Teresa Wong skrifaði:
Hello, I’m working on the jumper body after ribbing! Please clarify the portion after Round 2 and before Round 3 where 2 thread markers are placed to mark the sides of the jumper…. Thank you
12.03.2025 - 23:37DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Wong, after you have worked round 2, just count the number of stitches in stocking stitch before first row A.1 then insert the first marker thread = first side of sweater (it might not be the beginning of the round in your size), then count the same number of stitches in stocking stitch after A.3 and insert the 2nd marker thread = you have now marked the sides and should get between 62 and 90 sts stocking stitch in between for back piece. Happy knitting!
13.03.2025 - 15:48
Irish Sky#irishskysweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, með köðlum, ísaumuðum ermum og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-16 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.5). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 6,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna til skiptis ca 5. og 6. hverja lykkju og 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Það er prjónað kaðlamynstur á framstykki, ekki á bakstykki. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermin prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 144-152-164-180-196-212 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Snow. Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt ) í 6-6-6-7-7-7 cm. Nú eru sett 2 merki í stykkið sem eru notuð til að staðsetja mynstrið, teljið 4-8-8-12-12-16 lykkjur, setjið 1 merki á undan næstu lykkju, teljið 62-62-62-62-74-74 lykkjur, setjið 1 merki á undan næstu lykkju. Nú á að auka út, fækka lykkjum og prjóna mynstur þannig: UMFERÐ 1: Skiptið yfir á hringprjón 7, prjónið 4-8-8-12-12-16 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem fækkað er um 0-1-1-1-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 1. merki situr hér, prjónið A.1 yfir 18 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri), A.2 yfir 26-26-26-26-38-38 lykkjur (=4-4-4-4-2-2 lykkjur fleiri), A.3 yfir 18 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri), 2. merki situr hér, prjónið 78-82-94-106-110-122 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem fækkað er um 12-13-15-19-15-18 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 144-150-160-172-190-202 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið 4-7-7-11-11-14 lykkjur sléttprjón, prjónið næstu umferð í A.1, A.2 og A.3 yfir næstu 74-74-74-74-84-84 lykkjur og endið með 66-69-79-87-95-104 lykkjur sléttprjón. Nú eru settir 2 merkiþræðir í stykkið sem eiga að merkja hliðarnar á fram- og bakstykki, setjið merkiþræðina þannig að það séu 4-6-8-12-12-15 lykkjur sléttprjón hvoru megin við mynstur á framstykki = 82-88-88-96-106-112 lykkjur fyrir framstykki og 62-62-72-76-84-90 lykkjur fyrir bakstykki. Þegar prjónað er áfram á byrjun umferðar að vera við merkiþráðinn sem er á undan framstykki. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón fram að 1. merki, prjónið A.4 yfir A.1, A.5 yfir A.2 og A.6 yfir A.3, 2. merki situr hér, prjónið sléttprjón út umferðina. Nú er mynstrið prjónað á framstykki og merkin eru tekin frá, merkiþræðirnir fylgja áfram með upp úr í stykkinu og eru notaðir þegar fækka á lykkjum fyrir handveg. Haldið áfram með mynstur upp úr. Mynsturteikning er endurtekin á hæðina. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu í mynstri (þá kemur kaðlaprjóninn frá réttu síðar þegar prjónað er fram og til baka). Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING FYRIR HANDVEG: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig: Fellið af fyrstu 1-2-3-5-7-8 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 80-82-84-86-94-98 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 3-4-7-11-13-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið 58-60-62-64-70-74 lykkjur, fellið af síðustu 2-2-4-6-6-7 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka. BAKSTYKKI: = 58-60-62-64-70-74 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, fellið af miðju 18-20-20-22-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli = 19-19-20-20-23-24 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. FRAMSTYKKI: = 80-82-84-86-94-98 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður. Þegar stykkið mælist 47-48-50-51-53-54 cm, setjið miðju 14-14-14-14-18-18 lykkjur á þráð eins fyrir hálsmáli – stillið af að ekki sé snúið í kaðli í síðustu 2 umferðum á undan hálsmáli. Nú er hvor öxl prjónuð til loka fyrir sig og lykkjur í A.5 eru nú prjónaðar með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur eins og útskýrt er í mynstri, án þess að snúa í kaðli. ÖXL: = 33-34-35-36-38-40 lykkjur. Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 4-5-5-6-6-6 sinnum = 27-27-28-28-30-32 lykkjur eftir á hvorri öxl. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fækkið um 8-8-8-8-7-8 lykkjur jafnt yfir lykkjur sem prjónaðar hafa verið í mynstri = 19-19-20-20-23-24 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð í hring, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 36-40-40-44-48-52 lykkjur á sokkaprjóna 6. Í næstu umferð er skipt yfir á sokkaprjóna 7 og prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 6-6-4-6-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 30-34-36-38-40-42 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= fyrir miðju undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn er notaður þegar auka á út fyrir miðju undir ermi. Prjónið sléttprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir í sléttprjóni á eftir stroffi, aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri) og endurtakið útaukningu í ca hverjum 4½-5-5-4-3½-3½ cm alls 9-8-8-9-9-9 sinnum = 48-50-52-56-58-60 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 46-46-45-43-41-40 cm. Nú er prjónuð ermkakúpa með því að prjóna sléttprjón fram og til baka í umferð frá miðju undir ermi, þannig að það myndist klauf fyrir miðju undir ermi. Prjónið þar til klaufin mælist 2-2-3-5-6-6 cm og ermin mælist alls 48-48-48-47-46 cm. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg – ATH – það er klauf undir erminni og það á að sauma hana saman við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 6, prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 56-60-60-68-68-76 lykkjur (ásamt lykkjum af þræði) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3-3-3-4-4-4 cm. Prjónið 3 umferðir slétt (= rúllukantur) og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #irishskysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.