DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sweet Betty

Settið samanstendur af: Húfu fyrir börn í garðaprjóni og leikfanga grís með röndum. Stærð fyrirbura – 4 ára. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyMerino.

DROPS Baby 29-10
DROPS Design: Mynstur nr bm-071-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: (fyrirburi) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál í cm:
ca (28/32) 34/38 - 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(50)-50-50-50-50-(50-50) g litur 05, ljós bleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 48 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

GRÍS:
Lengd: ca 42 cm.
Ummál: ca 35 cm (án fyllingar).

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)

100 g litur 05, ljós bleikur
50 g litur 01, hvítur
+ afgangur af lit 19, grár fyrir augu.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA NR 523: 1 st.
FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING (á við um grís):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.

RENDUR (á við um grís):
* 4 umferðir sléttprjón með litnum hvítur, 4 umferðir sléttprjón með litnum ljós bleikur *, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA-1 (á við um grís):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um grís):
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undna prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið laust upp (68) 80-92-96-104 (112-116) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í (2) 3-3-4-4 (5-5) cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir = (60) 72-84-88-96 (104-108) lykkjur. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (11) 11-12-13-14 (14-15) cm – passið uppá að næsta umferð sé 1 umferð slétt, fækkið um (6) 8-7-8-8 (8-9) lykkjur jafnt yfir. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (5) 5-5-5-5 (6-6) sinnum til viðbótar = (24) 24-42-40-48 (48-45) lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Prjónið 1 umferð brugðið og endurtakið úrtöku í næstu umferð slétt í stærð 6/9, 12/18 mán og (2 - 3/4) ára (lykkjum er ekki fækkað í hinum stærðunum) = (12) 12-11-10-12 (12-12) lykkjur.
Dragið tvöfaldan þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel.

-------------------------------------------------------

GRÍS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá trýni og aftur. Fætur, eyru og skott eru prjónuð hvert fyrir sig og saumað á búkinn í lokin.

TRÝNI OG HÖFUÐ:
Fitjið upp 6 lykkjur á prjón 2,5 með litnum ljós bleikur.
ATH: Ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð slétt í hverri umferð til loka (= kantlykkja).
UMFERÐ 1 (= ranga): LESIÐ ÚTAUKNING! Prjónið 1 lykkju slétt ,* sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 11 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðin *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 21 lykkja.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
UMFERÐ 5: 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðin *, endurtakið frá *-* 18 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 41 lykkja.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7: Prjónið slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 8-9: Prjónið sléttprjón.
UMFERÐ 10: 1 lykkja slétt, * 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* 6 sinnum til viðbótar, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt = 33 lykkjur.
UMFERÐ 11-13: Prjónið sléttprjón.
UMFEÐR 14: 1 lykkja slétt, * 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 2 lykkjur slétt = 28 lykkjur.
UMFERÐ 15-20: Prjónið sléttprjón.
UMFERÐ 21: 1 lykkja slétt, 10 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 lykkjur brugðnar, 1 lykkja slétt = 30 lykkjur.
UMFERÐ 22: Prjónið slétt.
UMFERÐ 23: 1 lykkja slétt, 11 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 11 lykkjur brugðnar, 1 lykkja slétt = 32 lykkjur.
UMFERÐ 24: Prjónið slétt.
UMFERÐ 25: 1 lykkja slétt, 12 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur brugðnar, 1 lykkja slétt = 34 lykkjur.
UMFERÐ 26: Prjónið slétt.
Haldið svona áfram með útaukningu þar til 40 lykkjur eru í umferð. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 32: Prjónið slétt.
UMFERÐ 33: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur brugðnar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 44 lykkjur.
UMFERÐ 34: Prjónið slétt.
UMFERÐ 35: 1 lykkja slétt, 18 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 18 lykkjur brugðnar, 1 lykkja slétt = 46 lykkjur.
UMFERÐ 36: Prjónið slétt.
Haldið svona áfram með útaukningu, þ.e.a.s. aukið er út um 2 lykkjur mitt í stykki í annarri hverri umferð og 1 lykkja í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju í 4. hverri umferð þar til 92 lykkjur eru í umferð. Setjið 1 prjónamerki.

