Chloé skrifaði:
Bonjour, Je viens de finir les 2 devants. Je veux assembler les devants et le dos mais j'ai une différence de longueur entre le dos et les devants. Je voulais donc savoir si c'était normal où s'il fallait que j'allonge un peu mon dos ?
06.06.2025 - 15:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Chloé, tout à fait, les épaules vont tomber légèrement en biais dans le dos , le dos étant plus court et le devant plus long, si vos longueurs sont correctes et suivent bien les explications, vous aurez bien le résultat escompté (additionnez le dos et les devants avant les emmanchures et divisez par 2 pour retrouver la hauteur d'emmanchures indiqué pour votre taille dans le schéma). Retrouvez des vidéos et des leçons montrant cette construction de pulls/gilets sous les onglets correspondants, à côté de 'Explications" en haut de page. Bon tricot!
06.06.2025 - 16:21
Alisana Darling skrifaði:
Hi. Sorry but I'm really confused on the section for the v neck and armhole increases. Am I supposed to do them at the same time?
26.05.2025 - 08:16DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Darling, correct, you will start the increase for armholes while the increases for V-neck are not finished, so increase first as explained under increase for V-neck, then, at the same time, when piece measures 21-26 cm (see size), start increasing for armhole. Happy knitting!
26.05.2025 - 10:24
Alisana Darling skrifaði:
Hi. I am kind of confused on the section for the v neck and armhole increases. Am I supposed to do them at the same time?
25.05.2025 - 00:54
Paula skrifaði:
There appears to be a mistake in the pattern. When beginning the ribbing for the sleeves it says to increase 6 sts but the total stitches are stated as 32, when after the sleeve shaping decrease it is 38 for size S. This would indicate a decrease, not an increase at the start of the ribbing. I checked the German version, which does ask for a decrease. But other languages have the same inconsistency. Do I increase like the pattern asks or decrease like the printed stitch count implies?
22.05.2025 - 11:36DROPS Design svaraði:
Dear Paula, you should increase at the bottom of sleeve - a correction will come asap. Thanks for noticing. Happy knitting!
22.05.2025 - 15:08
Sara Martineau skrifaði:
Bonjour, peut-on réaliser ce modèle avec le fil Drop Air ? merci
15.05.2025 - 16:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Martineau, vous pouvez éventuellement tricoter avec 3 fils Air (groupe de fils C) au lieu de 3 fils Brushed Alpaca Silk; la texture sera toutefois différente en raison de la différence de composition des laines, mais, si vous avez bien le même échantillon, ça fonctionnera (pensez à ajuster la taille des aiguilles si besoin). Bon tricot!
16.05.2025 - 08:00
Marie-Martine MARC skrifaði:
Bonjour, me voici avec un nouveau paletot que j'adore avec une laine merveilleuse. Parmi vos laines quelles sont celles à bloquer ou pas s'il vous plaît ? Quelle lessive ou pas ? Juste pour égaliser les points. Un immense merci
17.04.2025 - 10:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Marc, certaines tricoteuses bloquent tous leurs ouvrages, d'autres non, nous faisons partie de cette catégorie; mais techniquement, elles peuvent toutes être bloquées, la façon la plus simple (et sans risque) est d'humidifier l'ouvrage et de le faire sécher bien à plat, avec des épingles si besoin. Retrouvez les conseils d'entretien ici pour toutes les fibres. Bon tricot!
22.04.2025 - 10:40
Dominika skrifaði:
Cześć! Czy jeśli wybiorę włóczkę Brushed Alpaca Silk to sweter wykonuję tylko tą jedną włóczką czy łączę ją z włóczką Melody?
13.04.2025 - 15:45DROPS Design svaraði:
Witaj Dominiko, jeśli wybierzesz DROPS Brushed Alpaca Silk to przerabiasz tą jedną włóczką ale 4 nitkami naraz. Pozdrawiamy!
14.04.2025 - 08:35
Alina skrifaði:
Tak, tylko dwie nitki KID Silk. Bardzo podoba mi się ten wzór, ale chcę, żeby kardigan był bardzo lekki i cienki
09.04.2025 - 10:04DROPS Design svaraði:
Witaj Alino, taka kombinacja włóczek ma zupełnie inne parametry, próbka będzie całkiem inna, tj. 17 oczek na szerokość i 22 rzędy na wysokość dżersejem, na drutach nr 5 (rozmiar drutów jest orientacyjny). Wszystko trzeba by przeliczać. Proponuję abyś zobaczyła wzór 259-4, który może Ci pomóc w tych obliczeniach. On jest właśnie wykonany 2 nitkami włóczki DROPS Kid-Silk. W razie pytań pisz. Pozdrawiamy!
