DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Daisy yarn
DROPS Daisy
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7360.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

April Snow

Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, stuttum ermum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 259-1

#aprilsnowsweater

DROPS Design: Mynstur da-038
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 gr litur 01, natur

Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-450-500-550-600-700 gr litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 4 = 10 x 10 cm.
74-74-74-86-86-86 lykkjur á breidd með mynstri A.1 til A.3 á prjóna nr 4 = 27-27-27-30-30-30 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Daisy
DROPS Daisy
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7360.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.
Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð – á við um A.1 og A.3.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Mynstur er prjónað bæði að framan og aftan.
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermin prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 222-242-264-288-318-350 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm.
Prjónið 1 umferð slétt jafnframt því sem fækkað er um 2-6-8-4-10-18 lykkjur jafnt yfir = 220-236-256-284-308-332 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 110-118-128-142-154-166 lykkjur = hliðar á stykki.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið mynstur frá byrjun umferðar þannig: * Prjónið 18-22-27-28-34-40 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 22-22-22-28-28-28 lykkjur), prjónið A.2 alls 3 sinnum (= 30 lykkjur), prjónið A.3 (= 22-22-22-28-28-28 lykkjur), prjónið 18-22-27-28-34-40 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar.
Haldið áfram með mynstur upp úr. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
Prjónið þar til stykkið mælist 29-30-31-31-32-33 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu fjölda í mynstri (þá kemur kaðlaprjónninn frá réttu þegar prjónað er fram og til baka).
Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki.

SKIPTING FYRIR HANDVEG:
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Byrjið 4-6-8-10-11-12 lykkjur á undan byrjun umferðar, fellið af næstu 8-12-16-20-22-24 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 102-106-112-122-132-142 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af næstu 8-12-16-20-22-24 lykkjur fyrir handveg, prjónið 102-106-112-122-132-142 lykkjur eins og áður (= bakstykki).
Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka.

BAKSTYKKI:
= 102-106-112-122-132-142 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg innan við 3 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 1-1-2-4-11-18 sinnum í hvorri hlið, síðan er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð alls 5-6-7-7-4-1 sinnum = 90-92-94-100-102-104 lykkjur eftir. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fellið af miðju 42-42-42-54-54-54 lykkjur fyrir hálsmáli JAFNFRAMT sem sléttu lykkjurnar í köðlum eru prjónaðar 2 og 2 slétt saman (= 8-8-8-12-12-12 lykkjur færri), prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig.

ÖXL:
Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum = 20-21-22-19-20-21 lykkjur aftur á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm.

FRAMSTYKKI:
= 102-106-112-122-132-142 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg innan við 3 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 1-1-2-4-11-18 sinnum í hvorri hlið, síðan er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð alls 5-6-7-7-4-1 sinnum = 90-92-94-100-102-104 lykkjur eftir.
Þegar stykkið mælist 42-44-45-46-47-48 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 26-27-28-25-26-27 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 38-38-38-50-50-50 lykkjur JAFNFRAMT sem sléttar lykkjur í köðlum eru prjónaðar 2 og 2 slétt saman (= 8-8-8-12-12-12 lykkjur færri), setjið þessar 30-30-30-38-38-38 miðjulykkjur á þráð fyrir hálsmáli, prjónið þær 26-27-28-25-26-27 lykkjur sem eftir eru eins og áður. Nú er hvor öxl prjónuð til loka fyrir sig.

ÖXL:
Umferð 1 er prjónuð frá röngu eins og áður. Síðan eru felldar af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, síðan er felld af 1 lykkja 4 sinnum = 20-21-22-19-20-21 lykkjur á hvorri öxl.
Fellið af þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm.

ERMAR:
Ermin er prjónuð í hring, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka.
Fitjið upp 76-80-90-102-112-122 lykkjur á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm.
Í næstu umferð er skipt yfir á sokkaprjóna 4 og prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 12-12-14-18-20-22 lykkjur jafnt yfir á prjóni = 64-68-76-84-92-100 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er fækkað undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 8-9-10-8-10-10 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING.
Aukið svona út í hverjum 5-4-5-4-5-0 cm alls 3-3-2-3-2-1 sinnum = 70-74-80-90-96-102 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til ermin mælist 20-19-19-18-17-15 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er ermakúpan prjónuð eins og útskýrt er að neðan.

