og telt, og lest og lest, men finner ikke ut hva jeg gjør feil. Har dere noen tips til hva jeg kan gjøre, eller er det feil i oppskriften? Vennlig hilsen Kitty
05.10.2017 - 21:19DROPS Design answered:
Hei Kitty! Vi har kontrollert diagrammet og kan ikke se at det er feil i oppskriften. Etter siste pinne i diagrammet har du 18 masker etter 1 rapport og hvis du ganger det med 15 rapporter får du 270 masker. Lykke til!
09.10.2017 - 13:14ANNA wrote:
Colori molto belli
08.06.2017 - 09:15Andrea wrote:
Mein Modell, meine Farbe
04.06.2017 - 15:53Elisabeth wrote:
FLOT MODEL elsker farverne Karisma mit favorit garn
02.06.2017 - 09:54
Nova Scotia |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu með norrænu Fana mynstri og dúsk. Peysu með hringlaga berustykki, norrænu Fana mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Settið er prjónað úr DROPS Karisma.
DROPS 180-22 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.3 og A.4. Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (á við um útaukningu jafnt yfir – á við um húfu og peysu): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 98 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 7,8. Í þessu dæmi er aukið út á eftir ca 8. hverja lykkju og lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju saman. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN (á við um peysu): Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum ljós perlugrár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-11-12-13-13-14 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. LEIÐBEININGAR (á við um peysu): Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki á peysu): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi á peysu): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 112-116 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í báðum stærðum – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 108-112 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið A.4 hringinn (= 27-28 mynstureiningar 4 lykkjur). Þegar A.4 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina er A.3 prjónað hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina er A.3 prjónað aðeins einu sinni, en í 2. umferð er fækkað um 24-28 lykkjur jafnt yfir = 84 lykkjur í báðum stærðum. Í 9. umferð í A.3 er fækkað um 28 lykkjur jafnt yfir = 56 lykkjur. Þegar A.3 er hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með ljós perlugrár til loka. JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir með litnum ljós perlugrár eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 28 lykkjur. Prjónið 1 umferð án úrtöku. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 14 lykkjur. Prjónið 1 umferð án úrtöku og prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 í næstu umferð = 7 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 26-27 cm ofan frá og niður. DÚSKUR: Gerið einn dúsk ca 6 cm að þvermáli með litnum ljós perlugrár. Saumið dúskinn niður efst á húfu. ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-92-100-104 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar kantur í hálsmáli mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8-10-10-8-10 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 90-96-102-102-108-114 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós perlugrár. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð og endið á umferð merktri með ör í réttri stærð = 15-16-17-17-18-19 mynstureiningar 6 lykkjur). Lesið LEIÐBEININGAR. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 270-288-306-340-360-380 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 14-16-17-20-21-24 cm frá uppfitjunarkanti og niður, mælt við miðju að framan. Prjónið síðan A.2 yfir allar lykkjur (= 15-16-17-19-20-22 mynstureiningar 18 lykkjur) og aukið jafnframt út 0-0-0-2-0-16 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 270-288-306-342-360-396 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru prjónaðar 0-0-2-0-2-0 umferðir sléttprjón með litnum ljós perlugrár. Stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti, mælt við miðju að framan. Nú skiptast lykkjurnar upp fyrir fram- og bakstykki og ermar og næsta umferð er prjónuð með litnum ljós perlugrár þannig: Prjónið 38-40-42-49-52-60 lykkjur slétt og aukið út 0-1-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfrir (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-64-70-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 74-80-82-96-104-120 lykkjur slétt og aukið út um 2-2-6-2-4-0 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-40-42-49-52-60 lykkjur sem eftir eru slétt og aukið út 0-1-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-180-196-216-240-268 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós perlugrár. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið = 84-90-98-108-120-134 lykkjur á fram- og bakstykki – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið A.3. PRJÓNIÐ NÚ MYNSTUR OG AUKIÐ JAFNFRAMT ÚT. LESIÐ ALLT MYNSTRIÐ OG ÚTAUKNINGU ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: ÚTAUKNING. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 16-17-18-18-19-18 sinnum = 232-248-268-288-316-340 lykkjur. MYNSTUR: Prjónið A.3 alls 5 sinnum á hæðina. Prjónið síðan með litnum ljós perlugrár til loka. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 33 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 8 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið laust af með hringprjón 4,5. Öll peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-64-70-74-76-78 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum ljós perlugrár = 68-72-80-84-88-92 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með ljós perlugrár. PRJÓNIÐ NÚ MYNSTUR OG JAFNFRAMT FÆKKIÐ LYKKJUM. LESIÐ ALLT MYNSTRIÐ OG ÚRTÖKU ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: MYNSTUR: Prjónið A.3A hringinn. Þegar A.3A hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina er stykkið prjónað áfram með litnum ljós perlugrár til loka. ÚRTAKA: Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 13-14-17-18-19-20 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 37-36-34-33-31-30 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-12-10-12-10-12 lykkjur jafnt yfir = 52-56-56-60-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 5 cm (öll ermin mælist 42-41-39-38-36-35 cm frá skiptingu) felli laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með sokkaprjón 4,5. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
DROPS Design wrote:
Colour combinations shown are: A) DROPS Karisma 72, 45, 50 B) DROPS Karisma 72, 21, 16 C) DROPS Karisma 71, 40, 64 D) DROPS Karisma 77, 55, 54 E) DROPS Karisma 55, 11, 56 F) DROPS Karisma 55, 52, 54
27.09.2017 - 10:04