09.04.2025 - 11:16
Alina skrifaði:
Czy mogę wykonać ten kardigan tylko z dwóch nitek włóczki KID-Silk? Dziękuję!
09.04.2025 - 09:29DROPS Design svaraði:
Witaj Alino, chodzi Ci o 1 nitkę Melody i 2 nitki Kid-Silk zamiast 3? Czy chcesz go wykonać tylko 2 nitkami Kid -Silk?
09.04.2025 - 09:55
HENRICH skrifaði:
MANCHES: Bonjour, quand vous dites "fin du rang précédent", vous voulez-dire en dessous du bras, par où on a commencé le rang ?
25.03.2025 - 22:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Henrich, lorsque l'on tricote les rangs raccourcis de la tête de manche, vous devez tricoter des mailles en plus à la fin de chaque rang de chaque côté, autrement dit, le rang précédent et le rang que vous avez tricoté auparavant de ce même côté, par ex en taille S on tricote d'abord sur l'endroit jusqu'à 4 m après le marqueur en haut de la manche, on tourne, et on tricote sur l'envers 4 m en plus après le marqueur = 8 m au total, on tourne, on tricote 4 m en plus sur l'endroit = 12 m au total, on tourne et on tricote 4 m en plus sur l'envers = 16 m et ainsi de suite. Bon tricot!
26.03.2025 - 08:16
Lemon Fizz Cardigan#lemonfizzcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Melody og DROPS Kid-Silk eða DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópskri öxl, v-hálsmáli, prjónaðri snúru og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-30 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING / ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur), mínus i-cord lykkjur (t.d. 6 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 37) = 3,1. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju (lykkjum er ekki aukið út yfir i-cord lykkjur). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum er lykkjufjöldinn talinn í umferð (t.d. 38) og deilt með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 6,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. 3-LYKKJUR I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja / mitt í þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og byrjun á framstykkjum prjónuð. Framstykkin eru prjónuð hvort fyrir sig. Byrjað er að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónað og aukið út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Lykkjur eru prjónaðar upp meðfram v-hálsmáli. Síðan er prjónuð snúra með snúruprjóni, síðan eru lykkjur felldar af meðfram v-hálsmáli með i-cord áður en prjónuð er snúra með snúruprjóni í hinni hliðinni. Snúrurnar eru hnýttar saman með slaufu að framan. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 16-16-16-18-18-18 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Melody saman með 3 þráðum DROPS Kid-Silk eða fitjið upp með 4 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 9-10-11-11-12-13 sinnum (= 18-20-22-22-24-26 prjónaðar umferðir), eftir síðustu útaukningu eru = 52-56-60-62-66-70 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu – þar til stykkið mælist 11-12-12-12-13-14 cm mælt frá merki yst meðfram handveg. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum (= 4-4-4-6-6-6 prjónaðar umferðir) = 56-60-64-68-72-76 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 14-15-15-16-17-18 cm, mælt frá merki yst meðfram handveg, endið með umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttun upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði/hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 18-20-22-22-24-26 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu), þar til stykkið mælist 7-8-9-8-9-10 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út fyrir v-hálsmáli, jafnóðum og einnig er aukið út í hlið við handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, lestu því báða næstu kafla áður en þú prjónar áfram, til að fá yfirlit yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-7-7-8-8-8 sinnum (= 14-14-14-16-16-16 prjónaðar umferðir). Aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið. Nú hefur verið aukið út alls 8-8-8-9-9-9 sinnum fyrir v-hálsmáli. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í fyrstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3 LYKKJUR I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur i-cord. Prjónið síðan UMFERÐ 3 og 4. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 21-22-24-24-25-26 cm, aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum (= 4-4-4-6-6-6 umferðir prjónaðar). Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka, eru 29-31-33-35-37-39 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 24-25-27-28-29-30 cm, mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið hægra framstykki meðfram hægri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 18-20-22-22-24-26 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti að þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu), þar til stykkið mælist 7-8-9-8-9-10 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út fyrir v-hálsmáli, jafnóðum og einnig er aukið út í hlið við handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, lestu því báða næstu kafla áður en þú prjónar áfram, til að fá yfirlit yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-7-7-8-8-8 sinnum (= 14-14-14-16-16-16 prjónaðar umferðir). Aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið. Nú hefur verið aukið út alls 8-8-8-9-9-9 sinnum fyrir v-hálsmáli. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í síðustu lykkju (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur i-cord. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur i-cord, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið síðan UMFERÐ 3 og 4. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 21-22-24-24-25-26 cm, aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið eins og áður út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum (= 4-4-4-6-6-6 umferðir prjónaðar). Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka, eru 29-31-33-35-37-39 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 24-25-27-28-29-30 cm, mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá réttu. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu- byrjið með lykkjur yfir hægra framstykki og prjónið umferðina þannig: Prjónið 29-31-33-35-37-39 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 2-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 56-60-64-68-72-76 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 2-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 29-31-33-35-37-39 lykkjur frá vinstra framstykki = 118-130-138-150-162-174 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni og i-cord eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist ca 21-22-21-22-22-23 cm frá handvegi. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 37-41-43-47-51-55 lykkjur jafnt yfir í umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (lykkjur eru ekki auknar út yfir i-cordlykkjur) = 155-171-181-197-213-229 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 3 lykkjur i-cord eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur í i-cord eins og áður. Þegar stroffið mælist 5-5-6-6-7-7 cm fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm, mælt frá innst að hálsmáli. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = fyrir miðju ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki sami staður og þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 5-6 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 4,5 og byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 40-44-46-52-56-60 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 7. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin passi betur og fái fallegra form, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4-4-4-5-5-6 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-4-4-5-5-6 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4-3-4-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4-3-4-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 8-10-10-12-12-12 sinnum (= 4-5-5-6-6-6 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð endar umferðin með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1 cm mælt fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 1-2-2-2-2-2 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 0-0-0-2-2-2 cm alls 0-0-0-1-2-2 sinnum = 38-40-42-46-48-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 46-45-43-43-41-40 cm frá miðju ofan á öxl í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem fækkað er um 6-6-8-10-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 32-34-34-36-38-40 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-6-6-7-7 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 51-50-49-49-48-47 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI MEÐ PRJÓNAÐRI SNÚRU: Byrjið á að prjóna upp lykkjur frá réttu meðfram v-hálsmáli. Notið hringprjón 4,5 og 1 þráð DROPS Melody saman með 3 þráðum DROPS Kid-Silk (= 4 þræðir eða 4 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið upp ca 70 til 90 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram v-hálsmáli á hægra framstykki, aftan í hnakka og niður meðfram v-hálsmáli á vinstra framstykki (lykkjufjöldinn jafngildir því að prjónuð sé upp ca 1 lykkja í hverja lykkju/umferð frá horni að horni meðfram v-hálsmáli og hálsmáli aftan í hnakka). Klippið þráðinn. Nú er fyrsta snúran prjónuð eins og útskýrt er að neðan. Fitjið upp 4 lykkjur á 1 stykki sokkaprjón 4,5 (prjónið með hinum), prjónið snúruprjón þannig: * Færið lykkjurnar að byrjun á prjóni, herðið á þræði og prjónið 4 lykkjur slétt frá réttu *, prjónið frá *-* þar til snúran mælist ca 25-27-29-31-33-35 cm. Ekki klippa þráðinn. Nú er fellt af með i-cord affellingu meðfram v-hálsmáli á framstykki þannig: Byrjið frá réttu, * prjónið 3 fyrstu lykkjur frá snúru slétt, prjónið síðustu lykkju snúna slétt saman með fyrstu lykkju á prjóni á framstykki. Lyftið til baka lykkjum sem voru prjónaðar yfir á vinstri prjón *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur meðfram hálsmáli hafa verið felldar af og það eru 4 lykkjur eftir á hægri prjóni. Færið þessar 4 lykkjur yfir á vinstri prjón, prjónið hina snúruna á sama hátt þar til snúran mælist ca 25-27-29-31-33-35 cm (stillið lengdina af eftir hinni snúrunni). Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lemonfizzcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.