Hilde skrifaði:
Lekker genser. Når den kan strikkes m brushed alpaca silk, kan den da også strikkes m air som også er gruppe c?
17.09.2024 - 23:19
Nindi skrifaði:
White cloud
12.08.2024 - 06:57
Elodie skrifaði:
Iceberg
11.08.2024 - 23:04
Carol S skrifaði:
Fairy Dust
10.08.2024 - 11:44
Linda skrifaði:
Autumn breeze
09.08.2024 - 23:14
Gitte skrifaði:
Ein sehr schöner, flauschiger Pullover. Moderner Schnitt.
09.08.2024 - 02:47
Martha skrifaði:
Wie auf Wolken
09.08.2024 - 01:44
Pam skrifaði:
Carmen
08.08.2024 - 23:19
Mufasa11 skrifaði:
Whisper
08.08.2024 - 19:43
Alexandra Marshall skrifaði:
Weekend Fun
08.08.2024 - 16:53
Dove Feather#dovefeathersweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-24 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LYKKJU MEÐ MERKI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LYKKJU MEÐ MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 25-26-27-28-29-30 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 7. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 11 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 25-27-29-31-33-35 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 11 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 25-27-29-31-33-35 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkin – lesið útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-16-17-19-20-22 sinnum = 196-208-220-240-252-272 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-28 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1-1-1-1-2-2 lykkjur sléttprjón (= tilheyra bakstykki), setjið næstu 41-43-45-49-49-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 57-61-65-71-77-83 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 41-43-45-49-49-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 56-60-64-70-75-81 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 126-134-146-158-174-190 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 38-42-44-50-54-58 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 164-176-190-208-228-248 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4 cm í öllum stærðum er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 46-48-50-52-54-56 cm frá merki mitt að framan og ca 50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 41-43-45-49-49-53 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 7 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 47-49-53-57-59-65 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 8-6-5-4-3½-2½ cm alls 5-6-7-9-9-12 sinnum = 37-37-39-39-41-41 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-38-37-35-34 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 11-11-13-13-13-13 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 48-48-52-52-54-54 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-42-42-41-39-38 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dovefeathersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.