Dreams of Ireland |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Snow eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni, með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og háum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-13 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsta stykkið á bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, lykkjur eru auknar út fyrir hálsmáli að framan og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp hringinn í hvorum handvegi. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 16-16-18-20-20-20 á hringprjón 9 með 1 þræði DROPS Snow eða 2 þráðum DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkið á að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka. JANFFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 16-18-18-20-22-24 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 48-52-54-60-64-68 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Síðan er prjónað sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 14-15-16-16-17-18 cm, mælt yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 16-18-18-20-22-24 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, aukið út á eftir 3 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 20-22-22-24-26-28 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 16-18-18-20-22-24 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið út á undan 3 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 20-22-22-24-26-28 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 20-22-22-24-26-28 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 8-8-10-12-12-12 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 20-22-22-24-26-28 lykkjur frá vinstra framstykki = 48-52-54-60-64-68 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 24-25-26-28-29-30 cm, mælt yst meðfram handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 48-52-54-60-64-68 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-2-4-4-6-8 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 48-52-54-60-64-68 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 2-2-4-4-6-8 nýjar lykkjur í lok umferðar = 100-108-116-128-140-152 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið, þannig að það myndast klauf í hliðum. Setjið 50-54-58-64-70-76 lykkjur frá bakstykki á þráð eða hjálparprjón og prjónið síðan einungis yfir lykkjur frá framstykki. FRAMSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 22-22-26-28-30-32 lykkjur jafnt yfir = 72-76-84-92-100-108 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá efsta punkti á öxl. BAKSTYKKI: Setjið lykkjur á hringprjón 8. Prjónið á sama hátt og framstykki. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 9 og prjónið upp frá réttu 24-25-26-28-29-30 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 14-15-16-16-17-18 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 38-40-42-44-46-48 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjurnar sem prjónaðar voru upp. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna, þetta er gert til að fá betra form og flíkin passi betur. Umferð 1 (ranga): Prjónið 10 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 2 (rétta): Prjónið 10 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 3 (ranga): Prjónið 14 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 4 (rétta): Prjónið 14 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 5 (ranga): Prjónið að byrjun umferðar. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 4-4-5-5-6-7 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermakúpu) . Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 9 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 6-6-7-8-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 11-11-11-7-6-5 cm millibili alls 3-3-3-4-4-4 sinnum = 32-34-36-36-38-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 33-32-32-30-29-28 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú eru eftir ca 15 cm að loknu máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-16-16-18-16 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 14 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 48-47-47-45-44-43 cm frá prjónamerki. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið lykkjur upp á gangstæða vegu, þ.e.a.s. prjónið upp 14-15-16-16-17-18 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 24-25-26-28-29-30 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlarlínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 48 til 64 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 8. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið inn kant í hálsmáli að innanverðu og festið með 1 spori í hvorri hlið. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Lynn wrote:
Thanks for your reply. I am getting 13 stitches in 10 cm with Drops Wish using 8 mm needles. If I chose a pattern that gives me same tension can I still knit w Drops Wish on 8mm even if the pattern calls for a smaller size 7mm needle and less bulky group C yarn? For example, would pattern 236-35 work w 8mm and Wish as it gives me 13 stitches in 10cm, the same tension called for in 236-35?
20.11.2023 - 17:48DROPS Design answered:
Dear Lynn, to get the correct measurements as in the chart, your tension should match the one stated in the pattern; so most important is always the number of stitches for 10 cm as given in the pattern, not the needle size as we all knit a different way, sometimes looser sometimes tighter, so adjust needle size to get the correct tension, ie in this pattern you need to have 10 sts x 14 rows in stocking stitch with a yarn group E as Wish- if you get 13 sts you should try again with larger needles until you get the correct tension. 236-35 is worked with 1 yarn group C + 1 yarn group A = 1 yarn group D as this one is 1 yarn group E. Happy knitting!
21.11.2023 - 08:51Lynn wrote:
Thank you for allowing me to break up my long question into 4 separate comment boxes.
18.11.2023 - 19:19Lynn wrote:
Terminology- are the FRONT PIECE and BACK PIECE Mill (8 mm) the ribbing and not the body? Is all the ribbing for front, back sleeves and neck all knit with 8mm needles? If I size down my needles from 9 mm to 8 mm as described above, then I would use 7 mm for all the ribbing?
18.11.2023 - 19:16DROPS Design answered:
Dear Lynn, this jumper is worked top down, you first start with back piece, then work front piece - to have a better overview on how this will be worked, see the first 3 videos at the very bottom of the pattern where we show how to work an European Shoulder: back piece, front piece and front pieces together with back piece. Happy knitting!
20.11.2023 - 10:18Lynn wrote:
Are my calculations correct? Would I use the same formula to calculate for other sizes eg. S and M? Is it simply a matter of choosing a larger size sweater to make up for the losses in knitting with an 8 mm? As for height, I presume the adjustments will be easier because it means knitting more or less rounds and I can determine that as I go?
18.11.2023 - 19:15Lynn wrote:
For example, for size XS (body width 50 cm flat) using 8mm needles, I calculate the body will be 11.5 cm narrower (flat, one side OR 23 cm narrow circumference). 10 cm = 13 stitches 1 cm = 1.3 stitches Size XS body is 50 cm (flat) 50 cm x 1.3 stitches = 65 stitches (an extra 15 stitches) 15 stitches / 1.3 stitches = 11.5 cm Sweater body will be 11.5 cm narrower (i.e 50 cm - 11.5 cm = 38.5 cm). Are my calculations correct?
18.11.2023 - 19:13Lynn wrote:
DROPS 241-13 - Drops Wish yarn (equivalent to Snow) 1. Using smaller needles - Using circular needles size 8mm (body) and 7mm (rib) instead of 9mm and 8mm (prefer the tension of 8mm, 9 mm too loose) - Magic loop technique My gauge swatch (in the round) on 8 mm needles is 13 stitches wide and 18 rows height = 10x10 cm Is it okay to simply choose a larger size to make up for the difference in gauge?
18.11.2023 - 19:11DROPS Design answered:
Dear Lynn, you will find all our patterns for jumpers with tension 15 to 12 stitches for 10 cm here - it might help you finding the most accurate pattern to follow. Happy knitting!
20.11.2023 - 10:16Lynn wrote:
Are my calculations correct? Would I use the same formula to calculate for other sizes eg. S and M? Is it simply a matter of choosing a larger size sweater to make up for the losses in knitting with an 8 mm? As for height, I presume the adjustments will be easier because it means knitting more or less rounds and I can determine that as I go?
18.11.2023 - 19:09DROPS Design answered:
Dear Lynn, sorry we are not able to adjust every pattern to every single request, it might be wise to use as basis a pattern with the correct tension and the required measurements, your yarn store can be also able to help you further. Or ask other knitters for their help in our DROPS Workshop; thanks for your comprehension. Happy knitting!
20.11.2023 - 10:14Ricky Clement wrote:
Waarom beginnen bijna al de patronen vanaf boven en dan ook nog op een rondbreinaald.. Niet leuk liever gewoon normaal
21.02.2023 - 19:45McKenna wrote:
The Classic Fit Jumper
20.01.2023 - 22:07Rosa G wrote:
Green luck
18.01.2023 - 17:25