Toni skrifaði:
Hola, he tejido el jersey con belle hueso y color cereza. Me ha gustado mucho tenerlo pero al lavarlo el color cereza ha desteñido un poco sobre el color hueso. Saben cómo podría arreglarlo? Gracias de antemano
09.06.2025 - 12:59
Rean skrifaði:
Welke kleuren zijn er gebuikt?\r\nNr 08 is zwart \r\nOp de foto lijkt het beige \r\nNr 10 is inderdaad mosgroen\r\nGraag hoor ik welke beige/witte kleur er is gebruikt
02.03.2025 - 13:22
Maike skrifaði:
Hallo, ich verstehe den Anleitungsschritt ab dem stilllegen der 18 Maschen (ich stricke Größe S) für den Halsausschnitt nicht. Was bedeutet es, 3 Maschen 1 x, dann 2 Maschen 2 x. Dann 1 Masche 4 abzunehmen? Ich habe die Maschen doch eben auf einem Faden stillgelegt? Und wie soll ich dann gleichzeitig die Schulterschrägung stricken?
25.02.2025 - 11:40DROPS Design svaraði:
Liebe Maike, für den Halsausschnitt werden die mittleren 18 Maschen stillgelegt, dann wird jede Schulter separat gestrickt. Man wird die Maschen am Anfang jeder Reihe vom Halsausschnitt abketten und gleichzeitig, Maschen am Anfang vom Armausschnitt stilllegen. So Halsausschnitt ist am Anfang einer HinReihe beim linken Vorderteil/Rückreihe beim rechten Vorderteil und Schulter wird man am Anfang einer Rückreihe beim rechten Vorderteil/Hinreihe beim linken Vorderteil. Viel Spaß beim Stricken!
25.02.2025 - 16:33
Michela skrifaði:
The diagonal shoulder part when it says to "place the stitches by the armhole on a thread" does that mean pick up stitches along the side of the pannel? how do you place 6 stitches 4 times? where the stitches are coming from (i'm making a small) the neck had a cast off/ decrease of 11 stitches leaving 30 stitches (plus 1 edge) for each shoulder are these 30 stitches the stitches being places on the thread place 6, knit& purl row, place another 6 etc?
29.01.2025 - 01:30DROPS Design svaraði:
Hi Michela, Yes, it is the shoulder stitches which are being placed on the stitch holder, 6 at a time while the others are worked, giving you the slightly diagonal shoulders. Start with the 6 stitches by the armhole and work them, then place them on the holder, work to end of row by neck then back again to the stitch holder. Turn, work the next 6 stitches, then place them on the holder etc.. All stitches should at the end either have been decreased or are on the holder. Hope this helps and happy knitting!
29.01.2025 - 07:00
Dais skrifaði:
Hey i couldn’t figure out how i supposed to pick up stitches for diagonal shoulder. Place 6-7-8-9-10-11 stitches 4 times, then place the last 7-6-6-6-8-8 stitches on the thread. All stitches are now bind off or on the thread. should start from armhole? and should i pick up 6 stitches 4 times on different rows?
28.09.2024 - 01:10DROPS Design svaraði:
Dear Dais, yes, you start on the side where the armhole/side is (opposite to the neck) and pick up 6 stitches on 4 separate rows that start from the armhole/side. On the 5th row from the armhole you place the last remaining 7 stitches on the thread. Happy knitting!
29.09.2024 - 20:30
Sofía skrifaði:
Estoy tejiendo el talle L. No me queda claro cómo seguir el escote. Tengo que poner los 18 puntos del medio aparte y trabajar cada hombro por separado, pero no comprendo el resto. Cada hombro tendría 50 puntos de los cuales hay que hacerles disminuciones. Esa sería la parte de \"Cast off for the neck 3 stitches 1 time, 2 stitches 2 times, then decrease 1 stitch 5 times\" del lado de adentro de ambos hombros? Tampoco entiendo la parte de los hombros diagonales
20.09.2024 - 03:20
Sofía skrifaði:
I am having problems with decreasing when switching to the 4.5 mm circular needle. I am knitting size L so I have 144 stitches (142 not counting the edge stitches) and I need to decrease 38 stitches on the next row on the right side. As much as I read the article you have to help me to decrease stitches I am not able to do it. Could you give me a step by step or some more help to be able to advance? Thank you very much.
17.09.2024 - 04:52DROPS Design svaraði:
Hi Sofia, You decrease 38 stitches across 142 stitches on the row (the edge stitches are kept as they are). 142/ 38 = 3.7. This means you decrease by working together 2 stitches after alternately stitches 3 and 4 (approx.). Keep a tab on how many stitches you have decreased towards the end of the row and adjust accordingly. Hope this helps and happy knitting!
