DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Boo Blue

Sett með buxum í garðaprjóni og vafningspeysa með hekluðum kanti fyrir börn og heklaður bangsi úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS Baby 20-24
DROPS Design: Mynstur nr ME-040-by + ME-041-by + ME-028-by
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
200-200-200 (250-250) g litur nr 15, ljós grágrænn
50-50-50 (50-50) g litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN NR 4 (60 eða 80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 42 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 4 (fyrir heklaðan kant).
--------------------------------------------------------

BUXUR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE från Garnstudio
150-150-150 (200-200) g litur nr 15, ljós grágrænn
+ afgangur af lit nr 01,natur (fyrir snúru)

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 42 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

--------------------------------------------------------

BANGSI:
Mál: ca 30 cm að lengd

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
50 g litur nr 07, ljós brúnn
50 g litur nr 19, ljós gráblár
afgangur af lit nr 01, natur
afgangur af lit nr 15, ljós grágrænn

Og notið:
DROPS FABEL frá Garnstudio
afgangur af lit nr 151, guacamole
afgangur af lit nr 400, svartur (fyrir augu)

DROPS HEKLUNÁL NR 4 (fyrir bangsa) – eða þá stærð sem þarf til að 19 fastalykkjur x 10 umferðir verði 10 x 10 cm – ATH: Mælt þegar stykkið liggur flatt. Þegar bangsinn er fylltur með vatti þá koma l til með að spennast út.

DROPS HEKLUNÁL NR 3 (fyrir hjörtu).

FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PEYSA:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (á við um framstykki):
Aukið út í annarri hverri og 3. hverri umferð þannig: Prjónið * 1 umferð án útaukninga, 1 umferð með útaukningu við miðju að framan, 2 umferðir án útaukninga, 1 umferð með útaukningu við miðju að framan *, endurtakið frá *-*.
Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur í ystu lykkju við miðju að framan.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Byrjað er á öðru framstykkinu, lykkjur eru fitjaðar upp fyrir ermi og prjónað er upp að öxl. Seinna framstykkið er prjónað og síðan eru bæði framstykkin sett á sama hringprjón og prjónað er niður yfir bakstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 26-29-33 (36-39) lykkjur á hringprjóna 4 með litnum ljós grágrænn.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT í umferð 2 er fitjuð upp 1 ný lykkja við miðju að framan. Endurtakið útaukningu við miðju að framan til skiptis í annarri hverri og 3. hverri umferð – LESIÐ ÚTAUKNING – alls 16-18-22 (24-26) sinnum = 42-47-55 (60-65) lykkjur. Eftir síðustu útaukningu eru prjónaðar 8 lykkjur slétt. Stykkið mælist ca 11-13-15 (16-17) cm.
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við miðju að framan með því að prjóna 2 síðustu lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu): alls 0-2-8 (10-10) sinnum og síðan í annarri hverri umferð: alls 24-24-24 (24-29) sinnum (nú eru 24-26-32 (34-39) lykkjur færri).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-20 (21-23) cm fitjið upp nýjar lykkjur í lok umferðar á hlið fyrir ermi: 3 lykkjur 3-3-4 (4-4) sinnum, 5 lykkjur 2 sinnum, 7 lykkjur 0-0-0 (1-2) sinnum og 16-18-19 (21-22) lykkjur 1 sinni. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 53-58-64 (76-84) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi, prjónið síðan áfram.
Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm setjið 1 prjónamerki = mitt á öxl – JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar við hálsmál, endurtakið útaukningu í næstu umferð við hálsmál = 55-60-66 (78-86) lykkjur.
Setjið allar lykkjur á þráð.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt – ATH: Passið uppá að endað sé í sömu hlið og á hægra framstykki (annað hvort frá réttu eða frá röngu) svo að prjónað sé frá sömu hlið þegar prjóna á bakstykki.

