DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Roseanne

Prjónuð aðsniðin peysa með laskalínu og köðlum, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Paris. Stærð S-XXXL.

DROPS 176-3
DROPS Design: Mynstur w-649
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-700-800-850 g litur 58, púðurbleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 fyrir garðaprjón – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít), NR 522: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 98 lykkjur), mínus kanta að framan (td. 8 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 7,5. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið fyrstu út 2 lykkjur á undan A.2 á vinstra framstykki, eftir A.2 og á undan A.2 á bakstykki og á eftir A.2 á hægra framstykki þannig: Aukið út um 2 lykkjur á undan A.2 með því að prjóna þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út um 2 lykkjur á eftir A.2 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn næst A.2 prjónaður brugðið svo að það myndist gat. Seinni uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

Aukið síðan út með 1 lykkju við A.2 á hvoru framstykki og 1 lykkju voru megin við A.2 á bakstykki þannig: Aukið út um 1 lykkju á undan og á eftir A.2 með því að slá einu sinni uppá prjóninn (= alls 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat.

LASKALÍNA Á ERMI:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju á hvorri hlið á ermi, þ.e.a.s. á eftir og á undan A.2 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat.

LEIÐBEININGAR:
Þegar aukið er út fyrir laskalínu í 4. hverri umferð á að prjóna eitt gat á undan og á eftir A.2 í umferð frá réttu án úrtöku þannig:
Á undan A.2: Byrjið 2 lykkjum á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Á eftir A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermi):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.2, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING-2 (á við um brugðnu mynstureiningarnar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í skiptingunni á milli sléttum lykkjum og brugðnum lykkjum. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið frá röngu þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 síðustu lykkjurnar slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir garðaprjóni í hálsi. Fellið síðan af 5-5-5-6-6-6 næstu með ca 9-9-9-8-8-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 98-100-100-104-110-110 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 4,5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í þriðju umferð (slétt frá réttu) er aukið út um 12-14-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 110-114-114-118-126-126 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, prjónið A.1 (= 4 lykkjur í fyrstu umferð) alls 2-2-2-2-3-3 sinnum, 1 lykkja brugðið, 1-2-2-3-1-1 lykkjur slétt (= vinstra framstykki), A.2 (= 8 lykkjur í fyrstu umferð), 12 lykkjur slétt (= vinstri ermi), A.2 (= 8 lykkjur), 1-2-2-3-1-1 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið A.1 alls 5-5-5-5-7-7 sinnum, 1 lykkja brugðið, 1-2-2-3-1-1 lykkja slétt (= bakstykki), A.2, 12 lykkjur slétt (= hægri ermi), A.2, 1-2-2-3-1-1 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið A.1 alls 2-2-2-2-3-3 sinnum, 1 lykkja brugðið og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram fram og til baka. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH: Mismunandi er aukið út á fram-/bakstykki og ermum þannig:

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Lesið LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI. Aukið út um 2 lykkjur í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 1-2-2-3-3-6 sinnum, aukið síðan út um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 16-17-19-21-23-22 sinnum.

ERMAR:
Lesið LASKALÍNA Á ERMI. Aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 11-17-19-20-18-20 sinnum og síðan í 4. hverri umverð alls 3-1-1-2-4-4 sinnum – LESIÐ LEIÐBEININGAR.

Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 238-270-286-314-330-358 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 37-41-43-48-52-57 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-68 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 68-76-80-90-98-108 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-68 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 37-41-43-48-52-57 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= vinstra framstykki). Stykkið mælist nú 16-18-20-22-24-26 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl og niður. Fram- og bakstykki og ermar eru nú prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 154-170-182-202-222-242 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með mynstrið fram og til baka eins og áður, nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 10 cm frá skiptingu.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað í hverri brugðinni mynstureiningu á milli 2 kaðla (fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman) = 6-6-6-6-10-10 lykkjur færri (þ.e.a.s.1-1-1-1-2-2 lykkjur á hvoru framstykki og 4-4-4-4-6-6 lykkjur á bakstykki).

Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 140-156-168-188-204-224 lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 16 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju í hverri mynstureiningu með brugðnum lykkjum á milli kaðla þar sem lykkjum var fækkað áður – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 6-6-6-6-10-10 lykkjur fleiri) = 146-162-174-194-214-234 lykkjur.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju brugðið hvoru megin við hvern kaðal (= 18-18-18-18-26-26 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu hvoru megin við hvern kaðal með 3 cm millibili alls 5 sinnum = 236-252-264-284-344-364 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð er haldið áfram með mynstur fram og til baka án úrtöku og útaukningar. Þegar stykkið mælist ca 31 cm frá skiptingu – endið eftir 4. eða 8. umferð í mynsturteikningu, prjónið 2 umferðir sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 6 umferðir í garðaprjóni, skiptið til baka yfir á hringprjón 5 og fellið af með hringprjón 5.

ERMI:
Setjið 48-56-60-64-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-62-68-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu.
Prjónið sléttprjón hringinn og A.2 yfir miðju lykkjur undir ermi (A.2 er 8 lykkjur í fyrstu umferð). Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.2 – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 2 lykkjur færri). Fækkið svona alls 9-13-15-16-16-17 sinnum í S: Í 6. hverri umferð, í M: Í 4. hverri umferð, í L + XL: Í 3. hverri umferð, í XXL + XXXL: Í annarri hverri umferð = 36-36-38-40-42-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 28-26-25-24-22-22 cm frá skiptingu, skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón, skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5 og fellið af með sokkaprjón 5.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, notið vinstri prjón og steypið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar 2 þannig að lykkjan liggi utan um 2 síðustu lykkjur á hægri prjóni (= 1 lykkja færri)
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Sharon Hunt wrote:

Hello, am not getting rows per inch in this pattern. Will this affect the length of the raglan/sleeve if so what do i do? Will the raglan be too tight/short if do what do I do? If i have knit extra rows how many and what intervall. Thank you.

18.04.2024 - 14:55

DROPS Design answered:

Hi Sharon, if knitting tension is incorrect in height and the knitting is too tight, the raglan dec will be too short and the armholes too small. This can be adjusted by working 1 extra round without dec evenly spaced between dec. Happy knitting!

18.04.2024 - 15:28

country flag Eli wrote:

Bonjour, Le dessin A2 pour les augmentations me semble clair, mais sous la manche, il faut le continuer jusqu'au fond de la manche? Est-il possible de faire les manche sans A2? Merci du consegna, bonne journée

26.03.2022 - 22:12

DROPS Design answered:

Bonjour Eli, vous pouvez ne pas faire A.2 sous les manches, diminuez alors comme on le montre dans cette vidéo au lieu de diminuer de chaque côté de A.2. Bon tricot!

28.03.2022 - 08:49

country flag Eli wrote:

Bonjour, est-il possibile de travailler ce modele aver de la laine?

19.02.2022 - 18:04

DROPS Design answered:

Bonjour Eli, bien sur, choisissez la laine du meme groupe de fil, c'est-a-dire C. Bon tricot!

20.02.2022 - 19:32

country flag Esther wrote:

Hallo es scheint ja offenbar wirklich nicht einfach zu sein, diese Anleitung umzusetzen. wir haben schon Stunden damit verbracht, das alles zu verstehen. gibt es da evtl. eine neuere Version oder Korrekturen? wir vermuten auch, dass da noch ein Fehler drin ist. danke für die Rückantwort schon im Voraus

07.11.2020 - 11:15

DROPS Design answered:

Liebe Esther, können Sie uns bitte mehr sagen, welche Größe stricken Sie? Wo genau haben Sie Schwierigkeiten? An welche Stelle von der Anleitung/Diagram? Haben Sie die Videos (= z.B Wie man diese Zöpfe strickt)/Lektion gesehen?

09.11.2020 - 09:54

country flag Maicen wrote:

Hej! Gällande första varvet på oket: ska A2 stickas på höger framstycke men ej på vänster framstycke? Det står konstigt i beskrivningen som att A2 bara ska stickas på höger framstycke. Gällande ökningstips 2: Vad menas med de aviga partierna på fram och bakstycke?