17.09.2024 - 07:00
Emma skrifaði:
Hej jag behöver förtydligande vid framstycket. Det står såhär: "När arbetet mäter 12 cm från uppläggningskanten, ökas det 1 maska i varje sida - läs ÖKNINGSTIPS-1. Upprepa ökningen med 2 cm mellanrum tills det har ökats totalt 5 gånger i varje sida = 100maskor. När arbetet mäter 14 cm från uppläggningskanten stickas det vidare i A.1.\" Ska jag alltså bara ha två ökningar per rad eller ska det vara 10 ökningar på samma rad med 2cm mellanrum?
11.09.2024 - 23:38
Laura D skrifaði:
Attention, pour le modèle en taille M 1 seule pelote verte suffit largement. A l'inverse, il m'a manqué une pelote couleur naturel pour finir le pull....
26.04.2024 - 16:48
Annet Van Loon skrifaði:
Helemaal enthousiast over het patroon van de damestrui. Promise of Spring met breigaren Drops Belle Helaas kan ik niet met een rondbreinld breien. Is het mogelijk dat ik dit patroon met twee nld kan breien en zo ja waar moet ik op letten en waar moet het aangepast worden. Graag hoor ik van u. Met vriendelijke groet Annet van Loon
09.04.2024 - 19:12DROPS Design svaraði:
Dag Annet,
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
10.04.2024 - 08:39
Promise of Spring#promiseofspringsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Belle eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni, áferðamynstri, röndum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-7 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur í hvorri hlið, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um í hálsmáli þegar fækkað er um 1 og 1 lykkju): Fækkið lykkjum í hálsmáli innan við 3 lykkjur í sléttprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 LYKKJUR SLÉTTPRJÓN ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 LYKKJUR SLÉTTPRJÓN ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir mitt að framan, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 síðustu lykkjur í sléttprjóni (1 lykkja færri). ÚTAUKNING-2 (á við um mitt undir ermum): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með prjónamerki, sláið 1 sinni um prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón neðan frá og upp. Þegar stykkið hefur verið saumað saman er kantur í hálsmáli prjónaður í hring á stuttan hringprjón. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 120-132-144-156-172-188 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Belle í litnum ljós beige. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff fram og til baka með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroffið þar til stykkið mælist 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón jafnframt því sem fækkað er um 30-34-38-40-44-50 lykkjur jafnt yfir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 90-98-106-116-128-138 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukninguna með 2 cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 5 sinnum í hvorri hlið = 100-108-116-126-138-148 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-14-15-15-15-16 cm frá uppfitjunarkanti er prjónað áfram með A.1. Prjónið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm. Í lok 2 næstu umferða er fitjuð upp 1 ný lykkja sem er notuð til að sauma ermarnar í = 102-110-118-128-140-150 lykkjur. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist ca 38-38-39-43-43-44 cm. Nú er prjónað sléttprjón (í litnum ljós beige) yfir allar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm. Í næstu umferð eru miðju 18-18-18-20-20-20 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, síðan er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli 4-5-5-5-5-6 sinnum – sjá ÚRTAKA. SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 6-7-8-9-10-11 lykkjur á þráð 4 sinnum, síðan eru síðustu 7-6-6-6-8-8 lykkjur settar á þráð. Nú hafa allar lykkjur verið felldar af eða settar á þráð. Setjið til baka 31-34-38-42-48-52 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón, en til að sleppa við göt þegar snúið er mitt í stykki, sækið þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og prjónið alveg eins og framstykkið. Stillið A.1 af eftir framstykki þannig að rendurnar verði alveg eins. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Í næstu umferð eru miðju 36-38-38-40-40-42 lykkjur felldar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum – sjá ÚRTAKA. SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT eru ystu lykkjur við handveg settar á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráð. Setjið 6-7-8-9-10-11 lykkjur á þráðinn 4 sinnum, síðan eru síðustu 7-6-6-6-8-8 lykkjur settar á þráðinn. Nú hafa allar lykkjur verið settar á þráð. Setjið til baka 31-34-38-42-48-52 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón, en til að sleppa við göt þegar snúið er mitt í stykki, sækið þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 72-76-80-84-88-92 lykkjur á sokkaprjón 3 með DROPS Belle í litnum mosagrænn. Prjónið 3 umferðir stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Skiptið yfir í litinn ljós beige og haldið áfram með (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 14 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Prjónamerkið merkir mitt undir ermi og er notað þegar auka á út. Prjónið A.1 hringinn og aukið jafnframt út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 2½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 11-12-13-14-15-16 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Haldið áfram með A.1 að loka máli. Fellið af þegar stykkið mælist 47-46-45-44-42-40 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma, byrjið á að sauma þar sem fitjuð var upp 1 ný lykkja í hvorri hlið og saumið innan við 1 lykkju niður þar sem stroffið byrjar (það á að vera klauf í hvorri hlið). Saumið ermar í innan við 1 lykkju í hvorri hlið á framstykki/bakstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 3 og prjónið upp með litnum ljós beige ca 116-128 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kanturinn í hálsmáli mælist 5 cm. Skiptið yfir í litinn mosagrænn og prjónið áfram þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 11 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #promiseofspringsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.