Rose Twist |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Peysa með opnum kaðli við miðju að framan prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-4 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. ÚTAUKNING-1 (á við um handveg): Allar útaukningar eru gerðar frá réttu. Aukið út innan við 3 kantlykkjum í garðaprjóni meðfram handveg. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Allar útaukningar eru gerðar frá réttu. Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni + 2 kantlykkjur í sléttprjóni (= 3 lykkjur). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-3 (á við um brugðnu mynstureiningarnar hvoru megin við kaðal við miðju að framan): Allar útaukningar eru gerðar frá réttu. Aukið út um 1 lykkju í síðustu brugðnu lykkjuna á undan sléttprjóni í vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) og aukið út um 1 lykkju í fyrstu brugðnu lykkjuna á eftir sléttprjóni í hægri hlið á stykki (séð frá réttu). Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju brugðið fram og til baka í sömu lykkju. ÚRTAKA-1 (á við um brugðnu mynstureininguna hvoru megin við kaðal við miðju að framan): Allar úrtökur eru gerðar frá réttu. Fækkið lykkjum lengst út við brugðnu mynstureiningarnar (þ.e.a.s. út að hliðum). Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. ÚRTAKA-2 (á við miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum. BAKSTYKKI: Byrjið með hægri öxl (þegar flíkin er mátuð), prjónið síðan vinstri öxl áður en fitjaðar eru upp lykkjur fyrir hálsmáli og prjónað áfram yfir allar lykkjur. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 17-18-19-17-18-19 lykkjur á hringprjóna 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þráð Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt (1. umferð = ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hálsi): 14-15-16-14-15-16 lykkjur sléttprjón, 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, að auki er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar við háls. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, að auki eru fitjaðar upp 26-26-26-32-32-32 nýjar lykkjur í lok umferðar = 44-45-46-50-51-52 lykkjur í umferð. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 17-18-19-17-18-19 lykkjur á hringprjóna 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt (1. umferð = ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá handveg): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið 14-15-16-14-15-16 lykkjur sléttprjón, fitjið að auki upp 1 nýja lykkju í lok umferðar við háls = 18-19-20-18-19-20 lykkjur í umferð. Prjónið til baka frá röngu með brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Í næstu umferð frá réttu er prjónuð vinstri og hægri öxl saman við bakstykki þannig: BAKSTYKKI: Byrjið með lykkjum frá vinstri öxl, prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru á vinstri öxl, haldið áfram í sléttprjóni yfir lykkjur á hægri öxl þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg = 62-64-66-68-70-72 lykkjur á prjóni. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjón og 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-16-16-15-13-11 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við handveg – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-7-10-13 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-5-6-7-8 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 72-78-86-94-104-114 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 6-7-8-9-10-11 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir í garðaprjóni yfir síðustu 6-7-8-9-10-11 lykkjur í hvorri hlið, haldið áfram með sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 28-30-31-32-33-34 cm frá öxl er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 2½-2½-2½-2-2-2 cm millibili alls 8-9-9-10-10-12 sinnum í hvorri hlið = 88-96-104-114-124-138 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl, fitjið upp lykkju fyrir hálsmáli, prjónið síðan hægri öxl áður en prjónað er áfram yfir allar lykkjur. VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 17-18-19-17-18-19 lykkjur á hringprjóna 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt (1. umferð = ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hálsi): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 13-14-15-13-14-15 lykkjur sléttprjón, 3 kantlykkjur í garðaprjón við handveg. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 3 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg og 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls. Þegar stykkið mælist 3 cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 3 sinnum, 2 l 1 sinni og 18-18-18-24-24-24 lykkjur 1 sinni (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni) = 40-41-42-46-47-48 lykkjur á prjóni. Eftir að síðustu lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp á prjóninn er stykkið lagt til hliðar. Prjónið nú hægri öxl að framan. HÆGRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 17-18-19-17-18-19 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt (1. umferð = ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu (þ.e.a.s. frá handveg): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 13-14-15-13-14-15 lykkjur í sléttprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni við háls. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni við háls og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Þegar stykkið mælist 4 cm eru fitjaðar upp nýjar lykkju við háls í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 3 sinnum og 2 lykkjur 1 sinni = 22-23-24-22-23-24 lykkjur. Eftir að síðustu lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp á prjóninn er prjónað til baka frá röngu með brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Í næstu umferð frá réttu er prjónuð hægri öxl og vinstri öxl saman við framstykki þannig: FRAMSTYKKI: Setjið inn lykkjur af hægri og vinstri öxl á sama hringprjón 5 án þess að prjóna lykkjurnar = 62-64-66-68-70-72 lykkjur á prjóni. Setjið 1 lykkju eftir 31-32-33-34-35-36 lykkjur og látið prjónamerki fylgja með áfram (= miðja að framan). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, sléttprjón þar til eftir eru 11-11-11-14-14-14 lykkjur á undan prjónamerki, 8-8-8-10-10-10 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur í hverja og eina af næstu 6-6-6-8-8-8 lykkjum (= 6-6-6-8-8-8 lykkjur fleiri), 8-8-8-10-10-10 lykkjur brugðið, sléttprjón þar til eftir eru 3 lykkjur í umferð og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg = 68-70-72-76-78-80 lykkjur á prjóni. Prjónið til baka frá röngu í garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur (miðju 12-12-12-16-16-16 lykkjur eru prjónaðar brugðið). OPINN KAÐALL: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, sléttprjón þar til eftir eru 14-14-14-18-18-18 lykkjur á undan prjónamerki, 8-8-8-10-10-10 lykkjur brugðið, setjið næstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 6-6-6-8-8-8 lykkjur slétt, prjónið 6-6-6-8-8-8 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, 8-8-8-10-10-10 lykkjur brugðið, sléttprjón þar til eftir eru 3 lykkjur í umferð og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Skiptið nú stykkinu við miðju að framan þannig: Setjið helminginn af lykkjum (þ.e.a.s. 34-35-36-38-39-40 lykkjur) fyrir hægri hlið á stykki (séð frá röngu) á þráð = 34-35-36-38-39-40 l eftir í umferð. Haldið áfram fram og til baka yfir lykkjur í vinstri hlið á stykki með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur – ystu lykkjurnar við miðju að framan eru nú prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) er fækkað um 1 lykkju í brugðnu mynstureiningunni – LESIÐ ÚRTAKA-1 þar til 4-4-4-5-5-5 brugðnar lykkjur eru eftir. Prjónið 3 umferðir fram og til baka án þess að fækka í brugðnu mynstureiningunni. Aukið síðan um 1 lykkju í brugðnu mynstureiningunni í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) – LESIÐ ÚTAUKNING-3 þar til 8-8-8-10-10-10 brugðnar lykkjur eru eftir. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-16-16-15-13-11 cm er aukið út fyrir handveg á hlið alveg eins og á bakstykki. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð til baka frá röngu eftir að síðasta lykkjan hefur verið aukin út í brugðnu mynstureiningunni eru lykkjurnar í vinstri hlið á stykki geymdar. Setjið til baka lykkjurnar af þræði í hægri hlið á stykki á hringprjóna 5 og prjónið alveg eins, en með úrtöku og útaukningu í brugðnu mynstureiningunni í gangstæðri hlið. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð til baka frá röngu eftir að síðasta lykkjan hefur verið aukin út í brugðnu mynstureiningunni á setja kaðalinn saman. OPINN KAÐALL SETTUR SAMAN: Prjónið frá réttu eins og áður yfir lykkjurnar í hægi hlið á stykki þar til eftir eru 6-6-6-8-8-8 lykkjur í umferð, setjið þessar 6-6-6-8-8-8 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 6-6-6-8-8-8 fyrstu lykkjurnar í vinstri hlið á stykki slétt, prjónið 6-6-6-8-8-8 lykkjur af kaðlaprjóni slétt og prjónið síðan eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í vinstri hlið á stykki. Nú er stykkinu aftur skipt upp við miðju að framan og helmingur af lykkjunum, þ.e.a.s. lykkjur í hægri hlið á stykki fram að prjónamerki (séð frá réttu) setjið á þráð. LESIÐ ALLAN KAFLANN UM FRAMSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! KAÐALL: * Haldið áfram yfir lykkjur í vinstri hlið á stykki með garðaprjón yfir garðaprjón og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til eftir eru 14-14-14-18-18-18 lykkjur á undan prjónamerki við miðju að framan, prjónið A.1B yfir þessar lykkjur – ATH: 1. umferð = ranga og mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri. Prjónið 2 umferðir með A.1B yfir síðustu lykkjur við miðju að framan, sléttprjón og garðaprjón við handveg og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu (þegar prjónað er frá réttu er mynsturteikning lesin frá hægri til vinstri). Setjið nú lykkjurnar á þráð. Klippið frá og prjónið 3 umferðir alveg eins yfir lykkjur í hægri hlið á stykki – þ.e.a.s. byrjið við miðju að framan, prjónið fyrstu umferð frá röngu með A.1A yfir ystu 14-14-14-18-18-18 lykkjur við miðju að framan (1. umferð = ranga og mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri). Setjið lykkjur af þræði í vinstri hlið á stykki á prjóninn (án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónið frá réttu eins og áður yfir lykkjur í hægri hlið á stykki þar til eftir eru 13-13-13-17-17-17 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið A.2 yfir næstu 26-26-26-34-34-34 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt í A.2) og prjónið síðan eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í vinstri hlið á stykki. Haldið svona áfram með mynstur, fækkið og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkinu aftur skipt við miðju að framan og helmingurinn af lykkjunum, þ.e.a.s. lykkjur á hægri hlið á stykki eru settar á þráð. Prjónið 3 umferðir yfir lykkjur í vinstri hlið á stykki með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttprjón yfir sléttprjón og A.3B yfir ystu lykkjur við miðju að framan, aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Setjið nú lykkjur á þráð. Klippið frá og prjónið 3 umferðir alveg eins yfir lykkjur í hægri hlið á stykki – þ.e.a.s. byrjið við miðju að framan, prjónið fyrstu umferðina frá röngu með A.3A yfir ystu 13-13-13-17-17-17 lykkjur við miðju að framan. Setjið inn lykkjur af þræði í vinstri hlið á stykki á prjóninn (án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónið frá réttu eins og áður yfir lykkjur í hægri hlið á stykki þar til eftir eru 6-6-6-8-8-8 lykkjur á undan prjónamerki, setjið þessar 6-6-6-8-8-8 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 6-6-6-8-8-8 næstu lykkjur slétt. Setjið lykkjur frá hægri prjón á þráð. Prjónið sléttar lykkjur yfir 6-6-6-8-8-8 lykkjur á kaðlaprjóni og prjónið eins og áður út umferðina *. Endurtakið allan kaflann frá *-* alls 3 sinnum á hæðina. ÚTAUKNING Á HLIÐUM: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-30-31-32-33-34 cm frá öxl er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 2½-2½-2½-2-2-2 cm millibili alls 8-9-9-10-10-12 sinnum í hvorri hlið. Þegar síðasta endurtekningin með kaðli hefur verið prjónuð til loka og útaukningar í hliðum hafa verið gerðar er stykkinu aftur skipt fyrir miðju og lykkjur í hægri hlið á stykki settar á þráð. Prjónið síðan yfir lykkjur í vinstri hlið á stykki með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hið. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað nú í brugðnu mynstureiningunni alveg eins og við kaðla, nema nú er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð (í stað annarri hverri umferð) alls 6-6-6-7-7-7 sinnum. Eftir allar útaukningar og úrtökur eru 41-45-49-54-59-66 lykkjur á prjóni í vinstri hlið á stykki. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Skiptið yfir á hringprjóna 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5 og fellið af (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið alveg eins yfir lykkjur á hægri hlið á stykki, nema með úrtöku í gagnstæðri hlið. ERMI: Ermin er prjónuð ofan frá og niður. Prjónið ermakúpu fram og til baka á hringprjóna, síðan er ermin prjónuð í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna til loka. Fitjið upp 20-24-24-24-24-24 lykkjur á stutta hringprjóna 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í öllum stærðum, 2 lykkjur 3-3-2-2-1-1 sinnum, 1 lykkja 2-2-3-4-7-9 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3 sinnum og 3-4-5-6-7-8 lykkjur 1 sinni = 56-62-66-70-74-80 lykkjur á prjóni. Stykkið mælist nú ca 8-8-9-10-12-14 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið svona með 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 12-14-15-16-17-19 sinnum = 32-34-36-38-40-42 l. Þegar stykkið mælist 37-37-37-36-35-33 cm frá prjónamerki (öll ermin mælist ca 45-45-46-46-47-47 cm ofan frá og niður), prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 8-6-12-10-8-14 lykkjur jafnt yfir = 40-40-48-48-48-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 10 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – ATH: Mikilvægt er að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Til að koma í veg fyrir það er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 55-55-56-56-57-57 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. Saumið hliðarsaum frá handveg og niður innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið ermar í – kantur með garðaprjóni meðfram handveg á að liggja utan á ermi (þ.e.a.s. látið kant með garðaprjóni liggja aðeins yfir kant meðfram handveg). HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 74 til 84 lykkjur í kringum hálsmál á stutta hringprjóna 4 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið áður en fellt er laust af með sléttum lykkjum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (124)
Miranda skrifaði:
I refer to the right shoulder front instructions for rose twist pattern 176-4 The instructions say "when the piece measures 4cm". Should this be 3cm instead, as per instructions for left shoulder front?
08.05.2019 - 09:53DROPS Design svaraði:
Dear Miranda, to get the same height at the end of both shoulders, you should start increasing for neck after 3 cm on left shoulder and after 4 cm on right shoulder. Happy knitting!
16.05.2019 - 09:14Marie skrifaði:
Hei. Hva er målene på størrelsene small og medium? Hvilken størrelse bruker modellen?