11.03.2019 - 11:41

DROPS Design answered:

Hej. A.2 stickas innan och efter de de slätstickade maskorna på ärmen så det blir riktigt om du följer mönstret (ser att det är otydligt vad som tillhör framstycke och vad som tillhör ärm). De aviga partierna vi menar är de mellan flätorna. Lycka till!

14.03.2019 - 10:03

country flag Elisabeth Bourguignon wrote:

Est-il possible de le tricoter sans le motif, juste en jersey endroit, avec les augmentations bien évidemment? Merci de me répondre.

30.05.2018 - 15:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bourguignon, le nombre de mailles est calculé également avec les mailles point fantaisie des devants, des raglans et du dos, il vous faudra peut-être faire quelques ajustements ou regarder parmi nos autres modèles de gilets raglan. Bon tricot!

30.05.2018 - 16:17

country flag Elisabeth Bourguignon wrote:

Est-ce-que j\'ai bien compris? Le travail est partagé ainsi : les devants gauche et droit se tricotent sur 16 mailles chacun, les 2 manches sur 20 mailles chacune et le dos sur 42 mailles pour le premier rang. Ce qui fait 114 mailles. C\'est bien ça? Dommage que ce ne soit pas précisé dès le départ!

30.05.2018 - 15:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bourguignon, pas tout à fait, car on a entre chaque pièce devant/manche et manche/dos les mailles du raglan soit A.2 (= 8 m au 1er rang). A.2 se tricote après les mailles du devant gauche, avant et après les manches et le dos et avant le devant droit. Les augmentations du raglan vont se faire ainsi soit avant soit après A.2 (cf augmentations raglan). Bon tricot!

30.05.2018 - 16:15

country flag Fabienne wrote:

Bonjour Et ma seconde question concernant A2 toujours : pour le devant et le dos je crois comprendre qu'on arrête net le motif A2 et on continue en jersey. Est ce correct ? mais là aussi il me semble que ce n'est pas très joli de l'arrêter net. Merci encore de votre aide, Fabienne

03.02.2018 - 17:51

DROPS Design answered:

Bonjour Fabienne, tout à fait, comme on le voit sur la photo, on ne tricote plus A.2 sur les côtés après la séparation des manches et du dos/des devants (juste au milieu sous la manche). Bon tricot!

05.02.2018 - 09:06

country flag Fabienne wrote:

Bonjour, je ne comprends pas comment démarrer A2 sous les manches après la séparation manches/corps. En effet on a : un demi motif A2 qui vent du devant (4 mailles) + 6 mailles que l'on doit rajouter + un demi motif A2 qui vient du dos (4 mailles) =14 mailles. Mais le motif A2 est de 8 mailles et non 14, il faut donc casser les 2 demi motif A2 et en recréer un qui ne sera pas aligné avec le dessus. Est ce correct? Ceci ne me semble pas esthétique... Merci ! Fabienne

03.02.2018 - 17:48

DROPS Design answered:

Bonjour Fabienne, sous la manche, on va tricoter A.2 au-dessus des 6 m montées + 1 m de chaque côté = 8 m. On ne continue pas les A.2 de l'empiècement. Bon tricot!

05.02.2018 - 09:05

country flag Kariweggersen wrote:

Hei. Jeg prøver igjen. Ut i fra mønstre skal jeg stikke A 2 på begge sider av armene. A 2 følger med helt til jeg skal dele opp til ermene o.s.v.d. De er jo også med i maskeantallet på 286 masker. Hva gjør jeg for å avslutte A 2 når jeg setter armmaskene på tråd. Det er mulig jeg har misforstått noe vesentlig. Håper du skjønner nå hva jeg mener😊 hilsen Kari som enda er full av håp 😀

11.01.2018 - 15:26

DROPS Design answered:

Hei Kari, Du avslutter ikke A.2 når du setter maskene på en tråd. A.2 fortsetter etterpå når du strikker ermene. Håper dette hjelper og god fornøyelse!

12.01.2018 - 07:57