DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Frosted Sky Cardigan

Prjónuð peysa úr 4 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum, rúllukanti og i-cord. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 259-6

#frostedskycardigan

DROPS Design: Mynstur ks-242
Garnflokkur A + A + A + A eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-100-100-100-125-125 gr litur 01, natur
75-100-100-100-125-125 gr litur 07, ljós himinblár
75-100-100-100-125-125 gr litur 21, koboltblár
75-100-100-100-125-125 gr litur 47, pistasíuís

TÖLUR:
DROPS TALA NR 612: 5-5-5-6-6-6 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 4 þræði DROPS Kid-Silk með prjóna nr 5,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni.
Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út hvoru megin við A.1/A.2. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan:
Á UNDAN A.1/A.2:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjónið og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.
Á EFTIR A.1/A.2:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9½-9½-10-8½-9-9 cm á milli hverra hnappagata.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 164 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 7,5.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. hverja lykkju og 8. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR ERMI:
Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður.
Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 84-92-92-100-100-108 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í hverjum lit með DROPS Kid-Silk (= 4 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir og prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord.
Kantar að framan eru prjónaðir svona að loka máli.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir og prjónið 7 kantlykkjur að framan.
UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið þar til 7 kantlykkjur eru eftir og prjónið 7 kantlykkjur að framan.
UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið 7 kantlykkjur að framan.
UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og prjónið 7 kantlykkjur að framan.
UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroffprjón yfir næstu 5-5-5-9-9-9 lykkjur, prjónið A.1 yfir 8 lykkjur, prjónið 8-12-12-8-8-12 lykkjur stroffprjón eins og áður, prjónið A.2 yfir 8 lykkjur, prjónið 12-12-12-20-20-20 lykkjur stroffprjón eins og áður, prjónið A.1 yfir 8 lykkjur, prjónið 8-12-12-8-8-12 lykkjur stroffprjón eins og áður, prjónið A.2 yfir 8 lykkjur, prjónið 5-5-5-9-9-9 lykkjur stroffprjón eins og áður og prjónið 7 kantlykkjur að framan = 92-100-100-108-108-116 lykkjur.
Haldið áfram með kanta að framan, stroffprjón og mynsturteikningu þar til A.1/A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Haldið áfram eins og áður og endurtakið A.1x yfir A.1 og A.2x yfir A.2 1 sinni til viðbótar á hæðina og endið með að prjóna fyrstu umferð í A.1x/A.2x þannig að næsta umferð er prjónuð frá réttu. Setjið eitt merki að innanverðu á kantlykkjum að framan í annarri hliðinni, frá þessu merki er stykkið mælt.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan, 5-5-5-9-9-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1x (= vinstra framstykki), prjónið 8-12-12-8-8-12 lykkjur sléttprjón (= ermi), prjónið A.2x, prjónið 12-12-12-20-20-20 lykkjur sléttprjón (= ermi), prjónið A.1x (= bakstykki), prjónið 8-12-12-8-8-12- lykkjur sléttprjón (= ermi), prjónið A.2x, prjónið 5-5-5-9-9-9 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan (= hægra framstykki) – fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umferð frá röngu, það eru prjónaðir kantar að framan, sléttprjón og mynstur eins og áður.

Prjónið nú kanta að framan, mynstur og sléttprjón jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir hverju A.1x / A.2x (= 8 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið kanta að framan, sléttprjón og mynstur eins og áður - útaukning er prjónuð snúinn eins og útskýrt er undir LASKALÍNA.
Endurtakið umferð 1 og 2 alls 5-5-10-7-9-15 sinnum (= 10-10-20-14-18-30 umferðir prjónaðar) = 132-140-180-164-180-236 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.

Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið sléttprjón, kanta að framan og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir hverju A.1x/A.2x (= 8 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið sléttprjón, kanta að framan og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
UMFERÐ 3 (= rétta):
Prjónið sléttprjón, kanta að framan og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan A.1 og eftir A.2, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykkjum og bakstykki, lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 4 (= ranga):
Prjónið sléttprjón, kanta að framan og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

Prjónið UMFERÐ 1 til 4 7-7-5-8-8-5 sinnum (= 32-32-24-36-36-24 umferðir prjónaðar = 7-7-5-8-8-5 sinnum útaukningar á ermum og 14-14-10-16-16-10 sinnum útaukningar á framstykkjum/ bakstykki) = 216-224-240-260-276-296 lykkjur.

