DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rising Blue Tide

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 239-20
DROPS Design: Mynstur st-034
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-500 g litur 02, marsipan
50-50-50-50-50-50 g litur 11, vatnslitablár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-125-125-150 g litur 01, natur
25-25-25-25-25-25 g litur 08, ljós gallabuxnablár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjóna-númeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á undan / á eftir 2 lykkjum í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma, prjónamerkin sitja á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-88-88-104-104-104 lykkjur með 1 þræði DROPS Soft Tweed í litnum marsipan og 1 þræði í DROPS Kid-Silk í litnum natur yfir hringprjón 5,5 og hringprjón 4,5 sem haldið er saman.
Dragið út stutta hringprjón 5,5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja slétt.
Þegar stroffið mælist 12 cm, er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð slétt JAFNFRAMT því sem fjórða hver lykkja er prjónuð saman með fjórðu hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Stykkið er nú mælt héðan.

Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja.

Teljið 12-12-12-16-16-16 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, það eru 12-12-12-16-16-16 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (hálft bakstykki):

HÁLSMÁL:
Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Byrjið mitt að aftan:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar 3 lykkjur hafa verið prjónaðar fram hjá öðru prjónamerki.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar 3 lykkjur hafa verið prjónaðar fram hjá síðasta prjónamerki.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan. Klippið þráðinn.

Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 6 sinnum fyrir laskalínu = 136-136-136-152-152-152 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur frá miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: Aukið er út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptist um 4 og 8 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út 14-16-20-22-24-24 sinnum á fram- og bakstykki (7-8-10-11-12-12 sinnum á ermum). Það eru nú 220-232-256-284-296-296 lykkjur í umferð.

Stærð S, M, L, XXL og XXXL (útaukningu í stærð XL er lokið):
Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukningu fyrir ermar er lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 3-3-2-1-5 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú hefur verið aukið út alls 23-25-28-28-31-35 sinnum á fram- og bakstykki og 13-14-16-17-18-18 sinnum á ermum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum í hálsmáli).

Á eftir síðustu útaukningu eru 232-244-264-284-300-316 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist ca 21-24-26-26-30-34 cm, mælt mitt að framan á eftir stroffi í hálsmáli.

Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 35-37-40-44-47-51 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 46-48-52-54-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 70-74-80-88-94-102 lykkjur (framstykki), setjið næstu 46-48-52-54-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 35-37-40-44-47-51 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 160-172-184-204-220-240 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-16-16-18-16-14 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 200-212-228-252-272-296 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 46-48-52-54-56-56 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-12-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-64-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-3-2½-1½-1½-1 cm millibili alls 6-8-9-11-10-10 sinnum = 44-44-46-46-52-54 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 28-26-25-23-20-17 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-6-6-4-6 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Rendur eru prjónaðar þannig: Prjónið stroff með 1 þræði í litnum marsipan í Soft Tweed + 1 þræði í litnum natur í Kid-Silk í 7 cm, prjónið með 1 þræði í litnum marsipan í Soft Tweed + 1 þræði í litnum ljós gallabuxnablár í Kid-Silk í 7 cm, prjónið með 1 þræði í litnum vatnslitablár í Soft Tweed + 1 þræði í litnum ljós gallabuxnablár í Kid-Silk í 4 cm. (Alls 18 cm með stroffi). Fellið af. Ermin mælist ca 46-44-43-41-38-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Christine Pujol wrote:

Bonjour, je suis désolée de revenir vers vous mais je ne comprends toujours pas l'explication du rang 1 et rang 7: "tricoter et augmenter de chaque côté des 2 premiers fils marqueurs (on augmente 4 mailles)" ? Merci pour votre patience.

06.01.2024 - 14:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pujol, dans cette vidéo; nous montrons comment augmenter sur l'endroit à chacun des 4 marqueurs (comme ici aux rangs 1, 3, 5, et 7). Sur l'envers, augmentez de la même façon de chaque côté des fils marqueurs (dans la vidéo on n'augmente que sur l'endroit). Bon tricot!

08.01.2024 - 10:08

country flag Christine Pujol wrote:

Bonsoir, concernant le modèle 239-20 et des rangs raccourcis, au rang 2 (sur l'envers), faut-il augmenter dès le fil marqueur 2 ou faut-il tricoter jusqu'au fil marqueur 1 puis commencer les augmentations au fil marqueur 4 puis 3 puis 2 puis 1?

03.01.2024 - 18:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pujol, sur l'envers vous n'augmentez que pour le devant et le dos, pas pour les manches, autrement dit, vous augmentez avant le 2ème marqueur, après le 3ème marqueur et avant le 4ème marqueur puis après le 1er marqueur. Bon tricot!

04.01.2024 - 08:06

country flag Sylvie Lachance wrote:

Bonjour, J'ai beaucoup de difficulté à porter ces laines, ça pique énormément. Est-ce que je peux utiliser un produit quelconque ou faire quelque chose pour que ça pique moins, à part porter un chandail dessous? Merci beaucoup.

18.07.2023 - 17:48

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, est ce que vous avez utilise nos laines merinos? Je vous conseille d'essayer DROPS Baby Merino, Big Merino ou Merino Extra Fine. Le coton ne pique pas non plus. Bon tricot!

