Mags skrifaði:
Ignore my question just now. I’ve worked it out.
25.11.2024 - 23:49
Mags skrifaði:
A1 pattern increase row - is this the final row in the repeat?
25.11.2024 - 22:36DROPS Design svaraði:
Hi Mags, Yes, the increases are worked on the final row in diagram A.1, marked with an arrow. Happy knitting!
26.11.2024 - 06:51
Béatrice skrifaði:
Bonjour, que signifie " augmenter x mailles à intervalles réguliers AU TOUR AVEC LA FLÈCHE ? Merci pour votre réponse.
09.10.2024 - 20:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Béatrice, lorsque vous tricotez ce tour avec une flèche dans les diagrammes, augmentez le nombre de mailles indiqué pour la taille à intervalles réguliers - cf cette leçon pour savoir comment augmenter. Bon tricot!
10.10.2024 - 08:59
Christine skrifaði:
I am dividing for the sleeves and body but do not understand what is meant by “cast on 8 stitches…(in side under sleeve) and I cannot find a video to show this. Please can you help?
29.09.2024 - 23:43DROPS Design svaraði:
Dear Christine, simply cast on 8 stitches on the needles. These stitches are the side under sleeve or armhole. You can see an example here: https://www.garnstudio.com/video.php?id=94&lang=en. Happy knitting!
29.09.2024 - 23:56
Cati Corbalan skrifaði:
Gracias por las explicaciones tan claras. Gracias a garnstudio puedo tejer sin dificultad.
23.09.2024 - 14:18
Valentina skrifaði:
Buongiorno! Innanzitutto grazie per mettere a disposizione questi modelli fantastici, ho già completato questo modello da donna e vorrei farne uno uguale per il mio bimbo in taglia 6/9 mesi, purtroppo però non c'è questa taglia per questo modello specifico. Avete dei suggerimenti sulla lavorazione e le misure? Grazie
14.11.2023 - 14:56DROPS Design svaraði:
Buomasera Valentina, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
15.11.2023 - 16:23
Ute Steinkirchinger-Ellßel skrifaði:
Hallo, Die Größenangaben erscheinen mir merkwürdig, wo finde ich Grössentabellen?Im xmas Sweater ist110/116 5/6 Jahre! Meine Enkelin(4,5J)trägt 122/128,da wäre sie lt.Angabe 9/10J alt..Heute kam die Wolle,nun bin ich verwirrt!LG Ute Steinkirchinger-Ellßel
24.10.2023 - 13:55DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Steinkirchinger-Ellßel, am besten messen Sie dann einen ähnlichen Pullover, der sie gerne trägt, und vergleichen Sie mit den Maßen in der Maßskizze - mehr über Größen lesen Sie hier. Viel Spaß beim stricken!
24.10.2023 - 17:07
Dominique skrifaði:
En taille 3/4 ans je n'ai pas fini le jaquard quand il faut séparer les manches. Pai ailleurs il y a un décalage entre les dernières augmetations (216 mailles) et les séparations manches corps ou vous indiquer 232 mailles pour cette meme taille. Merci
08.04.2023 - 13:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Dominique, on doit bien avoir 216 mailles après A.3 en taille 3/4 ans (2ème taille) - si votre tension en hauteur n'est pas juste, il vous faudra ajuster les augmentations pour retomber au bon nombre de mailles après la division. Bon tricot!
11.04.2023 - 12:16
Elena skrifaði:
Le 8 maglie che si aggiungono sotto la manica devono essere lavorate con il grigio chiaro quindi su queste maglie non verrà il motivo. Il motivo deve venire solo sullo sprone davanti e dietro? Dalle foto non si vede se il motivo si interrompe sotto le braccia. Mi potete dare un chiarimento? Grazie
24.11.2022 - 23:01DROPS Design svaraði:
Buongiorno Elena, deve lavorare in grigio chiaro le maglie che non rientrano nelle ripetizioni. Buon lavoro!
24.11.2022 - 23:47
Elena skrifaði:
Sto facendo la taglia 5/6 anni. Quando lo sprone misura 16 cm il mio lavoro sta a 4 giri dalla fine di A3, quindi non ho ancora finito con gli aumenti. Come faccio per la divisione per le maniche e il corpo? Mi da numeri di maglie che non posso rispettare poiché dovrò fare gli aumenti previsti per A3. AIUTOOOOO grazie
17.11.2022 - 20:13DROPS Design svaraði:
Buonasera Elena, il suo campione corrispondeva a quello indicato? Buon lavoro!
24.11.2022 - 22:24
Christmas Time Sweater#christmastimesweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og marglitu mynstri með jólasveinum, jólatrjám og hjörtum. Stærð 2 – 14 ára. Þema: Jól.