BAKSTYKKI:
Prjónið inn annað framstykki á hringprjón (prjónið frá yst á ermi og inn að hálsmáli), fitjið upp 12-12-16 (16-22) nýjar lykkjur (= aftan í hnakka) og prjónið inn hitt framstykkið á hringprjóninn (prjónið frá hálsmáli og út að ermi) = 122-132-148 (172-194) lykkjur.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM.
Haldið nú áfram í garðaprjóni fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 6½-7½-8 (8½-9) cm fellið af lykkjur fyrir ermar. Fellið af í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 16-18-19 (21-22) lykkjur 1 sinni, 7 lykkjur 0-0-0 (1-2) sinnum, 5 lykkjur 2 sinnum og 3 lykkjur 3-3-4 (4-4) sinnum = 52-58-66 (72-78) lykkjur á prjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki og passið uppá að framstykki og bakstykki séu jafn löng – fellið síðan af.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðar- og ermasauma kant í kant í ystu lykkjubogana.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með litnum natur og heklunál 4 í kringum allt opið á peysunni þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir 3 lykkjur/6 umferðir garðaprjón, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*. Þegar komið er að horni á framstykki er hekluð snúra þanig: 1 fastalykkja í hornið, heklið síðan loftlykkjur í ca 25 cm, snúið við og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka, heklið síðan 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki, haldið áfram að hekla kantinn í hring í kringum afganginn á peysunni.
Heklið á sama hátt neðst í kringum ermar.

Heklið nú 1 snúru samsvarandi þeirri sem er í hvoru horninu innan við hliðarsauma í hægri hlið og að utan verðu við hliðarsaum í vinstri hlið – passið uppá að snúran komi í sömu hæð og hornin á framstykki.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

BUXUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA:
Fækkið um 3 lykkjur á undan prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 1 lykkja slétt.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru skálmar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Síðan eru skálmarnar settar á sama hringprjón og prjónað er í hring á hringprjóna.

SKÁLM:
Fitjið laust upp 38-42-44 (48-50) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með litnum ljós grágrænn.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar = innan verðu á skálm. Prjónið stroff = 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í hring í 4-4-5 (5-5) cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og haldið áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT í 1 umferð er aukið út um 6-6-6 (5-5) lykkjur jafnt yfir = 44-48-50 (53-55) lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 6-6-6 (7-7) cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 1,5-2-2,5 (3-4) cm millibili alls 7 sinnum = 58-62-64 (67-69) lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-19-22 (27-32) cm skiptist stykkið upp að innan verðu á skálm og stykkið er prjónað til loka fram og til baka (þetta er gert til að það verði auðveldara að setja skálmarnar á sama hringprjón í lokin). Fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið fyrir saum = 60-64-66 (69-71) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-21-24 (29-34) cm fækkið lykkjum í næstu umferð frá réttu: Fækkið um 3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 54-58-60 (63-65) lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt.

BUXUR:
Setjið skálmarnar á sama hringprjón 4 = 108-116-120 (126-130) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan. Prjónið síðan garðaprjón í hring – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki við miðju að framan – lesið ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4-5-5 (4-4) sinnum = 100-106-110 (118-122) lykkjur.
Þegar stykkið mælist 29-34-38 (43-50) cm er skipt yfir á hringprjón 3,5 og haldið áfram með stroff = 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Fellið laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið þegar buxurnar mælast 36-42-46 (52-59) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op innan við hvora skálm innan við 1 kantlykkju. Saumið síðan op á milli skálma.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði í lintum natur ca 3 metra og tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður ca mitt í stroff í mitti á buxunum með ca 4-5 lykkju millibili – byrjið við miðju að framan.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

BANGSI:
HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta fl í byrjun á hverri umf er skipt út fyrir 1 ll og hver umf endar með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.

FL HEKLAÐAR SAMAN:
2 fl eru heklaðar saman í 1 fl þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BANGSI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Byrjað er á að hekla á höfði og síðan niður búkinn. Að lokum eru eyrun hekluð, hendur, fætur og hjörtu sem eru saumuð á búkinn í lokin.

HÖFUÐ:
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn.
UMFERÐ 2: 2 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 3: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 4: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 5: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl.
UMFERÐ 6-11: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl.
UMFERÐ 12: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman – sjá FL HEKLAÐAR SAMAN – að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 13: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl.
UMFERÐ 14: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 15: * 1 fl í fyrstu fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl.

Fyllið höfuðið með vatti og heklið áfram búkinn í hring án þess að klippa frá.