18.07.2023 - 23:00

country flag Manuela wrote:

Hallo, ich verstehe die Raglanzunahme beim Halsausschnitt leider nicht. Wenn man bei den ersten 2 Markierungen die verkürzten Reihen arbeiten soll dann ist die Erhöhung doch nur zwischen der linken Seite der Rückenteils und des Ärmels. Oder meinen sie mit der 1. Markierung die vor dem Rundenbeginn? Vielen Dank

05.07.2023 - 21:21

DROPS Design answered:

Liebe Manuela, die 1. verkürzte Reihe beginnt an der hinteren Mitte, bei der 1. Reihe (Hin-Reihe) nehmen Sie nur bei den 2 ersten Markierungen (rechte Seite, wenn man den Pullover trägt), bei der 2. Reihe (Rückreihe) nehmen Sie bei den 4 Markierungen), so stricken Sie weiter mit jeweils 8 Zunahmen. Bei der letzten Reihe (= 7. Reihe, Hinreihe, nehmen Sie nur bei 2 Markierungen (linke Seite, wenn man den Pullover trägt), so hat man genau die selbe Maschenanzahl beidseitig zugenommen. Siehe auch diese Technik im Video hier. Viel Spaß beim stricken!

06.07.2023 - 10:24

country flag Bettina wrote:

Klopt het dat de verkeerde toeren op de voorkant van de trui komen te vallen? Ik heb Duitse verkorte toeren gebreid, maar toch zie je het goed. Is het niet mooier om deze op de achterkant te werken? De garens breien wel heerlijk!

24.05.2023 - 09:39

DROPS Design answered:

Dag Bettina,

Wanneer je verkorte toeren breit, brei je recht aan de goede kant en averecht aan de verkeerde kant, waardoor je dit niet zou horen te zien. Het blijft dus tricotsteek.

24.05.2023 - 21:13

country flag Petra wrote:

Nochmal eine Frage zu den 2 Fäden : wäre es alternativ vielleicht auch möglich, einfach eine Nummer größer zu stricken? Ich möchte nur das Tweedgarn nutzen.

18.04.2023 - 10:26

DROPS Design answered:

Liebe Petra, wenn Sie nur Soft Tweed stricken möchten, dann wird die Maschenprobe in der Breite sowie in der Höhe nicht stimmen, wenn Sie dann grössere Nadeln für die Maschenprobe benutzen und dann diese richtige Maschenprobe bekommen würden, dann würde aber die Texture verschieden sein (viel locker als hier). Hier finden Sie Anleitungen für Garngruppe B mit 22-20 Maschen = 1 Faden Garngruppe B. Viel Spaß beim stricken!

18.04.2023 - 10:54

country flag Petra wrote:

Muss ich doppelte Fäden nehmen? Muss ich andere Maschenzahlen nehmen, wenn ich nur das Tweedgarn nutzen möchte?

15.04.2023 - 21:40

DROPS Design answered:

Liebe Petra, dieses Modell wird mit 2 Fäden gestrickt, dh mit 1 Faden Soft-Tweed + 1 Faden Kid-Silk, wenn Sie mit nur 1 Faden Soft Tweed stricken möchten, wird Ihre Maschenprobe nicht hier stimmen, am besten suchen Sie ein anders Modell mit nur 1 Faden der Garngruppe B aus. Viel Spaß beim stricken!

17.04.2023 - 09:08

country flag Gallais wrote:

Ah oui, désolée, c'est 232 et 256 mailles, à ce moment de l'explication (pour la taille M): " EMPIÈCEMENT: (...) On a 220-232-256-284-296-296 mailles.( ...) Quand toutes les augmentations sont faites, on a 244-256-276-296-312-328 mailles. " Merci

04.04.2023 - 08:30

DROPS Design answered:

Bonjour Gallais, il y a une phrase de trop: "Quand toutes les augmentations sont faites, on a 244-256-276-296-312-328 mailles. Continuer en jersey jusqu'à ce que l'empiècement mesure 21-24-26-26-30-34 cm après les côtes, au milieu du devant", mais je ne peux pas la supprimer (on va faire cela apres les Paques). Commencez a partir de la phrase suivante et tous les calculs sont corrects. Bon tricot!

04.04.2023 - 09:42

country flag Gallais wrote:

Bonjour, Je ne comprend pas, dans l'empiècement, en taille M, après les premières augmentations on a 132 mailles, puis on augmenta 3 X 4 mailles, ce qui devrait faire 144. Or vous dites que l'on a 156 mailles après toutes les augmentations. Merci

02.04.2023 - 22:32

DROPS Design answered:

Bonjour Gallais, est-ce que vous avez donne de bons chiffres? Dites-moi ou vous etes exactement dane le modele.

04.04.2023 - 07:55

country flag Susi wrote:

Dann nehme ich im Bereich des verkürzten Randes doppelt so schnell zu wie später bei den darauf folgenden Raglanzunahmen in jeder 2.Reihe?

13.03.2023 - 12:19

DROPS Design answered:

Liebe Susi, es sind aber nur 7 Reihen und nur 5 mit 8 Zunahmen + 2 mit je 4 Zunahmen (für symmetrische Zunahmen ). Dann nimmt man 14 bis 24 Mal (siehe Größe) = 28 bis 48 Runden. Viel Spaß beim stricken!

13.03.2023 - 13:31