DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10780.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Sweet Bell Cardigan

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, v-hálsmáli, i-cord og pífu. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 258-5

#sweetbellcardigan

DROPS Design: Mynstur ks-237
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
175-200-200-225-250-275 gr litur 45, mjúk mynta

TÖLUR:
DROPS TALA NR 802: 4-4-5-5-5-5 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með sléttprjóni með 2 þræði með prjóna nr 4,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10780.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

TVEIR ÞRÆÐIR:
Þegar skipt er um dokku, prófið að skipta um þræði á mismunandi stöðum þannig að þegar endar eru festir þá verður það ekki eins sýnilegt. Þegar prjónað er með 2 þráðum og einungis 1 dokka er eftir, er hægt að notað þráðinn bæði innan í og utan með dokkunni.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt.
RANGA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni.
RANGA:
Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Á UNDAN MERKI:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.
Á EFTIR MERKI:
Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni inn aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

V-HÁLSMÁL:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig:
Á EFTIR HÆGRI KANTI AÐ FRAMAN:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.
Á UNDAN VINSTRI KANTI AÐ FRAMAN:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að útaukning fyrir hálsmáli hefur verið gerð til loka. Fellið síðan af fyrir 3-3-4-4-4-4 næstu hnappagötum með ca 8-8-6½-6½-7-7 cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og pífu.

LEIÐBEININGAR ERMI:
Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Fyrst eru prjónaðir tveir lausir kantar að framan, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli lausu kanta að framan. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður.
Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantar að framan eru saumaðir saman = miðja að aftan, síðan eru kantar að framan festir meðfram berustykki aftan í hnakka.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 4 lykkjur á hringprjón 4,5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk – lesið TVEIR ÞRÆÐIR í útskýringu að ofan.
Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan – fyrsta umferð er prjónuð frá réttu. Haldið svona áfram fram og til baka þar til kantur að framan mælist 15-16-16-17-18-18 cm, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á hjálparprjón, það á að prjóna áfram yfir kant að framan þegar lykkjur eru fitjaðar upp fyrir berustykki.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 4 lykkjur á hringprjón 4,5
Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan – fyrsta umferð er prjónuð frá réttu. Haldið svona áfram fram og til baka þar til kantur að framan mælist 15-16-16-17-18-18 cm, endið með umferð frá röngu. Ekki klippa þráðinn, næsta umferð er prjónuð með þessum þræði frá réttu eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Nú eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli kanta að framan. Snúið og prjónið síðan með hringprjón 4,5 frá réttu þannig: Prjónið vinstri kant að framan eins og áður frá réttu (= 4 lykkjur), fitjið upp 64-66-68-72-74-76 nýjar lykkjur í umferð, prjónið hægri kant að framan eins og áður frá réttu (= 4 lykkjur) = 72-74-76-80-82-84 lykkjur.
Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í annarri hliðinni á stykki (= fram), stykkið er nú mælt frá þessu merki.

Nú eru sett 4 ný merki í stykkið jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 2 lykkjur brugðið (= hægra framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju brugðið (= laskalykkja), prjónið 14 lykkjur brugðið (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju brugðið (= laskalykkja), prjónið 28-30-32-36-38-40 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju brugðið (= laskalykkja), prjónið 14 lykkjur brugðið (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju brugðið (= laskalykkja), prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 4 kantlykkjur að framan eins og áður (= vinstra framstykki).

Nú er prjónað sléttprjón og kanta að framan eins og áður JAFNFRAMT er aukið út bæði fyrir LASKALÍNA og V-HÁLSMÁL – lesið útskýringu að ofan og lesið báða kaflana að neðan áður en prjónað er áfram. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
V-HÁLSMÁL:
Aukið er út fyrir v-hálsmáli frá réttu í báðum hliðum á stykki innan við 5 lykkjur, þ.e.a.s.
4 kantlykkjur að framan og 1 lykkja í sléttprjóni (= 1 lykkja fleiri í hvorri hlið) – munið eftir að auka samtímis fyrir laskalínu. Aukið út í 4. hverri umferð 3 sinnum í öllum stærðum, síðan í annarri hverri umferð 7-8-9-11-12-13 sinnum og í lokin í 4. hverri umferð 2 sinnum í öllum stærðum. Aukið hefur verið út alls 12-13-14-16-17-18 sinnum fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið. Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð til loka, fellið af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu frá réttu þannig – munið eftir að auka samtímis út fyrir v-hálsmáli:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir hverri laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-10-13-17-16-13 sinnum (= 20-20-26-34-32-26 umferðir prjónaðar) = 80-80-104-136-128-104 lykkjur fleiri fyrir laskalínu. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.

Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir hverri laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

UMFERÐ 3 (= rétta):
Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan 1. og 3. laskalykkju og á eftir 2. og 4. laskalykkju (= 4 lykkjur fleiri) – ekki er aukið út á ermum.
UMFERÐ 4: (= ranga):
Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 6-7-6-5-7-10 sinnum (= 24-28-24-20-28-40 umferðir prjónaðar 6-7-6-5-7-10 útaukning á ermum og 12-14-12-10-14-20 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 72-84-72-60-72-120 lykkjur fleiri fyrir laskalínu.

Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, það hefur verið aukið út 22-24-25-27-30-33 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 16-17-19-22-23-23 sinnum á ermum.

Eftir alla útaukningu bæði fyrir laskalínu og v-hálsmáli, eru 248-264-280-308-328-344 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-20-22-23-25-28 cm mælt beint niður frá merki að framan (þ.e.a.s. ekki mæla á ská niður meðfram v-hálsmáli) – munið eftir HNAPPAGAT. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 4 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 37-40-42-46-50-54 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 46-48-52-58-60-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 74-80-84-92-100-108 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 46-48-52-58-60-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 37-40-42-46-50-54 lykkjur sléttprjón (= framstykki), endið með 4 kantlykkjur að framan eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 180-196-208-228-248-268 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 12-14-16-18-20-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðar þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 5 cm frá skiptingunni.
Nú er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 5. hverjum cm alls 3 sinnum í öllum stærðum = 168-184-196-216-236-256 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 38-40-42-43-45-47 cm frá merki fyrir miðju að framan – síðasta umferð er prjónuð frá röngu.
Nú eru lykkjur auknar út fyrir pífu, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 alls 40-44-47-52-57-62 sinnum, endið með 4 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 288-316-337-372-407-442 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm frá merki það framan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-0-1-0-1 lykkju yfir þessar lykkjur, 1 lykkja slétt, endið með 4 kantlykkjur að framan eins og áður = 289-317-337-373-407-443 lykkjur.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón (= brugðið frá röngu, slétt frá réttu) og fellið af aðeins laust með brugðnum lykkjum frá röngu.
Peysan mælist 46-48-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 46-48-52-58-60-60 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-14-16-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-68-76-80-82 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 12-9-6-4-3-3 cm alls 4-5-7-10-11-11 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-43-42-41-39-37 cm frá skiptingunni.
Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 2 umferðir slétt. Fellið aðeins laust af.
Ermin mælist ca 45-44-43-42-40-38 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman – saumur = fyrir miðju að aftan, síðan saumað við berustykki aftan í hnakka.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2025
Uppskriftin hefur verið uppfærð. Leiðrétting undir vinstri kantur að framan.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat
Diagram for DROPS 258-5

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetbellcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Susie Gadd skrifaði:

Virkelig sød cardigan

04.06.2025 - 06:49

country flag Kate Fair skrifaði:

There seems to be a small mistake in the Body description where it says “ Now decrease 1 stitch on each side of both marker threads-…Increase like this every 5 cm = 2" 3 times in total in all sizes” where it says increase it should be saying decrease I believe.

29.04.2025 - 20:33

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Fair, you are right, pattern has been fixed, thanks for noticing. Happy knitting!

30.04.2025 - 08:32

country flag Gabriele skrifaði:

Wird die Jacke insgesamt mit 2 Fäden gestrickt oder nur die Blenden?

26.03.2025 - 18:22

DROPS Design svaraði:

Liebe Gabriele, ja richtig, die Jacke wird mir 2 Fäden Kid-Silk gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!

27.03.2025 - 08:12

country flag Lorrette skrifaði:

At this section is there an error? WRONG SIDE: Work 2 stitches in garter stitch, slip 1 stitch purlwise with strand in front of piece, knit 2. Shoudn't be knit 1 at the end?

06.03.2025 - 19:23

DROPS Design svaraði:

Dear Lorrette, that's correct, pattern has been edited, thanks. Happy knitting!

07.03.2025 - 13:56

country flag Birthe skrifaði:

Er der en fejl i opskriften? I str. small står der at man skal tage ind 4 gange for hver 12 cmpå ærmerne, men hele ærmet er kun45 cm. Skal der mon tages ind på hver 12 p?

05.03.2025 - 20:31

DROPS Design svaraði:

Hej Birthe. Du stickar 2 cm, tager ind, stickar 12 cm, tager ind, stickar 12 cm tager ind, stickar 12 cm tager ind. 2+12+12+12= 38 cm. Mvh DROPS Design

07.03.2025 - 08:20