UMFERÐ 16-18: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 19: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 fl. Skiptið yfir í litinn natur.
UMFERÐ 20: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár.
UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja fl = 20 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn.
UMFERÐ 22: * 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár.
UMFERÐ 23: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn.
UMFERÐ 24: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. Skiptið yfir í litinn natur.
UMFERÐ 25: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár og heklið afganginn af búk þannig:
UMFERÐ 26-29: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl.
UMFERÐ 30: * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 fl.
UMFERÐ 31-39: Heklið 1 fl í hverja fl = 33 fl.
UMFERÐ 40: * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl.
UMFERÐ 41-46: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl.
UMFERÐ 47: * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 fl.
UMFERÐ 48: Heklið 1 fl í hverja fl = 33 fl.
UMFERÐ 49: * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl.
UMFERÐ 50: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn 24 fl.
UMFERÐ 51: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl.
UMFERÐ 52: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 53: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl.
UMFERÐ 54: * 1 fl í fyrstu fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl.
UMFERÐ 55: Heklið saman allar fl 2 og 2 = 6 fl.

Fyllið bangsann með vatti, þræðið þráð upp og niður í gegnum 6 fl, herðið að opinu og festið vel.

FÓTUR:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um hringinn.
UMFERÐ 2: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl – ATH: Heklið í innri lykkjubogann.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl – ATH: Heklið aftur í gegnum alla fl.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt eru fyrstu 2 og síðustu 2 fl í umf heklaðar saman = 10 fl.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt eru 5. og 6. fl heklaðar saman og 7. og 8. fl heklaðar saman = 8 fl.
Heklið hinn fótinn á sama hátt.
Fyllið fæturna með vatti og saumið neðan á búkinn.

HÖND:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl.
UMFERÐ 3-6: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn.
UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl.
Fyllið höndina með vatti, leggið stykkið flatt og heklið 1 fl í hverja fl í gegnum bæði lögin = 4 fl. Klippið frá og saumið stykkið efst á búkinn – saumið í efstu röndina með litnum ljós grágrænn.

Heklið hina höndina á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið.

EYRA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn.
UMFERÐ 2: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 9 fl.
UMFERÐ 3: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl.
UMFERÐ 4-6: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl.
Leggið stykkið flatt og heklið 1 fl í hverja fl í gegnum bæði lögin = 6 fl, snúið stykkinu og heklið 2 og 2 fl saman = 3 fl.
Klippið frá og saumið eyrað á höfuðið.

Heklið hitt eyrað á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið.

LÍTIÐ HJARTA:
Heklið 2 ll með heklunál nr 3 með litnum guacamole (finnið gula einingu á þræðinum) og heklið 3 fl í 1. ll, snúið stykkinu. Heklið 1 ll, heklið síðan 1 fl í hverja l = 5 fl (meðtaldar ll í byrjun og lok umf), snúið stykkinu.
Heklið 3 ll, 1 st í 1. ll, festið með 1 fl í miðju fl, 3 ll, 1 st í 1. ll, festið með 1 kl í ll frá byrjun fyrri umf.
Klippið frá og saumið hjartað framan á bangsann.

STÓRT HJARTA:
Heklið 2 ll með heklunál nr 3 með litnum guacamole (finnið gula einingu á þræðinum) og heklið 3 fl í 1. ll, snúið stykkinu. Heklið 1 ll, heklið síðan 1 fl í hverja l = 5 fl (meðtaldar ll í byrjun og lok umf), snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju = 6 lykkjur (meðtaldar loftlykkjur í byrjun á umferð), snúið stykkinu. Heklið 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, festið með 1 fastalykkju mitt á hjarta, 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, festið með 1 keðjulykkju frá byrjun á fyrri umferð.
Klippið þráðinn og saumið hjartað á bangsann.

Heklið annað hjarta á sama hátt og festið á bangsann.

Saumið augu og munn á bangsann með litnum svartur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Gudrun Penning wrote:

Was ist gemeint mit: 1R in der gegen in der vorderen Mitte aufgenommen wird. Dieser Satz ist mir nicht verständlich. Gegen der vorderen Mitte, was ist gemeint? Gibt es eine andere Erklärung? Entschuldigen Sie bitte die Frage. Liebe Grüße Gudrun Penning

09.04.2024 - 16:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Penning, die vordere Mitte ist die rechte Seite vom rechten Vorderteil / die linke Seite vom linken Vorderteil, von der Vorderseite gesehen, dh Anfang der Hin-Reihen/Ende der Rück-Reihen beim rechten Vorderteil und Ende der Hin-Reihen/Anfang der Rück-Reihen beim linken Vorderteil. Viel Spaß beim Stricken!

10.04.2024 - 07:42

country flag Sif Klein wrote:

Hej Angående hæklekanten: hvordan hækler man om hjørner med picotkanten?