ERMAKÚPA:
Í næstu umferð eru felldar af 8-12-16-20-22-24 lykkjur fyrir miðju undir ermi, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn byrjar umferðin 4-6-8-10-11-12 lykkjur á undan merkiþræði fyrir miðju undir ermi, fellið af og prjónið síðan sléttprjón út umferðina = 62-62-64-70-74-78 lykkjur.
Síðan er stykkið prjónað til loka fram og til baka JAFNFRAMT sem fellt er af fyrir ermakúpu í byrjun umferðar í hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 4-6-8-10-14-18 sinnum í hvorri hlið = 42-38-36-38-34-30 lykkjur eftir, síðan eru felldar af 2 lykkjur í byrjun hverrar umferðar þar til ermin mælist 30-30-31-31-32-32 cm.
Fellið af þær lykkjur sem eftir eru.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 3, prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig:
Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 116-116-118-140-144-146 lykkjur ásamt lykkjum af þræði – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 10-10-10-11-11-11 cm.
Fellið af aðeins laust og brjótið kant í hálsmáli tvöfaldan að röngu og saumið niður með nokkrum sporum.

Mynstur

Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Diagram for DROPS 259-1
Diagram for DROPS 259-1
Diagram for DROPS 259-1

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #aprilsnowsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Susi skrifaði:

Könnte ich bei diesem Modell die Ärmel auch anstricken anstatt sie einzunähen? Gibt es auch eine Version mit langen Ärmeln?

01.06.2025 - 16:11

DROPS Design svaraði:

Liebe Susi, hier wird man für die Armkugel Maschen beidseitig abketten, wenn Sie die Ärmel von oben nach hinten stricken sollen Sie das anpassen; am besten stricken Sie die Ärmel wie beschrieben, so bekommen Sie die richtige Form. Es gibt für dieses Modell nur kurze Ärmel, keine langen Ärmel Version, aber Pullover mit langen Ärmel und Zöpfe finden Sie auch mal hier. Viel Spaß beim Stricken!

02.06.2025 - 08:26

country flag Joanna skrifaði:

How easy would it be to lengthen the arms on this pattern so that they are full length? And how could I do this?

16.05.2025 - 10:41

DROPS Design svaraði:

Dear Joanna, you can take inspiration from a similar garment with same tension and long sleeves - see for example all jumpers worked bottom up with tension 22-20 sts here. Happy knitting!

16.05.2025 - 17:31

country flag Britta skrifaði:

Fin og enkel model

22.04.2025 - 14:58

country flag Isabelle Pellegrin skrifaði:

Dans l'attente de la réponse à ma question sur le haut du dos, je suis dans ka même incompréhension sur le haut du devant : le nombre de mailles ne convient pas, ainsi que l'histoire des torsades à tricoter 2 par 2 ??? Pouvez m'éclairer ? Je suis bloquée dans mon ouvrage !

16.04.2025 - 17:42

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Pellegrin, dans la réponse précédente, je vous ai mis le lien pour diminuer des mailles en même temps que l'on rabat, pour le devant, on les met en attente seulement (ainsi on conserve la bonne largeur car il faut plus de mailles pour les torsades que pour le jersey). Pour le devant, vous avez 90 mailles, vous tricotez les 38 m centrales (en diminuant 8 m) et vous les mettez en attente = (90-38)/2=26 m pour chaque épaule que vous terminez séparément. Vous rabattez ensuite pour l'encolure 2x 1 m et 4x 1 m= 26-2-4=20 m pour l'épaule. Boon tricot!

