Ivory Collage Cardigan |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Wish eða 2 þræði DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-31 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Framstykkin og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Lykkjur eru prjónaðar í kringum hvorn handveginn. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp efst á hvoru framstykki fyrir kant í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 18-18-20-20-22-22 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð áfram. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 18-20-20-22-22-24 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 54-58-60-64-66-70 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 14-15-16-16-17-18 cm, mælt yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkin eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn (kantur að framan), prjónið upp 18-20-20-22-22-24 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. það er prjónuð upp 1 lykkja í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki) = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Prjónið A.1 yfir fyrstu 9 lykkjur (= kantur að framan) og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru (séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, aukið er út á eftir 11 lykkjum (A.1 + 2 lykkjur sléttprjón) – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju í 4. hverri umferð 6 sinnum, síðan í 6. hverri umferð 2-2-3-3-4-4 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-25-26-28-29-30 cm, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, passið uppá að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu. Klippið þráðinn. Prjónið síðan hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið upp 18-20-20-22-22-24 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki, fitjið síðan upp 9 nýjar lykkjur í lok umferðar (kantur að framan) = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið A.2 (séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan 11 lykkjum (2 lykkjur sléttprjón + A.2) – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju í 4. hverri umferð 6 sinnum, síðan í 6. hverri umferð 2-2-3-3-4-4 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-25-26-28-29-30 cm, prjónið þannig – frá röngu: Prjónið yfir lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 6-6-8-10-14-16 nýjar lykkjur í lok umferðar, prjónið frá röngu yfir 54-58-60-64-66-70 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 6-6-8-10-14-16 nýjar lykkjur, prjónið yfir lykkjur frá vinstra framstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og A.1/ A.2. Haldið áfram með útaukningu fyrir hálsmáli á framstykki. Þegar útaukning hefur verið gerð til loka, eru 136-144-152-164-176-188 lykkjur í umferð. Í fyrsta og þriðja skipti sem efstu 6 umferðir í A.1 / A.2 er prjónað, prjónið yfir allar lykkjur á fram- og bakstykki. ATH! Til að mynstrið komi til með að passa við kanta að framan, verður að byrja og enda með einum uppslætti á fram- og bakstykkislykkjum. Það kemur þá til með að aukast um 1 lykkju, þessi lykkja er fækkuð með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman í næstu umferð frá röngu. Prjónið sléttprjón og mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – mælt frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir kant að framan. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 52-56-60-64-72-76 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 188-200-212-228-248-264 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff þannig – frá röngu: 9 kantlykkjur að framan eins og áður *, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 11 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 9 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 8, prjónið upp frá réttu 26-28-30-32-32-34 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 16-16-18-18-20-20 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 42-44-48-50-52-54 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjurnar sem prjónaðar voru upp. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna, þetta er gert til að fá betra form og flíkin passi betur. Umferð 1 (ranga): Prjónið 10 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 2 (rétta): Prjónið 10 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 3 (ranga): Prjónið 14 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 4 (rétta): Prjónið 14 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 5 (ranga): Prjónið að byrjun umferðar. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 6-6-7-8-9-10 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermakúpu) . Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 8 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 8-8-9-10-11-12 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8.-5½.-5½.-4½.-4.-4 cm millibili alls 4-5-5-5-5-5 sinnum = 34-34-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-33-33-32-32-31 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Það eru eftir ca 14 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-18-14-16-14-16 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 14 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 48-47-47-46-46-45 cm. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur gagnstætt við fyrri ermi, þ.e.a.s. prjónið upp 16-16-18-18-20-20 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 26-28-30-32-32-34 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 1 lykkju í hverja af 9 lykkjum í garðaprjóni efst á hægra framstykki með hringprjón 7, prjónið garðaprjón þar til kanturinn að framan mælist ca 7-7-8-8-9-9 cm, passið uppá að kanturinn að framan mætist ca mitt að aftan þegar togað er létt í hann. Fellið af. Prjónið alveg eins í kantlykkjur að framan efst á vinstra framstykki. Saumið báða kantana að framan saman mitt að aftan og saumið kanta að framan við hálsmál aftan í hnakka. FRÁGANGUR: Saumið tvær tölur í vinstra framstykki, þannig að hægt sé að hneppa þeim í gegnum gataumferð á hægra framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Marina wrote:
Non so perché ma c'era qualcosa che non capivo, in seguito l'ho terminato ed è molto bello. Seguo sempre i vostri modelli e compro la vostra lana, grazie di pubblicarli:-)
19.01.2024 - 09:35Marina wrote:
Avviare 9 maglie (bordo), poi riprendere 18-20-20-22-22-24 maglie all’interno di 1 maglia di vivagno lungo la spalla sinistra sul dietro (cioè riprendere 1 maglia in ogni ferro) = 27-29-29-31-31-33 maglie. Lavorare A.1 sulle prime 9 maglie (= bordo) e a maglia rasata sulle altre maglie (visto dal diritto del lavoro), Io a questo punto mi ritrovo il lavoro con il rovescio davanti se inizio dalle prime 9 maglie, cosa devo fare?