BÚKUR:
Haldið áfram fram og til baka á prjóni. Prjónið 2 cm sléttprjón með litnum ljós bleikur (frá prjónamerki). Prjónið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist ca 21 cm frá prjónamerki (endið á 1 rönd með litnum ljós bleikur).
Setjið 6 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig (án þess að prjóna lykkjurnar):
1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 16 lykkjur í umferð, síðan eru 5 næstu prjónamerki sett með 15 lykkjur á milli hverra (á eftir síðasta prjónamerki er 1 lykkja eftir á prjóni).
Stykkið er nú prjónað til loka í sléttprjóni með litnum ljós bleikur þannig: Í 1. umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á undan öllum prjónamerkjum – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 8 sinnum til viðbótar = 38 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkju slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 lykkju slétt = 20 lykkjur.
Prjónið 3 umferðir sléttprjón og endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar = 11 lykkjur.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið.

FRÁGANGUR:
Saumið út augu á grísinn – sjá mynd. Saumið grísinn saman alla leið frá trýni og aftur – saumið í ystu lykkjubogana, en skiljið eftir smá op til að setja fyllingu inn. Fyllið grísinn með vatti og saumið saman opið.

FÓTUR:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 6 lykkjur á prjón 2,5 með litnum ljós bleikur.
UMFERÐ 1 (= ranga): 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðin *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 11 lykkjur.
UMFERÐ 2 (og í hverri umferð frá réttu): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðin *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 21 lykkja.
UMFERÐ 4-6: Prjónið sléttprjón.
UMFERÐ 7: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 8. Prjónið slétt.
Endurtakið umferð 7 og 8 þar til 27 lykkjur eru eftir á prjóni.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með litnum hvítur. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum hvítur og prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju slétt í hvorri hlið, áður en fellt er af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið alls 4 fætur. Saumið sauma á fótum í ystu lykkjubogana. Fyllið hvern fót með vatti og saumið fæturna neðan á grísinn.
Framfæturnir eru staðsettir ca þar sem rendurnar byrja uppi við háls með ca 3-4 cm millibili.
Afturfætur eru staðsettir ca 3-4 cm framan við úrtöku að aftan.

EYRA:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna neðan frá og upp.
Fitjið upp 6 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum ljós bleikur (skiptið lykkjunum á 2 st sokkaprjóna 2,5 þannig að það verða 3 lykkjur á hvorum prjóni, prjónið með þriðja prjóninum.
UMFERÐ 1. * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 10 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 14 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
UMFERÐ 5: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 18 lykkjur.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.
Haldið svona áfram með útaukningu í annarri hverri umferð þar til 38 lykkjur eru eftir í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til eyrað mælist 9 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (þ.e.a.s. á milli 2 lykkja slétt í hvorri hlið). Fækkið síðan um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 3 sinnum til viðbótar = 22 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 10 næstu lykkjur slétt saman 2 og 2, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og fellið síðan af allar lykkjur. Notið nál og herðið uppfitjunarkantinn saman neðst niðri á eyra. Prjónið annað eyra alveg eins og saumið eyrun niður á bleiku eininguna ofan á höfði (það eiga að vera ca 7 cm á milli eyrna ofan á höfði) – sjá ljósmynd.

SKOTT:
Fitjið upp 20 lykkjur á prjón 2,5 með 2 þráðum í litnum ljós bleikur. Prjónið 2 lykkjur í hverja lykkju = 40 lykkjur. Fellið laust af, klippið frá og saumið skottið niður fyrir miðju aftan á grísnum.

BAND Í HÁLSI:
Fitjið upp 65 lykkjur á prjón 2,5 með 2 þráðum í litnum hvítur.
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja slétt, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju slétt.
Haldið svona áfram með stroff þar til bandið mælist 2 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Leggið bandið utan um hálsinn á grísnum aftan við eyrun, leggið endana yfir hvorn annan að ofan og saumið saman með nokkrum sporum. Saumið e.t.v. tölu til skrauts ofan á bandið.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 29-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Nancy Marks wrote:

Hi, I'm making the Sweet Betty hat, and I don't understand the direction near the end that says "On the next round of knit, knit all the stitches together 2 and 2." Can you please tell me what that means? Thank you!

27.05.2023 - 00:15

DROPS Design answered:

Hi Nancy Marks! That means you knit 2 together all round and every second stitch is decreased away, so you'll have fewer stitches left on the round. Hope it helps!

27.05.2023 - 14:01

country flag Britta wrote:

Hallo! Ich möchte gern wissen, ob bei der Maschenabnahme nach 12cm der anfängliche Teil (3cm im Rippenmuster) mitgezählt wird, also ab Strickstück Beginn oder wird erst dem Bündchenrand angesetzt die 12cm abgemessen? Danke für die Hilfe! LG Britta

04.04.2022 - 12:48

DROPS Design answered:

Liebe Britta, die 12 cm sind von der Anschlagskante gemessen. Viel Spaß beim stricken!