DROPS Children 44-14 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-2: Ef óskað er eftir meira mynstri á fram- og bakstykki og ermum, er hægt að halda áfram með mynsturteikningu í röð að eigin ósk, en munið eftir að þetta kemur til með að hafa áhrif á efnismagn. Á ermum er mynd staðsett mitt á ermi og það er talið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum ljós grár, prjónið lykkjuna með prjónamerki með litnum ljós grár, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum ljós grár (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-84-88-88-92 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum skógargrænn í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) jafnframt því sem prjónaðar eru rendur þannig: Prjónið 2 umferðir með litnum skógargrænn, 2 umferðir með litnum ljós grár, 4 umferðir með litnum skógargrænn, haldið síðan áfram með stroff með litnum ljós grár þar til kanturinn í hálsmáli mælist 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð með litnum ljós grár þar sem aukið er út um 24-26-28-28-28-28-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 100-106-112-112-116-116-122 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið við miðju að framan. Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón með litnum ljós grár. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykki mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm frá prjónamerki við hálsmál, aukið út um 20-22-24-24-28-28-30 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 120-128-136-136-144-144-152 lykkjur. Prjónið nú mynstur jafnframt því sem haldið er áfram með útaukninu eins og útskýrt er að neðan – sjá LEIÐBEININGAR-1 og MYNSTUR í útskýringu að ofan. A.1: Prjónið A.1 alls 15-16-17-17-18-18-19 sinnum hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 40-40-48-48-48-56-56 lykkjur jafnt yfir = 160-168-184-184-192-200-208 lykkjur. A.2: Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka í þinni stærð, prjónið A.2 alls 20-21-23-23-24-25-26 sinnum hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 32-32-32-32-40-40-48 lykkjur jafnt yfir = 192-200-216-216-232-240-256 lykkjur. A.3: Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 alls 24-25-27-27-29-30-32 sinnum hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 16-16-16-24-24-24-24 lykkjur jafnt yfir = 208-216-232-240-256-264-280 lykkjur. A.4: Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.4 alls 26-27-29-30-32-33-35 sinnum hringinn á berustykki. Haldið áfram með mynstur – jafnframt skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19-20 cm frá prjónamerki við hálsmál. Öll útaukning hefur nú verið gerð til loka, en mynstrið er ekki tilbúið enn og er prjónað áfram á fram- og bakstykki og ermum. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 30-32-34-36-38-40-42 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 44-44-48-48-52-52-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn með litnum ljós grár (í hlið undir ermi), prjónið 60-64-68-72-76-80-84 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 44-44-48-48-52-52-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn með litnum ljós grár (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 30-32-34-36-38-40-42 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki). Klippið þráðinn. Fram- og bakstykkið og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-144-152-160-168-176-184 lykkjur. Byrjið umferð við aðra hlið á stykki – mitt í 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi og haldið áfram með mynstri frá berustykki – mynstureining (A.4) kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hlið undir ermum, en prjónið mynstur eins langt og hægt er inn að hvorri hlið undir ermum og prjónið þær lykkjur sem eftir eru undir ermi með litnum ljós grár. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.5 alls 17-18-19-20-21-22-23 sinnum hringinn á berustykki. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár – sjá LEIÐBEININGAR-2. Prjónið þar til stykkið mælist 15-18-21-24-25-26-27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-16-16-16-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 148-160-168-176-188-196-204 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-44-48-48-52-52-56 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum ljós grár = 52-52-56-56-60-60-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 5. af 8 nýjum lykkjum undir ermi (mitt undir ermi) og setjið 1 prjónamerki í 27.-.27.-29.-29.-31.-31.-33. lykkju í umferð (mitt á ermi). Prjónamerki mitt undir ermi á að nota þegar fækka á lykkjum undir ermi og prjónamerkið mitt á ermi á að nota til að telja út hvar mynstrið á að byrja. Byrjið umferð við prjónamerki mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki – mynstureining (A.4) kemur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er mitt undir ermi og prjónið þær lykkjur sem eftir eru undir ermi með litnum ljós grár. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.5 – teljið út frá miðjulykkju á ermi hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi – lykkja með prjónamerki í á að passa við lykkju merkta sem miðjulykkja í mynsturteikningu. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár – sjá LEIÐBEININGAR-2. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-3-2-3-2½-3½-3½ cm millibili alls 4-3-4-3-4-3-4 sinnum = 44-46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 17-20-24-29-32-36-40 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 21-24-28-33-36-40-44 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #christmastimesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 44-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.