DROPS Children 50 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7370.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2526

Dove Feather

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:


DROPS 252-24

#dovefeathersweater

DROPS Design: Mynstur ml-112
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
250-250-300-300-350-350 gr litur 01, natur

Eða notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
225-250-275-275-325-350 gr litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 7 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7370.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan.
Á UNDAN LYKKJU MEÐ MERKI:
Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.
Á EFTIR LYKKJU MEÐ MERKI:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður.
Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 25-26-27-28-29-30 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Prjónið síðan með hringprjón 7. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni.
Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 11 lykkjur (= ermi),
setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 25-27-29-31-33-35 lykkjur (= framstykki),
setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 11 lykkjur (= ermi),
setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 25-27-29-31-33-35 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki).
Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkin – lesið útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-16-17-19-20-22 sinnum = 196-208-220-240-252-272 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
Haldið áfram í sléttprjóni án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-28 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 1-1-1-1-2-2 lykkjur sléttprjón (= tilheyra bakstykki), setjið næstu 41-43-45-49-49-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 57-61-65-71-77-83 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 41-43-45-49-49-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 56-60-64-70-75-81 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 126-134-146-158-174-190 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring.
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá merki mitt að framan.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 38-42-44-50-54-58 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 164-176-190-208-228-248 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 4 cm í öllum stærðum er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist 46-48-50-52-54-56 cm frá merki mitt að framan og ca 50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 41-43-45-49-49-53 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 7 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 47-49-53-57-59-65 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 8-6-5-4-3½-2½ cm alls 5-6-7-9-9-12 sinnum = 37-37-39-39-41-41 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-38-37-35-34 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 11-11-13-13-13-13 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 48-48-52-52-54-54 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-42-42-41-39-38 cm frá skiptingunni.

Mynstur

Diagram for DROPS 252-24

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (68)

country flag Mandy Green skrifaði:

When dividing sleeves and yoke after desired length from midpoint reached.(.In my case 23cms)where do I start the the row and counting for sleeves from midpoint marker or from 1st sleeve marker??

18.01.2026 - 18:29

country flag Sylvie Gagnon skrifaði:

Bonjour, oui j’ai bien pris en compte de la place des marqueurs Si on compte le nombre total de maille comme pour la grandeur médium donc pour 80 mailles …..1+11+27+11+27=77 mailles Et si on prend le n’ombres pour grandeur large …1+11+29+11+29=81 mailles Là est le problème Merci

16.01.2026 - 15:35

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Gagnon, vous oubliez les mailles des raglans, notez bien que les marqueurs sont placés dans une maile, pas entre les mailles, autrement dit vous aurez: 1 m avec un marqueur,11 m pour la manche, 1 m avec un marqueur, 29 m pour le devant, 1 m avec un marqueur, 11 m pour la manche, 1 m avec un marqueur, 29 m pour le dos soit:1+11+1+29+1+11+1+29=84 mailles en taille L. Bon tricot!

19.01.2026 - 07:47

country flag Sylvie Gagnon skrifaði:

Bonjour, il y a une erreur pour l’empiètement le nombre de mailles pour les marqueurs est erroné Ne correspond pas avec le nombres de mailles à compter selon les grandeurs Merci

15.01.2026 - 19:05

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Gagnon, avez-vous bien pris en compte que les marqueurs de l'empiècement/des raglans doivent être mis dans une maille (et pas entre les mailles?)vous aurez ainsi bien les 76-80-84-88-92-96 mailles au total. Bon tricot!

