Maria skrifaði:
Hallo, gerade habe ich an dem Baby 29-12 Jäckchen gestrickt und müsste jetzt die Aufteilung für den Körper und die Arme vornehmen. Ich habe die 3. Größe genommen und wie vorgesehen die Raglanzunahmen 5 mal in jeder 2. Reihe und 9 mal in jeder 4. Reihe vorgenommen. Bei 13 Maschen für die Vorderteile, 18 Maschen für den Rücken und 10 Maschen für die Arme bin ich nun bei 176 Maschen und nicht 200 - wie in der Anleitung angegeben - angekommen. Hat sich da ggf. ein Fehler eingeschlichen?
26.01.2020 - 18:49DROPS Design svaraði:
Liebe Maria, in der 3. Größe beginnen Sie mit 88 Maschen dann wird es 8 Maschen für den Raglan insgesamt 14 Mal zugenommen = 88 + (8x14) = 200 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
27.01.2020 - 09:43
Anita Holm skrifaði:
Hei. Det var veldig vanskelig for meg å forstå hvordan man skal øke ut på hver side av fletten. Ingenting passet. Jeg fikk fort alt for mange masker på pinnen. Lenge før disse 10 cm som oket skulle være. Så jeg ville ønske meg en video av akkurat dette. Å øke ut på oket.
21.01.2020 - 03:40
Anita Holm skrifaði:
Hei. Det var veldig vanskelig for meg å forstå hvordan man skal øke ut på hver side av fletten. Ingenting passet. Jeg fikk fort alt for mange masker på pinnen. Lenge før disse 10 cm som oket skulle være. Så jeg ville ønske meg en video av akkurat dette. Å øke ut på oket.
21.01.2020 - 03:40
Turi Strømberg skrifaði:
Skal strikke Little Explorer jakke. Hva menes med å strikke stikk 4 stolpemasker ?
15.01.2020 - 13:11DROPS Design svaraði:
Hej Turi, hvor i opskriften står det?
15.01.2020 - 15:07
Isa skrifaði:
Bonjour Peut on tricoter ce modèle sur 2 aiguilles , je n'ai pas l'habitude des aiguilles circulaires.... Vous seriez bien aimable de me dire comment procéder ! J'aime beaucoup vos modèles de layette mais ils ont l'air difficiles à réaliser D'avance merci !
06.01.2020 - 18:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Isa, je vous propose de regarder la lecon ICI. Bon travail!
06.01.2020 - 18:17
Marie skrifaði:
Ved økning av 8 masker, hvor mange masker skal man strikke inn på siste pinnen før man øker med to kast rundt A1? Og hvor mange masker mellom hver økning på denne pinnen? Jeg leser i et gammelt spørsmål her at det er 9 m i str 0-1, men da blir jo ikke økningen jevnt fordelt blant de 72 maskene?
17.12.2019 - 14:57DROPS Design svaraði:
Hej Marie, udtagningerne til raglan sker altid på hver side af A.1 og A.2. God fornøjelse!
15.01.2020 - 11:25
Sally Lewis skrifaði:
I adore the look of drops baby patterns but I’m bitterly disappointed that they are all knitted on circular and Double pointed needles. I’m unable to use either. Please ,please can we have some patterns that are knitted on straight needles in the future or have some patterns that give instructions for both! Thank you
27.10.2019 - 14:49DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lewis, sometimes - such as for this pattern - we are using circular needles but pattern will be worked in rows = back and forth on the circular needle. You will find how to adapt a pattern onto straight needles here. Happy knitting!
04.11.2019 - 12:30
Manoa skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas bien : \r\n1. Les diagrammes : s\'ils représentent seulement l’endroit, ça signifie que les rangs sur l’envers sont tricotés à l’endroit (point mousse) sauf A1 et A2 tricotés à l’envers ?\r\n2. A quoi correspondent A1 et A2 une fois débutées les augmentations, svp ? (A1 et A2 = 8 mailles, puis 10mailles, etc. ? Où caler les augmentations ?)\r\nMerci de vos conseils !
23.04.2019 - 23:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Manoa, les diagrammes représentent tous les rangs des diagrammes vus sur l'endroit, A.1 et A.2 vont donc se tricoter en jersey endroit (= une case blanche = 1 m end sur l'endroit, env sur l'envers), et les torsades se feront au 3ème rang de A.1 /A.2. Les diagrammes se tricotent sur 6 mailles tous les 2. Vous augmentez avant et après ces diagrammes et tricotez les nouvelles mailles au point mousse - cf RAGLAN. Bon tricot!
