Emmy Bel skrifaði:
Ik vind het een heel mooie trui en ik ga deze zeker proberen, vooral dat het op de voor mij, normale manier wordt gebreid en niet van boven naar onder met een RO breinaald dat vind ik fantastisch, ook dat er een getekend schema is vind ik ideaal
15.05.2025 - 13:49
Anna skrifaði:
When you do raglan increases and work 4 different rounds (third round you only increase on the front and back pieces), there is written you should work them 5 times (size L), and then there is written it is 24 rounds in total. Does the 24 rounds already include the 4 rounds you work stockinette stitch after?
28.02.2025 - 15:04
Helga Schenkels skrifaði:
Kan deze trui ook met drops air gebreid worden? Of welk ander garen kan ik hier voor gebruiken? Vind breien met 4 draden niet fijn maar de trui vind ik prachtig
18.02.2025 - 13:25DROPS Design svaraði:
Dag Helga,
Deze trui heeft een stekenverhouding overdenkomend met garens uit garengroep D. In deze link vind je meer informatie over hoe je garens onderling vervangt en de garengroepen. Je zou dus ook met 2 draden uit garengroep B kunnen breien om op de juiste dikte uit te komen.
19.02.2025 - 09:14
Kathleen skrifaði:
Nice.
11.02.2025 - 18:07
Frosted Sky#frostedskysweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 4 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-5 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við A.1/A.2. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN A.1/A.2: Lyftið uppslættinum af vinstri prjónið og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR A.1/A.2: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 148 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 7,4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-80-80-88-88-96 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í hverjum lit með DROPS Kid-Silk (= 4 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið þannig: Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Prjónið 3 umferðir stroffprjón þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið. Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar (= á milli 2 lykkja brugðið) og látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað mynstur þannig: Prjónið fyrstu 6-6-6-10-10-10 lykkjur stroffprjón eins og áður, prjónið A.1 yfir 8 lykkjur, prjónið 8-12-12-8-8-12 lykkjur stroffprjón eins og áður, prjónið A.2 yfir 8 lykkjur, prjónið 12-12-12-20-20-20 lykkjur stroffprjón eins og áður, prjónið A.1 yfir 8 lykkjur, prjónið 8-12-12-8-8-12 lykkjur stroffprjón eins og áður, prjónið A.2 yfir 8 lykkjur, prjónið 6-6-6-10-10-10 lykkjur stroffprjón eins og áður = 80-88-88-96-96-104 lykkjur. Haldið áfram með stroffprjón og mynsturteikningu þar til A.1/A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Haldið áfram eins og áður og endurtakið A.1x yfir A.1 og A.2x yfir A.2 1 sinni til viðbótar á hæðina. Setjið eitt merki í byrjun umferðar (= fyrir miðju að aftan), frá þessu merki á að mæla berustykkið. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið fyrstu umferð þannig: 6-6-6-10-10-10 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), prjónið A.1x, prjónið 8-12-12-8-8-12 lykkjur sléttprjón (= ermi), prjónið A.2x, prjónið 12-12-12-20-20-20 lykkjur sléttprjón (= framstykki), prjónið A.1x, prjónið 8-12-12-8-8-12 lykkjur sléttprjón (= ermi), prjónið A.2x, prjónið 6-6-6-10-10-10 lykkjur sléttprjón (= helmingur af bakstykki). Nú er prjónað mynstur og sléttprjón jafnframt sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið mynstur og sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir hverju A.1x / A.2x (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið mynstur og sléttprjón – útaukning er prjónuð snúinn eins og útskýrt er undir LASKALÍNA. Endurtakið umferð 1 og 2 alls 5-5-10-7-9-15 sinnum (= 10-10-20-14-18-30 umferðir prjónaðar) = 120-128-168-152-168-224 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið mynstur og sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir hverju A.1x / A.2x (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið mynstur og sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið mynstur og sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á undan A.1x og eftir A.2x, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykki og bakstykki, lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið mynstur og sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 7-7-5-8-8-5 sinnum (= 32-32-24-36-36-24 umferðir prjónaðar = 7-7-5-8-8-5 sinnum útaukningar á ermum og 14-14-10-16-16-10 sinnum útaukningar á framstykki / bakstykki). Nú er prjónuð UMFERÐ 1 til 4 1 sinni til viðbótar, en nú er prjónað sléttprjón yfir lykkjur í mynstri og í umferð 1 eru prjónaðar 2 brugðnar lykkjur hvoru megin við hvern kaðal slétt saman. Fækkað hefur verið um 8 lykkjur í umferð og aukið út 2 sinnum fyrir framstykki og bakstykki og 1 sinni á ermum. Nú eru 208-216-232-252-268-288 lykkjur í umferð. Aukið hefur verið út 8-8-6-9-9-6 sinnum á ermum og 16-16-12-18-18-12 sinnum á framstykki / bakstykki). Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 21-21-22-25-27-27 sinnum á framstykki / bakstykki og alls 13-13-16-16-18-21 sinnum á ermum. Nú er prjónað í sléttprjóni yfir allar lykkjur án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-21-22-25-27-27 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist kemur A.1x/A.2x ekki endilega til með að vera staðsett mitt í skiptingunni á milli framstykkis/bakstykkis og erma í öllum stærðum. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 33-35-37-40-43-47 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 38-38-42-46-48-50 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 66-70-74-80-86-94 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 38-38-42-46-48-50 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið 33-35-37-40-43-47 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt frá! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-160-172-188-204-224 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 44-44-46-49-51-51 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-24-24-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 168-180-196-212-232-256 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm prjónið 3 umferðir sléttprjón, skiptið yfir á hringprjón 5,5 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum (= rúllukantur). Peysan mælist ca 49-49-51-55-57-57 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 38-38-42-46-48-50 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 46-48-54-60-64-68 lykkjur. Setjið 1 merki mitt í 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkið. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 10-11-6½-4½-3½-3½ cm alls 3-3-5-6-7-7 sinnum = 40-42-44-48-50-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-41-41-35-34-35 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 44-48-52-56-60-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm prjónið 3 umferðir sléttprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og fellið af aðeins laust af með sléttum lykkjum (= rúllukantur). Ermin mælist ca 44-46-46-41-40-41 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostedskysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.