Christmas Time Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og marglitu mynstri með jólasveinum, jólatrjám og hjörtum. Stærð 2 – 14 ára. Þema: Jól.
DROPS Children 44-17 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-2: Ef óskað er eftir meira mynstri á fram- og bakstykki og ermum, er hægt að halda áfram með mynsturteikningu í röð að eigin ósk, en munið eftir að þetta kemur til með að hafa áhrif á efnismagn. Á ermum er mynd staðsett mitt á ermi og það er talið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum ljós grár, prjónið lykkjuna með prjónamerki með litnum ljós grár, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum ljós grár (2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 6½-7-8-8½-9-8-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-96-100-100-104 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum skógargrænn í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff fram og til baka jafnframt því sem prjónaðar eru rendur þannig: Prjónið 1 umferð með litnum skógargrænn, 2 umferðir með litnum ljós grár, 4 umferðir með litnum skógargrænn, síðan heldur stroffið áfram með litnum ljós grár þar til kanturinn í hálsmáli mælist 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan -sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu með litnum ljós grár þar sem aukið er út um 22-24-26-26-26-26-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 110-116-122-122-126-126-132 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í sléttprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið). Setjið 1 prjónamerki eftir kant í miðju að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykki er mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum ljós grár og með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykki mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm frá prjónamerki við hálsmál, aukið út um 21-23-25-25-29-29-31 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 131-139-147-147-155-155-163 lykkjur. Stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið nú mynstur jafnframt því sem haldið er áfram með útaukningar eins og útskýrt er að neðan – sjá LEIÐBEININGAR-1 og MYNSTUR í útskýringu að ofan. Allur kanturinn að framan er prjónaður með litnum ljós grár. A.1: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (séð frá réttu), prjónið síðan A.1 alls 15-16-17-17-18-18-19 sinnum (mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu), endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATH: Þegar prjónað er frá réttu er A.1 endurtekið eftir kant að framan þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, síðan er fyrsta lykkjan í A.1 prjónið þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins áður en endað er með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 40-40-48-48-48-56-56 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 171-179-195-195-203-211-219 lykkjur. A.2: Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka í þinni stærð, prjónið A.2 frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.2 (séð frá réttu), prjónið A.2 alls 20-21-23-23-24-25-26 sinnum, endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 32-32-32-32-40-40-48 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 203-211-227-227-243-251-267 lykkjur. A.3: Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan, prjónið A.3 alls 24-25-27-27-29-30-32 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.3 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 16-16-16-24-24-24-24 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 219-227-243-251-267-275-291 lykkjur. A.4: Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.4 frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.4 (séð frá réttu), prjónið A.4 alls 26-27-29-30-32-33-35 sinnum, endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – jafnframt skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19-20 cm frá prjónamerki við hálsmál. Útaukningar hafa núna verið gerðar til loka, en mynstrið er ekki tilbúið enn og er prjónað áfram á fram- og bakstykki og ermum. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 35-37-39-41-43-45-47 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 44-44-48-48-52-52-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn með litnum ljós grár (í hlið undir ermi), prjónið 61-65-69-73-77-81-85 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 44-44-48-48-52-52-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn með litnum ljós grár (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 35-37-39-41-43-45-47 lykkjur eins og áður (framstykki). Klippið þráðinn. Fram- og bakstykkið og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 147-155-163-171-179-187-195 lykkjur. Haldið áfram með mynstur frá berustykki með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – mynstureining (A.4) kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hlið undir ermum, en prjónið mynstur eins langt og hægt er inn að hvorri hlið undir ermum og prjónið þær lykkjur sem eftir eru undir ermi með litnum ljós grár. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR-2. Prjónið þar til stykkið mælist 15-18-21-24-25-26-27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 13-17-17-17-21-21-21 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 160-172-180-188-200-208-216 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-44-48-48-52-52-56 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum ljós grár = 52-52-56-56-60-60-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 5. af 8 nýjum lykkjum undir ermi (mitt undir ermi). Prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki – mynstureining (A.4) kemur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er mitt undir ermi og prjónið þær lykkjur sem eftir eru undir ermi með litnum ljós grár. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár – sjá LEIÐBEININGAR-2. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-6-6-9-8-11-9 cm millibili alls 4-3-4-3-4-3-4 sinnum = 44-46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 16-20-24-29-32-36-40 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-2-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 20-24-28-33-36-40-44 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Toni Caldwell wrote:
Hey, i am new to knitting clothes and this is my first time knitting a cardigan. i was wondering what a band stitches are? Thank you Toni
20.07.2023 - 21:30DROPS Design answered:
Hi Toni, band stitches are front borders. In this pattern there are 5 mid front stitches worked in garter stitch. Happy knitting!
20.07.2023 - 22:47Valérie wrote:
Bonjour, J'ai le même problème que Chiara. Je n'ai pas fini le motif A3 et je suis à 15 cm (2/3 ans).... Comment puis je faire ?
16.11.2022 - 16:53DROPS Design answered:
Bonjour Valérie, votre tension n'est probablement pas juste en hauteur, vous devez compenser en tricotant les diminutions plus tôt; ou bien vous pouvez aussi terminer A.3 comme indiqué avant de diviser et alors l'empiècement sera plus long que les 15 cm prévus en taille 3/4 ans, vous pouvez aussi augmenter entre les sapins, autrement dit avant la fin de A.3, attention alors à bien suivre les motifs pour qu'ils soient identiques. Bon tricot!
17.11.2022 - 09:49Maria Chiara Campanini wrote:
Lo sprone misura 15 cm dal collo. Ma manca un giro di aumenti. Come faccio ?
01.11.2022 - 20:10DROPS Design answered:
Buonasera Maria Chiara, deve arrivare con il numero di maglie corretto prima della divisione: ci dev'essere stato un cambio di tensione durante la lavorazione rispetto al campione. Buon lavoro!
02.11.2022 - 18:03Chiara Campanini wrote:
Non ho ancora finito gli aumenti e il motovo A3 e lo sprone misura già 15 cm. Ho 209 punti. Come li divido? Sono pochi per taglia 3/4 anni ? Il campione era corretto con ferri 4 in altezza
31.10.2022 - 14:36DROPS Design answered:
Buonasera Chiara, lo sprone ora misura 15 cm dal segnapunti posizionato alla fine del collo? Buon lavoro!
31.10.2022 - 21:10