Reine Gabard skrifaði:
Bonjour , je ne tricote pas en circulaire ( je n'ai pas appris ) puis je avoir les explications de ce modèle fait en aiguilles simple ou à la rigueur un modèle ressemblant . Merci pour votre réponse Reine Gabard
03.06.2025 - 12:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gabard, vous trouverez ici quelques astuces pour adapter un modèle sur aiguilles droites - n'hésitez pas à essayer les aiguilles circulaires, c'est souvent bien plus simple et, nombreuses sont celles qui les ont finalement adoptées - nos vidéos pourront vous aider à apprendre. Bon tricot!
03.06.2025 - 13:12
Maisey skrifaði:
I don't understand where to put the raglan markers. In the video, the marker are symetrical to the start/end of the round on the circular needles. But in the pattern it seems that you need to count to 33, put a marker and then start the raglan counts from that new mid-point (so the start/end of the circular needle rounds is off center. Is that correct?
25.05.2025 - 15:47DROPS Design svaraði:
Dear Maisey, the marker in the neck is only for measuring; you won't use it to start rounds or to work raglan increases. You can use a different colour for this marker to not get confused. The 4 raglan markers are the ones indicated in the beginning of the yoke section and you start putting them from the beginning of the round, not from the 33 sts marker. Happy knitting!
25.05.2025 - 16:20
Iris skrifaði:
Hallo, wenn ich den Silk kid Faden weglassen möchte, muss ich dann die Maschenanschlagzahlen komplett verändern? Oder richte ich mich einfach nach der Maschenprobe und gleiche die Anzahl dann entsprechend an? Vielen Dank im Voraus. VG
10.05.2025 - 10:01DROPS Design svaraði:
Liebe Iris, dann am besten stricken Sie mit 2 Fäden Flora oder mit 1 Faden Flora + 1 Faden von irgendwelchem anderen Garn der Garngruppe A, so wird die Maschenprobe stimmen; sonnst mit nur 1 Faden der Garngruppe A stimmt die Maschenprobe nicht, so sollen Sie die ganze Anleitung je nach der neuen Maschenprobe neu umrechnen. Viel Spaß beim Stricken!
12.05.2025 - 07:40
Andrea skrifaði:
Ich bin bei Rund 1 bis 4 der Raglanzunahmen und hab eine Frage zu Runde 3. Werden bei den MM 2 und 4 jeweils die Raglanzunahmen gemacht? Oder soll ich nach MM 2 und 4 jeweils eine einzelne Raglanmaschezunehme und vor MM 3 und 1 auch jeweils eine einzelne?
22.04.2025 - 19:32DROPS Design svaraði:
Liebe Andrea, bei Runde 3 wird man nur 4 Maschen zunehmen: 1 Masche nach der 2. Markierung + 1 Masche vor der 3. Markierung (für Vorderteil) + 1 Masche nach der 4. Markierung + 1 Masche vor der 1. Markierung (für Rückenteil); dh man wird nicht für die Ärmel (nach 1. und vor 2. + nach 3. und vor 4. Mark) zunehmen. Viel Spaß beim Stricken!
23.04.2025 - 07:37
Sophia skrifaði:
„Die 1. und 4. Runde insgesamt 11-12-10-11-13-15 x stricken…“ Ist hier vielleicht die 1. BIS 4. runde gemeint?
16.03.2025 - 21:40DROPS Design svaraði:
Liebe Sophia, ja genau, danke für den Hinweis, eine Korrektur erfolgt. Viel Spaß beim Stricken!
17.03.2025 - 10:02
Sabine skrifaði:
Xl correspond à quelle taille 42/44 ?
15.03.2025 - 16:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Sabine, vous trouverez les mesures du pull terminé pour chaque taille dans le schéma en bas de page; mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma en bas de page pour trouver la taille correspondante. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
17.03.2025 - 07:44
Pistachio Tea#pistachioteasweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-108-116-120 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið). Prjónið sléttprjón í 1½ cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 33-34-35-36-38-39 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 27-29-31-33-37-39 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 27-29-31-33-37-39 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón, munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er undir laskalína. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-8-9-8-7 sinnum (= 6-6-16-18-16-14 prjónaðar umferðir) = 120-124-168-180-180-176 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 11-12-10-11-13-15 sinnum (= 44-48-40-44-52-60 umferðir prjónaðar = 11-12-10-11-13-15 sinnum útaukning á ermum, 22-24-20-22-26-30 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 252-268-288-312-336-356 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið, hefur verið aukið út alls 25-27-28-31-34-37 sinnum á framstykki/bakstykki og 14-15-18-20-21-22 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 21-23-24-27-29-32 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Haldið eftir fyrstu lykkju í umferð (þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 47-49-55-59-61-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 79-85-89-97-107-115 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 47-49-55-59-61-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 78-84-88-96-106-114 lykkjur sléttprjón (= alls 79-85-89-97-107-115 lykkjur á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-194-206-226-250-270 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-20-20-22-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 196-214-226-248-276-298 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af. Peysan mælist 45-47-49-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 47-49-55-59-61-63 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 57-61-69-75-79-83 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 19-18-19-16-16-13 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7-7-7-7-7-7 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 64-68-76-82-86-90 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Fellið af með sléttum lykkjum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pistachioteasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.