04.04.2022 - 15:07

country flag Ellie Moore wrote:

Thank you for your answer. One more question. What about the part where it says every 4th row to add increase after the edge stitch? What row would that be? Row 41? Then when again?? And do you also increase in the middle of the row so 4 increases? Thank you

23.07.2021 - 15:52

DROPS Design answered:

Dear Mrs Moore, you increase now alternately 2 sts (on each side of the 6 middle sts) and 4 sts (= on each side of the 6 middle sts + on each side of piece, inside the edge sts). So that on row 39 you will work as on row 35 and 37 (= inc 4 sts) and on row 41 as on row 35 and 37 and so on until there are 92 sts on needle. Continue like this increasing alternately 2 sts every other row and 4 sts every 4th row. Happy knitting!

23.07.2021 - 16:12

country flag Ellie Moore wrote:

Iam working on the pig pattern. I am having a problem understanding the directions for row 37 and on. Can you explain the next 4 -6 rows in detail, please? I.e. will row 37 be k1, purl 20,etc.? Thanks for your help.

23.07.2021 - 00:24

DROPS Design answered:

Hi Ellie, Yes on row 37 you have knit 1, purl 20 etc, knit a row, then knit 1, purl 22 etc and knit the next row. Happy knitting!

23.07.2021 - 08:34

country flag Britt Krogell wrote:

Hej. Undrar om man måste sy en " innerpåse" till Sweet Betty-grisen då man stickat en aning löst (enligt andra helt normalt). Jag har köpt vadd som är mening att fylla dynor med. Hur brukar det vara? Jag är novis vad gäller att sticka eller sy men har nu stickat "griseknoen" ivf till mitt första barnbarn.

19.06.2021 - 12:15

DROPS Design answered:

Hej Britt. Det är lite svårt att veta hur löst du har stickat, men tanken är inte att man ska sy en innerpåse utan bara fylla vadd direkt i grisen. Mvh DROPS Design

29.06.2021 - 13:44

country flag Teresa Muto wrote:

Salve, cosa si intende con "1 maglia a ogni lato prima/dopo la maglia di vivagno ogni 4 ferri"? lavoro prima la maglia di vivagno e poi faccio l'aumento o a inizio ferro faccio l'aumento e poi la maglia di vivagno?

03.04.2020 - 18:59

DROPS Design answered:

Buonasera Teresa, lavorare l'aumento dopo la maglia di vivagno all'inizio del ferro e prima della maglia di vivagno alla fine del ferro. Buon lavoro!

03.04.2020 - 19:21

country flag Suna wrote:

Mit wieviel Maschen muss ich die Mütze beginnen wenn ich es für ein Baby 2 monate stricken will L.g

17.01.2020 - 21:20

DROPS Design answered:

Liebe Suna, Sie können die Größe je nach der Größe oder je nach der Kopfumgang wählen, z.B. in der Größe 1/3 Monate (3. Größe) fängt die Mütze mit 92 Maschen an. Viel Spaß beim stricken!

20.01.2020 - 08:09

country flag Rosamaria Cellerino wrote:

Desidero ringraziarvi per il vostro meraviglioso sito! Per la vostra chiarezza e numerosissimi argomenti! È la mia passione. Spero presto di acquistare Drops baby Merino!Rose.

01.12.2019 - 16:25

country flag Lizeth wrote:

Klopt de beschrijving van maat 1-3 maanden van het mutsje wel? Na de minderingen (6x 7 steken) kom je inderdaad op 42 steken, maar als ik dan 1x 2 aan 2 samenbrei, kom ik toch echt op 21 steken en niet op 11, zoals er staat. Ik heb gewoon de dubbele draad door die 21 steken gehaald, maar hij is bovenop daardoor wel wat bobbeliger dan bij de maten die ik eerst gebreid had (0-1 en 6-9 maanden). Ik aarzel of ik het uithaal en nog een ronde minderingen moet doen. Uw advies graag

08.07.2019 - 11:19

DROPS Design answered:

Dag Lizeth,

Als je 42 steken hebt en alle steken 2 aan 2 samenbreit, heb je inderdaad 21 steken. Dan brei je nog 1 naald averecht en brei je opnieuw de steken 2 aan 2 samen. Je hebt dan ongeveer 11 steken. (het precieze aantal steken steekt dan niet meer zou nauw, want je rijgt een draad door de steken en trekt de draad aan om de muts dicht te maken.)

12.07.2019 - 08:45

country flag Lizeth wrote:

Dank u voor het antwoord. Ik schrijf het in mijn notitieboek erbij voor een volgend mutsje (deze is al af ;-)

22.11.2018 - 13:08