21.02.2019 - 18:31DROPS Design svaraði:
Hei Marie. Helt nederst, under diagrammene finner du en målskisse med alle plagget mål i alle størrelser, oppgitt i cm. Vi har nå sjekket at det er tilgjengelig, og det var det. God fornøyelse
25.02.2019 - 14:44Kali skrifaði:
Bonjour, je suis à la division de la torsade au début, mais je ne comprends pas le terme "la maille côté milieu devant" ! De quelle maille s'agit-il ? est-ce la dernière maille de la torsade ? merci
24.01.2019 - 22:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Kali, c'est la maille qui se trouve au milieu du devant, à l'opposé du côté couture au dos. Bon tricot!
25.01.2019 - 08:58Laura skrifaði:
Buongiorno, mi piacerebbe eseguire questo modello con il filato baby Alpacha Silk ad un filo lavorato con i ferri nr. 3 , quanto ne devo acquistare? Grazie mille
21.01.2019 - 13:42DROPS Design svaraði:
Buongiorno Laura. A questa pagina trova le indicazioni necessarie per sostituire i filati consigliati con un altro. Per ogni ulteriore aiuto, può rivolgersi al suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!
21.01.2019 - 14:14Monica skrifaði:
Buonasera, vorrei sapere se per fare l'arrotondamento della manica, le maglie vengono aumentate solo a diritto oppure anche a rovescio perché dice alla fine di ogni ferro. Grazie per la risposta
12.01.2019 - 00:10DROPS Design svaraði:
Buongiorno Monica. Per l'arrotondamento della manica, aumenta sia sul diritto che sul rovescio. Buon lavoro!
12.01.2019 - 06:46Carolina skrifaði:
Hej! Undrar hur många kantmaskor det ska vara på framstycket? Står 3, därefter står det inget fram till att flätan är klar och då är det 1 kantmaska. När ska man byta från 3 till 1? Tack för ett fint mönster. Hälsningar Carolina
02.12.2018 - 22:29DROPS Design svaraði:
Hei Carolina. Du strikker 3 kantmasker i riller rundt ermhullet, når dette er ferdig strikker du med kun 1 kantmaske i rille videre. Du øker til ermhull som på bakstykket, og så strikker du 2 pinner med rillemasker over maskene rett under ermhullet og glattstrikk over resten av maskene. Videre strikkes glattstrikk og 1 kantmaske rille. God fornøyelse.
05.12.2018 - 10:50Kari Lisbjerg skrifaði:
Kære Drops. Har stillet et spm og vil høre, om nogen har mulighed for at svare, da jeg er gået i stå ked arbejdet? På forhånd mange tak Mvh Kari
28.11.2018 - 17:30DROPS Design svaraði:
Hei kari. Se svar under
29.11.2018 - 14:00Daniela skrifaði:
Buonasera. Sto lavorandinil davanti, tg XL. Devo fare questo passaggio in "confezione della treccia aperta".*Dividere ora il lavoro di nuovo al centro sul davanti e mettere la metà delle maglie in attesa su un ferma maglie, mettere quindi in attesa su un ferma maglie le maglie del lato destro fino al segno. Sarebbe possibile avere il numero delle maglie su ciascun ferro perché penso che il mio segno non sia nel punto giusto. Grazie
26.11.2018 - 17:21DROPS Design svaraði:
Buongiorno Daniela. Dopo aver aumentato per gli scalfi, deve avere in tutto 94 maglie (47 m per la metà destra e 47 per la metà sinistra). Il segno si trova al centro delle maglie, quindi al centro della treccia. Buon lavoro!
27.11.2018 - 12:32Kari Lisbjerg skrifaði:
2.afsnit i “snoning”; strik fra retsiden....strik A2,og forstår ikke, jeg skal strikke A2 og starte fra retsiden,idet 1.pind i A2 jo er fra vrangsiden? Skal jeg så bare strikke 1 pind og følge maskerne, FØR jeg strikker 1.pind i A2?
22.11.2018 - 21:30DROPS Design svaraði:
Hei Kari. Beklager sent svar. Hvorfor tror du første omgang i A.2 er fra vrangsiden? Dette er rettsiden. Du starter med å strikke 2 masker vrang sammen, så strikker du 5 (eller7) masker vrang (avhengig av hvilken størrelse du strikker), 12 (eller 16) masker rett, 5 (eller 7) masker vrang og 2 masker vrang sammen. Så strikker du 2 rad tilbake, fra vrangsiden. God fornøyelse.
29.11.2018 - 13:59Annette skrifaði:
Can you please explain (make clearer) the starting instructions. Cannot get past this...
08.10.2018 - 01:28DROPS Design svaraði:
Hi Annette, The starting instructions about right and left shoulder are an overview of the work you are about to do - that you work first the right shoulder, then the left and join them by casting on for the neck afterwards. So the work actually starts with casting on for the right shoulder. I hope this helps and happy knitting!
08.10.2018 - 08:10