John skrifaði:
I’m still a bit confused about working a3 for the back piece. If I’m understanding correctly you would work row 1 right to left, then 2 right to left, and then repeat the first 7 stitches of row 1? And then repeat for each subsequent set of rows but just moving up? Or do you always go back to the first 7 stitches of a2? Should you only then have two cables on the back piece? (When I do that I only have two)
25.04.2026 - 04:03DROPS Design svaraði:
Dear John, from RS (read diagrams from the right towards the left) work A.1 then repeat A.2 and finish with A.3 - from WS start with A.3 (reading diagrams from the left towards the right), then work A.2 = K over K and P over P and finish with A.1. You can insert markers between markers so that you will be sure when A.1 and A.3 starts and stops. You should increase in A.1 and A.3 every row just as shown in diagram.If you work 2 repeats of A.2 on back piece you will get 2 cables to start with. There will be more cables afterwards (when there are enough stitches in the K6 sections to work a cable). Happy knitting!
27.04.2026 - 08:09
Anna skrifaði:
Jag förstår inte hur ni tänker man ska följa diagrammen till bakstycket. Står att A.2 ska stickas över 31 maskor (A.2 x 2 + 7 första maskorna i A.2). Men A.2 måste väl öka i antal repetioner ju fler ökningar som görs? När sker detta? Ni har bara skrivit att varv 1 ska upprepas, det står inget om ökningar. Det är ett otydligt mönster. Jag ser nu var jag behöver göra om, men det är av egen erfarenhet, mönstret är inte till hjälp.
22.04.2026 - 17:24
John skrifaði:
The videos also don’t seem to match this pattern? Are the back piece videos even applicable to this pattern?
19.04.2026 - 02:46DROPS Design svaraði:
Hi John, this video shows the technique. To make the model 262-3, you have to watch the video first, and then make the back of your sweater following the instructions for this particular pattern. Happy knitting!
20.04.2026 - 09:52
John skrifaði:
I’m finding this pattern confusing. For Row 2, the a.3 chart isn’t divisible by 31, so how are you supposed to work that? For the repeat instructions, are you only doing rows 1 and 2 or are you doing each whole chart to the end, and repeating 4 times total? How are you supposed to increase row 1 of each chart when you’ve got more stitches than what is listed? Unfortunately the pattern could be a little more clear on that.
19.04.2026 - 02:33DROPS Design svaraði:
Dear John, when you have to work A.2 over 31 stitches, you repeat A.2 a total of 2 times in width then work the first 7 sts A.2 so that you get (12 sts x 2) + 7 = 31 sts. You then work diagrams as shown and at the same time increase as explained on row 1 and 2 (but you should not only work row 1 and 2 diagrams, work at the same time diagram one time in height, then repeat all rows in diagram until you are done with the increases). Can this help? Happy knitting!
20.04.2026 - 10:11
Anke skrifaði:
Toch snap ik het nog niet helemaal. Als je aan de goede kant een meerdering naar links maakt en je draait het werk om naar de achterkant dan valt deze meerdering van daaruit gezien toch naar rechts? Moet ik dan aan de averechte kant dan boven de linker meerdering aan de goede kant dan geen meerdering naar rechts maken?
01.03.2026 - 15:46DROPS Design svaraði:
Dag Anke
Als je de steek aan de ene kant rechtsom draait, zit hij aan de andere kant ook rechtsom, dus rechtsom blijft rechtsom als je het werk omkeert en linksom blijft linksom als je het werk aan de andere kant bekijkt.
04.03.2026 - 14:50
Anke skrifaði:
Vraag over patroon DA-045 Walnut Dreams Vraag over A1 en A3: is het de bedoeling dat je de meerderingen aan de verkeerde kant andersom breit dan aan de voorkant? Dus wanneer aan de voorkant meerder naar links staat, moet ik dan aan de achterkant op die plek meerder naar rechts doen of ook meerder naar links.
01.03.2026 - 10:19DROPS Design svaraði:
Dag Anke,
Goede vraag! Als de steek naar rechts moet draaien volg je de instructies zoals bovenaan beschreven om de steek naar rechts te laten draaien, dit geldt zowel voor de goed als de verkeerde kant. Dus als er aan de voorkant meerder naar links staat, dan meerder je aan de achterkant ook naar links volgens de instructie (als het goed is draait dan zowel aan de goede als de verkeerde kant de steek naar links).
01.03.2026 - 11:08
Yolande skrifaði:
Bonjour je voudrais faire ce pull en aiguilles 4,5 taille M mais je ne comprends pas vos explications. Pourriez-vous svp me faire un calcul pour me dire combien de mailles pour un dos, un devant et les manches. cordialement Yolande
26.01.2026 - 17:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Yolande, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande; vous pouvez vous inspirer d'un modèle analogue avec la tension souhaitée pour recalculer les indications pour votre taille. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!
