DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sun Dream Tee

Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og áferðamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 240-24
DROPS Design: Mynstur e-354
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-400-400 g litur 62, sítróna

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um í hliðum á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

LASKALÍNA:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í (laskalínulykkjur), í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (8 lykkjur fleiri í umferð).
Uppslátturinn er prjónaður þannig:
Á UNDAN LASKALÍNU:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR LASKALÍNU:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 120-124-128-134-138-142 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 30-32-32-34-36-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 150-156-160-168-174-180 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið sléttprjón hringinn.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 2-3-4-4-5-6 cm frá prjónamerki, aukið út um 30-32-36-40-46-48 lykkjur jafnt yfir = 180-188-196-208-220-228 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 3-4-5-5-6-7 cm frá prjónamerki, prjónið mynstur A.1 hringinn á berustykki. JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út jafnt yfir í hverri umferð merktri með ör í A.1 þannig:
Ör-1: Aukið út 28-32-36-36-40-40 lykkjur jafnt yfir = 208-220-232-244-260-268 lykkjur.
Ör-2: Aukið út 28-32-32-36-36-40 lykkjur jafnt yfir = 236-252-264-280-296-308 lykkjur.
Ör-3: Aukið út 28-30-36-44-46-52 lykkjur jafnt yfir = 264-282-300-324-342-360 lykkjur.
Ör-4: Aukið út 24-30-30-36-36-42 lykkjur jafnt yfir = 288-312-330-360-378-402 lykkjur.
Ör-5: Aukið út 24-32-30-32-30-34 lykkjur jafnt yfir = 312-344-360-392-408-436 lykkjur.
Prjónið A.1 til loka. Stykkið mælist ca 15-16-17-17-18-19 cm frá prjónamerki við hálsmál.

Nú á að auka út fyrir laskalínu. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þessi 4 prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar.
Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju, teljið 64-70-74-80-80-82 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 90-100-104-114-122-134 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 64-70-74-80-80-82 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, það eru 90-100-104-114-122-134 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (bakstykki).
Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri).
Aukið út fyrir laskalínu í 4.-4.-2.-2.-2.-2. hverri umferð alls 3-3-5-6-8-8 sinnum = 336-368-400-440-472-500 lykkjur.
Prjónið áfram án útaukningar þar til stykkið mælist 19-20-22-23-25-27 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu lykkju með prjónamerki slétt, setjið næstu 70-76-84-92-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 98-108-116-128-140-152 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 70-76-84-92-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 97-107-115-127-139-151 lykkjur eins og áður (bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 208-228-248-272-300-328 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum. Haldið áfram í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerki – sjá ÚRTAKA (4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið í öllum stærðum = 196-216-236-260-288-316 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 22-23-23-24-24-24 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 44-48-52-56-64-72 lykkjur jafnt yfir = 240-264-288-316-352-388 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 70-76-84-92-96-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 2-2-2-2-1-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í 8.-4.-2.-2.-2.-2. hverri umferð alls 4-6-9-10-11-11 sinnum = 68-70-74-80-84-88 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 11-11-9-9-8-8 cm frá skiptingu. Það eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-12-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 78-82-86-92-98-102 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5.
Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 14-14-12-12-11-11 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = Kúla: Prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju þar til 5 lykkjur eru á prjóni (4 lykkjur fleiri), lyftið 2. lykkju yfir 1. lykkju, lyftið 3. Lykkju yfir 1. lykkju, lyftið 4. lykkju yfir 1. lykkju og lyftið 5. lykkju yfir 1. lykkju (4 lykkjur færri)
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Vaidehi wrote:

I dont have a similar garment. Is there a way to choose size according to bust measurement

01.09.2023 - 18:19

DROPS Design answered:

Dear Vaidehi, the measurements of this garment for each size can be found in the measurements schematic, under the pattern instructions. All measurements are in cm. You can see how to read this schematic here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=19. Happy knitting!

03.09.2023 - 19:21

country flag Vaidehi wrote:

How do I decide which size I should make?

01.09.2023 - 10:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Vaidehi, measure a similar garment you have and like the shape and compare the measurements to the ones in the chart, that's the best way to find the matching size - read more about sizing here. Happy knitting!

01.09.2023 - 15:24

country flag Saskia wrote:

Bij het gaatje breien wordt niet verteld hoe de omslag gebreid moet worden. Brei ik de omslag zoals hij zich voordoet, dan krijg ik een erg groot gat. Brei ik de omslag gedraaid, dan is het gaatje nauwelijks zichtbaar. Ik krijg de gaatjes dus niet zo als op de foto. Wat is nou eigenlijk de bedoeling?

06.08.2023 - 17:33

DROPS Design answered:

Dag Saskia,

Je breit deze inderdaad zoals deze zich voordoet, zodat er een gaatje ontstaat. Je breit hem niet gedraaid, anders wordt het niet een gaatje.

08.08.2023 - 20:47

country flag Wendy wrote:

This pattern is listed on Ravelry as 240-54 instead of 240-24. Just wanted to let you know because I love you guys! :-) $hearts;

16.07.2023 - 05:21

DROPS Design answered:

Thanks Wendy, pattern number has been edited there :)

28.07.2023 - 09:03

country flag Giuseppina Luongo wrote:

Per favore vorrei sapere con quali ferri eseguire il campione. Grazie!

07.07.2023 - 15:05

DROPS Design answered:

Buonasera Giuseppina, può provare a lavorare il campione con i ferri più grandi. In ogni caso la misura dei ferri è solo indicativa: deve utilizzare i ferri che le permettono di ottenere il campione indicato. Buon lavoro!

07.07.2023 - 19:41

country flag Laurence Roquet wrote:

Bonjour, comment faire un rehausse pour le dos sur ce modèle ? merci

23.06.2023 - 21:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Roquet, cette vidéo montre comment faire des rangs raccourcis pour former une réhausse pour l'encolure dos; inspirez-vous d'un modèle de tension analogue pour ajouter une réhausse si vous en souhaitez une. Bon tricot!

26.06.2023 - 09:07

country flag Nancy Bradley wrote:

I am working a size XXL at the point of finishing A1 increases and have 408 stitches as the pattern requires. But the next instructions divide for sleeves and back/front, and the pattern instructions add up to only 404 stitches. I assume there is a mistake, so can you please let me know how I should proceed from here.

03.05.2023 - 03:40

DROPS Design answered:

Hi Nancy, After finishing A.1, you have 408 stitches. You then increase for a small raglan by the 4 markers. Increase 2 stitches at each marker (8 stitches increased on the round) x 8, which gives you 472 stitches. Continue working to the correct length of yoke for your size, then divide for the body and sleeves as described, with 96 stitches on each sleeve 140 stitches on the front and back pieces and 10 new stitches cast on under each sleeve. Hope this helps and happy knitting!

03.05.2023 - 06:49

country flag Eva Holm wrote:

Mangler der ikke noget tekst i beskrivelsen af hvordan man strikker en boble?

01.05.2023 - 12:12

DROPS Design answered:

Hei Eva. Nei. Forklaringen til boble finner du under diagramteksten og ikonet med en sort stjerne. Du kan også ta en titt på hjelpevideoen "Boble - strik". mvh DROPS Design

02.05.2023 - 13:52

country flag Sonam Lhamo wrote:

Beautiful. I want to try this pattern for summer wear.

29.04.2023 - 10:05

country flag Maria Collinge wrote:

Walkin on Sunshine!

22.01.2023 - 23:25