Lina skrifaði:
Tips: I stedet for å felle av de 15 skuldermaskene, brukte jeg de to neste omgangene til å øke de 15 maskene til 52 masker (str M) og fulgte deretter oppskriften videre. Ble kjempefin puff, jevn og uten å måtte sy i tråd og feste til slutt.
20.04.2023 - 00:20
Melissa skrifaði:
If I were to knit this on 3mm needles instead of the 3,5mm mentioned, what size should I be knitting to obtain a size S?
13.04.2023 - 21:21DROPS Design svaraði:
Hi Melissa, This depends on your knitting tension. If you work a swatch and measure the number of stitches and rows on 10 x 10 cm, then you can see whether you need to go up a size (if you have too many stitches compared to the number stated in the pattern for size S). You then follow the new stitch numbers for size M. Happy knitting!
14.04.2023 - 06:59
Melanie skrifaði:
Pumpkin
21.01.2023 - 11:46
Bianca Alexander skrifaði:
My summer all I want
20.01.2023 - 18:33
Cecilie Constanse skrifaði:
Sweet summernights
19.01.2023 - 18:27
Joanna skrifaði:
Dama dworu
19.01.2023 - 14:15
Joanna skrifaði:
Charming Puff [ENG] Bufiasty Czar [POL]
19.01.2023 - 11:07
Kari Little skrifaði:
Rose Blouse
19.01.2023 - 10:20
Maria skrifaði:
'Bluse mit Puffärmeln'
17.01.2023 - 19:42
Elisabeth Kern skrifaði:
What a beautiful pattern! So feminine and elegant.😄
17.01.2023 - 16:58
Sherwood Smiles#sherwoodsmilestop |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, axlarsæti, sléttprjóni og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-16 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (frá réttu): AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (frá röngu): AUKIÐ ÚT TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum, stuttu umferðirnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Afgangur af berustykki er prjónaður í hring á hringprjóna. Berustykkið skiptist til fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 116-120-124-134-140-148 lykkjur með DROPS Safran með hringprjón 2,5 og hringprjón 3,5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 3,5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 2,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Nú er stroffið brotið inn að röngu, þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem ca 4. hver lykkja er prjónuð saman með samsvarandi ca 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú er kominn tvöfaldur kantur í hálsmáli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-26-30-32-34-38 lykkjur jafnt yfir = 142-146-154-166-174-186 lykkjur. Síðan er prjónað A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, setjið 1 merki mitt í umferð (mitt að framan). Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI MEÐ ÚTAUKNINGU FYRIR AXLARSÆTI: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert merki er sett á milli 2 lykkja. Þessi merki eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og merkin verða að hafa annan lit en merki að framan til að aðgreina þau. Fyrsta merki: Teljið 28-29-31-32-34-37 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju. Annað merki: Teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur frá 1. merki (axlalykkjur), setjið 2. merki á undan næstu lykkju. Þriðja merki: Teljið 56-58-62-64-68-74 lykkjur (framstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju. Fjórða merki: Teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur (axlalykkjur), setjið 4. merki á undan næstu lykkju. Það eru 28-29-31-32-34-37 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. merki (hálft bakstykki). Látið þessi 4 merki fylja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt að þessum prjónamerkjum. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan, þannig að stykkið verði aðeins hærra aftan í hnakka. Þetta er gert jafnframt því sem aukið er út fyrir axlarsæti. Byrjið frá réttu mitt að aftan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 1. merki og á EFTIR 2. merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (2 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 2. merki. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 2. og 4. merki og á EFTIR 1. og 3. merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 3. merki. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 3. og 1. merki og á EFTIR 4. og 2. merki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 2. og 4. merki og á EFTIR 1. og 3. merki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 3. og 1. merki og á EFTIR 4. og 2. merki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 2. og 4. merki og á EFTIR 1. og 3. merki (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir axlarsæti á UNDAN 3. merki og á EFTIR 4. merki (2 lykkjur fleiri), prjónið sléttprjón að miðju að aftan. Stuttu umferðirnar hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út alls 6 sinnum fyrir axlarsæti við hvert merki = 166-170-178-190-198-210 lykkjur í umferð. Þ.e.a.s. lykkjum hefur einungis verið fjölgað á framstykki og á bakstykki og fjöldi axlalykkja verðu sá sami. Síðan er prjónað sléttprjón í hring yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir axlarsæti á sama hátt og áður í hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 20-22-26-28-28-28 sinnum meðtalin 6 skipti í hálsmáli = 222-234-258-278-286-298 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 6-7-8-9-9-9 cm frá merki framan við hálsmál. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður fram að 1. merki, fellið af 15-15-15-19-19-19 axlalykkjur, prjónið sléttprjón fram að 3. merki, fellið af 15-15-15-19-19-19 axlalykkjur, prjónið eins og áður út umferðina = 192-204-228-240-248-260 lykkjur. Haldið merkjunum í stykkinu – merkin eru notuð þegar auka á út fyrir ermum. Prjónið 48-51-57-60-62-65 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki, fitjið upp 52-52-52-66-66-66 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir ermi, prjónið 96-102-114-120-124-130 lykkjur sléttprjón (framstykki), fitjið upp 52-52-52-66-66-66 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir ermi, prjónið 48-51-57-60-62-65 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki) = 296-308-332-372-380-392 lykkjur. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING ERMAR: Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. merki og aukið út á UNDAN 2. og 4. merki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Nú er einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 23-24-25-21-27-25 sinnum, síðan er aukið út í hverri umferð alls 0-0-5-9-0-0 sinnum = 388-404-452-492-488-492 lykkjur. Stykkið mælist ca 20-22-25-25-26-25 cm frá merki við hálsmál. Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Færið 4 merkin til þannig að þau sitji í hvorri hlið á ermum (merkin sitja nú í lykkju og það eru 96-98-110-124-118-114 lykkjur á milli lykkja með merki í). Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki þannig: Aukið út á UNDAN og á EFTIR hverju af 4 merkjunum – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Nú á að auka út lykkjur á framstykki, bakstykki og á ermum. Aukið svona út í hverri umferð alls 6-6-4-7-11-15 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 436-452-484-548-576-612 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-24-26-27-29-29 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 54-57-61-67-73-80 (hálft bakstykki), setjið næstu 110-112-120-140-142-146 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 108-114-122-134-146-160 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 110-112-120-140-142-146 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 54-57-61-67-73-80 lykkjur (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 232-248-268-292-320-352 lykkjur. Prjónið sléttprjón í hring þar til stykkið mælist 20-20-20-20-20-22 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 64-72-76-84-92-98 lykkjur jafnt yfir = 296-320-344-376-412-450 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMI: Setjið 110-112-120-140-142-146 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 3,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 118-122-132-152-156-162 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi – mitt í 8-10-12-12-14-16 lykkjur. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu – það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 12-14-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 106-108-116-134-136-140 lykkjur. Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum cm alls 9-8-6-6-5-5 sinnum = 88-92-104-122-126-130 lykkjur. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12-22-36-36-38 lykkjur jafnt yfir = 78-80-82-86-90-92 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 13-12-10-10-9-9 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Þræðið þráð upp og niður í gegnum uppfitjunarkantinn efst á ermi. Brjótið ermakúpuna þannig til að hún passi við opið þar sem lykkjur voru felldar af á öxl. Saumið ermakúpuna við axlalykkjur sem felldar voru af. Endurtakið í hinni hliðinni. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sherwoodsmilestop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.