27.01.2026 - 08:52
Elyne skrifaði:
Bonjour, je tricote la taille xs. Je viens de finir les augmentations avant la séparation des manches et du corps. Quand je calcule le nombre d\'augmentation des 2 diagrams A4 et A5 je n\'arrive pas au nombre donné pour chaque partie : pour le dos et devant : 2+25+90+25+2=144 au total au lieu de 138 Pour les manches : 25+42+25=92 au lieu de 86. Est ce que vous pouvez m\'éclairer ?
19.12.2025 - 12:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Elyne, lorsque vous avez tricoté 36 tours vous n'avez augmenté que 21 mailles, soit: A.4 (22 m), A.2 (42 m), A.5(22 m) = 86 m pour les manches et 2 m jersey + A.4 (22 m) + A.2 (90 m) + A.5 (22 m) + 2 m jersey = 138 m pour le devant/le dos. Bon tricot!
22.12.2025 - 17:18
Rabia skrifaði:
Hello, I am knitting this pattern and when knitting the back piece I finished 8 rows, now I need to repeat charts. But if I have to go back to first row on A1, it has more stitches now. How can I continue? Isn’t going to be cable pattern involve before I move to A2 when starting rows?
10.12.2025 - 09:33DROPS Design svaraði:
Dear Rabia, continue increasing in A.1 and A.3 as before and working the new stitches into the pattern to prepare for A.2, you should have sections with alternately K4 and K6 with P1 in-between. Happy knitting!
11.12.2025 - 08:27
Yolande skrifaði:
Bonjour je voudrais faire ce pull. Mais les explications sont trop compliquées pour moi. Pourriez-vous svp me les faire plus simples avec le dos le devant et les manches chacun séparés avec aiguilles simples pas circulaires 4 et 4,5. Merci d’avance Cordialement Yolande
09.12.2025 - 11:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Yolande, nous ne sommes malheureusement pas en mesure d'adapter chaque modèle à chaque demande, vous trouverez sous les onglets Vidéos et Leçons en haut de page, des tutos susceptibles de pouvoir vous aider. Retrouvez sinon ici des modèles à adapter sur aiguilles droites si besoin (cf ici). Bon tricot!
09.12.2025 - 17:11
Walnut Dreams Sweater#walnutdreamssweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-3 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Byrjið við ör í réttri stærð (á við A.1, A.2 og A.3). Ef það eru ekki nægar lykkjur í kaðal, prjónið lykkjurnar í sléttprjóni þar til fjöldi lykkja hefur verði náð til að gera kaðal. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. Prjónið nýjar lykkjur inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. Prjónið nýjar lykkjur inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Lykkjum fækkar jafnóðum yfir mynstur, passið uppá að 2 miðjulykkjurnar fyrir miðju undir ermi séu alltaf prjónaðar í sléttprjóni (þ.e.a.s. fyrsta og síðasta lykkja í umferð). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1 BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2 FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmál við miðju að framan = framstykkin eru sett saman í eitt stykki. Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3 BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. 4 ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermar. 5 FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 38-37-37-37-38-38-38 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu jafnframt því sem aukið er út um 12-9-9-9-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 50-46-46-46-50-50-50 lykkjur. Nú á að auka út í hvorri hlið í hverri umferð innan við 1 kantlykkju og 2 lykkjur í sléttprjóni, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Prjónið og aukið út fyrir mynstri eins og útskýrt er að neðan – ATH! Byrjið við ör í umferð 1 – á við um A.1 (= 4-8-8-8-4-4-4 lykkjur), A.2 (= 12 lykkjur) og A.3 (= 3-7-7-7-3-3-3 lykkjur). UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið A.1, prjónið A.2 yfir næstu 43-31-31-31-43-43-43 lykkjur (þ.e.a.s. A.2 er prjónað 3-2-2-2-3-3-3 sinnum, eftir það eru fyrstu 7 lykkjurnar prjónaðar í A.2), prjónið A.3 (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið A.3, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir næstu 43-31-31-31-43-43-43 lykkjur, prjónið A.1 (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 12-16-16-16-18-18-18 sinnum (= 24-32-32-32-36-36-36 umferðir prjónaðar og 48-64-64-64-72-72-72 lykkjur fleiri – A.2 er prjónað 3-4-4-4-4½-4½-4½ sinnum á hæðina = 98-110-110-110-122-122-122 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Mynstrið er nú þegar byrjað á bakstykki. Það eru 2 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja í hvorri hlið. Klippið þráðinn og setjið lykkjurnar á hjálparprjón. Mynstrið sem er byrjað á framstykki og ermum (= berustykki), á að prjóna óháð mynstri á bakstykki. Síðar, þegar fram- og bakstykkið er prjónað í hring, mun mynstrið ganga jafnt upp yfir allar lykkjur. Öll peysan er prjónuð í stroffprjóni (= 4 lykkjur slétt/1 lykkja brugðið/6 lykkjur slétt/1 lykkja brugðið frá réttu) – gerður er kaðall í hverri einingu í sléttprjóni sem samanstendur af 6 lykkjum í sléttprjóni. HÆGRI