DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Climbing Rose Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni og með v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.

DROPS 240-6
DROPS Design: Mynstur ml-093
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
250-250-300-300-350-400 g litur 22, sæt orkidé

DROPS TALA NR 602: 3-3-3-4-4-4 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Hnappagöt eru prjónuð í hægri kanti að framan, með byrjun frá réttu þannig: Prjónið sjöttu og sjöundu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
XS: 8, 16 og 24 cm.
S: 8, 16 og 25 cm.
M: 8, 17 og 26 cm.
L: 7, 14, 21 og 28 cm.
XL: 7, 14, 21 og 28 cm.
XXL: 7, 15, 23 og 30 cm.

ÚRTAKA (á við um v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið 13 kantlykkjur að framan, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið þar til 16 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 13 kantlykkjur að framan eins og áður.

ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp í stykkjum og saumuð saman í lokin.
Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveginn. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 80-88-92-100-108-120 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað fram og til baka í stroffprjóni þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 12-14-14-16-18-22 lykkjur jafnt yfir = 68-74-78-84-90-98 lykkjur. Síðan er prjónað í sléttprjóni með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 2-3-4-6-7-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-68-70-72-76-80 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af miðju 12-14-14-16-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 22-23-24-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 52-56-60-64-68-72 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff, frá réttu og mitt að framan: 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 8 cm, JAFNFRAMT er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 12 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 38-42-46-50-54-58 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 5-6-8-9-10-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 1 lykkja í garðaprjóni = 47-50-52-55-58-62 lykkjur.

Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir 12 kantlykkjur að framan, sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni í hlið – munið eftir HNAPPAGAT. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli, er fellt af fyrir handveg, lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram.
V-HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í öðrum hverjum cm alls 10-11-11-12-12-12 sinnum – lestu ÚRTAKA.
HANDVEGUR.
Jafnframt því þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 2-3-4-6-7-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu. Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handveg eru 35-36-37-37-39-41 lykkjur í umferð. Prjónið kantlykkjur að framan og sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni að hlið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm.
Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 22-23-24-24-26-28 lykkjur fyrir öxl og prjónað er áfram yfir kant að framan eins og áður í ca 8-9-9-10-10-10 cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 52-56-60-64-68-72 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff, frá réttu og frá hlið: 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 38-42-46-50-54-58 lykkjur, JAFNFRAMT því sem fækkað er um 5-6-8-9-10-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12 lykkjur, 1 lykkja í garðaprjóni = 47-50-52-55-58-62 lykkjur.

Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni í hlið, sléttprjóni og (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir 12 kantlykkjur að framan og 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli, fellið af fyrir handveg, lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram.
V-HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í öðrum hverjum cm alls 10-11-11-12-12-12 sinnum – lestu ÚRTAKA.
HANDVEGUR.
Jafnframt því þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 2-3-4-6-7-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu. Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handveg eru 35-36-37-37-39-41 lykkjur í umferð. Prjónið kantlykkjur að framan og sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni að hlið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm.
Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 22-23-24-24-26-28 lykkjur fyrir öxl og prjónað er áfram yfir kant að framan eins og áður í ca 8-9-9-10-10-10 cm. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma þannig að saumurinn verði flatur og fallegur.

ERMI:
Notið hringprjón 6 og DROPS Melody. Prjónið upp frá réttu 50-53-56-59-62-64 lykkjur – með byrjun frá botni á handveg. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin er mæld frá þessu prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-1-2-4-5-6 cm frá prjónamerki.
Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 6 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferðina við prjónamerkið og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4-3-3-1-1-1 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 5-4½-4½-4-3½-3½ cm millibili alls 7-8-8-9-10-10 sinnum = 36-37-40-41-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 43 cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-11-12-11-14-12 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 51 cm frá prjónamerki. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauminn innan við 1 kantlykkju. Saumið saman kant að framan mitt að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.04.2023
Ný mynsturteikning fyrir ermakúpu.

Mynstur

symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Veerle wrote:

Beste, de panden worden van onder naar boven gebreid en de mouwen van boven naar onder? Dit geeft toch een ander beeld van het stekenpatroon ? Is dit de bedoeling ?Veerle

17.04.2024 - 14:45

DROPS Design answered:

Dag Veerle,

Nee hoor, je kunt gewoon tricotsteek van boven naar onder breien, dat ziet er hetzelfde uit als wanneer je tricotsteek van onder naar boven breit.