22.04.2025 - 10:31

country flag Isabelle Pellegrin skrifaði:

Bonjour Je rencotre un problème avec le nombre de mailles en HAUT du dos: On a 90 mailles pour taille S. On doit rabattre 42m centrales ET 4 mailles de côtes de chaque côté EN MÊME TEMPS ( reste alors 20m pour tricoter chaque épaule. Hors, on doit encore rabattre 2x2m par épaule. Dans ce cas, il devrait rester seulement 16m à chaque épaule au moment de rabattre. On nous dit de rabattre les 20m !?! Ou est l'erreur ? Merci pour votre retour. Isabelle

15.04.2025 - 17:51

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Pellegrin, vous avez 90 mailles et vous rabattez les 42 mailles centrales pour l'encolure (en même temps, vous diminuez 8 mailles dans les torsades - cf vidéo) = il vous reste (90-42)/2=24 mailles pour chaque épaule que vous terminez séparément. Vous rabattez maintenant pour l'encolure 2 x 2 m= 24 m -4 m = il reste 20 mailles pour l'épaule. Bon tricot!

22.04.2025 - 09:43

country flag Katherine Leue skrifaði:

Hallo,ibtei maat small er bij de shouders en hals begin ik met 90st.,..wanneer ik de middelste 42st. afkant +4×2st. boven de kabels dan heb ik al 50st geminderd en dan moet ik nog 2×2st. Minderen aan halsband....dan houd ik maar 32st.over...dus 16st op de schouders waar ik er volgens de uitleg 20st.moet overhouden....waar loopt het verkeerd?

09.04.2025 - 20:38

DROPS Design svaraði:

Dag Katherine,

Je hebt 90 steken en je kant de middelste 42 steken af. Daardoor heb je 48 steken over, dus 24 steken aan elke kant van de schouder. Wanneer je daar 2 x 2 steken afkant heb je dus 20 steken over. De steken die je samen breit boven de kabels staan daar dus los van en je rekent het oorspronkelijk aantal steken, toen je de kabels nog niet had samen gebreid.

13.04.2025 - 09:48

country flag Sandrine skrifaði:

Il y a un problème pour les diminutions du dos en taille M. D’après mes calculs vous demandez de diminuer au total 48 mailles pour arriver à 92 mailles mais je n’ai que 106 mailles, c’est un problème.

01.04.2025 - 22:51

DROPS Design svaraði:

Bonjour Sandrine, lorsque vous continuez le dos séparément, vous avez 106 mailles et vous devez diminuer pour les emmanchures: 1 m de chaque côté soit 2 mailles: 1 x tous les 2 rangs et 6 x tous les 4 rangs: vous allez diminuer au total (2x1)+(2x6)=14 m; soit 106-14=92 mailles. Ou bien en êtes-vous à un autre niveau? N'hésitez pas à m'en dire plus, merci d'avance pour votre compréhension. Bon tricot!

02.04.2025 - 08:00

country flag Kina skrifaði:

Håller på med avmaskning axlar på bakstycket, stickar i S. Får inte ihop antalet maskor. Har 90 maskor, maska av 42 mittersta och har då 48 maskor delat på 2= 24 maskor på varje sida. Maska av 8 maskor totalt över flätor och då har jag 20 maskor kvar. Nu maskas det av maskor till hals på vartannat varv så här: Maska av 2 maskor 2 gånger = 20 maskor igen på varje axel. Maska av när arbetet mäter 48 cm. Jag har 16 maskor kvar, stämmer det på varje sida?

30.03.2025 - 12:52

DROPS Design svaraði:

Hej Kina. De 8 maskorna du ska minska är på de mittersta 42 maskorna som du ska avmaska. Så du minskar dessa samtidigt som du avmaskar. Du har alltså 24 maskor på varje axel efter du avmaskat (och minskat) de mittersta maskorna. Sedan maskar du av 2 maskor 2 gånger till hals och har efter det 20 maskor kvar på varje axel. Mvh DROPS Design

01.04.2025 - 10:56

country flag Karine skrifaði:

Koo skeemi A.4 (=22-22-22-28-28-28 silmust), jätka skeemiga A.2 kokku 3 korda (= 30 silmust), koo skeemi A.3 Kas ei peaks olema A1- A3

30.03.2025 - 11:38

country flag Franci skrifaði:

Se volessi lo stesso modello a maniche lunghe basterebbe continuare a lavorare a maglia rasata fino a lunghezza desiderata, giusto? O dovrei diminuire nella parte inferiore della manica? Grazie

25.03.2025 - 20:02

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Franci, può andare avanti con il lavoro e provare la manica per vedere se sono necessarie delle diminuzioni. Buon lavoro!

29.03.2025 - 12:06