ÖXL: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn við hálsmál þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja), síðan er prjónuð upp 1 lykkja í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 24-32-32-32-32-36-36-36 lykkjur) = 25-33-33-33-37-37-37 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2-0-0-0-2-2-2 lykkjur brugðið, 1-0-0-0-1-1-1 lykkjur slétt, 6-5-5-5-6-6-6 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, prjónið stroffprjón (= 4 lykkjur brugðið / 1 lykkja slétt / 6 lykkjur brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, endið með 1 lykkju brugðið (= kantlykkja) – mynstrið passar við bakstykkið. UMFERÐ 2 (= rétta): 1 kantlykkja slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið A.2 út umferðina. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið umferð 2 og 3 þar til stykkið mælist 5-5-6-6-7-7-8 cm – síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Athugið hvaða umferð er síðasta umferðin sem var prjónuð í A.2, þannig að útaukningarnar fyrir hálsmáli á vinstri öxl geti byrjað í sömu umferð í mynsturteikningu. Prjónið síðan UMFERÐ 2 og 3 JAFNFRAMT því sem lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum, síðan 2 lykkjur 4 sinnum (= 16 umferðir prjónaðar) – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.2 = 37-45-45-45-49-49-49 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka er síðasta umferðin prjónuð frá réttu án útaukninga. Stykkið mælist ca 11-11-12-12-13-13-14 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 9-10-11-11-12-12-13 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-1-1-1-1-1-1 cm. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstri öxl prjónuð meðfram vinstri bakstykkis skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur inn að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 24-32-32-32-32-36-36-36 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja) = 25-33-33-33-37-37-37 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju brugðið (= kantlykkja), prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt / 6 lykkjur brugðið / 1 lykkja slétt / 4 lykkjur brugðið) út umferðina (umferðin endar með 2-5-5-5-2-2-2 lykkjur brugðið) – mynstrið passar við bakstykkið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (stillið mynstrið af þannig að það er snúið í kaðli í hverri einingu með sléttprjóni sem samanstendur af 6 lykkjum), 2 lykkjur slétt, endið með 1 lykkju slétt (= kantlykkja). UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið umferð 2 og 3 þar til stykkið mælist ca 5-5-6-6-7-7-8 cm – síðasta umferð er prjónuð frá röngu og er prjónuð jafn langt og prjónað var á hægri öxl á undan útaukningu fyrir hálsmáli. Prjónið síðan UMFERÐ 2 og 3 JAFNFRAMT því sem lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum, síðan 2 lykkjur 4 sinnum (= 16 umferðir prjónaðar) – nýju lykkjurnar sem hafa verið auknar út eru prjónaðar inn í A.2 jafnóðum, talið frá öxl þannig að mynstrið haldi áfram yfir allar lykkjur eins og áður = 37-45-45-45-49-49-49 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka er síðasta umferðin prjónuð frá réttu. Passið uppá að prjónað sé jafn langt í kaðlamynstri á báðum öxlum – síðan á að setja báðar axlirnar saman í eitt framstykki þar sem snúið er í öllum köðlum í sömu umferð. Ekki klippa þráðinn, prjónið næstu umferð eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Í næstu umferð (= ranga) eru axlirnar settar saman fyrir framstykki þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir allar lykkjur á vinstri öxl (= 37-45-45-45-49-49-49 lykkjur), fitjið upp 24-20-20-20-24-24-24 nýjar lykkjur í lok umferðar, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir allar lykkjur frá hægri öxl frá röngu (= 37-45-45-45-49-49-49 lykkjur) = 98-110-110-110-122-122-122 lykkjur. Haldið síðan áfram að prjóna mynstrið svona - ekki er snúið í kaðli yfir lykkjurnar sem voru fitjaðar upp fyrir hálsmáli í fyrstu umferð, en síðar er snúið í kaðli A.2 alltaf í sömu umferð og áður yfir allt framstykkið: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið A.2 þar til 3 lykkjur er eftir (mynstrið endar með fyrstu 7 lykkjum í A.2), prjónið 2 lykkjur slétt, og 1 kantlykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið fram og til baka í mynstri eins og áður þar til stykkið mælist ca 14 cm frá merki – stillið af að síðasta umferðin sem er prjónuð sé síðasta umferðin í A.2. Klippið þráðinn og látið lykkjurnar bíða á þræði eða á hjálparprjóni. Prjónið síðan framstykkið og bakstykkið saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Byrjið á að prjóna yfir bakstykkið frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 2 lykkjurnar frá bakstykki slétt saman (= 1 kantlykkja færri), prjónið mynstur A.2 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 kantlykkja færri), setjið 1 merki í umferð, prjónið upp 42 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki í umferð, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá framstykki slétt