Nú er prjónuð UMFERÐ 1 til 4 1 sinni til viðbótar, en nú er prjónað sléttprjón yfir lykkjur í mynstri og í umferð 1 eru prjónaðar 2 brugðnar lykkjur hvoru megin við hvern kaðal slétt saman.
Fækkað hefur verið um 8 lykkjur í umferð og aukið út 2 sinnum fyrir framstykkin og bakstykki og 1 sinni á ermum. Nú eru 220-228-244-264-280-300 lykkjur í umferð. Aukið hefur verið út 8-8-6-9-9-6 sinnum á ermum og 16-16-12-18-18-12 sinnum á framstykkjum / bakstykki).

Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 21-21-22-25-27-27 sinnum á framstykkjum / bakstykki og alls 13-13-16-16-18-21 sinnum á ermum. Nú eru kantar að framan prjónaðir og sléttprjón yfir allar lykkjur án þess að auka út þar til stykkið mælist
Nú er prjónað í sléttprjóni yfir allar lykkjur án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-21-22-25-27-27 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Þegar stykkið skiptist kemur A.1x/A.2x ekki endilega til með að vera staðsett mitt í skiptingunni á milli framstykkja/bakstykkis og erma í öllum stærðum, þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, 32-34-36-39-42-46 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 38-38-42-46-48-50 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 66-70-74-80-86-94 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 38-38-42-46-48-50 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið 32-34-36-39-42-46 lykkjur sléttprjón (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt frá!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 160-172-184-200-216-236 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 44-44-46-49-51-51 cm frá merki fyrir miðju að framan.
Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffprjón JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-20-24-24-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 180-192-208-224-244-268 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan.
Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm (síðasta umferð er prjónuð frá röngu) prjónið 3 umferðir sléttprjón, skiptið yfir á hringprjón 5,5 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu (= rúllukantur).
Peysan mælist ca 49-49-51-55-57-57 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 38-38-42-46-48-50 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 46-48-54-60-64-68 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 10-11-6½-4½-3½-3½ cm alls 3-3-5-6-7-7 sinnum = 40-42-44-48-50-54 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-41-41-35-34-36 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 44-48-52-56-60-64 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm prjónið 3 umferðir sléttprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og fellið af aðeins laust af með sléttum lykkjum (= rúllukantur). Ermin mælist ca 45-46-46-41-40-42 cm frá skiptingunni.

Mynstur

Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat = Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat
Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Diagram for DROPS 259-6
Diagram for DROPS 259-6

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostedskycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Tut skrifaði:

Hvordan finder jeg ud af hvilken str. jeg skal strikke modelen i?

13.02.2025 - 11:18

DROPS Design svaraði:

Hej, se her Hvilken størrelse skal jeg vælge?

18.02.2025 - 09:34

country flag Kristin Gerhard skrifaði:

I plan to knit this in single color, using one strand of group D yarn. How much yarn do I need? Size L

09.02.2025 - 20:49

DROPS Design svaraði:

Dear Kristin, for size L you needed 100gr of each colour of Kid-Silk. Since you will work with 1 thread of a group D yarn, like DROPS Melody, you needed 840m of yarn, which, with Melody's yardage, would be: 6 balls of DROPS Melody. Remember that if you are using a different yarn you will need to calculate the yardage according to that specific yarn; you can check a lesson on this here. Happy knitting!

10.02.2025 - 00:13

country flag Ilona skrifaði:

Warum hat man beim Stricken der Halsblende plötzlich 8 Maschen mehr. Anschlag sind 100 Maschen. Eine Zunahme dieser Maschen ist nicht beschrieben

09.02.2025 - 16:05

DROPS Design svaraði:

Liebe Ilona, bei der 1. Reihe A.1 und A.2 wird man jeweils 2 Maschen zunehmen (siehe 3. Symbol + Beschreibung), so sind es insgesamt 8 Zunahmen und 108 Maschen auf der Nadel. Viel Spaß beim Stricken!

10.02.2025 - 10:48

country flag Kris Gerhard skrifaði:

I plan to knit this in single color, using one strand of group D yarn. How much yarn do I need?

07.02.2025 - 21:51

DROPS Design svaraði:

Dear Kris, you can work with 1 thread of Melody instead of 4 different color threads of Kid-Silk together, you can see in this lesson how to calculate the new yarn amount. For example, for size S you need 75gr of Kid-Silk, which is 3 balls of Kid-Silk, and a total of 660m (210m per ball). With the total yardage, we calculate how many balls of DROPS Melody we will need to get that yardage, which is 660/140 = 5 balls of Melody for the smallest size. You can make the same calculations for the other sizes. Happy knitting!

09.02.2025 - 23:03

country flag Ilona Boller skrifaði:

Ich finde die Anleitung leider nicht zu dieser Strickjacke

07.02.2025 - 13:46

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Boller, hier finden Sie die Anleitung für diese Jacke. Viel Spaß beim Stricken!

07.02.2025 - 15:30