Stine skrifaði:
Hei, når det står at det skal felles masker til hals, skal de da bare strikkes sammen eller felles av som man gjør når man skal avslutte et arbeid?
08.05.2014 - 13:28DROPS Design svaraði:
Hei Stine, när du först feller 2 masker så felles de genom att strikke 2 så lyfte den 1. over den 2. osv. Men när du deretter feller 1 m, så kan du velge at strikke de förste 2 m sammen så blir det ikke hack der :)
09.05.2014 - 18:35
Kari skrifaði:
Hei! på monteringen skal hetten kun fstes v
01.05.2014 - 16:56
Mariella Engman skrifaði:
Hittade ett fel i detta mönster. När man har stickat enl OK: så när man är färdig med alla minskningar och avm för raglan och halsringn, så har man 92 m kvar inte 52 m som det står i mönsteret. Har räknat om och om igen och kommer fram till det.
26.02.2014 - 14:37DROPS Design svaraði:
Nej det är inte fel. Du har 144 m. Sätter 4 markörer. Maskar av 1 m på varje sida om de 4 markörerna = 8 m minskas. Du upprepar minskningen totalt 10 ggr, alltså minus 80 maskor. Så minskar du totalt 6 m på var sida av halsen = minus 12 m. 144-80-12 = 52.
01.03.2014 - 01:00
Nanna-Lill skrifaði:
Hei, Skal denne dressen strikkes med dobbelt garn? Siden pinne 4,5 skal brukes? Så ser dressen så tykk ut. Håper på snart svar.
23.02.2014 - 22:10DROPS Design svaraði:
Hei Nanna-Lill. Nej, der er kun strikket med 1 traad.
28.02.2014 - 16:54
Marie-Louise Löfgren skrifaði:
Tack så mycket för snabbt svar! Menar ni med framkanten resåren där knapparna kommer? Förstår jag rätt i att man skall börja ta upp maskor för huvan där resåren för knapparna slutar? Tack på förhand!
16.02.2014 - 14:30DROPS Design svaraði:
Ja du stickar inte upp m över framkanten, men strax efter. Lycka till!
08.05.2014 - 10:28
Marie-Louise Löfgren skrifaði:
Hur gör man justeringen av maskantalet för huvan efter att man plockat upp maskorna runt halsringningen? Skall det avmaskas jämnt eller från båda sidorna? Visst är det också så att man skall plocka upp maskor för huvan från framkanten? Tacksam för svar!
14.02.2014 - 22:35DROPS Design svaraði:
Hej Mari-Louise, du justerar/minskar genom att sticka ihop maskorna 2 och 2 jämnt fördelat över varvet. Du ska inte plocka upp maskor till huvan över framkanterna. Det görs en kant lite senare :)
15.02.2014 - 01:41
Joyce Bassin skrifaði:
I have been enjoying this project until I got to the Yoke neck decreases. If I decrease 2 stitches on each side 3 times I will end up decreasing part of the raglan.Am I misreading this?
11.12.2013 - 22:53DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Bassin, in first size, you start front piece with 17 sts, you dec 1 st 10 times for raglan (on front pieces) + 2 sts 3 times for neck = 1 st remain on front piece when all dec are done. Happy knitting!
12.12.2013 - 09:03
Camilla Harms Ødeby skrifaði:
Jeg har et spm om bærestk. Når jeg skal sette en merketråd på overgangene mellom bolen og ermene = 4 merketråder, er dette inkludert merketråden fra da jeg strikket ermet? Jeg får ikke fellinga til raglan til å stemme hvis jeg skal sette på 4 merketråder :/
23.11.2013 - 11:20DROPS Design svaraði:
Nej du sætter 4 nye mærketråde midt i overgangene mellem ærmerne og rygstykket og mellem ærmerne og forstykket.
27.11.2013 - 10:36
Ute skrifaði:
Danke jetzt habe ich meinen Denkfehler gefunden
05.10.2013 - 07:53
Ute Dolina skrifaði:
Ich habe bei der Rundpasse Probleme. es sind 160 Maschen und ich soll bei jeder Markierung 1 M abnehmen und das ganze 11 mal so sind das 44 Maschen. gleichzeitig ab der 6 Abnahme für die Passe am Anfang jeder Reihe gegen die vordere mitte abk 2 M 3ma und danach 1M 2x, wie komme ich von 160 M dabei auf 56 M. Wo ist mein Fehler. Wenn ich bei den Markierungen abneheme und dann anschießend am Anfang
02.10.2013 - 19:51DROPS Design svaraði:
Liebe Uta, ich weiss nicht, welche Stelle Sie falsch interpretiert haben, die Maschenzahl nämlich geht auf: 160-88-12-4= 56 M.
