Valeri skrifaði:
Hallo, ik denk dat er een fout is in het patroon bij het rechtervoorpand. Het aantal steken dat op de hulpdraad stond en terug op de naalden moet worden gezet is verkeerd. Dit zou voor maat L ook 42 steken moeten zijn? Anders is dit zeer asymmetrisch. Groetjes!
17.04.2025 - 13:22
May skrifaði:
How to you do the sleeves, are they knitted straight on to the jumper and how does picking up the 50-53-56-59-62-64 work
07.11.2024 - 22:34DROPS Design svaraði:
Dear May, sleeves are worked top down from armhole, pick up stitches along armhole - see bold line on chart, the dotted line is matching the first rows worked back and forth at the beg of sleeve, that will be sewn to bottom of armhole on body. Happy knitting!
08.11.2024 - 07:56
Brunier skrifaði:
Peut on le faire avec des aiguilles droites
04.11.2024 - 14:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Brunier, on tricote ici le devant et le dos séparément en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, vous pouvez donc tricoter sur aiguilles droites, vos mailles seront juste plus serrées (pensez à bien conserver la bonne tension); pour les manches, cette leçon pourra vous aider à faire les ajustements nécessaires. Bon tricot!
04.11.2024 - 14:45
Luisa skrifaði:
Le maglie messe sul fermamaglie in attesa non corrispondono nella descrizione a quelle da riprendere per il davanti destro. Es. Taglia S : 37 maglie sul fermamaglie e poi indica di riprendere 34 maglie..... e così per tutte le taglie.
29.10.2024 - 08:24
Luisa skrifaði:
Se ho capito bene, quando riprendo le maglie per la manica, non devo includere le 6 maglie intrecciate all’inizio dello scalfo. queste corrispondono a b nel disegno, e andranno poi cucite. corretto? grazie.
17.04.2024 - 13:35
Johanna skrifaði:
Hei, miksi etu- ja takakappaleiden resorien jälkeen kavennetaan?
06.04.2024 - 18:58DROPS Design svaraði:
Tällä tavoin joustinneuleen ja sileän neuleen rajakohdasta tulee siistimpi.
08.04.2024 - 18:03
Dani Scupin skrifaði:
Hallo, benutze ich Nadeln in 5 und 6 mm (oder size 5 und size 6) ? Mit welcher Nadelstärke mache ich die Maschenprobe? Danke. liebe Grüße, DAni
09.03.2024 - 19:20DROPS Design svaraði:
Liebe Dani, die Maschenprobe wird mit den grösseren Nadeln gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
11.03.2024 - 08:13
Radha Korsoski skrifaði:
Hej. Ska kantmaskorna mot halsringningen i framstycket stickas i rätstickning? Hälsningar Radha
17.12.2023 - 22:15DROPS Design svaraði:
Hei Radha. Kantmaskene strikkes rett fra retten og vrangen fra vrangen = glattstrikk (slätstickning) mot halsen. Sidemaskene mot ermhullene strikkes i riller (rätstickning). mvh DROPS Design
18.12.2023 - 11:03
Louise skrifaði:
Ska det stickas en maska i rätstickning på varje sida även efter att man minskat för ärmen?
10.12.2023 - 18:55DROPS Design svaraði:
Hei Louise. Ja. Husk å lese hele avsnittet før det strikkes og nederst på avsnittet står det: Sticka slätstickning och 1 kantmaska i rätstickning mot sidan till arbetet mäter totalt 50-52-54-56-58-60 cm. mvh DROPS Design
11.12.2023 - 13:00
Le Boulaire skrifaði:
Hallo, der Anschlag mit 94 Maschen für Gr. M kommt mir sehr groß vor! Das sind dann ungefähr 67 cm für den Rücken…meine Maschenprobe stimmt mit Ihrer Maschenprobe überein, aber 94 Maschen scheint mir viel zu viel zu sein….
30.08.2023 - 14:37DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Le Boulaire, mit kleineren Nadeln braucht man für Bündchen mehr Maschen (= 94 in M) als für später glatt rechts und grösseren Nadlen (= 78 Maschen) - so haben Sie mit 14 Maschen = 10 cm, die 78 Maschen mit Nadeln 6/ die 94 M mit Nadeln 5 ca 54 cm genauso wie bei der Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!
30.08.2023 - 16:20
Climbing Rose Sweater#climbingrosesweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni og með v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 240-5 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveginn. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 82-90-94-102-110-122 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað fram og til baka í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-16-16-18-20-24 lykkjur jafnt yfir = 68-74-78-84-90-98 lykkjur. Síðan er prjónað í sléttprjóni með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 2-3-4-6-7-9 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-68-70-72-76-80 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af miðju 12-14-14-16-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 22-23-24-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og prjónið alveg eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm = 68-74-78-84-90-98 lykkjur – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Nú skiptist stykkið mitt að framan fyrir hægra og vinstra framstykki þannig: Setjið síðustu 34-37-39-42-45-49 lykkjurnar á þráð og prjónið síðan yfir fyrstu 34-37-39-42-45-49 lykkjur frá réttu þannig: VINSTRA FRAMSTYKKI: = 34-37-39-42-45-49 lykkjur. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram, það á að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg. Prjónið næstu umferð frá réttu og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli þannig: Prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir fyrir hálsmál, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur sléttprjón. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 6-7-7-8-8-7 sinnum, síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-4-4-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 2-3-4-6-7-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun næstu umferðar frá réttu. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka eru 22-23-24-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið þar til stykkið mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 32-34-35-36-38-40 lykkjur. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram, það á að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg. Prjónið næstu umferð frá réttu og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli þannig: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 6-7-7-8-8-7 sinnum, síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-4-4-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 2-3-4-6-7-9 lykkjur fyrir handveg í lok næstu umferðar frá réttu. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka eru 22-23-24-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið þar til stykkið mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma þannig að saumurinn verði flatur og fallegur. ERMI: Notið hringprjón 6 og DROPS Melody. Prjónið upp 50-53-56-59-62-64 lykkjur – frá réttu með byrjun frá botni á handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin er mæld frá þessu prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-1-2-4-5-6 cm frá prjónamerki. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 6 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferðina við prjónamerkið og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4-3-3-1-1-1 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-4½-4½-4-3½-3½ cm millibili alls 7-8-8-9-10-10 sinnum = 36-37-40-41-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 43 cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-11-12-11-14-12 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 51 cm frá prjónamerki. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauminn innan við 1 kantlykkju. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #climbingrosesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.