17.04.2024 - 21:49

country flag Veerle wrote:

Beste, de panden worden van onder naar boven gebreid en de mouwen van boven naar onder? Dit geeft toch een ander beeld van het stekenpatroon ? Is dit de bedoeling ?\r\nVeerle

31.03.2024 - 16:50

country flag Kitter wrote:

DROPS Design answered: Hej, Du strikker masker op der fra hvor du lukkede masker af til ærmegab og strikker frem og tilbage de første 1-1-2-4-5-6 cm (alt efter hvilken størrelse du strikker) :) spørgsmål: Vil det så sige at de 6 masker jeg lukkede af til ærmegab skal være med i de masker jeg strikker op❓(undskyld at jeg åbenbart både skal have det skåret ud i pap og ind med skeer)

16.01.2024 - 15:47

DROPS Design answered:

Hej Kitter, nej, de 6 masker du lukkede af til ærmegab, skal du ikke strikke op i, dem syr du de første cm af ærmet fast i bagefter :)

17.01.2024 - 13:12

country flag Kitter wrote:

Når jeg tager masker op til ærmer, skal jeg så tage op helt ude fra aflukningen til ærmegab, eller skal det være indenfor❓

15.01.2024 - 14:31

DROPS Design answered:

Hej, Du strikker masker op der fra hvor du lukkede masker af til ærmegab og strikker frem og tilbage de første 1-1-2-4-5-6 cm (alt efter hvilken størrelse du strikker) :)

16.01.2024 - 14:27

country flag Marjorie wrote:

How do i convert patern from circular knitting needles to straight one's

02.09.2023 - 08:43

DROPS Design answered:

Dear Marjorie, you can read here how to adapt a pattern for straight needles: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=19. Happy knitting!

03.09.2023 - 20:15

country flag Catherine Randall wrote:

On the climbing rose cardigan, I have started the sleeves, I am at the point of knitting in a round, but am not sure if i need to purl or knit, I am on the wrong side? can you please help?

08.07.2023 - 19:44

DROPS Design answered:

Dear Catherine, after joining the sleeves you will be working in the round, which is usually the right side unless otherwise stated. Since you work in stocking stitch you will knit all rounds. Happy knitting!

10.07.2023 - 17:05

country flag Catherine Randall wrote:

I am sorry but I do not understand on the climbing rose cardigan, to knit the sleeves it says pick up 56 stitches from the right side from the bottom of the armhole, I have lots more stitches than that? could u explain what I need to do please?

28.06.2023 - 15:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Randall, from the bottom of armhole through the seam until the bottom of armhole on the other side you should have 40 cm (size L), with a tension of 14 sts = 10 cm, you should have then 40 x 1,4 = 56 stitches along the armhole. In this video we show how to pick up stitches, it might help you. If you have some more stitches you can also decrease on first row (purling 2 stitches together evenly spaced). Happy knitting!

28.06.2023 - 16:29

country flag RIVET Danielle wrote:

Bonjour, Dans le modèle DROPS 240-6 Climbing rose cardigan , vous mentionnez "1 côte mousse = tricoter 2 rangs endroit" Je ne comprends pas bien, est-ce que cela veut dire qu'il faut toujours commencer et terminer les rangs par une maille endroit ?? Merci pour votre réponse

07.05.2023 - 15:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rivet, pour tricoter au point mousse, il faut tricoter à l'endroit tous les rangs; lorsque vous tricotez 1 maille lisière au point mousse, vous tricotez cette maille à l'endroit tous les rangs (sur l'endroit et sur l'envers). Dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter 1 m lisière au point mousse de chaque côté. Bon tricot!

08.05.2023 - 08:12

country flag Thérèse wrote:

Je ne comprends pas pourquoi vous dites de coudre a contre A puisque les mailles des manches ont été relevées, normalement il n'y a pas de couture à cet endroit ? ? Ou alors je n'ai pas compris quelque chose ..? Merci d'avance de votre réponse

15.04.2023 - 14:13

DROPS Design answered:

Bonjour Thérèse, vous avez raison, le schéma doit être changer ici, la partie A et a correspondent aux mailles relevées, vous n'avez que la partie B à assembler contre b (les 1-1-2-4-5-6 premiers cm de la manche tricotés en rangs). Bon tricot!

17.04.2023 - 08:58

country flag Mieke Kouters wrote:

Sorry, foutje van mij, na mindering zijn het 55 steken 🙄

19.03.2023 - 16:42