16.01.2026 - 09:26

country flag Hella Jungquist skrifaði:

Tror der er gået lidt galt i optællingen omkring raglan udtagning og markering. Jeg strikker str L sæt mærke ved 11, 29, 11 og 29 det giver i mit hoved kun 80 masker 😉 Jeg har derfor sat mærker efter 11 og 31. Håber det er den eneste fejl i opskriften

13.01.2026 - 11:11

DROPS Design svaraði:

Hej Hella. Det ska vara riktigt; 1+11+1+29+1+11+1+29 = 84 m. Mvh DROPS Design

13.01.2026 - 13:37

country flag Regula skrifaði:

Hallo liebes Drop Team Wie muss ich das verstehen "Glatt rechts in Runden stricken – GLEICHZEITIG, wenn der Ärmel eine Länge von 2 cm ab der Teilung hat, an der unteren Ärmelmitte wie folgt abnehmen – ABNAHMETIPP lesen: 2 Maschen alle 8-6-5-4-3½-2½ cm insgesamt 5-6-7-9-9-12 x in der Höhe abnehmen = 37-37-39-39-41-41 Maschen." Das wären ja dann schon gut 40 cm und dann noch ca 40 cm weiterstricken, ist das korrekt? Lg Regula

12.01.2026 - 17:42

DROPS Design svaraði:

Liebe Regula, die 1. Abnahme stricken Sie nach 2 cm, die 2. nach 10 cm , die 3. nach 18, die 4. nach 26 cm und die 5. nach 34 cm, es sind noch 6 cm bis die 40 cm (in 1. Größe). Viel Spaß beim Stricken!

14.01.2026 - 09:19

country flag Mette Dahl skrifaði:

Skal trøjen blokkes efter færdigstrik eller er den klar til brug?

06.01.2026 - 07:39

DROPS Design svaraði:

Hi Mette, I always block a new garment. This way you know how it will look like. Additionally the stitches and motifs are more even. Happy knitting!

06.01.2026 - 09:26

country flag Daniela skrifaði:

Buongiorno, nel giro successivo come lavoro gli aumenti nel bordo coste del corpo? Grazie C è un video?

04.01.2026 - 07:11

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Daniela, può lavorare gli aumenti come *1 maglia diritto, 1 gettato, 1 maglia diritto* nella stessa maglia in modo da mantenere il motivo sul ferro successivo. Buon lavoro!

17.01.2026 - 12:19

country flag Daniela skrifaði:

Buongiorno, come vanno eseguiti gli aumenti nel bordo coste del corpo nel 1 ferro? Con gettati? E come intercalarli? Grazie

26.12.2025 - 08:15

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Daniela, può aumentare con 1 gettato o con un aumento sollevato. Buon lavoro!

27.12.2025 - 13:44

country flag Cosme skrifaði:

Comment doivent se faire les raglans ? Doit on faire un jeté avant et un autre après le marqueur à chaque tour? Juste un avant ? Deux mailles avant et deux mailles après le marqueur ? Car sur les vidéos les raglans ne se font pas de la même manière . Merci de votre réponse

20.12.2025 - 11:58

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Cosme, en plus de la vidéo ci-dessous, retrouvez ici, en photos comment on doit augmenter pour le raglan, dans ce pull, on augmente avant et après chacune des mailles avec un marqueur = 8 jetés / augmentations tous les 2 tours. Bon tricot!

22.12.2025 - 17:31

country flag Cosme skrifaði:

J’ai l’impression que mes raglans sont décalés ( comme s’ils n’arrivaient pas au même endroit sur chaque manche ). J’ai vérifié et ils sont tricotés de manière bien droite. Est ce normal ? Est ce que cela va se régulariser en tricotant les manches ? Il y a t’il un problème de séparation au niveau du début des raglans? Merci de votre réponse

20.12.2025 - 11:31

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Cosme, vous devez augmenter pour le raglan de chaque côté des 4 marqueurs ainsi: 1 jeté, 1 m avec le marqueur, 1 jeté; ainsi vous augmentez 8 m par tour d'augmentations = 2 pour le devant/le dos et chaque manche. Peut être que cette vidéo (on a 2 m entre chaque jeté dans la vidéo, 1 seule ici) peut vous aider à visualiser comment on procède?

22.12.2025 - 17:29