07.04.2024 - 13:50

DROPS Design answered:

Hej Sif, på samme måde, du sørger bare for at det ikke bliver for stramt :)

09.04.2024 - 10:40

country flag Brigitte Martinez wrote:

Bonjour j ai du mal a comprendre les augmentations côté milieu devant. Que cela veut il dire. Merci de votre réponse.

05.04.2024 - 17:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Martinez, le côté "milieu devant" est celui de l'échancrure du devant pour le cache-coeur, autrement dit, pour le devant droit, c'est en début de rang sur l'endroit/en ifn de rang sur l'envers. Bon tricot!

08.04.2024 - 07:23

country flag Sif Klein wrote:

Hej Angående rygstykket på jakken: hvad betyder ' Luk af i beg af hver p i hver side således'?

23.11.2023 - 14:59

DROPS Design answered:

Hej Sif, jo på samme måde som du slog nye masker op til ærmer i hver side, lukker du masker af yderst på ærmerne i starten af hver pind ifølge opskriften :)

24.11.2023 - 14:59

country flag Debi wrote:

Bei den Aufnahmen für den Ärmel steht Folgendes (ich stricke die Grösse für 6 Monate): 3 M. 3-3-4 (4-4) Mal, 5 M. 2 Mal, 7 M. 0-0-0 (1-2) Mal und 16-18-19 (21-22) M. 1 Mal. Bedeutet 7 M. 0 Mal aufnehmen, dass ich diese Reihen ohne Aufnahmen stricken soll, oder nach der letzten Aufnahme von 5 M. 2 Mal direkt mit der Aufnahme von 18 M. 1 Mal weiterfahren soll? Vielen Dank für die Hilfe und liebe Grüsse aus der Schweiz.

12.11.2023 - 13:31

DROPS Design answered:

Liebe Debbi, in diese Größe nehmen Sie direkt 2 Mal die 18 Maschen 1 Mal nach den 5 Maschen 2 Mal dh keine Reihe ohne Zunahmen, es sind einfach 3 M. 3 Mal, 5 M. 2 Mal, und 18 M. 1 Mal. Viel Spaß beim stricken!

13.11.2023 - 08:16

country flag Sif Klein wrote:

Hej igen Angående overgangen fra forstykkerne til rygstykket, hæfter man så den ene tråd ellers går den vel op? Eller hvad gør man?

25.10.2023 - 20:33

DROPS Design answered:

Ja du hæfter alle ender når du er færdig med trøjen - se videos som passer til opskriften nederst på siden :)

26.10.2023 - 14:04

country flag Sif Klein wrote:

Hvad gør man med tråden fra det ene forstykke? Der vil vel være en tråd fra hvert forstykke og som jeg kan forstå det strikker man forstykkerne sammen på én tråd fra det ene forstykke men hvad med den anden tråd fra det andet forstykke?

24.10.2023 - 16:32

DROPS Design answered:

Hej igen, den klipper du bare af :)

25.10.2023 - 14:43

country flag Sif Klein wrote:

Hvordan strikker man de 2 forstykker sammen til rygstykket? Jeg forstår at tage ind og ud men jeg forstår ikke hvordan de skal strikkes sammen.

24.10.2023 - 14:43

DROPS Design answered:

Hej, jo du strikker en pind over det ene forstykke (fra skulderen og ind mod halsen), slår det antal masker op som modsvarer din størrelse (12 i den mindste størrelse) og fortsætter med at strikke over det andet forstykke (fra halsen og ud mod skulderen). Nu har du samlet arbejdet og kan strikke rygstykket fra skulderen og ned (du måler nu fra mærket du satte tidligere) :)

24.10.2023 - 15:33

country flag Sif Klein wrote:

Hej Hvordan strikker man forstykkerne samme? Ved tråden samme side, betyder det begge til højre eller begge ind mod halsen? Mvh Sif

23.10.2023 - 09:26

DROPS Design answered:

Hej Sif, du følger samme opskrift, men når du tager ud gør du det i den anden side, og altså mod midt foran på det andet forstykke :)

24.10.2023 - 09:20

country flag Irmgard Nüßlein wrote:

Wie stricke ich kraus rechts auf Nadelspiel?

03.08.2023 - 18:28

DROPS Design answered:

Liebe Frau Nüsslein, für 1 Krausrippe wird man abwechslungsweise 1 Runde rechts und 1 Runde links stricken - siehe dieses Video. Viel Spaß beim stricken!

04.08.2023 - 08:02