DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Idle Summer

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, v-hálsmáli og i-cord. Stærð S - XXXL.

DROPS 239-30
DROPS Design: Mynstur sk-181
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-500 g litur 03, grá þoka

Eða notið:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-600-700-800-900 g litur 02, marzipan

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU:
Aukið út til vinstri á EFTIR KANTLYKKJUM:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN KANTLYKKJUM:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU:
Aukið út til vinstri á EFTIR KANTLYKKJUM:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN KANTLYKKJUM:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niðurhandvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir v-hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi.
Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón áður en stykkinu er aftur skipt fyrir klauf. Lykkjur eru prjónaðar í kringum hvorn handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður i-cord kantur í kringum allt hálsmálið.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 34-34-36-36-38-38 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Sky eða DROPS Daisy.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR 4 kantlykkjum í byrjun á umferð og á UNDAN 4 kantlykkjum í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU.
Haldið svona áfram og aukið alveg eins út bæði frá réttu og frá röngu alls 32-34-36-38-38-40 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu eru 98-102-108-112-114-118 lykkjur í umferð.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 13-14-15-15-16-17 cm, mælt yst meðfram handvegi. Setjið lykkjurnar á þráð og geymið stykkið, prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Byrjið við vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð).
Notið hringprjón 4 og prjónið upp 32-34-36-38-38-40 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. það er prjónuð upp 1 lykkja í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki) með DROPS Sky.
Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5-6-6-8-8-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á umferð frá réttu – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, aukið er út á eftir 2 kantlykkjum (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 9-9-10-10-10-10 sinnum, síðan er aukið út í annarri hverri umferð alls 8-8-8-8-9-9 sinnum = 49-51-54-56-57-59 lykkjur. Stykkið mælist ca 23-24-26-28-29-30 cm. Setjið lykkjur á þráð og geymið stykkið þegar síðasta umferð hefur verið prjónuð frá röngu. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

Notið hringprjón 4 og prjónið upp 32-34-36-38-38-40 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5-6-6-8-8-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, aukið er út á undan 2 kantlykkjum (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 9-9-10-10-10-10 sinnum, síðan er aukið út í annarri hverri umferð alls 8-8-8-8-9-9 sinnum = 49-51-54-56-57-59 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Stykkið mælist ca 23-24-26-28-29-30 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 49-51-54-56-57-59 lykkjur frá hægra framstykki, setjið lykkjur frá vinstri öxl á vinstri prjón og prjónið þær í sléttprjóni = 98-102-108-112-114-118 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 25-26-27-29-30-31 cm – mælt yst meðfram handvegi og stillið af að næsta umferð sé frá réttu.
Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið yfir 98-102-108-112-114-118 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-10-12-18-28-38 nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið), setjið 98-102-108-112-114-118 lykkjur frá bakstykki á vinstri prjón og prjónið þær í sléttprjóni, fitjið upp 4-10-12-18-28-38 nýjar lykkjur í lok umferðar = 204-224-240-260-284-312 lykkjur. Setjið prjónamerki mitt í 4-10-12-18-28-38 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorir hlið – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð þegar klaufin er gerð.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm – mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki (að hálsmáli). Nú skiptist stykkið við prjónamerki í hlið, framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig, prjónið 102-112-120-130-142-156 lykkjur fyrir framstykki og setjið þær síðan á þráð.

BAKSTYKKI:
= 102-112-120-130-142-156 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 21-21-21-25-27-29 lykkjur jafnt yfir = 123-133-141-155-169-185 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff þannig, fyrsta umferð er frá röngu: Prjónið 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Prjónið stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá hæsta punkti á öxl.

FRAMSTYKKI:
Setjið 102-112-120-130-142-156 lykkjur frá þræði á hringprjón 3 og prjónið á sama hátt og bakstykki.

VINSTRI ERMI:
Notið hringprjón 4 og DROPS Sky eða DROPS Daisy. Prjónið upp frá réttu 52-54-56-60-62-64 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 28-30-32-32-34-36 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 80-84-88-92-96-100 lykkjur meðfram handvegi.
Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjurnar sem prjónaðar voru upp. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna, þetta er gert til að fá betra form og flíkin passi betur.

Umferð 1 (ranga): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 2 (rétta): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 3 (ranga): Prjónið 22 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 4 (rétta): Prjónið 22 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 5 (ranga): Prjónið 26 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 6 (rétta): Prjónið 26 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 7 (ranga): Prjónið að byrjun umferðar.

Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 4-5-6-7-10-12 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermakúpu) .

Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist alls 6-7-8-9-12-14 cm er lykkjum fækkað undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 2½.-2.-2.-1½.-1½.-1.cm millibili alls 13-14-15-16-16-17 sinnum = 54-56-58-60-64-66 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39 cm í öllum stærðum frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir ermi. Það eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir = 66-68-70-72-76-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 49 cm í öllum stærðum.

HÆGRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur gagnstætt við fyrri ermi, þ.e.a.s. prjónið upp 28-30-32-32-34-36 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 52-54-56-60-62-64 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki).

FRÁGANGUR:
Saumið botninn á handvegi við fram- og bakstykki – sjá teikningu.

I-CORD KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 4 og fitjið upp 3 lykkjur á prjóni með DROPS Sky eða DROPS Daisy, prjónið síðan upp lykkjur í kringum allt hálsmálið, byrjið við aðra axlalínuna frá réttu innan við 1 kantlykkju. Prjónið alls upp ca 138-168 lykkjur. Klippið þráðinn. Nú á að prjóna i-cord samtímis sem lykkjur eru felldar af – passið uppá að prjóna aðeins laust svo að kanturinn dragi ekki stykkið saman.
Prjónið frá réttu þannig: * Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, færið lykkjurnar til baka yfir á vinstri prjón í sömu röð og þær koma, ekki snúa stykkinu. * Prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð. Fellið af síðustu lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu og saumið þessar lykkjur saman við lykkjur sem fitjaðar voru upp í byrjun á umferð – notið lykkjuspor til að saumurinn sjáist sem minnst.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.09.2023
Búið er að bæta við útskýringu á ermakúpu efst á ermi.
Yfirfarið á vefsvæði: 23.02.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð. Leiðrétting í prjónastærð á ermi.

Mynstur

symbols = botninn á handvegi er saumaður þannig: Saumið b við B
symbols = lykkjur fyrir vinstri öxl að framan (d) eru prjónaðar upp meðfram vinstri öxl að aftan (D), lykkjur fyrir hægri öxl að framan (e), eru prjónaðar upp meðfram hægri öxl að aftan (E)
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Janina Ahner wrote:

Liebes Team, wenn man den Ärmel zur Runde schließt, soll man tatsächlich Nadelstärke 5 nehmen, wo man doch mit Nr. 4 begonnen hat und bei dem Bündchen Nr. 3 nimmt. Danke und liebe Grüße Janina

15.02.2024 - 22:27

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ahner, ja genau, danke für den Hinweis, eine Korrektur erfolgt. Viel Spaß beim stricken!

16.02.2024 - 07:50

country flag Małgorzata wrote:

Witam, nie mogę zrozumieć nabierania oczek na rękaw, od dołu pod pachą do markera którym wyznaczyliśmy linie ramienia 56 oczek i dalej 32 oczka ,czy rzędy skrócone będą równe? na tyle i przodzie robótki?

20.01.2024 - 14:53

DROPS Design answered:

Witaj Małgorzato, rzędy skrócone będą równe i symetryczne, ponieważ będziesz je odliczać od markera, który umieścisz na środku na górze rękawa, czyli za 44 oczkami, licząc od początku okrążenia (środek pod spodem rękawa). Pozdrawiamy!

22.01.2024 - 09:04

country flag Ines wrote:

Guten Tag, wie kann ich die benötigte Menge Wolle ausrechnen, wenn mein Pullover 51 cm breit und 61 cm hoch werden sollte und ich ihn in Cotton Merino stricken möchte. Vielen Dank

23.11.2023 - 11:05

DROPS Design answered:

Liebe Ines, leider haben wird nur die Garnmenge für die passenden Maßen in der Maßskizze; aber gerne kann Ihnen Ihr DROPS Laden damit (auch per Telefon oder per E-Mail) weiterhelfen - Viel Spaß beim stricken!

23.11.2023 - 15:38

country flag Henny wrote:

Moeten er bij de boord aan het voorpand ook steken gemeerderd worden?

06.10.2023 - 19:35

DROPS Design answered:

Dag Henny,

Ja, je breit het voorpand op dezelfde manier als het achterpand, dus je meerdert ook steken voordat je de boord breit.

08.10.2023 - 16:32

country flag De Candia Fernanda wrote:

Perché secondo le istruzioni per la manica si utilizzano ferri da 5 mm quando tutto il resto è lavorato con i 4 mm? non si parla di ferri 5 nella parte che indica l occorrente da usare. Gradirei chiarimenti grazie

05.10.2023 - 18:46

DROPS Design answered:

Buonasera Fernanda, abbiamo inviato la sua segnalazione al settore design: se ci dovessero essere delle correzioni le troverà direttamente online. Buon lavoro!

05.10.2023 - 21:02

country flag Kristin wrote:

Deep Breath Blouse

21.01.2023 - 11:06

country flag McKenna wrote:

Walk Along the Beach Jumper

20.01.2023 - 22:05

country flag Jenny Peters wrote:

Everyday top

19.01.2023 - 21:13

country flag Perfect Summernight wrote:

Perfect summernight

19.01.2023 - 09:41

country flag Alina Baltariu wrote:

Soft clouds

17.01.2023 - 22:23