04.10.2013 - 07:17
Little Blue Dream#littlebluedreamoverall |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður galli fyrir börn með hettu og heklaður bangsi úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 20-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fl í byrjun á hverri umf er skipt út fyrir 1 ll og hver umf endar með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. FL HEKLAÐAR SAMAN: 2 fl eru heklaðar saman í 1 fl þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru skálmar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan eru skálmar settar á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka. SKÁLM: Fitjið upp 48-54-60 (66-72) l á sokkaprjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = innan á skálm. Prjónið 1 umf slétt og prjónið síðan stroff 3 l sl/3 l br. Prjónið stroff í 4-4-4 (5-5) cm. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 6 l jafnt yfir = 42-48-54 (60-66) l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf br og haldið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 6-6-6 (7-7) cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 3-4-5 (5-7) cm millibili alls 4 sinnum = 50-56-62 (68-74) l. Þegar stykkið mælist 16-20-23 (25-32) cm skiptist stykkið upp að innanverðu á skálm og stykkið er prjónað til loka fram og til baka (þetta er gert til að síðar verði léttara að setja skálmarnar á sama hringprjón). Fitjið upp 1 kantlykkju í hvorri hlið = 52-58-64 (70-76) l. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið inn skálmarnar á sama hringprjóna nr 4,5 = 100-112-124 (136-148) l. Prjónið síðan fram og til baka frá miðju að framan þannig (umferð 1 = rétta): fellið af 4 l, prjónið út sléttu umf, snúið stykkinu, fellið af 4 l og prjónið út brugðnu umf = 92-104-116 (128-140) l. Haldið síðan áfram í sléttprjón fram og til baka yfir allar l. Þegar stykkið mælist 37-45-53 (58-65) cm prjónið næstu umf þannig (frá réttu): 17-20-23 (26-29) l sléttprjón (= hægra framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, prjónið 42-48-54 (60-66) l sléttprjón (= bakstykki, fellið af 8 l fyrir handveg, prjónið 17-20-23 (26-29) l sléttprjón (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-42-42 (48-48) l á sokkaprjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf slétt, haldið áfram með stroff = 3 l sl/3 l br. Þegar stykkið mælist ca 3 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6-10-8 (12-10) l jafnt yfir = 30-32-34 (36-38) l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið 1 umf br. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. Haldið síðan áfram að prjóna sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkið mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 5.-5.-6. (6.-6.) hverri umf alls 6-6-7 (8-9) sinnum = 42-44-48 (52-56) l. Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-28) cm fellið af 8 l mitt undir ermi (4 l hvoru megin við prjónamerki)= 34-36-40 (44-48) l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 144-160-180 (200-220) l. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar l. JAFNFRAMT í 3. umf er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin fyrir laskalínu – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (= hverri umf frá réttu) alls 10-11-12 (13-15) sinnum. JAFNFRAMT þegar l hefur verið fækkað í laskalínu 7-6-6 (6-7) sinnum er fellt af fyrir hálsmáli í hverri umf í hvorri hlið þannig: 2 l 3-3-4 (5-5) sinnum og síðan 1 l 0-2-2 (2-3) sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og affellingu fyrir hálsmáli eru 52-56-64 (72-74) l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 45-53-62 (68-77) cm upp að öxl. Fellið af allar l. KANTUR AÐ FRAMAN: Takið upp 63-75-91 (95-103) l meðfram hægra framstykki neðan frá og upp að hálsmáli með hringprjón nr 3,5 og Merino Extra Fine. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið síðan stroff þannig (frá röngu): 1 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l br. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af fyrir hnappagötum í næstu umf frá réttu þannig: Stroffprjón yfir fyrstu 10-10-2 (6-2) l, * 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 l stroffprjón * endurtakið frá *-* alls 4-5-7 (7-8) sinnum, endið með 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, 1 l garðaprjón. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 4 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið í vinstri hlið en án hnappagata. HETTA: Takið upp ca 60 til 100 l (ekki taka upp l yfir kant að framan) hringinn í hálsmáli með hringprjón nr 4,5. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT sem l-fjöldinn er jafnaður til 44-48-52 (56-60) l. Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið síðan 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 24 l jafnt yfir = 68-72-76 (80-84) l. Eftir þetta er prjónað sléttprjón með 1 l garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan þar til hettan mælist 21-23-25 (27-28) cm, fellið af. Brjótið hettuna saman tvöfalda og saumið saman að ofan – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Takið upp 112-124-136 (144-152) l meðfram kanti á hettu með hringprjónum nr 3,5. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Prjónið síðan frá röngu þannig: 1 kantlykkja, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 108-120-132 (140-148) l og endið með 2 l br og 1 kantlykkju. Prjónið stroff í 8 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið sauminn að innanverðu á skálmum saman, innan við 1 kantlykkju. Saumið niður vinstri kant að framan þar sem felldar voru af 8 l við miðju að framan. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið niður fyrstu 4 cm á hettunni að efri kanti á kanti að framan í hvorri hlið. Síðustu 4 cm eru brotnir yfir og festir með smáu spori. -------------------------------------------------------- BANGSI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er á að hekla á höfði og síðan niður búkinn. Að lokum eru eyrun hekluð, hendur, fætur og hjörtu sem eru saumuð á búkinn í lokin. HÖFUÐ: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 4: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 5: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 6-11: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. UMFERÐ 12: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman – sjá FL HEKLAÐAR SAMAN – að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 13: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. UMFERÐ 14: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 15: * 1 fl í fyrstu fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. Fyllið höfuðið með vatti og heklið áfram búkinn í hring án þess að klippa frá. UMFERÐ 16-18: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 19: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 fl. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 20: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár. UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja fl = 20 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. UMFERÐ 22: * 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár. UMFERÐ 23: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. UMFERÐ 24: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 25: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár og heklið afganginn af búk þannig: UMFERÐ 26-29: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. UMFERÐ 30: * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 fl. UMFERÐ 31-39: Heklið 1 fl í hverja fl = 33 fl. UMFERÐ 40: * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. UMFERÐ 41-46: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl. UMFERÐ 47: * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 fl. UMFERÐ 48: Heklið 1 fl í hverja fl = 33 fl. UMFERÐ 49: * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 50: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn 24 fl. UMFERÐ 51: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. UMFERÐ 52: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 53: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl. UMFERÐ 54: * 1 fl í fyrstu fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 55: Heklið saman allar fl 2 og 2 = 6 fl. Fyllið bangsann með vatti, þræðið þráð upp og niður í gegnum 6 fl, herðið að opinu og festið vel. FÓTUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um hringinn. UMFERÐ 2: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl – ATH: Heklið í innri lykkjubogann. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl – ATH: Heklið aftur í gegnum alla fl. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt eru fyrstu 2 og síðustu 2 fl í umf heklaðar saman = 10 fl. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt eru 5. og 6. fl heklaðar saman og 7. og 8. fl heklaðar saman = 8 fl. Heklið hinn fótinn á sama hátt. Fyllið fæturna með vatti og saumið neðan á búkinn. HÖND: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl. UMFERÐ 3-6: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl. Fyllið höndina með vatti, leggið stykkið flatt og heklið 1 fl í hverja fl í gegnum bæði lögin = 4 fl. Klippið frá og saumið stykkið efst á búkinn – saumið í efstu röndina með litnum ljós grágrænn. Heklið hina höndina á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið. EYRA: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 9 fl. UMFERÐ 3: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 4-6: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl. Leggið stykkið flatt og heklið 1 fl í hverja fl í gegnum bæði lögin = 6 fl, snúið stykkinu og heklið 2 og 2 fl saman = 3 fl. Klippið frá og saumið eyrað á höfuðið. Heklið hitt eyrað á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið. LÍTIÐ HJARTA: Heklið 2 ll með heklunál nr 3 með litnum guacamole (finnið gula einingu á þræðinum) og heklið 3 fl í 1. ll, snúið stykkinu. Heklið 1 ll, heklið síðan 1 fl í hverja l = 5 fl (meðtaldar ll í byrjun og lok umf), snúið stykkinu. Heklið 3 ll, 1 st í 1. ll, festið með 1 fl í miðju fl, 3 ll, 1 st í 1. ll, festið með 1 kl í ll frá byrjun fyrri umf. Klippið frá og saumið hjartað framan á bangsann. STÓRT HJARTA: Heklið 2 ll með heklunál nr 3 með litnum guacamole (finnið gula einingu á þræðinum) og heklið 3 fl í 1. ll, snúið stykkinu. Heklið 1 ll, heklið síðan 1 fl í hverja l = 5 fl (meðtaldar ll í byrjun og lok umf), snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju = 6 lykkjur (meðtaldar loftlykkjur í byrjun á umferð), snúið stykkinu. Heklið 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, festið með 1 fastalykkju mitt á hjarta, 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, festið með 1 keðjulykkju frá byrjun á fyrri umferð. Klippið þráðinn og saumið hjartað á bangsann. Heklið annað hjarta á sama hátt og festið á bangsann. Saumið augu og munn á bangsann með litnum svartur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlebluedreamoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.