saman (= 1 kantlykkja færri), prjónið mynstur A.2 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 kantlykkja færri), setjið 1 merki í umferð, prjónið upp 42 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki í umferð = 276-300-300-300-324-324-324 lykkjur. Umferðin byrjar á milli vinstri ermi og bakstykkis - þegar berustykkið er prjónað í hring er snúið í köðlum í sömu umferð á báðum ermum og á fram- og bakstykki hringinn á öllu stykkinu. Í fyrstu umferð er byrjað á mynstri á ermum jafnframt því sem síðan er prjónað í hring með mynstri eins og áður. UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður yfir bakstykkið, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið yfir ermi í stroffprjóni (= 6 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið / 4 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir á undan merki, 6 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til hægri (= 44 lykkjur fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið mynstur eins og áður yfir framstykkið, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið yfir ermi í stroffprjóni (= 6 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið / 4 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir á undan merki, 6 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til hægri (= 44 lykkjur fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón = 280-304-304-304-328-328-328 lykkjur. Nú á að auka út lykkjur fyrir mynstri á báðum ermum og fram- og bakstykki, útaukningin er sýnd í mynsturteikningu og aukið er út hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón. Prjónið mynstur hringinn þannig: * Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4, prjónið mynstur (= A.2) eins og áður yfir næstu 90-102-102-102-114-114-114 lykkjur, prjónið A.5, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.4, prjónið mynstur (= A.2) eins og áður yfir næstu 42 lykkjur, prjónið A.5 (= lykkjur fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, * prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Prjónið mynstur hringinn alls 36-36-40-44-50-56-60 umferðir – þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, er útaukningu lokið í stærð XS, S og M, haldið áfram að auka út fyrir mynstri með sömu mynsturteikningu í 4 stærstu stærðunum (= 168-168-192-208-232-264-288 lykkjur fleiri) = 448-472-496-512-560-592-616 lykkjur – það eru 86-86-92-96-102-110-116 lykkjur á hvorri ermi og 138-150-156-160-178-186-192 lykkjur fyrir framstykki / bakstykki. Ermin mælist ca 13-13-14-16-18-20-21 cm – þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 20-20-21-23-25-27-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist minna en þetta, er hægt að prjóna áfram að réttu máli án þess að auka út. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 138-150-156-160-178-186-192 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 86-86-92-96-102-110-116 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-12-8-14-18-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 138-150-156-160-178-186-192 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 86-86-92-96-102-110-116 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-12-8-14-18-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 288-312-336-336-384-408-432 lykkjur. Prjónið mynstur A.2 eins og áður hringinn þar til stykkið mælist 24-24-25-25-24-24-25 cm frá skiptingunni – nýjar lykkjur undir ermi ganga upp í mynstri hringinn á fram- og bakstykki (= 24-26-28-28-32-34-36 mynstureiningar). Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er fækkað um 30-28-32-32-34-38-42 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 258-284-304-304-350-370-390 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 51-53-55-57-59-61-63 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 86-86-92-96-102-110-116 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-12-8-14-18-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 92-92-104-104-116-128-140 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-12-8-14-18-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið mynstur eins og áður hringinn á ermi – nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið um 2 lykkjur í hverjum 10-10-8-3½-3-2-2 cm alls 4-4-4-4-4-10-16 sinnum = 84-84-96-96-108-108-108 lykkjur á prjóni – þegar úrtöku er lokið þá gengur mynstrið upp hringinn á erminni. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-40-39-36-35-35 frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem fækkað er um 8-8-10-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 76-76-86-86-98-98-98 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-43-42-39-38-38 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3, prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 108-108-112-112-114-114-116 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4-4-4-4-4½-4½-4½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #walnutdreamssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.