Anna skrifaði:
Hi, I would like to make the sweater in size L, but I want the ribbing to be the same width as the rest of the body. Casting the number of stitches for larger size (XL) will be enough?
04.11.2023 - 21:45DROPS Design svaraði:
Dear Anna, the rib has the same number of stitches than the body, except for the 2 stitches to adjust the pattern. If you work the right gauge, the rib should have the same width than the body; should you have any difficulties adjusting this, you can try using a larger needle, including the one used for the body. Happy knitting!
05.11.2023 - 19:46
DANIELA ESPOSITO skrifaði:
Salve posso usare i ferri circolari o lineari, perché non li so usare i a doppia punta.
24.10.2023 - 10:38DROPS Design svaraði:
Buonasera Daniela, può usare i ferri circolari con un cavo lungo almeno 80 cm e la tecnica del magic loop. Buon lavoro!
24.10.2023 - 22:34
Susi skrifaði:
Warum so ein schönes Design nicht Topdown :-(
19.10.2023 - 17:22
Lis skrifaði:
Trods min tidligere kommentar må jeg indrømme, at der alligevel er forskel på 218-3 og 243-26 (Model: me-265). Den nye 243-26 har en dobbelt og mere velsiddende halskant endda med en fin lille snoning. Til gengæld er de smukke ærme-manchetter med snoninger forsvundet og afløst af en løs og slasket ribbort. Forsvundet er også den smukke brede bort med snoninger forneden på sweateren. Denne bort er ligeledes udskiftet med en løs og slasket ribkant. Mvh Lis.
15.10.2023 - 04:13
Lis skrifaði:
Hvorfor stemme om en sweater, der er opskrift på? Nr. 218-3 Ice Castles Sweater strikkes i Puna el. Soft Tweed (gr. B). Den 'nye' sweater me-265 strikkes i Merino Extra Fine (gr. B). Ellers er der ingen forskel. En rigtig retro-sweater var da bedre end 2 ens sweaters. Mvh Lis.
07.08.2023 - 14:34
Weronika skrifaði:
Peanut wafers
06.08.2023 - 11:33
Malihe skrifaði:
Esker den
06.08.2023 - 07:27
Claudia skrifaði:
Like a Hardanger
04.08.2023 - 22:28
Sofie skrifaði:
Fishermans fall/autum
03.08.2023 - 23:51
Kristen skrifaði:
Sweaters Are a Girl’s Best Friend
03.08.2023 - 18:40
Ocean Ropes#oceanropessweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, köðlum, ísaumuðum ermum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-26 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermi): Lykkjum er aukið út hvoru megin við lykkju með prjónamerki (= 1 lykkja slétt). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir lykkju með prjónamerki, prjónið út umferðina og aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan lykkju með prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið. Eftir það eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Lykkja með prjónamerki er alltaf prjónuð slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi, eftir það skiptist stykkið. Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu, eftir það skiptist ermin mitt að neðan og prjónað er fram og til baka að loka máli. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á stuttan hringprjón og er brotinn saman tvöfaldur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 252-264-288-312-336-372 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Extra Fine. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan og fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 250-262-286-310-334-370 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 125-131-143-155-167-185 lykkjur = hliðar. Síðan er prjónað mynstur frá byrjun umferðar þannig: A.1 yfir fyrstu 19-22-28-34-40-49 lykkjur (endið með fyrstu lykkju í A.1), prjónið A.2, A.3, A.4, A.3, A.2, prjónið A.1 yfir næstu 37-43-55-67-79-97 lykkjur (endið með fyrstu lykkju í A.1), prjónið A.2, A.3, A.4, A.3, A.2, prjónið A.1 yfir síðustu 18-21-27-33-39-48 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu í mynstri, prjónið næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 5-5-9-12-16-23 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 116-122-126-132-136-140 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 9-9-17-23-31-45 lykkjur fyrir handveg, prjónið 116-122-126-132-136-140 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 4-4-8-11-15-22 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Setjið fyrstu 116-122-126-132-136-140 lykkjur á þráð fyrir framstykki og prjónið yfir síðustu 116-122-126-132-136-140 lykkjur á bakstykki. BAKSTYKKI: = 116-122-126-132-136-140 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.4 = 108-114-118-124-128-132 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 36-36-38-38-40-40 lykkjur fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju = 35-38-39-42-43-45 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 55-57-59-61-63-67 cm. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur yfir kaðal í A.2 = 33-36-37-40-41-43 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Setjið til baka 116-122-126-132-136-140 lykkjur af þræði á hringprjón 4. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 50-52-53-55-56-58 cm, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.4 = 108-114-118-124-128-132 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. ATH! Nú er ekki lengur prjónað kaðlamynstur í A.4, lykkjur sem eru eftir af A.4 eru prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu. Fækkið lykkjum í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 35-38-39-42-43-45 lykkjur í umverð á öxl. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur yfir kaðal í A.2 = 33-36-37-40-41-43 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 68-70-74-76-78-80 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fækkið jafnframt um 5-4-5-4-3-2 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 63-66-69-72-75-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið A.1 hringinn – setjið 1 prjónamerki í fyrstu sléttu lykkjuna í umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 10-10-8-12-10-9 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út hvoru megin við lykkjuna með prjónamerki í – lesið ÚTAUKNING. Haldið áfram með A.1 og endurtakið útaukningu með 2-2-2-1½-1½-1 cm millibili alls 19-19-20-21-22-23 sinnum = 101-104-109-114-119-124 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-49-47-46-45-42 cm, skiptist stykkið með því að fella af lykkju með prjónamerki í. Prjónið síðan fram og til baka í mynstri eins og áður þar til ermin mælist 51 cm í öllum stærðum, það er núna klauf ca 2-2-4-5-6-9 cm efst undir ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Eftir það er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 3 og DROPS Merino Extra Fine, byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 106 til 122 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt, en endið umferð þegar 4 lykkjur eru eftir í lok umferðar – umferðin byrjar núna hér. Nú á að prjóna mynstur yfir hvora öxl og stroff þannig: Prjónið A.5 yfir fyrstu 8 lykkjurnar (ca mitt yfir axlasaumi), prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hinum axlasaumnum – stillið af að síðasta lykkjan sé slétt lykkja, prjónið A.5 yfir næstu 8 lykkjur (ca mitt yfir axlasaumi), prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) út umferðina – stillið af að síðasta lykkjan sé slétt lykkja. Prjónið mynstur og stroff svona þar til kantur í hálsmáli mælist ca 14 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oceanropessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.