22.11.2023 - 10:45DROPS Design answered:
Buongiorno Marina, può ripartire con un nuovo gomitolo lavorando sul davanti. Buon lavoro!
30.12.2023 - 11:22Marina wrote:
In effetti ho posto confusamente la domanda. "La 1° e la 3° volta che vengono lavorati i primi 6 ferri di A.1/A.2, lavorarlo su tutte le maglie del corpo. " volevo sapere come lavorare a1 e a2 durante questo ferro
25.09.2023 - 23:27Marina Venturi wrote:
Salve, sto lavorando il ferro con il lavoro tutto intorno, ho aumentato 2 maglie (prima o dopo le maglie aggiunte per unire il dietro con il davanti?), ho una taglia S quindi ora mi ritrovo 138 maglie. Inizio dal davanti destro con A2, devo lavorare sempre lo schema con 9 maglie o solo 8? A1 lo lavoro solo alla fine sul bordo sinistro? Quante maglie devo avere una volta finito il ferro?
17.09.2023 - 08:00DROPS Design answered:
Buonasera Marina, ci può spiegare meglio a quale parte del lavoro sta facendo riferimento? Buon lavoro!
25.09.2023 - 23:20Karin wrote:
Hej!\r\nPå vänster framstycke.. när jag lagt upp 9 frmkmasker o sen stickar upp resten är d ju naturligt att börja sticka på avigsidan.. fast d står ju” börja på a1.. som d är nu måste jag klippa tråden o börja från 9 framkanterna.. \r\nsen så står d när jag ska börja öka till framstycken att d ska ökas varje varv från rätsidan.. sen så står d var 4 varv.. när jag räknar i hop alla masker så stämmer d med vart 4 varv o även vart 6 varv..
18.08.2023 - 09:26Ron wrote:
Over meerderen voorpand. Meerderen iedere 4e naald 6 keer = 22 naalden Dan iedere 6e naald 4 keer = 24 naalden Totaal 46 naalden, volgens steken verhouding is dit 46/15 x 10 = 30 cm + 6 cm vanaf het begin = 36 cm. Maar je moet stoppen bij 28 cm, dus dat is te kort om alle meerderingen te kunnen maken.
02.08.2023 - 18:56DROPS Design answered:
Dag Ron,
Het klopt dat het meerderen nog niet klaar is als het werk die lengte heeft. Het meerderen van de hals gaat door als je bij het lijf aangekomen bent waar je dus de draad weer oppakt.
03.08.2023 - 21:00Ron wrote:
Om er zeker van te zijn dat ik het patroon juist interpreteer. Het patroon begint met het linker voorpand. De instructie video (#2) met het rechter, klopt dat? M.a.w. voor de linkerkant neem ik steken op van boven naar beneden op het achterpand en voor de rechterzijde van beneden naar boven (naar de hals). Vraag me ook af hoe ik dit moet lezen “….. aan de binnenkant van de 1 kantsteek”. 1 als in eerste of wat anders?
30.07.2023 - 19:56DROPS Design answered:
Dag Ron,
Het patroon begint inderdaad met het linker voorpand, zoals je het kledingstuk aan hebt. Dus stel je voor dat je het vest aan hebt, waar dan het linker voorpand zit. Het patroon is altijd leidend, de video's kunnen van een ander kledingstuk zijn of meer algemeen. Voor het linker voorpand neem je steken op langs de linker schouder van het achterpand en je breit het linker voorpand van boven naar beneden en dit doe je ook van het rechter voorpand. Hoe je steken opneemt (dus binnen 1 steek) kun je in de instructievideo zien. Die ene steek valt dus aan de binnenkant van het kledingstuk.
08.08.2023 - 11:46Jennie Hast wrote:
Hej! På bilden ser det ut som att det är ett varv med aviga maskor innan och efter hålmönstret men när jag läser A1 och A2 så ser jag inte det?
22.07.2023 - 13:46DROPS Design answered:
Hei Jennie. Husk at första och tredje gången de översta 6 varven i A.1/ A.2 stickas, stickas de över alla maskorna på fram- och bakstycket. Krysset i diagrammet = rätmaska från avigsidan. mvh DROPS Design
27.07.2023 - 09:36Aud Kari Jakobsen Jakobsen wrote:
Hei.Har problemer med å forstå mønsteret på A 1.Hullmønster på kanten på venstre forstykke kommer på vrangsiden (skal være på rettsiden etter beskrivelsen ? Kan dere forklare meg ?
08.07.2023 - 08:33DROPS Design answered:
Hej Aud, du ser selve diagrammet fra retsiden, så det er ens på højre og venstre forstykke (bortset fra kantmasken) :)
04.08.2023 - 14:34Aniek wrote:
Hoeveel bollen drops air heb ik nodig voor maat M of maat L?
14.06.2023 - 12:47DROPS Design answered:
Dag Aniek,
Bovenaan bij de materialen staat aangegeven hoeveel gram van de verschillende garens je nodig hebt. het eerste getal slaat op de kleinste maat, het volgende getal op de maat daarna, enzovoort. Voor maat M heb je dus 550 gram DROPS Air nodig en voor maat L 600 gram. 1 bol weegt 50 gram.
14.06.2023 - 18:09