24.04.2019 - 09:30
Elísabet skrifaði:
Ég er að velta einu fyrir mér varðandi útaukningar. Talað er um að auka út í annari hverri umferð er þá átt við í hverri sléttri umferð og svo eftir það í annari hverri sléttri umferð?
21.02.2019 - 18:24DROPS Design svaraði:
Blessuð. Eins og ég skil þetta þá er: Aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð = slétt umferð (aukið út), brugðin umferð (ekki aukið út), slétt umferð (aukið út). Síðan 1 lykkju í 4. hverri umferð = slétt umferð (aukið út), brugðin umferð (ekki aukið út), slétt umferð (ekki aukið út), brugðin umferð (ekki aukið út), slétt umferð (aukið út). Vona að þetta hafi eitthvað hjálpað.
21.02.2019 - 22:42
Denise skrifaði:
Hallo. Verstehe ich richtig, dass zwischen den beiden Raglanzunahmen jeweils 6 Maschen gestrickt werden?
20.01.2019 - 08:58DROPS Design svaraði:
Liebe Denise, die Raglanzunahmen sind auf beiden Seiten A.1/A.2 gestrickt, dh zwischen den Raglanzunahmen haben Sie 6 Maschen (= diese 6 Maschen werden im A.1/A.2 gestrickt). Viel Spaß beim stricken!
21.01.2019 - 10:53
Little Explorer#littleexplorerjacket |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með köðlum, garðaprjóni og laskalínu úr DROPS BabyMerino, prjónuð ofan frá og niður. Stærð fyrirburar – 4 ára.
DROPS Baby 29-12 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 8 lykkjur í umferð þannig: Prjónið að fyrstu mynstureiningu A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við allar mynstureiningar A.1 og A.2 (= 2 lykkjur fleiri við hvern kaðal = 8 lykkjur fleiri alls í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin á stykki þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið garðaprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju garðaprjón (= alls 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir fyrsta hnappagati þegar stykkið mælist ca 1 cm, síðan er fellt af fyrir (3) 4-4-4-5 (5-5) næstu með ca 4 cm millibili. Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu í hægri kant að framan (séð þegar flíkin er mátuð) þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna og eru saumaðar saman í lokin. BERUSTYKKI: Fitjið upp (72) 72-80-80-80 (80-84) lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með Baby Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út um 8 lykkjur í síðustu umferð = (80) 80-88-88-88 (88-92) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan: Prjónið (11) 11-13-13-13 (13-14) lykkjur í garðaprjóni (= vinstra framstykki), A.1 (= 6 lykkjur), prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni (= vinstri ermi), A.2 (= 6 lykkjur), prjónið (14) 14-18-18-18 (18-20) lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki), A.1 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni (= hægri ermi), A.2 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið (11) 11-13-13-13 (13-14) lykkjur í garðaprjóni (= hægra framstykki). Prjónið 1 umferð frá röngu. Aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan – hvoru megin við A.1 og A.2 þannig: Aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð (0) 4-5-7-11 (12-16) sinnum, síðan 1 lykkju í 4. hverri umferð (9) 8-9-9-8 (9-8) sinnum = (152) 176-200-216-240 (256-284) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca (8) 9-10-11-12 (13-14) cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: (23) 26-30-32-35 (37-41) lykkjur í garðaprjóni, setjið næstu (34) 40-44-48-54 (58-64) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 lykkjur undir ermi, prjónið (38) 44-52-56-62 (66-74) lykkjur í garðaprjóni, setjið næstu (34) 40-44-48-54 (58-64) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 lykkjur undir ermi, prjónið (23) 26-30-32-35 (37-41) lykkjur í garðaprjóni = (98) 110-126-134-146 (154-170) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist (9) 12-15-16-17 (20-23) cm frá prjónamerki. Fellið af. ERMI: Setjið til baka (34) 40-44-48-54 (58-64) lykkjur af þræði á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Fitjið upp 4 lykkjur í lok 2 næstu umferða (= 4 nýjar lykkjur í hvorri hlið á stykki) = (42) 48-52-56-62 (66-72) lykkjur. Prjónið garðaprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin á stykki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í (10.-) 8.-8.-6.-6. (8.-8.) hverri umferð alls (3) 5-7-9-11 (12-14) sinnum = (36) 38-38-38-40 (42-44) lykkjur. Haldið áfram í garðaprjón þar til ermin mælist (10) 14-17-18-21 (24-29) cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur i vinstra framstykki. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant meðfram öllu opinu á peysunni með heklunál 3, byrjið við miðju að aftan við hnakka þannig: * 1 fastalykkja, 1 loftlykkja, hoppið fram ca 0,5 cm *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littleexplorerjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 29-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.