Graziella skrifaði:
Bonjour. Sur le diagramme, je ne comprends pas d'où viennent les 5-6 cm du haut, sensés se tricoter avant les augmentations des devants et dos.
16.02.2025 - 10:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Graziella, ces 5-6 cm correspondent à la hauteur des épaules, autrement dit la largeur des manches au début de l'ouvrage (lorsque l'on monte les mailles). Vous avez 18 ou 22 mailles pour chacune des manches soit 10-12 cm de large, quand le pull est posé, ces mailles sont pliées en double soit 5-6 cm pour les épaules. Bon tricot!
17.02.2025 - 09:33
Theresa skrifaði:
Liebes Drops Team, Ich habe eine Frage zu den Raglanzunahmen. Muss ich bei "Am Vorderteil und am Rückenteil weiter in jeder 2. Reihe zunehmen, aber an den Ärmeln nur noch in jeder 4. Reihe" in der 4. Reihe nur vor dem 1. & 3. und nach dem 2. & 4. Markierer zunehmen?
15.02.2025 - 23:39DROPS Design svaraði:
Liebe Theresa, ja genau :) Viel Spaß beim Stricken!
17.02.2025 - 09:07
Mari Luz skrifaði:
En el raglán no hay ningún punto entre cada aumento? No entiendo muy bien cómo se hacen los aumentos si no hay por lo menos un punto que separa. Espero me aclaren esta duda un saludo
14.02.2025 - 11:49DROPS Design svaraði:
Hola Mari Luz, los aumentos del raglán se trabajan a cada lado de los puntos raglán. Es decir, tendrías: 1º aumento, 1 punto raglán, marcapuntos, 1 punto raglán, 2º aumento. Así que las hebras están separadas por los 2 puntos raglán (uno a cada lado del marcapuntos).
16.02.2025 - 23:14
Anna skrifaði:
Dobry den, Jsem levacka a kdyz pridavam pro raglanove zkoseni (tedy pridavam obracene, nejprve doleva, pak napravo), vznika na licove strane proužek nitě. Vypada to spatne. Muzu to nejak opravit? Dekuji a Hezky den
12.02.2025 - 14:16
Anna skrifaði:
Hvor mye positive ease skal genseren ha?
11.02.2025 - 16:37DROPS Design svaraði:
Hej Anna, det bestemmer du selv. Vælg den størrelse du synes om ud fra måleskitsen nederst i opskriften (hvis du holder strikkefastheden får du målene i måleskitsen) :)
12.02.2025 - 11:22
Inge Voigt skrifaði:
@Jutta Ganz oben. Neben die sweater name gibt es ein printer ikon.
09.02.2025 - 11:12
Jutta Kistler skrifaði:
Hallo, warum kann man eure Anleitungen nicht mehr als PDF-Datei ausdrucken ? Mit freundlichen Grüßen
08.02.2025 - 19:12DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Kistler, unsere Anleitungen könnnen nur ausgedruckt werden, sollten Sie als .PDF speichern, dann wählen Sie einen virtuellen Drucker. Viel Spaß beim Stricken!
10.02.2025 - 10:09
Sweet Harmony#sweetharmonysweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Flora eða DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, v-hálsmáli, rúllukanti og hekluðum kanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-1 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- 2 KANTLYKKJUR FRÁ RÉTTU – Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt. FRÁ RÉTTU – Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt. FRÁ RÖNGU – Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið. FRÁ RÖNGU – Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón, prjóna aftan frá og fram, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan draga þráðinn aftur á bak, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í aftari lykkjubogann. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan: VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið 2 kantlykkjur eins og áður, sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan að draga þráðinn aftur á bak, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í aftari lykkjubogann. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni um hægri prjóninn með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón aftan frá og fram á við, prjónið 2 kantlykkjur eins og áður, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í fremri lykkjubogann. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja / mitt í þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokist. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (= heklaðir kantar). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar v-hálsmálið hefur verið prjónað til loka, eru framstykkin sett saman og síðan er prjónað í hring. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin er heklaður kantur meðfram hálsmáli. HÁLSMÁL: Fitjið upp 70-70-72-80-82-84 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Flora eða 1 þræði DROPS Alpaca saman með 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þráðum). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 merki innan við 2 ystu lykkjur í annarri hlið á stykki (= fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja, þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 3 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 18-18-18-22-22-22 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 28-28-30-30-32-34 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 18-18-18-22-22-22 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, það eru 3 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþráðinn (= hægra framstykki). Prjónið sléttprjón með 2 KANTLYKKJUR í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan, jafnframt á að auka út fyrir LASKALÍNU og V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan og lesið báða kaflana að neðan áður en prjónað er áfram. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 laskalykkjur við hvern merkiþráð (= 8 lykkjur fleiri) í annarri hverri umferð alls 9-8-15-21-23-21 sinnum. Síðan heldur útaukningin áfram þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki, en á ermum er nú einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptis 4 og 8 lykkjur fleiri), endurtakið þessa útaukningu alls 16-20-14-8-8-14 sinnum á framstykki og bakstykki og 8-10-7-4-4-7 sinnum á ermum. Nú hefur verið aukið út alls 25-28-29-29-31-35 sinnum fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki og 17-18-22-25-27-28 sinnum á ermum. V-HÁLSMÁL: Þegar aukið hefur verið út 2 sinnum fyrir laskalínu byrjar útaukning fyrir v-hálsmáli. Aukið er út fyrir v-hálsmáli frá réttu í báðum hliðum á stykkinu innan við 2 lykkjur (= 1 lykkja fleiri í hvorri hlið) í 4. hverri umferð 5-6-6-6-6-6 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 6-5-6-6-7-8 sinnum. Nú hefur verið aukið út alls 11-11-12-12-13-14 sinnum fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið. Þegar útaukning fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð til loka og prjónuð hefur verið ein umferð frá röngu á eftir síðustu útaukningu, setjið framstykkin saman frá réttu þannig: Prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, setjið þessar 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið fyrstu 4 lykkjur á hinu framstykkinu slétt, setjið 1 merki (umferðin byrjar hér), prjónið lykkjur af kaðlaprjóni slétt. Prjónið síðan stykkið í hring í sléttprjóni jafnframt því sem síðan er aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 260-276-300-320-340-364 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-23-24-24-26-29 cm mælt beint niður frá merki fyrir miðju að framan (ekki mæla meðfram v-hálsmáli). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 40-43-46-49-53-58 lykkjur eins og áður (= hálft framstykki), setjið næstu 50-52-58-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 80-86-92-98-106-116 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 50-52-58-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 40-43-46-49-53-58 lykkjur eins og áður (= hálft framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-188-200-220-240-264 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 6-8-8-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 45-47-49-50-52-54 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan 4 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Peysan mælist 47-49-51-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-52-58-62-64-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 56-60-66-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-8-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið 2 lykkjur í hverjum 6-5-3½-2½-2½-2 cm alls 6-7-9-12-13-14 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-39-39-38-35 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan 4 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 43-42-41-41-40-37 cm frá skiptingunni. HEKLAÐUR KANTUR: Notið heklunál 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir), byrjið frá réttu, byrjið frá réttu neðst í v-hálsmáli fyrir miðju að framan, heklið mynsturteikningu A.1 í fyrstu lykkju, síðan er mynsturteikning A.2 hekluð meðfram v-hálsmáli, hálsmáli að aftan og í hinni hliðinni á v-hálsmáli, endið með 1 keðjulykkju í fastalykkjju í byrjun umferðar. Klippið og festið þráðinn. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetharmonysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.